Fréttablaðið - 03.02.2022, Side 10
Eitt stórkostlegasta göngusvæði á Íslandi er inn af Lóni í
Stafafellsfjöllum, í svokölluðum Lónsöræfum. Litadýrð-
in er engu lík, sem þakka má líparítfjöllum sem skorin
eru sundur af giljum sem víða skarta hnífskörpum
berggöngum, sem helst minna á blaðsíður í bók. Litríkt
landslagið er síðan rammað inn af snæhvítum Vatna-
jökli og vatnsmiklum jökulám, sem renna í gegnum
gróskumikinn birkiskóg. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu
náttúrufegurð eru ótrúlega margir Íslendingar sem aldr-
ei hafa komið í Lónsöræfi og skýringin sennilega sú að
ekki er auðvelt að komast þangað, ekki síst yfir óbrúaða
Skyndidalsá, sem í vatnavöxtum getur verið varhuga-
verð. Því er skynsamlegt að semja við heimamenn um
ferðina inn Lón, yfir Skyndidalsá og upp Kjarrdalsheiði
að Illakambi. Þar endar vegurinn og aðeins hálftíma
ganga að vinalegum Múlaskála í Nesi. Þar má einnig slá
upp tjaldi og tilvalið að halda í dagsgöngur inn í Trölla-
króka, að Víðibrekkuskeri og Kambahryggjum, Þilgili
og Leiðartungum, eða sigrast á snúnum Sauðhamars-
tindi (1.319 m).
Ekki má gleyma að einnig er hægt ganga að Illa kambi
úr Stafafelli í Lóni, áfram að Múlaskála og inn í Víðidal,
gönguleið sem hefur fengið nafnið Austurstræti. Fyrsta
daginn er gengið á sléttlendi með fram Austurskógi og
vatnsmikilli Jökulsá í Lóni, og síðan yfir hana á reisu-
legri göngubrú, skammt frá Eskifelli. Þaðan er hægt að
fylgja veginum yfir Kjarrdalsheiði að Illakambi. Við
mælum þó frekar með fáfarnari og erfiðari gönguleið,
Kambaleið, sem liggur með fram stórkostlegum gljúfr-
um Jökulsár. Leiðin er stikuð og liggur yfir óteljandi
hryggi og gil. Stórkostlegast þessara gilja er Kambagil,
en ofan þess er voldugur berggangur sem gaman er að
feta sig varlega eftir. Þarna er einnig tilvalið að hvíla
bakpokann og ganga út að brúnum Jökulsárgljúfurs.
Handan þess blasir við svipmikill Sviptungnahnjúkur,
sem sífellt breytir litum, allt eftir birtuskilyrðum.
Gangan ofan í sjálft Kambagil er ekki fyrir loft-
hrædda, enda fylgt göngustíg í líparítskriðu sem úr fjar-
lægð virðist lóðrétt, en reynist við nánari kynni halla
aðeins. Þegar skriðan er að baki er gaman að fylgjast
með göngufélögunum feta mjóan stíginn eins og maur-
ar í olíumálverki. Þarna er ekki löng ganga að Illakambi,
en Kambaleið er einnig tilvalið að ganga í hina áttina,
það er frá honum, niður að Eskifelli. ■
Maurar í
málverki
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari.
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi.
Göngufólk fetar sig eftir mjóum göngustíg Kambagils sem liggur í gegnum líparítskriðu sem úr fjarlægð virðist lóðrétt. Fólkið minnir því helst á maura í miðju málverki. MYNDIR/ÓMB
Kambagil
dregur nafn sitt
af tignarlegum
berggangi sem
gaman er að
feta sig varlega
út á.
Útsýni af Kambaleið yfir Jökulsárgljúfur er stórkostlegt og algjör litaveisla.
FÓKUS Á HJARTA LANDSINS 3. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR