Fréttablaðið - 09.02.2022, Síða 19

Fréttablaðið - 09.02.2022, Síða 19
 Við erum í traustum og örugg- um hönd- um í Léttskýinu hjá Origo þar sem fag- mennska og sér- þekking eru höfð að leiðarljósi. Ásta segir að þjónusta við viðskiptavinina sé í forgangi hjá Origo. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Origo býður nú upp á Léttskýið sem er tækni­ lausn fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem kjósa nútíma­ legt, einfalt og umfram allt öruggt upplýsingatækni­ umhverfi án mikils tilkostn­ aðar og fyrirhafnar. Léttskýið hefur fengið frábærar viðtökur viðskiptavina eða eins og Steinunn Birna Ragnarsdóttir, óperustjóri hjá Íslensku Óperunni, segir: „Við erum í traustum og öruggum höndum í Léttskýinu hjá Origo þar sem fagmennska og sérþekking eru höfð að leiðarljósi.“ „Útgangspunkturinn við þróun Léttskýsins var að búa til einfalda og örugga lausn, veita framúr- skarandi þjónustu og geta innleitt lausnina fyrir hádegi,“ segir Ásta Guðmundsdóttir, forstöðumaður kerfisreksturs og framlínuþjón- ustu hjá Origo. „Uppsetning á Léttskýs-þjónustu Origo tekur örskamman tíma. Við- skiptavinurinn er nánast á auga- bragði kominn með sitt örugga tækniumhverfi og getur farið að einbeita sér að sinni kjarnastarf- semi. Það eina sem fyrirtækin þurfa er nettenging, við sjáum um allt annað. Við erum stöðugt að þróa lausnina og innleiðinguna. Nýjustu innleiðingarnar hafa tekið allt niður í fimmtán mínútur og viðskiptavinir hafa verið einstak- lega ánægðir með lausnina og þjónustuna sem henni fylgir,“ segir hún. „Við færum öll gögnin þín yfir í skýið hratt og örugglega og sjáum svo um að reka kerfið og veitum öryggis- og notendaþjónustu yfir netið. Það er engin flókin innleið- ing eða ófyrirséður kostnaður og viðskiptavinurinn lagar þjónust- una að sínum þörfum.“ Ásta segir að helstu áskoranir minni fyrirtækja í dag er kemur að upplýsingatækni sé skortur á þekkingu á hvað þarf til að skrif- stofuumhverfi verði einfalt og umfram allt öruggt. „Léttskýið er afrakstur djúps Einfalt og öruggt tækniumhverfi með Léttskýi frá Origo samtals við viðskiptavini þar sem einfaldleiki og öryggi eru í fyrirrúmi. Við sjáum að fyrirtæki vilja í auknum mæli einbeita sér að því sem þau kunna best og láta aðra um tæknimálin. Þess vegna skiptir máli að hafa yfir að ráða hagkvæmum lausnum eins og Léttskýinu þar sem einfaldleiki, öryggi, hraði og góð þjónusta ræður ríkjum,“ segir hún. Þjónustan fyrst Viðskiptavinir í Léttskýi hafa aðgang að Þjónustumiðju Origo en fyrirtækið setur sér það háleita markmið að vera best í þjónustu. „Ánægja og árangur okkar við- skiptavina er okkar mælikvarði á árangur. Við erum með framúr- skarandi tæknifólk sem leggur sig mikið fram um að veita góða þjónustu. Við viljum vera betri fyrir okkar viðskiptavini og fyrir samfélagið, því betri tækni bætir lífið,“ segir Ásta. „Við leggjum okkur fram við að vera með nútímalegar tæknilausn- ir fyrir viðskiptavini okkar. Við nýtum til dæmis spjallmenni og þjónustugátt til þess að viðskipta- vinir okkar geti nálgast okkur, ekki bara í gegnum síma heldur líka með nútímalegri leiðum. Það hefur sýnt sig að fólk vill geta bjargað sér sjálft og við leggjum áherslu á að vera með sjálfvirkar lausnir til að ýta undir það. Þar sem Léttský er skýjaþjónusta, eins og nafnið gefur til kynna, hafa viðskiptavinir aðgang að sínum gögnum og sínu umhverfi í gegnum hvaða tæki sem er, hve- nær sem er,“ bætir hún við. „Léttský er lausn sem hentar öllum fyrirtækjum sem eru með einfalt skrifstofuumhverfi, en við bjóðum líka upp á ýmsar aðrar lausnir. Ef fyrirtæki vita ekki hvaða lausn þau vilja bjóðum við upp á ráðgjöf og vinnustofur til að greina hver þörfin er.“ Öryggi er okkur efst í huga Origo leggur mikla áherslu á öryggi sinna viðskiptavina og býður upp á öryggismat til að meta heildarstöðu viðskiptavinanna hvað varðar netöryggi. „Öryggi er okkur efst í huga. Starfsfólk Origo hjálpar viðskipta- vinunum að meta bæði styrkleika sína og veikleika og kemur með tillögur að úrbótum. Við hjálpum þeim að stoppa í götin ef svo má að orði komast,“ segir Ásta. „Tölvuárásir eru raunveruleg ógn og það er í raun ekki spurning hvort heldur hvenær fyrirtæki lenda í einni slíkri. Þá er betra að vera í öruggu umhverfi þar sem tryggt er að kerfi séu uppfærð reglulega. Fyrirtæki geta verið með umhverfi sem breytist ekki neitt en öryggisheimurinn breytist. Þar af leiðir að þó að kerfið og umhverfið hjá þínu fyrirtæki hafi verið öruggt í gær þá er það ekki endilega öruggt í dag. Origo hefur þróað sérstakt öryggismat sem miðar að því að meta stöðuna á þínu upplýsingatækniumhverfi út frá öryggissjónarmiði,“ segir hún og bætir við að lokum: „Það er nauðsynlegt fyrir fyrir- tæki að fá reglulega stöðutékk á umhverfi sínu út frá öryggi. Í kjöl- far öryggismats bjóðum við upp á ráðgjöf um næstu skref, hvernig hægt er að bregðast við veikleikum í umhverfi viðskiptavina og þannig koma í veg fyrir mögulega öryggisbresti. Þú tryggir ekki eftir á!“n Nánari upplýsingar um Léttský, Öryggismat og aðrar lausnir Origo er að finna á origo.is Viðskiptavinir hafa aðgang að sínum gögnum og sínu umhverfi hvar sem er og hvenær sem er. kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 9. febrúar 2022 UPPLÝSINGATÆKNI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.