Fréttablaðið - 09.02.2022, Síða 40

Fréttablaðið - 09.02.2022, Síða 40
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is Síðustu misserin hafa reynst mörgum erfið. Einkum og sér í lagi þeim sem eiga erfitt með að „láta hafa vit fyrir sér“ með boðum og bönnum sem varða þá ekki per- sónulega heldur einkum almanna- hagsmuni. Þetta kemur auðvitað engum á óvart sem þekkir íslensku þjóðina eða hefur dvalið hér á landi lengur en í korter. Hér vitum við almennt allt best og höfum (meinta) reynsluþekkingu sem einhverjir sérfræðingar eiga ekkert í, ef sá gállinn er á okkur. Sem er oftast. Það hefur því komið mér ánægjulega á óvart hversu fólk var tilbúið til að fylgja leiðbeiningum sérfræðinga og stjórnvalda hvað sóttvarnir varðar. Líklega er það vegna þess að orðið „farsótt“ var flestum framandi og almennt hræðumst við hið óþekkta. En ein- mitt þess vegna hefur takmörkuð þolinmæði fyrir leiðbeiningum sömu yfirvalda vegna óveðurs ekki komið á óvart. Þar er nú aldeilis hver einasti Íslendingur sann- færður um að hann sé á heimavelli. Enda hafa nánast allir einhvern tíma gengið með blauta lopavett- linga í skólann (ekkert skutl), setið fastir í bíl og/eða mokað sig út úr húsi í kafaldsbyl. En. Viðbrögð yfirvalda almanna- varna, hvort sem um farsótt eða aðra vá ræðir, snúast ekki um að bregðast við þegar allt er farið í voða. Þau byggja ekki á hinu lands- þekkta mottói Íslendinga, „þetta reddast“. Þau snúast um að bregð- ast við í tíma og hindra alvarlegar afleiðingar yfirvofandi hættu- ástands. Í raun ættu Almannavarn- ir að heita Forvarnir. Mælikvarði þeirra á árangur aðgerða ætti svo líklega að vera fjöldi Facebook- fýlupósta og Twitter-fýlufærslna um að þessi viðbrögð hafi nú verið óþarfi. ■ Forvarnir Önnu Sigrúnar Baldursdóttur ■ Bakþankar Vatnagörðum 14 104 Reykjavík litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is UMHVERFISVÆN PRENTUN Verslaðu á 66north.is Fylgdu okkur á Instagram @66north

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.