Fréttablaðið - 12.03.2022, Qupperneq 80
Mér finnst
svakalega
gaman að
vinna í
eldhúsi.
Að geta
blandað
bragði í
höfðinu er
eiginleiki
sem ég
vissi ekki
að ég
hefði.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Guðbjörg Glóð Logadóttir
er mikill sælkeri og nýtur
þess að útbúa ljúffenga
rétti í eldhúsinu heima sem
og í vinnunni. Guðbjörg á
og rekur Fylgifiska ásamt
bróður sínum og þekkir því
vel til þegar kemur að því að
útbúa sælkerafiskrétti með
fjölbreyttu ívafi.
„Starf mitt einkennist af daglegum
rekstri Fylgifiska, ég er komin
um kl. 7 og byrja á að skera fisk í
fiskrétti dagsins og krydda. Við
erum með heitan fisk í hádeginu
svo það er því mikill ys og þys öll
hádegi. Svo þarf að panta inn fisk
og annað hráefni, útrétta og sinna
skrifstofuhliðinni. Starfið mitt er
því mjög fjölbreytt. Áhugamál mín
hafa breyst mikið á undanförnum
árum. Ég hreyfi mig alla daga,
geng eða syndi og svo hugleiði ég
á hverju kvöldi. Hugleiðsla er það
magnaðasta sem ég hef á ævi minni
tileinkað mér og ég held að ég muni
aldrei hætta að hugleiða.“
Guðbjörg hefur ávallt haft áhuga
á matargerð. „Það má eiginlega
segja að ég hafi ávallt haft áhuga á
matargerð þótt ég hafi ekki farið að
elda fyrr en ég flutti að heiman. Mér
finnst svakalega gaman að vinna í
eldhúsi. Það að geta blandað bragði
í höfðinu er eiginleiki sem ég vissi
þó ekki að ég hefði fyrr en ég fór að
matbúa í Fylgifiskum. Mér finnst
svakalega skemmtilegt að hugsa
saman mismunandi bragð og sjá
það verða að réttum.“
Gullinn meðalvegur í mataræði
Guðbjörgu finnst miklu skemmti-
legra að matreiða en að baka. „Mat-
reiða, ekki spurning, maður þarf að
fylgja uppskrift þegar maður bakar
og ég er of mikill dassari til þess. En
ég baka samt oft en hef bara ekki
eins gaman af því.“
Aðspurð segir Guðbjörg að hjarta
heimilisins slái í eldhúsinu. „Alla
vega heima hjá mér, ekki spurning.“
Aðhyllist þú ákveðið mataræði?
„Nei, ég hef aldrei gert það og er
eiginlega anti-kúristi. Fyrir mér
gildir hinn gullni meðalvegur í
mataræði. Ég kaupi til að mynda
aldrei vítamín eða bætiefni, ég vil fá
næringuna úr fæðunni og reyni því
að borða fjölbreytt. En ég borða eðli
málsins samkvæmt mjög mikinn
fisk sem er minn uppáhaldsmatur.“
Er einhver hlutur sem þér finnst
vera ómissandi í eldhúsinu?
„Góður hnífur, ólífuolía, pipar-
kvörn, Maldon salt og pönnuköku-
panna sem ég elda alls konar á.“
Hvað áttu ávallt til í ísskápnum?
„Osta. Það má eiginlega segja að
ég safni ostum. Gæti hent í osta-
bakka fyrir 18 án þess að fara út í
búð nánast alltaf.“
Léttir að eiga minna
Þegar Guðbjörg velur borðbúnað
og aðra hluti sem prýða eldhúsið
vill hún hafa hlutina einfalda. „Ég
hef aldrei viljað safna stelli eða eiga
of mikið í stíl svo stíllinn minn er
mjög blandaður en þó er hvítur og
gler áberandi. Þegar ég flutti fyrir
ári síðan komst ég að því að ég hafði
safnað að mér allt of miklum borð-
búnaði. Ég greip því tækifærið og
losaði mig við heilan helling og ein-
faldaði lífið til muna. Ótrúlegt hvað
það léttir á manni að eiga minna.“
Sælkeratortillur með
risarækjum, chili,
engifer og kóríander
Guðbjörg er
mikill sælkeri
og nýtur þess
að matreiða
sjávarfang, sér-
staklega þegar
kemur að því
að snöggsteikja
á pönnuköku-
pönnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Raðað á tor-
tillu. Þægi-
legur matur sem
tekur stutta
stund að elda.
Fiski-taco er einstaklega gott.
Blandar ólíkum matarheimum
„Mér finnst skemmtilegast að elda
mat sem tekur stutta stund að elda.
Ég snöggsteiki mikið og finnst líka
gaman að borða mat úr skál og
helst með prjónum. Alveg frá því
strákurinn minn fæddist hef ég gert
handa honum ristaðar tortillur á
pönnukökupönnunni. Hann er
reyndar ekki mikið fyrir fjölbreytni
þó að ég lifi enn í voninni um að
það muni breytast. Uppskriftin sem
ég valdi að gera núna tekur stutta
stund og blandar saman ólíkum
matarheimum sem mér finnst ein-
staklega skemmtilegt í matargerð.“
Sælkeratortillur með
risarækjum
Fyrir 4
12 risarækjur með engifer, chili og
kóríander (uppskrift að neðan en
fást tilbúnar í Fylgifiskum)
6 mini tortillas
1 dós hvítlauks- og lime sósa Fylgi-
fiska (má nota japanskt majónes í
staðinn)
1/6 haus ferskt rauðkál, fínt skorið
1 fersk gulrót skorin í strimla
3-4 stk. radísur, fínt skornar
2-3 stk. vorlaukur, fínt skorinn
1 búnt ferskt kóríander
1 p. ferskt chili
Sriracha-sósa eftir smekk
Lime eftir smekk
Risarækjur með chili, engifer
og kóríander
12 risarækjur stærð 16/20
50 g engifer, saxað
30 g chili, saxað
Kóríander, fínt skorið
Pipar og salt eftir smekk
Byrjið á að gera rækjurnar klárar
en ef þær eru keyptar tilbúnar í
Fylgifiskum þarf ekki að gera neitt.
Saxið engifer, chili og kóríander og
setjið út á rækjurnar ásamt pipar
og salti. Veltið og snöggsteikið í
olíu á heitri pönnu þar til rækj-
urnar verða fallega rauðar. Tekur
örfáar mínútur.
Ristið mini tortillas á pönnu-
kökupönnu báðum megin þar til
þær eru fallega gullnar. Smyrjið
hvítlauks- og lime sósunni (eða jap.
majó) eftir smekk. Stráið rauðkáli,
gulrótum, radísum og vorlauk á og
tveimur rækjum.
Mjög gott að setja auka kóríander
og chili yfir og sriracha-sósu eftir
smekk. Kreistið lime yfir. Fínn
skammtur er þrjár rækjur á mann
en auðvitað ræður hver og einn
hvað hann borðar mikið. n
Hátún 6b, 105 Reykjavík / Sími 519 3223 / www.hudin.is
Fylliefni er frábær meðferð
til að fríska upp á útlitið.
Bjóðum einnig upp á persónulega ráðgjöf.
Við tökum vel á móti þér.
FYRIR EFTIR
6 kynningarblað A L LT 12. mars 2022 LAUGARDAGUR