Bjarmi - 01.06.2017, Síða 36
E/sfa hús biblíubúðanna í Hiruzen
iMi
fólk verður kristið, við vonum að það gerist
þarna líka.
Hverju öðru hefur starfið skilað?
Það varðar mestu að Jesús er frelsari og
Guð vill að við játum hann sem frelsara
og Drottin. Hann hefur tekið á sig sekt
og synd okkar. Hann gefur eilíft líf, við
þurfum ekki að óttast dauðann og þaðan
af síður að óttast forfeðraandana lengur.
Það sem þjakaði okkur áður og rændi
lífsgleðinni er nú horfið. Alls staðar þar sem
fagnaðarerindið er boðað og tekið við því
verður gleðin hvað mest yfir því að Jesús
hefur gefið okkur nýtt líf í samfélagi við
sig, eilfft líf. Við þurfum ekki að lifa í ótta
og óvissu. Jesús hefur sigrað dauðann og
vald hins illa. Við þurfum að varðveitast í
þessari trú og þess vegna þurfum við líka
að huga að hjörtum okkar, að þar sé rými
fyrir Jesú.
Trúin hefur víðtæk áhrif. Þetta sjáum
við til dæmis í því að umskurður stúlkna
er næstum úr sögunni á þeim svæðum
sem kirkjan starfar, en er enn vandamál
þar sem starfið er nýtt og heyrir undir
útbreiðsluverkefnið. Þessi breyting er
ótrúleg, ekki síst miðað við það hve
útbreiddur og mikilvægur umskurður
stúlkna var í samfélaginu.
Eins sjáum við mikla breytingu á
fjölskyldulífinu og stöðu kvenna. Áður voru
konurnar álitnar vera eign karlsins, enda
greiddir fyrir þær allt að 30 nautgripir til
fjölskyldunnar þegar gifting var ákveðin.
Konur voru látnar þræla, bera við og vatn,
annast og bera börnin meðan því var sinnt
og eins að sjá um alla matseld og hafa
matinn tilbúinn fyrir karlinn á réttum tíma.
Konur fóru fyrstar á fætur og síðastar að
sofa. Karlarnir höfðu það náðugt og litu
eftir nautgripunum, eða létu krakkana um
það, en héngu í skugga trjánna, hvíldu sig
og ræddu málin.
Kristnir karlar fara ekki svona með
konur sínar heldur vinna hjónin saman,
ræða saman og deila ábyrgð og skyldum
á verkefnum heimilisins. Að sjálfsögðu
er þetta ekki orðið sama jafnrétti og
hér en breytingarnar á stuttum tíma eru
ótrúlegar og sterkur vitnisburður um mátt
fagnaðarerindisins.
Hvað getur þú sagt okkur um starf
kirkjunnar í dag eftir tæplega 40
ára kristniboð og fræðslustarf í
héraðinu?
Starfið hefur borið mikinn ávöxt. Það er
Guðs verk sem hann hefur unnið vegna
trúfesti ykkar sem hafið sent okkur
kristniboða. Ég áttaði mig á því þegar
ég kom hingað að kristniboðarnir hafa
vissulega lagt á sig mikið, farið langa leið
og yfirgefið ýmis þægindi til þess að koma
fagnaðarerindinu alla þessa leið til okkar.
Við erum óendanlega þakklát fyrir það og
þeim sem hafa gefið fjármuni til starfsins
og beiðið fyrir því til þess að þetta gæti
gerst. Ég er ekki viss um að fólk viti hvað
þetta hefur breytt miklu og verið mikilvægt
fyrir okkur. Án þessa starfs ættum við ekki
Jesú. Og ég persónulega veit ekki einu
sinni hvernig líf mitt væri eða hvort ég væri
sjálfur á lífi.
í dag starfar kirkjan á 250 stöðum.
Fimmtíu af þessum söfnuðum eru ávöxtur
útbreiðsluverkefnisins á liðnum 15 árum.
Söfnuðirnir skiptast í 40 sóknir með 5-8
söfnuðum í hverri sókn. 27 prestar eru að
störfum, um 100 prédikarar og tæplega
20 djáknar. Þetta fólk heldur starfinu
gangandi ásamt fjölda sjálfboðaliða, bæði
í safnaðarstjórnum og öðrum verkefnum.
Samtals eru rúmlega 12 þúsund
manns í kirkjunni og góður hópur er á
skírnarnámskeiðum og verður skírður um
páskana.
Þú hefur reynt varðveislu Guðs í lífi
þínu?
Já, oft og mörgum sinnum hefur Guð
varðveitt mig frá illu. Óvinur sálarinnar
reynir að ráðast að þeim sem vinna að
36 | bjarmi | júní 2017