Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 20
Besta deildin rúllar af
stað eftir 16 daga, en opn-
unarleikurinn verður milli
Íslandsmeistara Víkings og
FH. Stjörnur deildarinnar fá
þá ábyrgð að draga fólk á völl-
inn en nú er hægt að mæta
án grímu og hafa gleðina við
völd í stúkum landsins. Flest
lið ætla að leggja mikið upp
úr upplifun áhorfenda, en það
er leikmannanna að draga
fólkið á völlinn. Fréttablaðið
skoðaði hvaða leikmenn
munu skína skærast.
hoddi@frettabladid.is
Stjörnurnar
sem munu skína í sumar
Aron
Jóhannsson
31 árs
sóknarmaður
Þessi 31 árs gamli framherji kemur
heim úr atvinnumennsku og miklar
væntingar eru gerðar til hans. Hefur
alla hæfileikana til þess að leika sér
að Bestu deildinni í sumar. Hefur
ekki spilað mikið í vetur en Vals-
menn hafa farið vel með Aron.
Vonir standa til að Aron verði eins
og kálfur að vori þegar mótið fer af
stað.
Kristinn Freyr
Sigurðsson
30 ára
miðjumaður
Það trúa því fáir að Valur hafi ekki
viljað halda í Kristin Frey sem hefur
verið jafnbesti leikmaður íslenska
boltans síðustu ár. Kristinn og Heim-
ir Guðjónsson, þjálfari Vals, náðu
ekki saman en Ólafur Jóhannesson
þjálfari FH kann að ná því besta fram
úr Kristni. Blómstri Kristinn gæti FH
farið í titilbaráttu.
Viktor Karl
Einarsson
25 ára
miðjumaður
Var einn besti leikmaður Íslands-
mótsins í fyrra og með nýjan
fjögurra ára samning í vasanum eru
væntingar til þess að hann leiði liðið
til sigurs í Bestu deildinni. Viktor er
snöggur og klókur miðjumaður sem
getur gert usla í vörn andstæðinga
með klókindum.
Kristall Máni
Ingason
20 ára
miðjumaður
Töframaður á vellinum sem var
frábær þegar Víkingur fór á skrið
síðasta sumar þegar liðið vann
Íslands- og bikarmeistaratitilinn.
Kristall er klókur leikmaður með
góðan sprengikraft og búast
Víkingar við því að hans stjarna skíni
svo skært í sumar að hann haldi út í
atvinnumennsku fyrr en síðar. Fjöldi
erlendra félaga fylgist með töfrum
hans innan vallar.
Óskar Örn
Hauksson
37 ára
miðjumaður
Listamaðurinn Óskar Örn fær það
verkefni að koma silfurskeiðinni í
Garðabæ aftur í hóp þeirra bestu.
Eftir magnaðan feril með KR ákvað
Óskar að taka nýrri áskorun, hefur
virkað frískur í vetur og gæti verið
lykilmaður í því að Stjarnan berjist á
toppi deildarinnar.
Hólmar Örn
Eyjólfsson
31 árs
varnarmaður
Hólmar er varnarmaður á besta aldri
og kom frítt til félagsins frá Rosen-
borg í Noregi. Hólmar var í 14 ár í
atvinnumennsku og á að baki 19 A-
landsleiki fyrir Ísland en hann hætti
að spila fyrir landsliðið á síðasta ári.
Lék fyrir West Ham, Bochum og fleiri
lið á ferlinum og ætti að verða besti
varnarmaður deildarinnar.
Hallgrímur Mar
Steingrímsson
31 árs
miðjumaður
Hefur verið með lyklavöldin að fót-
boltanum á Akureyri síðustu ár en
hefur lítið verið með í vetur vegna
meiðsla. Hallgrímur er hins vegar
byrjaður að æfa af krafti og á að vera
klár í slaginn þegar Besta deildin fer
af stað. Er með hæfileikaríkari leik-
mönnum deildarinnar og skemmti-
kraftur af Guðs náð.
Theodór Elmar
Bjarnason
35 ára
miðjumaður
Hefur sagt frá því að hann ætli sér að
verða besti leikmaður deildarinnar
í ár og hefur klárlega hæfileikana til
þess. Elmar átti frábæran atvinnu-
mannaferil og var í stóru hlutverki
hjá landsliðinu í kringum Evrópu-
mótið árið 2016.
20 Íþróttir 2. apríl 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 2. apríl 2022 LAUGARDAGUR