Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 12
Athafna- og
iðnaðarlóðir
Grundartanga
Faxaflóahafnir sf. óska eftir umsóknum um leigu á athafna- og iðnaðarlóðum
á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit. Á Grundartanga eru aðstæður góðar
til uppbyggingar á fjölbreyttri athafna- og iðnaðarstarfsemi; úrval lóða,
iðnaðarhöfn, góðar samgöngur innan svæðis og góðar tengingar við Þjóðveg 1.
Atvinnustarfsemi á svæðinu þarf að falla vel að markmiðum græns hringrásargarðs
eins og lýst er á heimasíðu Grundartanga: www.grundartangi.is
Upplýsingar um stærðir lóða, staðsetningu og afhendingarskilmála
er hægt að nálgast á heimasíðu Faxaflóahafna sf.: www.faxafloahafnir.is
Umsóknarfrestur er til 22. apríl 2022
Fríar forskoðanir
fyrir laseraðgerðir
út apríl
Tímapantanir 414 7000
/Augljos
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
Hampbóndi er ekki sáttur við
dóm fyrir fíkniefnaakstur þar
sem um sé að ræða löglega
neysluvöru.
arib@frettabladid.is
DÓMSMÁL Ragnhildur Gyða Magn-
úsdóttir, hampbóndi og íþrótta- og
heilsufræðingur, segir það óheyri-
lega ósanngjarnt að henni sé nú gert
að greiða sekt og missa ökuréttindi í
hálft ár vegna neyslu á hampi.
Ragnhildur Gyða var í desember
síðastliðnum dæmd í héraðsdómi til
að greiða 100 þúsund krónur í sekt,
166 þúsund krónur í sakarkostnað
og tæpar 1,2 milljónir króna í máls-
varnarlaun, fyrir akstur undir
áhrifum fíkniefna. Málinu fæst ekki
áfrýjað.
Ragnhildur lenti í alvarlegu bíl-
slysi fyrir nokkrum árum og glímdi
við mikið hárlos í kjölfarið.
„Fyrir nokkrum árum var keyrt í
hliðina á mér á 90 kílómetra hraða.
Ég var að fara yfir á grænu ljósi, það
síðasta sem ég sá var bílstjórinn
með andlitið í símanum hjá far-
þeganum. Ég var í mastersnámi,
ég var að keppa í vaxtarrækt, og
þarna endaði líf mitt,“ segir Ragn-
hildur. „Hárlosið var bara ein af fjöl-
mörgum afleiðingum af þessu slysi.
Ég var í nokkur ár í rannsóknum og
prufaði alls konar lyf við hárlosinu
sem höfðu lítið sem ekkert að segja.“
Ragnhildur fann þó að lokum
lausn við vandanum, hamp sem
hún ræktar núna sjálf og borðar
blómin og laufin. Meðal virkra
efna í hampinum er CBD en hann
inniheldur einnig lítið magn af
vímugjafanum THC sem mælist í
þvag- og blóðprufum. Hann var ekki
löglegur fyrst þegar hún byrjaði að
rækta hann. „Daginn eftir að við
fengum háan rafmagnsreikning
kom lögreglan og tók plönturnar
og ekki leið þá á löngu áður en ég
missti aftur allt hárið sem ég hafði
fengið til baka.“
Fyrir tveimur árum veitti heil-
br igðisráðher ra Ly f jastof nu n
undan þágu heimild fyrir innflutn-
ingi og ræktun á iðnaðarhampi, þá
með minna en 0,2 prósenta hlutfalli
af THC. „Ég sótti auðvitað strax um
heimild til ræktunar á iðnaðar-
hampi og erum við nú með tilrauna-
ræktun í gangi.“
Fram kemur í dómnum að blóð-
sýni gefi til kynna að Ragnhildur
hafi neytt efnanna reglulega. Hún
hafnar því alfarið að hafa verið
undir áhrifum við akstur. Vill hún
að hætt verði að notast við blóð- og
þvagprufur til að skera úr um akst-
urshæfni, þess í stað verði notast
við ökuhæfnismat. „Ég færi aldrei
að stefna öðrum í hættu með því að
keyra undir áhrifum, það síðasta
sem ég vil er að einhver lendi í því
sama og ég,“ segir Ragnhildur.
„Þetta er bara ekkert annað en
ranglæti, kúgun og stórkostlegt
brot á mannréttindum. Þetta er
fullkomlega lögleg neysluvara og í
öðru lagi þá er þetta það eina sem
hefur fengið hárið á mér til að vaxa
á ný. Samt er komið fram við mann
eins og maður sé stórhættulegur og
útúrdópaður ökuníðingur og manni
refsað harðlega.“ ■
Ósanngjarnt að
fá dóm fyrir að
neyta hamps
Ragnhildur Gyða glímdi við hárlos í kjölfar bílslyss. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
georg@frettabladid.is
SUÐUR-KÓREA Stjórnlagadómstóll
Suður-Kóreu staðfesti húðflúrsbann
sem verið hefur í gildi í landinu frá
tíunda áratugnum.
Reuters greinir frá því að dómstóll-
inn hafi úrskurðað með naumum
meirihluta að lögin brjóti ekki í
bága við stjórnarskrána og að húð-
flúrun sé áhættusöm og gæti valdið
heilsufarslegum skaða.
Suður-Kórea er eitt örfárra iðn-
ríkja sem skilgreina húðflúrun sem
læknisaðgerð og því aðeins á færi
viðurkenndra lækna að framkvæma
slíkar aðgerðir. Brot á banninu varð-
ar sektir allt að 50 milljónum won,
sem nemur rúmum 5 milljónum
íslenskra króna, og allt að tveggja
ára fangelsisvist.
Samtök húðf lúrara í landinu
höfðuðu mál til að fá banninu
hnykkt árið 2017. Þau hafa harðlega
gagnrýnt úrskurðinn, sem þeim
þykir litast af afturhaldssemi og
skorti á skilningi á menningarlegu
gildi greinarinnar.
Talið er að rúmlega 50 þúsund
húðf lúrarar starfi í leyfisleysi í
landinu. ■
Húðflúrsbann
áfram í gildi í
Suður-Kóreu
georg@frettabladid.is
VÍSINDI Vísindamönnum hefur
tekist að búa til heilsteyptan gagna-
grunn af erfðafræðilegum upp-
lýsingum manna. Um tímamóta-
skref er að ræða en fram að þessu
vantaði upp á rúm átta prósent af
erfðafræðilegu upplýsingunum til
að fá heillega mynd af genamengi
manna. Verkefnið hefur tekið ára-
tugi og mun afurðin koma til með
að gagnast vísindamönnum við að
skilja betur hvernig frumur mynd-
ast í mannslíkamanum, sem mun
nýtast við að greina og meðhöndla
ýmsa sjúkdóma. Rannsóknir við
túlkun á genamengi manna hófust
fyrir rúmum þrjátíu árum og upp-
haflega gátu vísindamenn aðeins
skoðað lítil bil í genamengi manna.
Með tækniframþróun síðustu ára
hafa menn geta skoðað stærri hluta
genamengisins sem gefur af sér
innihaldsríkari niðurstöður um
erfðir og eðlisþætti manna. ■
Genamengi mannsins kortlagt að fullu
12 Fréttir 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ