Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.06.2017, Page 41

Bjarmi - 01.06.2017, Page 41
Guðs. Drottinn Jesús Kristur ætlaði sér að sanna óþrjótandi þolinmæði sína og kærleika á mér á undursamlegan hátt, kærleika til allra annarra sem síðar myndu setja traust sitt á hann, traust til eilífs lífs. Já, og slást í för með Guði sem er eilífur konungur.1 í upphafi, þegar Jesús var að móta mig, sagði hann við mig: „Lækkaðu róminn enn meira svo að þú heyrir aðeins Mína rödd; hneigðu höfuð þitt þannig að Mitt höfuð sjáist; lægðu sjálfa þig svo að Ég geti lyft þér upp til Mín. “ 26.9.91 Ég þakka Krísti fyrir að hafa gefið mér styrk og þrautseigju til að halda áfram að þjóna honum. EINING KIRKJUNNAR Fyrsta spumingin sem Jesús bar upp við mig var: „Flvort húsið er mikilvægara, húsið þitt eða húsið Mitt?“ Svar mitt var: „Flúsið Þitt, Drottinn," það er Kirkjan. Hann sagði: „Endurlífgaðu húsið Mitt, fegraðu húsið Mitt, og sameinaðu húsið Mitt...“ Þannig beindist opinberun Guðs þegar í upphafi að málefni sem ekki bara varðar minn persónulega trúarþroska heldur á erindi við heiminn allan og Kirkju Krists sérstaklega. Aftur spurði ég Guð: „Hver er ég að flytja þennan boðskap áfram sem ekkert kann og veit um kristna trú?“ En með innri eyrum mínum heyrði ég skýrt og greinilega að einmitt ég ætti að fara og segja frá. Hér er dæmi um nýleg skilaboð sem sýna hversu mikilvægt þetta er: „Til þess að þið getið sameinast kringum eitt altari og átt saman hlutdeild í líkama Mínum verðið þið að læra að elska, því að þið vitið öll að einn erlíkaminn og einn andinn, einn er Drottinn, ein trú, ein skírn, einn Guð og Faðir allra, sem er yfir öllum með öllum og í öllum2 - og þið hryggið anda Minn með því að halda áfram að vera dreifð og ófús að gefa hvert öðru hlutdeild í sakramentum Mínum og leyndardómi Heilagrar kvöldmáltíðar, vitandi þetta; (...) því hversu oft hef Ég ekki sagt að Ég sé einn Guð?“ 2.6.15 „Ég býð ykkur öllum í dag að biðja um einingu; til að eining geti orðið þurfið þið að elska hvert annað, forsenda einingar er að þið séuð auðmjúk og hlýðin.“ 8.1.91 En ástina vantar. Eining verður aðeins möguleg þegar kirkjurnar læra að elska Jesú Krist heils hugar. AÐ GEFA GUÐI HJARTA SITT „Hvorki fórnir né bænavökur, erfiðisvinna né hvers kyns lofsamleg verk Mér til heiðurs gleðja Mig jafnt og sál sem kemur með hjarta sitt í hendi sinni og býður Mér það og gerir þannig ást sína á Mér kunna, jafnvel þó að það hljómi eins og hjal barnsins..." 9.9.97 Þannig er það, því að Guð sér og les hjarta þitt og huga.3 Hann gleðst yfir einíaldleika, auðmýkt og barnslegri trú. Hann gleðst þegar við erum eins og börn því að, eins og hann sagði mér, börn leyfa honum að móta sig til þess sem hann vill að þau séu. „Mitt ríki er gefið fátækum í anda og þeim sem hrópa: „Guð, miskunna þú mér, syndaranum." Mitt ríki er aðeins gefið börnum og lítillátum, þeim sem kunna að hrópa: „Abba!“4 19.6.95 „Sá sem finnur Mig finnur lífið5, sæll er sá maður sem uppgötvar Mig6 og lærir að þekkja Mig; nú hef Ég gefið þér brauð lífsins til þess að á þeim degi sem þú stendur frammi fyrir hásæti Mínu getir þú komið með hendur þínar fullar af góðum ávöxtum og fært Okkur fórn þína.“ 9.9.97 1 Jer 10.10a: En Drottinn er hinn sanni Guð, hann er lifandi Guð og eilífur konungur. 2Ef 4.4-6: Einn er líkaminn og einn andinn eins og Guð gaf ykkur líka eina von þegar hann kallaði ykkur. Einn er Drottinn, ein trú, ein skírn, Guð og faðir allra, sem er yfir öllum með öllum og í öllum. 3Sálm 26.2: Rannsaka mig, Drottinn, og reyn mig, prófa nýru mín og hjarta. 4Róm 8.15b-16: Þið hafið fengið þann anda sem gerir mann að barni Guðs. i þeim anda áköllum við: „Abba, faðir." Sjálfur andinn vitnar með anda okkar að við erum Guðs börn. 50rðskv 8.35. 6Eða „finnur“ sbr. Préd 7.27 eða „komist að raun um“ sbr 2Mós 8.6. Vassula Rydén Vassula Rydén er af grískum ættum en fædd í Egyptalandi. Hún hefur búið víða um heim vegna starfa eiginmanns síns og talar, auk grísku, ensku, arabísku og frönsku. Frá árinu 1985 hefur Vassula fengið spámannlegar vitranir, boðskap frá Guði, sem hún miðlar undir heitinu True Life in God eða Hið sanna líf í Guði. Vassula skrifar niður boðskapinn sem hún heyrir innra með sér með afar sérstakri rithönd sem er allt önnur en hennar eigin. Hún hefur talað í hátt í 90 löndum og bækur hennar hafa verið þýddar af sjálfboðaliðum á 43 tungumál. Fyrstu eintökin af íslenskri þýðingu voru afhent í tilefni af heimsókn hennar hingað til lands. Þetta er í annað sinn sem Vassula talar á íslandi. Árið 2004 var samkoma með henni í Hallgrímskirkju en að þessu sinni í Háteigskirkju. Vassula Rydén hefur beitt sér fyrir einingu kristinnar kirkju og friði á milli trúarbragða og fengið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun fyrir störf sín en hún þiggur ekki laun fyrir vinnu sína. Hjálparstarfið Beth Myriam eða Hús Maríu er rekið á vegum sjálfboðasamtakanna True Life in God og bænahópar eru starfræktir víða um heim. Á tveggja ára fresti hittist fólk úr þessum bænahópum ásamt fjölda presta úr margvíslegum kristnum söfnuðum í pílagrímsferðum á merka staði kristninnar. Sjá www.tlig.org. MÁ bjarmi | )únÍ20i7 | 41

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.