Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 24
Söfnunarþætti fyrir Úkraínu
Í kvöld, laugardagskvöld, verður í
beinni útsendingu söfnunarþáttur
á RÚV sem er sannarlega ekki af
verri endanum. Í þættinum koma
fram landsþekktir tónlistarmenn
og f lytja lag þáttarins, endurgerð
á hinu sívinsæla Diskó Frískó með
nýjum texta Braga Valdimars Skúla-
sonar. Meðal f lytjenda eru Daníel
Ágúst, Birgitta Haukdal, Páll Óskar
og Helga Möller og er markmiðið
að fjölga í hópi Heimsforeldra og
styðja við neyðaraðgerðir UNICEF
í Úkraínu.
Allra síðustu veiðiferðinni
Stundum þarf maður bara að geta
sest niður og skemmt sér. Ekki
hugsa, bara horfa og hlæja. Allra
síðasta veiðiferðin svíkur engan
sem vill geta gleymt sér og fylgst
með okkar bestu og fyndnustu
leikurum fara á kostum. Það reynir
sannarlega á magavöðvana að horfa
á Allra síðustu veiðiferðina. n
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Breska
þingið
taldi sér
skylt að
framfylgja
þjóðar-
vilja.
Við mælum með
Hvernig
útskýrir
maður slíkt
fyrir sak-
lausu
barni?
BJORK@FRETTABLADID.IS
Hópur kvenna ákvað að taka
málin í sínar hendur þegar
þær fundu fyrir vöntun á stað
til að hittast með börn sín og
bjóða þær í dag, laugardag,
alla velkomna á styrktarvið-
burð Fjölskyldulands.
bjork@frettabladid.is
Hópnum, sem saman-
stendur af fagfólki í
uppeldisgeiranum,
fannst skorta aðstöðu
hér á landi þar sem
fólk gæti leitað skjóls fyrir veðri,
léttklætt, berfætt og notið saman,
allt árið um kring.
Hópurinn hefur undanfarið
unnið hörðum höndum við að
undirbúa slíka f jölskyldumið-
stöð, Fjölskylduland, sem stefnt er
að því að opna í sumar. Það mun
hýsa fyrsta innanhússleikvöllinn á
Íslandi undir sama þaki og kaffihús
og fjölskyldumiðstöð þar sem for-
eldrar, börn og umönnunaraðilar
geta leikið, fræðst og nærst, bæði á
líkama og sál.
Hannað á ævintýralegan hátt
Til að fjármagna verkefnið brá
hópurinn á það ráð að hefja söfnun
á Karolina Fund auk þess sem í dag
verður hægt að styrkja verkefnið og
skemmta sér um leið í húsnæði Fjöl-
skyldulands, Dugguvogi 4.
„Húsnæðið er hrátt iðnaðarhús-
næði sem þarfnast aðhlynningar
en býður upp á mikla möguleika,
það er hátt til lofts og bjart sem var
algjört skilyrði fyrir okkur,“ segir
Sólveig Kristín Björgólfsdóttir úr
Þorpinu – tengslasetri, einu fyrir-
tækjanna sem að verkefninu standa.
„Arkitekt og leikmyndahönnuður
eru búnir að hanna rýmið á ævin-
týralegan hátt og strax eftir helgi
verður tréhús byggt sem hluti af
leiksvæðinu. Iðnaðarmenn bíða í
startholunum og vinda sér í fram-
kvæmdir um leið og nægt fjármagn
safnast.“
Söfnun á Karolina Fund
Sólveig segir búið að þróa þá þjón-
ustu sem verður í boði og að skapa
vettvang fyrir þá sem vilja styðja
við barnafjölskyldur með einum
eða öðrum hætti innan Fjölskyldu-
lands. „Söfnunin á Karolina Fund
er því til þess gerð að fjármagna
standsetningu á húsnæðinu sem
mun halda utan um þann vettvang
en það er töluvert fjármagn sem fer
í að gera það upp.“
Innanhússleikvöllurinn verður
sérsniðinn fyrir börn á grunnskóla-
aldri en þjónusta miðstöðvarinnar
býður upp á eitthvað fyrir alla fjöl-
skylduna, hvort sem það er saman
eða hvert í sínu lagi.
„Fólk getur mætt og keypt stakt
skipti en ef það kaupir meðlima-
kort, sem gildir fyrir alla fjölskyld-
una, fær það 40 prósenta afslátt
af aðgangseyri fyrir hvert barn og
afslætti af annarri þjónustu í Fjöl-
skyldulandi. Foreldrar fá aðgang að
leiksvæðinu sér að kostnaðarlausu,“
segir Sólveig.
Fjölbreytt dagskrá í dag
Eins og fyrr segir stendur hópurinn í
dag fyrir viðburðinum Reisum fjöl-
skylduland, þar sem opið verður
leiksvæði fyrir yngstu börnin og
pop-up leikvöllur fyrir tveggja ára
og eldri.
Enginn aðgangseyrir verður
rukkaður en tekið er á móti frjálsum
framlögum sem fara í það að gera
Fjölskylduland að veruleika sem
fyrst.
„Dagskráin er fjölbreytt og er eitt-
hvað fyrir alla fjölskylduna,“ segir
Sólveig.
„Boðið verður upp á fjölbreyttar
tengslaeflandi upplifanir frá klukk-
an 10 til 17 sem endurspegla þá tíma
sem verða í stundatöflu þegar Fjöl-
skylduland verður opnað. Þar má
meðal annars nefna fjölskyldujóga,
fræðslu með leikívafi og sögustund
ásamt samvinnutíma umönnunar-
aðila og barna. Dagskráin einkenn-
ist af léttleika, f læði og sköpun,“
segir hún að lokum.
Dagskrána er hægt að kynna sér
nánar á samfélagsmiðlum Fjöl-
skyldulands.
Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta,
geta kynnt sér verkefnið og lagt því
lið á karolinafund.com/project/
view/3748 n
Fannst vanta samastað
fyrir barnafjölskyldur
María Ösp
Ómarsdóttir,
Kristín Stefáns-
dóttir, Sólveig
Kristín Björg-
ólfsdóttir og
Helga Hreiðars-
dóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Í dag verður styrktarviðburður í Fjöl-
skyldulandi og dagskráin fjölbreytt.
Í nýlegum Þjóðarpúlsi Gallup kom
fram að 60 prósent þjóðarinnar eru
hlynnt fullri aðild Íslands að ESB.
Innrás Rússa í nágrannaríkið
Úkraínu hefur gerbreytt heims-
myndinni. Sviss horfið frá hlut-
leysisstefnu og Finnar og Svíar íhuga
nú í fullri alvöru aðild að Nató.
ESB hefur frá öndverðu verið frið-
arbandalag og skýr viðbrögð aðild-
arríkja bandalagsins við innrás
Rússa er ekki hægt að túlka nema á
einn veg. Í framtíðinni verður ESB
varnarbandalag Evrópuríkja.
Ógnin úr austri er slík að Evrópa
getur ekki lengur reitt sig eingöngu
á varnarmátt Bandaríkjanna, eða
vilja þeirra til að verja Evrópu.
Reynslan af forsetatíð Trumps er víti
til varnaðar fyrir bandalagsþjóðir
Bandaríkjanna.
Þegar ríkisstjórn Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks hætti viðræðum
við ESB 2014 sveik forysta Sjálf-
stæðisf lokksins gefin loforð og
flokkurinn klofnaði í kjölfarið.
Á Alþingi er komin fram þings-
ályktunartillaga um að efnt verði
til þjóðaratkvæðagreiðslu um fram-
hald viðræðna um aðild Íslands að
Evrópusambandinu frá þingmönn-
um Samfylkingarinnar, Viðreisnar
og Pírata.
Rök Sjálfstæðismanna 2014 fyrir
því að hætta viðræðum voru að
þingmeirihluta skorti fyrir aðild að
ESB og þau rök eru komin fram á ný.
Þau rök halda hins vegar ekki.
Aðild að ESB er svo stór ákvörðun
að einungis þjóðin getur tekið hana.
Þinginu ber að virða vilja þjóðar-
innar í grundvallarmálum.
Þjóðarviljinn, ekki þingsins, skiptir öllu máli
Í Bretlandi var ekki þingmeiri-
hluti fyrir Brexit þegar breska
þjóðin kaus útgöngu úr ESB. Engu að
síður taldi breska þingið sér skylt að
framfylgja vilja naums meirihluta
þjóðarinnar.
Þingmenn sem ekki treysta sér til
að framfylgja skýrum þjóðarvilja
ættu alvarlega að íhuga tafarlausa
afsögn.
Alþingi ber að gefa þjóðinni
tækifæri til að taka ákvörðun um
framhald aðildarviðræðna að ESB.
Annað er ofbeldi gegn lýðræðinu. n
Við höfum ekki beint talað við hana
um stríðið. Hún skilur ekki þetta
orð stríð og hún er það ung að þótt
við reyndum, myndi hún ekki skilja
nákvæmlega hvað er í gangi, annað
en að fólk sé vont við hvert annað,“ segir Karl
Garðarsson aðspurður um viðbrögð hálf-úkra-
ínskrar dóttur sinnar við voveiflegum fréttum
frá heimalandi móður hennar.
Karl og eiginkona hans, Iryna Novakovska,
prýða forsíðu þessa tölublaðs ásamt dóttur
sinni, Lilju, sem skírð er eftir úkraínskri móður-
ömmu sinni.
Þetta svar Karls segir sína sögu af hinum
grimmilegu átökum sem nú eiga sér stað af
hendi Rússa í Úkraínu. Hvernig útskýrir maður
slíkt fyrir saklausu barni? Barni sem alið er upp
í öryggi á Íslandi auk þess sem það hefur varið
flestum sumrum ævi sinnar í sumarparadísinni
hjá ömmu og afa í Úkraínu. Ömmu og afa sem
nú neita að yfirgefa heimalandið án sonar síns
sem er á herskyldualdri.
Það er ekki hægt.
Prófaðu nú að ímynda þér barnið í myrkum
kjallara í Úkraínu, á flótta frá heimalandi sínu
eða hið allra versta, illa slasað eða jafnvel látið. n
Að útskýra stríð fyrir barni
24 Helgin 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 2. apríl 2022 LAUGARDAGUR