Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 18
n Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Sif Sigmarsdóttir n Mín skoðun Antonio er okkar hagvöxtur. Hann er fulltrúi þeirra þúsunda – og ef til vill tug- þúsunda – sem eru dag hvern að bjarga íslenskum efnahag. Veröld án brandara um hárlos og helför- ina kann að virðast álitleg. Ekki er þó allt sem sýnist. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Af hverju setja Hafnfirðingar alltaf bjór út á svalir á kvöldin? Svo að tunglið verði fullt. Fyrr á tímum, þegar fólk sagði enn Hafnar- fjarðarbrandara, var refsingin við lélegu gríni vandræðaleg þögn. En nú er öldin önnur. Óskarsverðlaunin voru veitt í vikunni. Það voru þó ekki kvikmyndasigrar og kjólar sem voru á allra vörum næsta dag. Eftir að grínistinn Chris Rock sagði brandara um krúnurakað höfuð leikkonunnar Jödu Pin- kett Smith, sem þjáist af hárlossjúkdómi, rauk eiginmaður hennar, Will Smith, upp á svið og rak Rock löðrung. Á frumstæðum tímum Hafnarfjarðar- brandara hefðu viðbrögð við athæfinu vafa- laust verið einsleit: Sá sem gefur öðrum utan undir skipar sér í röð með ofbeldismönnum. Svo einstrengingsleg afstaða til ofbeldis virðist hins vegar ekki eiga upp á pallborðið lengur. „Löðrungurinn er það fallegasta sem ég hef séð,“ sagði leikkonan Tiffany Haddish sem sá kærleik í kinnhestinum. „Nú trúi ég því að enn fyrirfinnist karlmenn sem elska og passa upp á konurnar sína.“ Þótt sumir hafi kallað eftir því að Smith yrði kærður fyrir líkams- árás voru aðrir sem töldu Smith heldur eiga hrós skilið fyrir að taka upp hanskann fyrir þá sem minna mega sín. Lélegir brandarar eru ekkert gamanmál eins og listrænn stjórnandi setningarhátíðar Ólympíuleikanna í Tókýó fékk að kynnast síðasta sumar. Kentaro Kobayashi var rekinn daginn fyrir leikana vegna brandara sem hann sagði tuttugu og þremur árum fyrr um helförina. Kobayashi baðst afsökunar og sagðist nú sjá að „það er ekki starf skemmti- krafta að valda fólki óþægindum.“ Veröld án brandara um hárlos og helförina kann að virðast álitleg. Ekki er þó allt sem sýnist. Einn þekktasti grínisti Breta, Jimmy Carr, komst í hann krappan á dögunum. Í nýju uppistandi á Netflix leitast Carr við að gera grín að myrkari hliðum mannlegs eðlis. „Þegar fólk talar um Helförina á það við harmleikinn þegar sex milljónir gyðinga létu lífið í stríðsmaskínu nasista,“ segir Carr á Netflix. „En við minnumst aldrei á þúsundir sígauna sem nasistar drápu. Það nennir aldrei neinn að tala um hið jákvæða.“ Brandarinn olli uppþoti. Þingmaður krafðist þess að Carr yrði bannað að vera með uppistand því „það væri nóg af fasisma í Evrópu“. Menningarmálaráðherra Breta sagðist íhuga að semja lagafrumvarp sem bannaði streymisveitum að sýna „særandi efni“. Jimmy Carr sagði brandarann hafa átt að vekja athygli á skuggalegri vanþekk- ingu okkar flestra á fjöldamorðum nasista á sígaunum. Það kallaðist brandarar Tölfræðingurinn Nassim Taleb segir mis- heppnaðar tilraunir liggja til grundvallar öllum árangri. „Í hvert sinn sem flugvél hrapar minnka líkurnar á að flugvél hrapi aftur. Farþegaskipið Títanik bjargaði manns- lífum því að nú smíðum við stærri og stærri skip. Fjöldi fólks lést en í kjölfarið jukum við öryggi kerfisins – mistökin voru ekki til einskis.“ Brandarar lúta sömu lögmálum. Á síðasta ári gagnrýndi Chris Rock slaufunarmenn- ingu. „Misheppnaðar tilraunir eru hluti af list,“ sagði Rock. „Það eru mjög skýr skilaboð þegar áhorfendur hlæja ekki.“ Hann sagði ótta grínista við að taka áhættu leiða til leiðinlegrar skemmtunar. Jimmy Carr tekur í sama streng og varar við dauða uppistandsins. „Eftir tíu ár eigið þið eftir að geta sagt við barnabörnin ykkar: „Ég sá einu sinni mann standa á sviði og tala af léttúð um alvarlega hluti. Það kallaðist brandarar og fólk hló að þeim.““ Ásetningurinn kann að vera góður. En ofbeldi er ekki ást. Skemmtun án óþæginda er sefjun. Takmörkun tjáningarfrelsisins er ekki barátta gegn fasisma. Ekki frekar en stríð er „sérstök hernaðaraðgerð“. n Kærleikur kinnhestsins Það er hverjum manni mikilvægt að fara inn í fiskvinnsluhús lands- manna, hringinn í kringum landið. Þar sér hann ekki einasta verðmæta- sköpunina í landinu og útflutn- ingsverðmætin, heldur líka hið raunverulega Ísland. Erlent vinnuafl heldur uppi hagvextinum á Íslandi. Án þess yrðu heimamenn að búa við lakari kjör. Og það er einmitt í krafti þessa fólks, sem kemur alls staðar að úr heim- inum, að upprunalegir eyjaskeggjar búa við almennilegt lífsviðurværi. Í einni fiskiðju sem skrifari þessara orða heimsótti nýverið voru yfir níutíu prósent fiskverkafólksins af erlendu bergi brotin þegar mest lét fyrir tíma farsóttarinnar. Eitthvað minnkaði sú tala þegar pestin stóð sem hæst. En í öllu falli gæti þessi fiskframleiðandi, fyrr og síðar, lokað fyrir starfsemi sína ef hann hefði ekki svo til óheftan aðgang að frjálsu f læði vinnuafls utan úr heimi. Heimamenn gleyma þessari sannreynd. Þeir átta sig ekki á gráum veruleikanum fyrr en þeir standa andspænis honum í fiskvinnslu- húsi úti á landi. Og þar heilsar þeim Antonio, hartnær sjötugur maður sem hefur unnið á þessum sama vinnustað til ótal margra ára, ellefu mánuði í senn, en sent stærstan hluta launanna sinna heim til Portúgals í hverjum mánuði á meðan hann vinnur harðri hendi á Íslandi. Og fer svo tólfta mánuðinn heim til fjölskyldunnar og umvefur ástvini sína. Þessar sögur eru Íslandssögur okkar tíma. Og þegar Antonio er spurður af hverju í ósköpunum hann leggi þetta á sig í skiptum fyrir stuttan tíma úr ári fyrir fjölskylduna svarar hann því blíðlega til að hvergi fái hann tryggari og öruggari vinnu til að styðja við framtíð barna sinna og barnabarna. Og maður situr hugsi eftir. Antonio er okkar hagvöxtur. Hann er full- trúi þeirra þúsunda – og ef til vill tugþúsunda – sem eru dag hvern að bjarga íslenskum efnahag. Kannski látum við hin okkur fátt um finnast. Og kannski þurfum við hin að standa í nógu mikilli nálægð við þennan veruleika til þess að átta okkur á mikilvægi hans – og sömuleiðis þeirri breytingu, líklega varanlegri, sem er að verða á atvinnuþátttökunni á Íslandi. Margt af okkar erlenda vinnuafli sest að hér á landi, til skamms eða langs tíma. Margt af því verður að venjulegum Íslendingum þegar tímar líða fram. Og margir fara aftur heim. En mikil- vægi erlends vinnuafls er aldrei skýrara. n Antonio VÍSINDIN OG VIÐ MÁNUDAGA KL. 20.00 OG AFTUR KL. 22.00 Dr. Lotta María Ellingsen og leitin að heilasjúkdómum. SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 2. apríl 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.