Fréttablaðið - 02.04.2022, Side 35

Fréttablaðið - 02.04.2022, Side 35
Við leitum að framúrskarandi mannauðsstjóra til að taka þátt í ferðalaginu framundan. Viðkomandi þarf að búa yfir forystuhæfni, samskiptafærni, styrk til að taka ákvarðanir og frumkvæði til að ná árangri í starfi. Góð laun og fríðindi í boði. Helstu verkefni: • Ábyrgð á mótun stefnu í mannauðsmálum og framkvæmd. • Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk á sviði mannauðsmála. • Umsjón með umbótaverkefnum, fræðslumálum og starfsþróun. • Mótun ferla og innleiðing umbótaverkefna. • Þróun starfsumhverfis. • Ýmis verkefni fyrir framkvæmdastjórn og stjórn. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála kostur. • Þekking og marktæk reynsla á sviði mannauðsmála. • Skipulögð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi. • Reynsla af umbótaverkefnum, teymisvinnu og breytingastjórnun er kostur. • Framúrskarandi hæfni í samskiptum, jákvætt viðmót og sveigjanleiki. • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í starfi. • Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og mæltu máli. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl nk. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is). Mannauðsstjóri Travelshift er leiðandi ferðatæknifyrirtæki. Félagið var stofnað árið 2012 og rekur meðal annars Guide to Iceland, markaðstorg sem er notað af yfir 1500 ferðaþjónustufyrirtækjum á Íslandi. Yfir milljón ferðamenn heimsækja vefsíðuna í hverjum mánuði. Auk Guide to Iceland, rekur félagið Guide to the Philippines, vinsælustu ferðaheimasíðu Filipseyja. Travelshift er alþjóðlegur vinnustaður með um áttatíu starfsmenn, þar af er helmingur á Íslandi. Travelshift hefur hlotið verðlaunin Iceland’s Leading Travel Agency frá World Travel Awards 4 ár í röð, frá 2018-2021. Fyrirtækið er leiðandi á heimsvísu í framsækinni hugbúnaðargerð og sjálfvirknivæðingu. www.travelshift.com VERKEFNASTJÓRI Í ENDURMENNTUN LBHÍ OG KENNARI Í HESTAFRÆÐUM Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir því að ráða verkefnastjóra í Endurmenntun sem jafnframt kemur að kennslu í hestafræðum. Um er að ræða fullt starf. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGD • Umsjón með námskeiðsframboði, námsgögnum og skipulagi í samstarfi við endurmenntunarstjóra • Þróun og uppbygging námskeiðsframboðs einkum á sviði reiðmennsku og hestafræða • Samskipti og miðlun upplýsinga til kennara og nemenda • Samskipti við helstu hagsmunaaðila innan og utan skólans • Undirbúningur og umsýsla námskeiða • Þróun námskeiða og kennsla í hestafræði og tengdum greinum við endurmenntun og aðrar deildir LbhÍ • Önnur tilfallandi verkefni HÆFNISKRÖFUR • Háskólapróf í reiðkennslu/tamningum og reynsla af þjálfun hrossa • Reynsla af verkefnastjórnun • Reynsla af kennslu og fullorðinsfræðslu • Góð tölvukunnátta • Geta til að vinna sjálfstætt og sem hluti af hóp • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri LbhÍ - gudmunda@lbhi.is Sótt er um á starfatorg.is - Umsóknarfrestur 19. apríl 2022 ENDURMENNTUNARSTJÓRI Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir því að ráða endurmenntunarstjóra við skólann. Um er að ræða fullt starf. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGD • Umsjón með rekstri, fjármálum og daglegri starfsemi Endurmenntunar LbhÍ • Umsjón með stefnumótun, þróun og uppbyggingu námskeiðsframboðs í samstarfi við hagaðila • Umsjón með námskeiðum og faglegu framboði Endurmenntunar LbhÍ • Ábyrgð á faglegri kennslu og umsýslu námskeiða • Samskipti, samningagerð og miðlun upplýsinga til kennara og nemenda • Nýsköpun og þróun tækifæra á sviði landbúnaðar og matvælaframleiðs- lu í samstarfi við hagaðila • Markaðssetning námskeiðsframboðs í samvinnu við markaðs- og kynningarstjóra LbhÍ • Umsjón með vefsíðu og samfélagsmiðlum Endurmenntunar LbhÍ • Önnur tilfallandi verkefni HÆFNISKRÖFUR • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar, fullorðinsfræðslu eða sambærileg menntun • Reynsla af fjármálum og rekstri • Reynsla af stjórnun og stefnumótun • Reynsla af markaðs- og kynningarstörfum • Reynsla af fullorðinsfræðslu • Þekking á íslensku atvinnulífi sem og á helstu áherslusviðum skólans æskileg • Sjálfstæði, skipulagshæfni og frumkvæði • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti • Reynsla af störfum úr háskólaumhverfi/opinberri stjórnsýslu er kostur NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri LbhÍ - gudmunda@lbhi.is Sótt er um á starfatorg.is - Umsóknarfrestur 19. apríl 2022 LEKTOR Í SKÓGFRÆÐI Laust er til umsóknar 100% starf lektors í skógfræði við deild Náttúru og skóga hjá Landbúnaðarháskóla Íslands með áherslu á ræktun skóga og tengingu við sjálfbæra landnýtingu. Viðkomandi er ætlað að styrkja núverandi starf deildar á sviði rannsókna, kennslu og þjónustu við samfélagið. Hlutverk deildarinnar er að byggja brú á milli náttúru og samfélags með rannsóknum, kennslu, þjálfun og ráðgjöf á sviði sjálfbærrar landnýtingar og endurheimtar vistkerfa. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGD • Uppbygging alþjóðlega viðurkenndra rannsókna á sviði skógfræði • Birting ritrýndra vísindagreina, öflun rannsóknarstyrkja og virk þátttaka í alþjóðlegu og innlendu samstarfi • Kennsla og þróun námskeiða á grunn- og framhaldsstigi • Leiðbeining nemenda í rannsóknarverkefnum • Virk þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans HÆFNISKRÖFUR • Doktorspróf í skógfræði eða skyldum greinum • Umsækjandi hafi birt rannsóknir sínar á viðurkenndum innlendum og erlendum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn á rannsóknum og þróun fræðasviðsins • Reynsla af kennslu og áhugi til fjölbreyttrar þekkingarmiðlunar á fræð- asviðinu • Reynsla af þátttöku í rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknarstyrkja • Reynsla af rannsóknum og þróun er tengjast skógfræði, sjálfbærni og landnýtingu • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum • Íslenskukunnátta er æskileg FREKARI UPPLÝSINGAR VEITIR Isabel Pilar Catalan Barrio, deildarforseti - isabel@lbhi.is Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri LbhÍ - gudmunda@lbhi.is - Sótt er um á starfatorg.is Umsóknarfrestur 26. apríl 2022 Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.