Fréttablaðið - 02.04.2022, Síða 16
Það er ekkert plan B.
Ewan Watson, talsmaður Rauða
krossins
Mikil upplýsinga-
óreiða einkennir inn-
rásina í Úkraínu. Lítið
er að marka tölfræði
beggja þjóða, hafa því
upplýsingar frá leyni-
þjónustum Vestur-
landa gefið bestu
myndina af stöðunni.
Auglýsing frá yfirkjörstjórn Reykjavíkur um móttöku
framboðslista og aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag
Framboðsfrestur til borgarstjórnarkosninga 14. maí 2022 rennur út föstudaginn 8. apríl kl. 12 á hádegi.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur tekur á móti framboðslistum miðvikudaginn 6. apríl kl. 11-12 og föstudaginn 8. apríl kl. 11-12
í fundarherbergi borgarráðs, Ráðhúsi Reykjavíkur.
Á framboðslista skulu vera nöfn 23 frambjóðenda að lágmarki og 46 að hámarki. Hverjum framboðslista skal fylgja skrifleg
yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þau hafi leyft að setja nöfn sín á listann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri
rafrænni undirskrift.
Framboðslista skal einnig fylgja skrifleg yfirlýsing kjósenda í kjördæminu um stuðning við listann sem skal undirrituð eigin hendi
á eyðublöðum með tölusettum blaðsíðum. Tilgreina skal fullt nafn meðmælanda, kennitölu hans og lögheimili. Fjöldi meðmæl-
enda skal vera 160 að lágmarki og 320 að hámarki. Enginn kjósandi getur mælt með fleiri en einum framboðslista. Frambjóð-
endur á lista geta ekki verið meðmælendur hans og fulltrúar í kjörstjórnum geta ekki verið meðmælendur framboðslista.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og lögheimili.
Skulu nöfn frambjóðenda rituð á framboðslista að lágmarki með einu eiginnafni og kenninafni eins og þau birtast í þjóðskrá.
Mælst er til að framboðslistum verði einnig skilað á rafrænu formi og meðmælendalistar skráðir rafrænt á þar til gert vefsvæði
á: https://island.is/medmaelendalistar-skraning-fyrir-frambod.
Loks skal fylgja framboðslista tilkynning frá þeim stjórnmálasamtökum sem bjóða fram listann um það hverjir tveir menn séu
umboðsmenn listans ásamt tengiliðaupplýsingum þeirra.
Tilkynning um framboð og yfirlýsing frambjóðenda skal skilað til yfirkjörstjórnar í frumriti ef þær eru undirritaðar eigin hendi,
en rafrænt skjal með fullgildri rafrænni undirskrift skal sent sem viðhengi í tölvupósti á netfangið kosningar@reykjavik.is.
Æskilegt er að sem flestar rafrænar undirskriftir séu á sama skjalinu.
Yfirlýsingu kjósenda um stuðning við framboðslista skal skilað til yfirkjórstjórnar í frumriti undirrituð eigin hendi.
Eyðublöð fyrir allt framangreint eru aðgengileg á www.reykjavik.is/kosningar.
Að öðru leyti er vísað til ákvæða kosningalaga nr. 112/2021 með síðari breytingum og reglugerðar dómsmálaráðuneytis
nr. 330/2022 um framboð og meðmæli við sveitarstjórnarkosningar.
Meðan kosning fer fram, laugardaginn 14. maí nk., verður aðsetur yfirkjörstjórnar Reykjavíkur í Ráðhúsi Reykjavíkur. Að kjörfun-
di loknum fer talning atkvæða fram í Laugardalshöll og mun aðsetur yfirkjörstjórnar flytjast þangað. Talning er öllum opin meðan
húsrúm leyfir og verður streymt frá henni á vef Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar má nálgast á www.reykjavik.is/kosningar eða með því að hafa samband við skrifstofu borgarstjórnar
í s. 411-4706 eða með tölvupósti á kosningar@reykjavik.is.
Reykjavík, 1. apríl 2022
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur
Eva Bryndís Helgadóttir
Ari Karlsson
Tómas Hrafn Sveinsson
BORGARSTJÓRNARKOSNINGAR
14. MAÍ 2022
Rauði krossinn þurfti að
hörfa frá Maríupol í gær
vegna árása Rússa. Rússar
hörfa nú frá Kænugarði.
arib@frettabladid.is
„Þetta er í höndum Pútíns. Það er
hann sem hóf þetta stríð að ástæðu-
lausu. Það er hans ábyrgð að ljúka
þessu,“ sagði Annalena Baerbock,
utanríkisráðherra Þýskalands, við
CNN í gær. Sagði hún að unnið væri
að því dag og nótt að rjúfa þörfina á
því að kaupa gas frá Rússlandi.
Staðan í suðurhluta Úkraínu
hefur lítið breyst síðustu daga. Til
stóð að Rauði krossinn myndi fylgja
á sjötta tug rúta frá umsetnu borg-
inni Maríupol í gær. Erfiðlega hefur
gengið að fá rússneska herinn til að
framfylgja samningum um að flytja
óbreytta borgara frá átakasvæðum.
Petro Andríúsjhenko, aðstoðar-
maður borgarstjórans í Maríupol,
sagði við fjölmiðla í gær að Rússar
hefðu markvisst reynt að koma í veg
fyrir að mannúðaraðstoð bærist til
íbúa borgarinnar. Úkraínumenn
halda enn miðborginni en litlar
sem engar líkur eru á þessum tíma-
punkti á að það takist að rjúfa hring
Rússa um borgina. Ekkert vatn er í
borginni og hafa íbúar þurft að
bræða snjó til að drekka. Enginn
matur er eftir.
Ewan Watson, talsmaður Rauða
krossins, sagði að ekki hefði verið
hægt að halda áfram vegna skot-
hríðar. „Það er ekkert plan B. Við
erum búin að vera að vinna í marg-
ar vikur. Tíminn er á þrotum fyrir
íbúana.“ Til stendur að reyna aftur
í dag.
Fleiri hafa sagt Rússa fara með
f leipur. Vladíjslav Atrosjenko,
borgarstjóri Tjernív, sagði ekkert
að marka orð Rússa um að hætt
verði árásum á borgina og sakaði þá
um að hafa skotið á spítala. Matar-
birgðir og lyf klárast innan viku.
Rússar hafa sakað Úkraínumenn
um að senda tvær Mi-24 þyrlur yfir
landamæri Rússlands til að gera
eldf laugaárás á olíubirgðastöð í
bænum Belgorod. Ef þetta er rétt þá
er það fyrsta árásin innan landa-
mæra Rússlands. Úkraínumenn
hafa ekki viljað viðurkenna að hafa
staðið að baki árásinni en ekki neit-
að því heldur. Rússar fordæma árás-
ina og segja eldsneytið ekkert hafa
að gera með innrásarlið sitt. Sagði
Dmítríj Peskov, talsmaður stjórn-
valda í Kreml, að árásin myndi gera
friðarviðræður erfiðari.
Vítalííj Klitsjko, borgarstjóri
Kænugarðs, sagði að stórar orrustur
væru nú norðan og austan megin
við borgina. „Það er töluverð hætta
á að deyja, ég bið þá sem vilja snúa
aftur að bíða,“ sagði hann. Úkraínu-
menn hafa náð stjórn á bænum
Írpín norðvestan við Kænugarð,
rúmlega helmingur bæjarins er
rústir einar. Unnið er að því að bera
kennsl á þá látnu og leita að fleirum.
Úkraínumenn og Rússar skiptust
á stríðsföngum í gær. Úkraínumenn
vildu staðfesta að 86 hermenn, þar
af 15 konur, væru lausir úr haldi eftir
skiptin.
Evrópuríki setja nú mikinn þrýst-
ing á Kína að taka þátt í refsiað-
gerðum gegn Rússum. Ursula von
der Leyen, forseti framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins, átti
rafrænan fund með Xi Jinping Kína-
forseta í gær. Eftir fundinn sagði
hún að orðspor Kína væri undir,
stjórnmálaskýrendur telja ólíklegt
að Kína muni veita Rússum ein-
hverja fjárhagslega aðstoð þar sem
það væri þeim ekki til hagsbóta til
lengri tíma. ■
Tíminn á þrotum fyrir íbúana í Maríupol
Bíll sem slapp í gegn frá úthverfi Maríupol. Skemmdirnar má rekja til sprengjubrota. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
georg@frettabladid
Á meðan vopnuð átök geisa í
Úkraínu þá há Vesturveldi annars
konar hernað gegn Rússum á bak
við tjöldin. CNN greinir frá því að
Bandaríkjamenn og bandalagsríki
þeirra hafi undanfarið tekið upp á
því að beita forseta Rússlands upp-
lýsinga- og sálfræðihernaði. Mikið
magn af gögnum frá vestrænum
leyniþjónustum hefur nýlega verið
gert opinbert, þar sem upp er dregin
mynd af hægfara og illa skipulagðri
sókn rússneska hersins í Úkraínu,
sem og miklu mannfalli þeirra á
vígstöðvunum. Á sama tíma berast
frá sömu aðilum fregnir um óein-
ingu og spennu meðal ráðamanna
í Kreml. Þá hefur forsetinn verið
sagður einangraður og illa upp-
lýstur um gang mála í Úkraínu.
Öll þessi umfjöllun er talin vera
liður í refsiaðgerðum Vesturvelda
gegn Rússlandi, sem miðast að
því að skilgreina stríðið og gengi
þess í alþjóðlegri umræðu og móta
umræðuna í Rússlandi, sem lýtur
strangri stjórn þarlendra yfirvalda.
Pútín er sjálfur ekki alls ókunn-
ugur þessum aðferðum en hann
hefur gjarnan verið bendlaður við
að beita upplýsingaóreiðu til að
hafa áhrif opinbera umræðu og á
kosningar í öðrum ríkjum víða um
heim. Nú virðist hann fá skammt af
eigin meðali.
Rússar standa þó ekki aðgerða-
lausir í þessu átökum og vart hefur
orðið við mikla njósnastarfsemi í
Evrópu. Mörgum rússneskum ríkis-
borgurum hefur verið vísað úr landi
vegna gruns um njósnir í löndum
víða um Evrópu. Nýlega ákærðu
þýsk yfirvöld yfirmann varaliðs
þýska hersins fyrir að hafa um
langt skeið látið rússnesk yfirvöld
fá mikilvæg gögn og upplýsingar
um þýska herinn. ■
Vestrænar leyniþjónustur þjarma að
Vladímír Pútín með sálfræðihernaði
Pútín hefur
sjálfur verið
bendlaður við
notkun sál-
fræðihernaðar.
16 Fréttir 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐINNRÁS Í ÚKRAÍNU FRÉTTABLAÐIÐ 2. apríl 2022 LAUGARDAGUR