Fréttablaðið - 03.02.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 03.02.2022, Blaðsíða 22
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652. Sögu Íslensku ánægjuvogarinnar má rekja allt til ársins 1986. MYND/HARALDUR GUÐJÓNSSON/STJÓRNVÍSI Margrét Tryggvadóttir, forstjóri NOVA. MYND/ EYÞÓR ÁRNASON/ STJÓRNVÍSI Sara Pálsdóttir er framkvæmdastjóri Samfélags Lands- bankans. MYND/EYÞÓR ÁRNASON/STJÓRNVÍSI Sigurður Pálsson, forstjóri BYKO, tekur við verðlaunum frá Gunnhildi Arnardóttur. MYND/EYÞÓR ÁRNASON/STJÓRNVÍSI Þann 21. janúar voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2021 kynntar og er þetta tuttugasta og þriðja árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Meginmarkmiðið með Íslensku ánægjuvoginni er að framkvæma samræmdar mæl­ ingar á ánægju viðskiptavina milli atvinnugreina og fyrirtækja, segir Gunnhildur Arnardóttir, fram­ kvæmdastjóri Stjórnvísi. „Söguna á bak við Íslensku ánægjuvogina má rekja allt til ársins 1986 þegar Gæðastjórnunarfélag Íslands vildi þróa mælitæki til að meta og mæla árangur fyrirtækja í gæðamálum sem kæmi með einhvers konar mælingum á upplifun eða ánægju viðskiptavina.“ Marktækt mælitæki Það var líka ljóst að ef slíkar mælingar ættu að vera trúverð­ ugar þyrfti mælitækið að byggja á traustum og marktækum töl­ fræðilegum aðferðum, bætir hún við. „Í þessari vegferð var horft til mælitækja í Evrópu og á þeim tíma höfðu fræðimenn innan Stockholm Business School tekið forystu í að þróa ítarlegt tölfræði­ líkan fyrir slíkar mælingar og hafði það líkan einnig vakið athygli í Bandaríkjunum og víða í Evrópu. Gæðastjórnunarfélagið tók því þátt í þessari þróun og fór af stað með mælingar á Íslandi og hafa síðan verið samfelldar mælingar hér á landi allt frá árinu 1998.“ Einnig var talin þörf á því að birta opinberlega upplýsingar um þróun á ánægju hjá fyrirtækjum og mörkuðum, neytendum til hags­ bóta og sem hvatningu fyrir fyrir­ tæki til að leggja áherslu á gæði þjónustu og jákvæða ímynd. Fleiri fyrirtæki mæld Þekkingarfyrirtækið Prósent hefur séð um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni árlega síðan 2016. Að þessu sinni var ánægja viðskiptavina könnuð frá júní til desember árið 2021. „Um er að ræða netkönnun sem send er á könnunarhóp Prósents, sem í eru Íslendingar 18 ára og eldri á öllu landinu, valdir með slembi­ úrtaki. Um 2.500 manna úrtak er á hverjum markaði og til að komast í Ánægjuvogina þurfa að vera að lágmarki 200 svarendur fyrir hvert fyrirtæki. Niðurstöður eru því birtar fyrir þau fyrirtæki þar sem tilskildum fjölda svara er náð. Öll gögn eru síðan vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu,“ segir Gunnhildur. Þættirnir sem eru mældir eru ánægja viðskiptavina, væntingar, virði, gæði vöru og þjónustu, sem og tryggð og meðmæli viðskipta­ vina. Heildarfjöldi spurninga er tólf. Hún segir töluverðar breytingar hafa verið á þeim fyrirtækjum og mörkuðum sem mæld hafa verið í Ánægjuvoginni frá því að mæl­ ingar hófust 1998. „Sífellt er verið að bæta við fleiri mörkuðum og fyrirtækjum, og í dag eru þrettán markaðir og 37 fyrirtæki mæld.“ Hlutlaust mælingatæki Gunnhildur segir Íslensku ánægju­ vogina vera í raun einu mælinguna sem er framkvæmd og birt opin­ berlega án þess að fyrirtæki skuld­ bindi sig fyrir fram til að taka þátt. „Ánægjuvogin á að vera hlutlaus og sýna stöðu fyrirtækja á mark­ aðnum hverju sinni þegar kemur að ánægju og tryggð viðskiptavina. Við sjáum að flest fyrirtækin leggja gífurlega áherslu á að vera með ánægða viðskiptavini og að verða efst á sínum markaði er mikið keppikefli fyrir fyrirtækin. Flest fyrirtækin eru búin að innleiða í sína stefnu að vera með ánægða viðskiptavini og leiðir til þess að ná þeim áfanga. Sigur á markaði er því ekki síst mikilvægur fyrir starfsfólk fyrirtækjanna. Gögnin hafa einnig sýnt fram á að með því að auka ánægju viðskiptavina aukast líkurnar á því að þeir verði tryggari og mæli því frekar með fyrirtækinu við aðra.“ Í sífelldri þróun Gunnhildur segir Ánægjuvogina vera sífellt í þróun en ávallt sé pass­ að að fylgja grunnlíkaninu sem var þróað erlendis, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, fyrir meira en aldarfjórðungi. „Helstu breytingar hér hafa verið að bæta við fleiri fyrirtækjum og mörkuðum. Sem dæmi voru sjö markaðir mældir árið 2010 en í dag mælum við 37 fyrirtæki á þrettán mörkuðum.“ Til að tryggja gæði rannsóknar­ innar er svörum safnað yfir lengra tímabil en áður að hennar sögn. „Áður fyrr var svörum safnað yfir tvo mánuði en í dag dreifist söfnun gagna yfir sjö mánaða tímabil og er markmiðið að dreifa mælingum jafnt og þétt yfir allt árið til að tryggja stöðugleika í mælingu. Skýrslurnar eru jafnframt orðnar mun ítarlegri en áður og er hver skýrsla um 65 blaðsíður sem á að gefa greinargóða mynd af stöðu fyrirtækisins í samanburði við samkeppnina.“ Þakklæti, gleði og auðmýkt Uppskeruhátíð Íslensku ánægju­ vogarinnar er einn af hápunktum ársins í starfi Stjórnvísi. „Það er stórkostleg upplifun og gefur gnótt góðra minninga að fylgjast með stoltum verðlaunahöfum taka á móti viðurkenningunni ár hvert.“ Hún segir vinningshafana eiga það sameiginlegt að taka á móti viðurkenningunni með miklu þakklæti, gleði og auðmýkt. Meðal þess sem kemur fram í þakkarræð­ um verðlaunahafa eru setningar á borð við: „Þetta er viðurkenning til starfsfólksins fyrir framúrskarandi vel unnin störf. Viðurkenningin er gríðarlega mikilvæg þar sem starfsfólkið leggur sig fram við að veita framúrskarandi þjónustu og um leið eiga ánægða viðskipta­ vini. Ein besta viðurkenning sem hægt er að fá. Niðurstaðan sem við bíðum spenntust eftir að fá. Veitir hvatningu til að gera enn betur.“ Gunnhildur segir verðlauna­ hafa staðfesta með þessum orðum mikilvægi mælingarinnar. „Rannsóknir hafa sýnt fram á að því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru, því betri afkomu getur fyrirtækið gert sér vonir um. Og undirstaða ánægðra viðskipta­ vina er ánægt starfsfólk.“ ■ Rannsóknir hafa sýnt fram á að því ánægðari sem viðskipta- vinir fyrirtækis eru, því betri afkomu getur fyrirtækið gert sér vonir um. Gunnhildur Arnardóttir Helstu breytingar hér hafa verið að bæta við fleiri fyrir- tækjum og mörkuðum. Gunnhildur Arnardóttir 2 kynningarblað 3. febrúar 2022 FIMMTUDAGURÍSLENSK A ÁNÆGJUVOGIN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.