Fréttablaðið - 03.02.2022, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 03.02.2022, Blaðsíða 25
Starfsfólk er ein af mikilvægustu auðlindum hvers fyrir- tækis og okkar góða starfsfólk hefur gert fyrirtækið að því sem það er í dag. Sigurður B. Pálsson Sigurður B. Páls- son, forstjóri BYKO, segir að það sé mikil- vægt fyrir fyrir- tæki að taka samfélagslega ábyrgð alvar- lega, ef þau vilja endast og halda áfram að standast kröfur viðskiptavina. MYND/AÐSEND BYKO leggur áherslu á að halda vel utan um mann­ auðinn, tryggja jafnrétti og sýna samfélagslega ábyrgð, en trúin er sú að ánægt starfsfólk veiti góða þjónustu. BYKO hefur verið efst í flokki byggingavöru­ verslana hjá Íslensku ánægjuvoginni fimm ár í röð og virðist því á réttri leið. „BYKO leit dagsins ljós árið 1962 og verður því 60 ára á þessu ári. Einn af undirstöðuþáttum þess árangurs sem við höfum náð á þeim tíma, er að þekkja upp- runann, söguna og þau gildi sem hafa fylgt okkur frá upphafi. Stofn- endur og eigendur gáfu fyrirtæk- inu brag sem stendur alltaf fyrir sínu, en þeir lögðu áherslu á gott fólk, öfluga liðsheild, samkennd og mjög skýra framtíðarsýn,“ segir Sigurður B. Pálsson, forstjóri BYKO. „Allir þessir þættir falla meira eða minna undir hina mannlegu hlið rekstrarins, en starfsfólk er ein af mikilvægustu auðlindum hvers fyrirtækis og okkar góða starfsfólk hefur gert fyrirtækið að því sem það er í dag. Að treysta, útdeila verkefnum og ábyrgð og það að fólk raðist í stöður þar sem styrk- leiki þess fær að njóta sín og gleðin birtist, er lykilatriði. Sérstaða BYKO liggur í þeirri hæfni og þekkingu sem býr í mannauðinum og ég er ákaf- lega stoltur af samstarfsfélögum mínum og framlagi þeirra til fyrirtækisins. Starfsmannavelta er lág hjá okkur og starfsaldur er hár,“ segir Sigurður. „Á hverju ári heiðrum við starfsfólk sem hefur starfað fyrir BYKO í 10 ár og lengur og það þýðir að við heiðrum í kringum 30 starfsmenn á ári, en hjá fyrirtækinu starfar stór hópur starfsmanna sem hefur fylgt fyrir- tækinu í 30 ár eða lengur. Starfsánægja og hollusta starfs- fólks, eru áskoranir sem fyrirtæki landsins standa frammi fyrir og við gerum okkur grein fyrir þeim breytingum sem eru að verða á gildismati fólks,“ segir Sigurður. „Fólk er byrjað að gera kröfur um sveigjanlegri vinnutíma, aukinn tíma með fjölskyldu og vinum og svo mætti áfram telja. Við tökum vitanlega mið af þessum breyt- ingum í okkar framtíðarsýn.“ Fjölbreytileiki skilar betri niðurstöðu „Jafnrétti í öllum sínum myndum er okkur hjá BYKO mjög hugleikið. Skýr jafnréttisáætlun er til staðar þar sem allir bera sameiginlega ábyrgð á að gæta að jafnræði og að jafnrétti sé virt í hvívetna innan félagsins,“ segir Sigurður. „Við vorum til að mynda að innleiða einn þátt verkefnisins, sem snýr að þátttöku BYKO við greiðslu fæð- ingarorlofs, en við greiðum 20% af launum hvers starfsmanns sem kýs að taka fæðingarorlof og megin- markmiðið er að hvetja öll kyn til töku fæðingarorlofs. BYKO er enn nokkuð karllægt fyrirtæki og gögnin segja okkur að karlmenn nýti sér síður fæðingarorlofsrétt, meðal annars vegna tekjufalls. Það er auðvelt að skrifa fallegar stefnur og orð, en við gerum okkur grein fyrir þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Ein þeirra er að tryggja að starfsfólk sjái tilgang og ávinning af jafn- réttisáætluninni og hafi um leið skilning á henni. Það gerist með stöðugri fræðslu og samtali,“ segir Sigurður. „Jafnrétti kynjanna er eitt af heimsmarkmiðunum sem við höfum valið okkur að styðja við og við höfum náð góðum árangri í að jafna kynjahlutföllin, í þeim annars karllæga heimi sem byggingavörumarkaðurinn er og það hefur náðst jafnvægi í helstu stjórnunarlögum félagsins. Við viljum einnig beita okkur út á við og hafa áhrif og teljum það hlutverk okkar sem ábyrgt fyrirtæki. Eitt af verkefnunum sem við erum að vinna að er að brjóta niður staðalímyndir í byggingariðnaði og hvetja konur til náms í iðngreinum og áfram inn á vinnumarkaðinn,“ segir Sigurður. „Gögnin segja okkur að konum í iðnnámi sé að fjölga, sem er ánægjulegt, en þær eru ekki að skila sér í sama hlutfalli út á vinnu- markaðinn. Við viljum hafa áhrif á báða þætti, því betur má ef duga skal, við eigum afar langt í land. Okkar skoðun er einfaldlega sú að fjölbreytileikinn skili betri niðurstöðu. Byggingariðnaðurinn er að verða af svo miklum hæfi- leikum vegna þess að það er hindrun fyrir konur að ganga þennan veg og því viljum við breyta,“ útskýrir Sigurður. „Við stefnum á fullkomið jafnrétti sem byggir á fjölbreytileika og fræðslu og viljum vera góð fyrirmynd og hafa áhrif á aðra.“ Samfélagsábyrgð fyrirtækja á tímamótum „Allar atvinnugreinar standa á tímamótum þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð. Margar eru komnar mjög langt, á meðan aðrar eru að máta sig inn í nýjan og breyttan veruleika. Heimurinn allur eru í umbreytingarferli hvað þetta varðar og samfélagsleg ábyrgð er gríðarlega stórt hugtak sem nær yfir mjög marga þætti í rekstri fyrirtækja,“ segir Sigurður. „Lög og reglur sem gilda hverju sinni eru hluti af samfélagslegri ábyrgð sem allflest fyrirtæki eru vel meðvituð um og fylgja í hví- vetna. Það sem snýr að mannauðs- málum, sérstaklega jafnréttis- málum, er styttra á veg komið og breytist hratt. Sjálfbærnivegferðin er svo enn einn armurinn sem fellur undir samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Ég spái og reikna fastlega með því að hraði breytinga sé svo mikill að þau fyrirtæki sem átta sig ekki á mikilvægi þess að móta sér skýra stefnu og framtíðarsýn hvað þetta varðar heltist úr lestinni,“ segir Sigurður. „Kröfur stjórnvalda, sam- félagsins, eigenda, hagsmunaaðila og viðskiptavina eru allar þær sömu, þannig að ég er bara viss um að innan tíu ára (ath. Parísar- samkomulagið 2030) verði búin að eiga sér stað einhver endurnýjun fyrirtækja á byggingavörumark- aði. Myndin verður alveg skýr. Vistvænir valkostir og byggingar byggðar eftir umhverfismerkjum Svansins eða BREEAM verða ráðandi og öllum mun finnast eðli- legt og sjálfsagt að leggja áherslu á jafnréttis- og sjálfbærnimál.“ Viðurkenningin hvetjandi og vekur stolt Þann 21. janúar síðastliðinn fékk BYKO viðurkenningu á verðlauna- hátíð Íslensku ánægjuvogarinnar, sem mælir ánægju viðskiptavina með þjónustu fyrirtækja, en fyrirtækið fékk flest stig í f lokki byggingavöruverslana. „Þetta er gríðarlega mikilvæg viðurkenning fyrir okkur og við erum mjög stolt af því að hafa fengið þessa viðurkenningu fimm ár í röð og unnið með marktækum mun. Um leið hvetur þetta okkur áfram og staðfestir að við séum á réttri leið,“ segir Sigurður. „Við höfum það að leiðarljósi alla daga að mæta þörfum og væntingum viðskiptavina okkar og skapa bestu heildarupplifun viðskipta- vina sem völ er á. Þjónustuþættirnir eru eitt af því sem gefur okkar sérstöðu,“ útskýrir Sigurður. „Viðskiptavinir gera kröfur um aukna þjónustu þegar kemur að ráðgjöf, vöru- úrvali og að varan sé til þegar á þarf að halda. Með öðrum orðum þurfum við að skapa góða heildar- upplifun. ■ Síðasta ár einkenndist af mikilli greiningar- og stefnumótunar- vinnu sem tók mið af þörfum og væntingum viðskiptavina BYKO, með það að leiðarljósi að skapa bestu heildarupplifun við- skiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Við settum mikla áherslu á að þróa stafræn- ar lausnir sem gera viðskiptavini BYKO meira sjálfbjarga. Mörg verkefni hafa orðið að veru- leika sem styðja vel við okkar framtíðarsýn. Við settum til að mynda rafrænar tímabókanir í loftið sem gera viðskiptavinum kleift að bóka tíma í palla-, lita-, framkvæmda-, innréttinga- og viðskiptaráðgjöf á netinu í gegn- um https://byko.is/thjonusta/ radgjof-og-thjonusta. ■ Við gerðum viðskiptavinum líka kleift að sækja um reikningsvið- skipti á BYKO.is með rafrænum skilríkjum. ■ Við vorum fyrsta bygginga- vöruverslunin til að innleiða sjálfsafgreiðslukassa í versl- anir okkar. Í fyrra opnuðum við eingöngu fyrir staðgreiðslu en frá og með næstu viku verður einnig hægt að setja greiðslur í viðskiptareikning í öllum okkar verslunum. ■ Við byrjuðum einnig að vinna í nýjum vef og í vikunni opna nýjar þjónustusíður BYKO, sem við köllum mínar síður. Þjón- ustuvefurinn verður mun not- endavænni en áður og verður þróaður áfram. Við erum full þakklætis fyrir traustið og þá tryggð sem við- skiptavinir hafa sýnt okkur í gegnum tíðina. Það skiptir okkur einfaldlega máli að okkar við- skiptavinum vegni vel í því sem þeir eru að fást við hverju sinni, hvort sem það er fegrun heim- ilisins eða aðrar minni eða stærri framkvæmdir,“ segir Sigurður. „Við horfum björtum augum til framtíðar og hlökkum til áfram- haldandi samstarfs við okkar við- skiptavini.“ ■ Framúrskarandi fyrirtæki byggir á hæfileikaríku fólki kynningarblað 5FIMMTUDAGUR 3. febrúar 2022 ÍSLENSK A ÁNÆGJUVOGIN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.