Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2017, Síða 30

Bjarmi - 01.06.2017, Síða 30
Toyohiko Kagawa - „heilagur Fransis frá Kobe í Japan RAGNAR GUNNARSSON Meðan á dvöl minni í Kobe í Japan stóð í lok mars sl. kynntu norskir kristniboðar mig fyrir Kagawa - sem reyndar lést árið 1960. En minning hans lifir. M.a. sá ég kvikmynd sem gerð var um ævi hans og eins heimsótti ég safn í borginni sem er helgað minningu hans. ALHLIÐA UMBÓTASINNI Kagawa kom víða við, hann starfaði sem prédikari eða prestur, kirkjulegur siðbótamaður, verkalýðsleiðtogi, jafnaðar- sinni, samvinnumaður og trúr lærisveinn Jesú Krists. Barátta hans fyrir félagslegu réttlæti minnir á störf dr. Marteins Lúthers Kings og Móður Teresu. Þrátt fyrir þrekvirki hans er nafn hans nær óþekkt á Vesturlöndum og þetta var í fyrsta sinn sem ég minnist þess að hafa heyrt hans getið. Saga hans er stórmerk og vel þess virði að rifja hana lítillega upp hér. Toyohiko Kagawa fæddist árið 1888 í Kobe í Vestur-Japan, sonur auðugrar fjöl- skyldu. Aðstæður hans breyttust til muna þegar hann varð munaðarlaus fjögurra ára og flutti til stjúpmóður sinnar. Aftur flutti hann til frænda síns 15 ára gamall þegar fjölskylda hans varð gjaldþrota. Frændi hans kostaði menntun hans og hvatti hann til að læra ensku af tveimur kristniboðum öldungakirkjunnar í Ameríku. Á þeim tíma mætti hann Jesú Kristi í kærleika og gestrisni kristniboðanna. Þegar hann var skírður henti frændi hans honum út en honum var tekið opnum örmum af kristniboðunum, Logan og Myers sem studdu hann meðan þeir lifðu. NÁMSÁRIN Kagawa var frá unga aldri talinn miklum gáfum gæddur. Hann fór í háskólanám í Tokyó og síðan guðfræðinám í Kobe og útskrifaðist árið 1912. Á þeim tíma vann hann mikið hjálparstarf í fátækrahverfum Kobe. Við þau störf kynntist hann Haru Shiba sem varð eiginkona hans árið 1913. Árið eftir lá leið hans til Guðfræðiskólans í Princeton þar sem hann var við nám næstu þrjú árin. Fyrir utan guðfræðina las hann m.a. heimspeki, Ijóða- og bókmenntafræði, viðskiptafræði og líffræði. Hann kynnti sér vel uppbyggingu og félagslega innviði bandarísks samfélags. Segja má að það hafi orðið kveikjan að uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar og samvinnuhreyfingarinnar í Japan. Hann hélt síðar í fyrirlestrarferðir, bæði til Evrópu og Ameríku og gaf út fyrirlestra sína sem „Bróðurlega viðskiptafræði“. GRUNDVÖLLURINN: KRISTUR Boðun kristinnar trúar var áberandi í lífi Kagawa. Kveikjan að því að starfa sem prédikari var þegar hann var vitni að því hvernig fátækur prestur þjónaði hinum fátæku. Eitt sumarið meðan hann var við nám í Kobe prédikaði hann dag eftir dag í 40 daga en féll í yfirlið þegar þeirri síðustu var lokið. Var hann nánast búinn að ganga frá sér og orðinn mjög veikur. Hann upplifði kraftaverk á dánarbeði sínum og sneri aftur til fyrri þjónustu. Sjálfur bjó hann í 30 | bjarmi | júní 2017

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.