Fréttablaðið - 02.04.2022, Side 45
2021 - 2024
ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi
bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur
þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
ÁTVR leitar að metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingi til að sinna starfi öryggisstjóra fyrirtækisins. ÁTVR leggur mikla
áherslu á að skapa öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi og mun viðkomandi bera ábyrgð á öryggismálum fyrirtækisins.
Öryggisstjóri
Helstu verkefni og ábyrgð
• Þróun og eftirfylgni öryggis-, heilbrigðis- og
vinnuumhverfismála
• Umsjón og eftirfylgni vegna áhættumats starfa
• Umsjón og eftirlit með öryggiskerfum og brunakerfum ÁTVR
• Hönnun og skipulag öryggis í húsnæði fyrirtækisins
• Þjálfun og fræðsla starfsfólks um öryggismál
• Slysa- og atvikaskráningar
Hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi, menntun á sviði öryggismála kostur
• A.m.k. 3 ára reynsla á sviði öryggismála
• Reynsla af verkefnastjórnun
• Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Þekking á nýjustu tæknimálum er varða öryggiskerfi
• Áhugi á að viðhalda og auka menntun og hæfni á sínu sviði
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af
þessum gildum.
Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl nk.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar. Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um störfin á vinbudin.is.
Nánari upplýsingar: Thelma Kristín Snorradóttir, starf@vinbudin.is – 560 7700.
Verkefnastjóri stafrænnar þróunar
ÁTVR leitar að metnaðarfullum og öflugum einstaklingi til að leiða og fylgja eftir framþróun tæknistefnu fyrirtækisins. Um er
að ræða nýtt og spennandi starf og mun viðkomandi vinna í nánu samstarfi við samstarfsfólk og stjórnendur fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Dagleg stjórnun verkefna á sviði stafrænnar þróunar
og upplýsingatækni
• Stefnumótun, áætlanagerð og þróun lausna
• Innleiðing upplýsingakerfa og þjálfun notenda
• Stuðla að markvissri nýtingu gagna
• Greining, samantekt og miðlun upplýsinga
Hæfniskröfur
• Háskólagráða sem nýtist í starfi
• A.m.k. tveggja ára reynsla af verkefnastjórnun
• Lipurð í þjónustu
• Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
• Hæfni til gagnaúrvinnslu og greiningar
• Góð þekking á upplýsingatækni
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Áhugi og frumkvæði til að viðhalda og auka menntun
og hæfni á sínu sviði
Komdu til liðs við frábæran hóp starfsfólks
Tvö spennandi störf
þar sem reynir á þekkingu,
ábyrgð og lipurð
ATVINNUBLAÐIÐ 11LAUGARDAGUR 2. apríl 2022