Fréttablaðið - 02.04.2022, Síða 10

Fréttablaðið - 02.04.2022, Síða 10
Fjöldi foreldra hefur stigið fram síðustu daga og lýst erfið- leikum við fæðingu. En lausamennsku- hópurinn er ekki lengur auðfenginn til starfa. Það gerir óviss- an. Það er breytan og þar er vandinn Friðrik Rafnsson, formaður Leið- sagnar eitök velun Gleðil e ga p ka Páskarnir byrja í Fjarðarkaupum Íslenskir leiðsögumenn ótt- ast að erlendir starfsbræður þeirra með litla reynslu af íslenskum aðstæðum streymi til landsins næsta sumar vegna skorts á heimamönn- um í fagið. ser@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA Útlit er fyrir mikinn skort á fagmenntuðum íslenskum fararstjórum hér á landi í sumar á sama tíma og búist er við mikilli viðspyrnu í komu erlendra ferðamanna til landsins. Þetta staðfestir Friðrik Rafnsson, formaður Leiðsagnar, stéttarfélags leiðsögumanna á Íslandi, en f lótti brast á í stéttinni á tímum farsótt- arinnar og hafa fjölmargir leiðsögu- menn yfirgefið fagið vegna ótryggs starfsöryggis, ýmist tímabundið eða til langframa. „Það gengur þokkalega að ráða leiðsögumenn til starfa í sumar, en langt í frá í þeim mæli sem við vonuðumst eftir,“ segir Friðrik í ljósi fyrirséðrar fjölgunar á komu erlendra ferðamanna til landsins. „Það verður skortur á fólki, það er augljóst,“ bætir hann við. Hann segir starfsgreinina enn þá vera vankaða af þungu höggi í upp- hafi heimsfaraldursins og að hún hafi varla komist til meðvitundar vegna þess hvað kreppan af hennar völdum varði lengi. „Fjöldi leiðsögu- manna hélt til annarra starfa og sá fjöldi er ekki að koma til baka nema að takmörkuðu leyti af því að hann sér fram á það að ekkert er fast í hendi.“ Um átta hundruð manns eru í Leiðsögn en talsverður fjöldi segir fólki til á ferðum sem eru utan félagsins. Friðrik skiptir hópnum í fernt, fasti kjarni leiðsögumanna, fjórðungurinn í faginu, er mikið bókaður, rétt eins og í hans tilviki, „en ég er uppseldur fram í október,“ segir Friðrik en það eigi við í tilviki reyndra fagmanna. Annar hópur og reynsluminni, helmingur stéttar- innar, sem helgaði sig starfinu áður, taki nú varla að sér leiðsögn nema til viðbótar við aðra vinnu. Þá komi leiðsögumenn á ellilífeyrisaldri alltaf að sérstöku verkefni sem ef til vill telji fjórðung fagmanna. „En lausamennskuhópurinn er ekki lengur auðfenginn til starfa. Það gerir óvissan. Það er breytan og þar er vandinn,“ útskýrir Friðrik og óttast að ferðaþjónustufyrirtæki mæti þessum skorti á íslenskum fag- menntuðum leiðsögumönnum með stórauknum innflutningi á erlendu starfsfólki sem fáir ef nokkrir viti hvaða menntun hefur að baki, ef nokkra. „Þar er hættan, sýnir reynslan, en þar fer stundum fólk sem þekkir ekki til aðstæðna og getur skapað meiri hættu en öryggi í tilviki ferða- mannanna.“ En hann greinir viðsnúninginn. „Viðspyrnan er gríðarleg. Það verður einhver slaki í apríl, en það fer allt á fullt í maí og fram á haust – og þess vegna svíður að allt það fólk sem er að koma til landsins fái ekki þá leið- sögn sem það á skilið,“ segir Friðrik Rafnsson. ■ Sjá fram á mikinn skort á íslenskum leiðsögumönnum yfir sumartímann „Viðspyrnan er gríðarleg. Það verður einhver slaki í apríl, en það fer allt á fullt í maí og fram á haust – og þess vegna svíður að allt það fólk sem er að koma til landsins fái ekki þá leiðsögn sem það á skilið,“ segir Friðrik Rafnsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR birnadrofn@frettabladid.is VIÐSKIPTI Viðskiptavinir Íslands- banka munu geta notað síma í stað debet- eða kreditkorts í hrað- bönkum eftir páska. Viðskiptavinir bankans munu þurfa að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Edda Hermannsdóttir, sam- skiptastjóri Íslandsbanka, segir breytinguna fyrir viðskiptavini. „Þetta verður mikill munur fyrir fólk, það eru margir hættir að ganga með kortin á sér og það eru ansi margir sem nota bara símana til að greiða fyrir verslun og þjónustu.“ ■ Hægt að nota síma í hraðbanka Edda Her- mannsdóttir, samskiptastjóri Íslandsbanka odduraevar@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Starfsfólk fæð- ingarþjónustu Landspítala sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þau segjast vilja læra af frásögnum þeirra kvenna sem stigið hafa fram í vikunni með sögur af mistökum, vanrækslu og óhöppum í heilbrigð- iskerfinu. Í yfirlýsingu sinni segist starfs- fólkið ekki hafa farið varhluta af þeirri umræðu sem kviknaði í sam- félaginu eftir að Bergþóra Birnu- dóttir sagði frá því í Kveik að hún hefði örkumlast við fæðingu eins stærsta barns sem fæðst hefur hér á landi. St ar fsfólk fæðingarþjónust- unnar segir að umræðan sé öllum nauðsynleg. Mjög mikilvægt sé að foreldrar upplifi ekki óöryggi og kemur fram í yfirlýsingunni að vinna sé þegar hafin við að læra af frásögnum vikunnar. Willum Þór Þórsson heilbrigðis- ráðherra ítrekaði að sama skapi í gær, að loknum ríkisstjórnarfundi, að mikilvægt sé að hlustað verði á sögur kvennanna. Ráðherra segir réttarstöðu sjúklinga og starfs- fólks ekki nægilega skýra og hefur endurvakið starfshóp sem vinnur að bættu öryggi sjúklinga og heil- brigðisstarfsfólks. „Því miður verða alvarleg til- vik og um þau eigum við ferla þar sem atburðarás og málsatvik fara í rannsókn hjá Embætti landlæknis og markmiðið hlýtur alltaf að vera að styrkja þessa öryggismenningu í kringum heilbrigðisþjónustu fyrir sjúklinga, og ef við hlustum og lærum af þá getum við bætt verk- lag og ferla og aðferðir,“ sagði heil- birgðisráðherra. ■ Starfsfólk og ráðamenn vilja læra af frásögnum kvenna Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráð- herra lovisa@frettabladid.is SAMFÉLAG Aðgerðahópurinn Stuðn- ings fólk þol end a vænd is hefur birt ógrynni skjáskota úr lok uð um hópi vænd is kaup end a hér á landi þar sem finna má nið ur lægj andi lýsingar af konum. Um mæl in eru frá ár a bil in u 2017 til 2022 og er sá hlut i sem birt ur var í vikunni aðeins lítill hluti þess sem búið er að safna saman. Til stendur að birta fleiri ummæli opinberlega á næstunni. ■ Birta ummæli vændiskaupenda 10 Fréttir 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.