Fréttablaðið - 03.02.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.02.2022, Blaðsíða 10
Eitt stórkostlegasta göngusvæði á Íslandi er inn af Lóni í Stafafellsfjöllum, í svokölluðum Lónsöræfum. Litadýrð- in er engu lík, sem þakka má líparítfjöllum sem skorin eru sundur af giljum sem víða skarta hnífskörpum berggöngum, sem helst minna á blaðsíður í bók. Litríkt landslagið er síðan rammað inn af snæhvítum Vatna- jökli og vatnsmiklum jökulám, sem renna í gegnum gróskumikinn birkiskóg. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu náttúrufegurð eru ótrúlega margir Íslendingar sem aldr- ei hafa komið í Lónsöræfi og skýringin sennilega sú að ekki er auðvelt að komast þangað, ekki síst yfir óbrúaða Skyndidalsá, sem í vatnavöxtum getur verið varhuga- verð. Því er skynsamlegt að semja við heimamenn um ferðina inn Lón, yfir Skyndidalsá og upp Kjarrdalsheiði að Illakambi. Þar endar vegurinn og aðeins hálftíma ganga að vinalegum Múlaskála í Nesi. Þar má einnig slá upp tjaldi og tilvalið að halda í dagsgöngur inn í Trölla- króka, að Víðibrekkuskeri og Kambahryggjum, Þilgili og Leiðartungum, eða sigrast á snúnum Sauðhamars- tindi (1.319 m). Ekki má gleyma að einnig er hægt ganga að Illa kambi úr Stafafelli í Lóni, áfram að Múlaskála og inn í Víðidal, gönguleið sem hefur fengið nafnið Austurstræti. Fyrsta daginn er gengið á sléttlendi með fram Austurskógi og vatnsmikilli Jökulsá í Lóni, og síðan yfir hana á reisu- legri göngubrú, skammt frá Eskifelli. Þaðan er hægt að fylgja veginum yfir Kjarrdalsheiði að Illakambi. Við mælum þó frekar með fáfarnari og erfiðari gönguleið, Kambaleið, sem liggur með fram stórkostlegum gljúfr- um Jökulsár. Leiðin er stikuð og liggur yfir óteljandi hryggi og gil. Stórkostlegast þessara gilja er Kambagil, en ofan þess er voldugur berggangur sem gaman er að feta sig varlega eftir. Þarna er einnig tilvalið að hvíla bakpokann og ganga út að brúnum Jökulsárgljúfurs. Handan þess blasir við svipmikill Sviptungnahnjúkur, sem sífellt breytir litum, allt eftir birtuskilyrðum. Gangan ofan í sjálft Kambagil er ekki fyrir loft- hrædda, enda fylgt göngustíg í líparítskriðu sem úr fjar- lægð virðist lóðrétt, en reynist við nánari kynni halla aðeins. Þegar skriðan er að baki er gaman að fylgjast með göngufélögunum feta mjóan stíginn eins og maur- ar í olíumálverki. Þarna er ekki löng ganga að Illakambi, en Kambaleið er einnig tilvalið að ganga í hina áttina, það er frá honum, niður að Eskifelli. ■ Maurar í málverki Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari. Tómas Guðbjartsson hjartaskurð­ læknir og náttúru­ unnandi. Göngufólk fetar sig eftir mjóum göngustíg Kambagils sem liggur í gegnum líparítskriðu sem úr fjarlægð virðist lóðrétt. Fólkið minnir því helst á maura í miðju málverki. MYNDIR/ÓMB Kambagil dregur nafn sitt af tignarlegum berggangi sem gaman er að feta sig varlega út á. Útsýni af Kambaleið yfir Jökulsárgljúfur er stórkostlegt og algjör litaveisla. FÓKUS Á HJARTA LANDSINS 3. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.