Fréttablaðið - 02.04.2022, Page 48

Fréttablaðið - 02.04.2022, Page 48
Heilbrigðisfulltrúi Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir að ráða heilbrigðisfulltrúa til starfa frá 1. júní 2022 með aðsetur á Selfossi. Starfið felst í eftirliti með umhverfis- og mengunarvörnum og hollustuháttum í fyrirtækjum og stofnunum í samræmi við lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og matvælaeftirlit í samræmi við lög um matvæli nr. 93/1995. Starfssvæðið er Suðurland og nær allt frá litlu Kaffistofunni í vestri og að Skeiðarársandi í austri, að meðtöldum Vestmannaeyjum. Menntunar og hæfniskröfur: Háskólanám á sviði raunvísinda, heilbrigðisvísinda, verkfræði eða sambærileg menntun. Um menntun, réttindi og skyldur heilbrigðisfulltrúa fer samkvæmt reglugerð nr. 571/2002. Helstu verkefni • Eftirlit með fyrirtækjum og stofnunum • Útgáfa starfsleyfa, skráning og skýrslugerð • Fagleg ráðgjöf og umsagnir. • Fræðsla og upplýsingamiðlun til fyrirtækja, stofnana og almennings. Hæfniskröfur • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni. • Geta unnið vel undir álagi. • Jákvæðni, samviskusemi og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfileikar. • Hafa gott vald á íslensku í ræðu og riti. • Góð almenn tölvukunnátta. • Ökuréttindi og hrein sakaskrá. Ath. að vinnustaðurinn er reyklaus. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir: Sigrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri í síma 8618669. Umsóknir skal senda á netfangið: sigrun@hsl.is Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2022 Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. www.hsl.is Alverk leitar nú að fleiri samstarfsaðilum/undirverktökum í tengslum við framkvæmdir félagsins Við viljum gjarnan bæta fleiri metnaðarfullum, reynslumiklum og áhugasömum samstarfsverktökum í okkar góða hóp og horfum m.a. til eftirfarandi verkþátta: Áhugasömum aðilum er bent á að senda fyrirspurnir og upplýsingar um sín fyrirtæki á Þorleif Kristinn Árnason (thka@alverk.is) og Aðalgeir Hólmsteinsson (adalgeir@alverk.is) fyrir 20 apríl n.k. • Uppsteypa • Létt burðarvirki • Utanhúsklæðningar • Ísetningar glugga/hurða • Raflagnir • Loftræsting/blikksmíði • Gifsveggir og innanhúsfrágangur • Múrverk og flísalagnir • Lóðafrágangur Alverk er metnaðarfullt og framsækið fyrirtæki í mannvirkjagerð með megináherslu á framkvæmdir og verkfræðiráðgjöf. Fyrirtækið starfar að mestu sem al- og/eða aðalverktaki. Alverk vinnur í dag að mörgum krefjandi og spennandi verkefnum, m.a. byggingu 100 námsmannaíbúða fyrir BN í Stakkahlíð, hönnun og byggingu svefnskála fyrir Landhelgisgæsluna á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar, stækkun hátækniseturs fyrir Aztiq/Alvotech í Vatnsmýri í Reykjavík og er með á undirbúningsstigi byggingu 52 íbúða í Úlfarsárdal sem ætlaðar eru ungu fólki og fyrstu kaupendum, ásamt byggingu 25-30 íbúða við Arnarbakka í Reykjavík. FRAMKVÆMDIR OG RÁÐGJÖF kopavogur.is Menntasvið Kópavogsbæjar sameinar málefni grunnskóla, leikskóla, íþrótta og frístunda í Kópavogi. Kennsluráðgjafi í málefnum nemenda með annað móðurmál en íslensku fer með faglega forystu í málaflokknum fyrir stofnanir menntasviðs. Hann vinnur að stuðningi og ráðgjöf til stjórnenda, kennara og starfsfólks í leikskólum, grunnskólum, frístundum og félagsmiðstöðvum um móttöku barna og ungmenna með annað móðurmál en íslensku. Helstu verkefni: · Þróun lærdómssamfélags um fjölmenningu meðal kennara og starfsfólks þvert á skólastig, frístundir og félagsmiðstöðvar. · Mótun heildstæðrar áætlunar um móttöku og samlögun fjölskyldna með annað móðurmál en íslensku sem flytja til Kópavogs. · Veitir ráðgjöf og stuðning til skólastjórnenda, kennara og starfsfólks í skóla- og frístundastarfi um móttöku, og kennslu barna og ungmenna með annað móðurmál en íslensku. · Hefur umsjón með því að upplýsingar og gögn séu sett fram á viðeigandi tungumálum. · Aðstoðar kennara í leik- og grunnskólum við einstaklingsnámskrárgerð nemenda með annað móðurmál en íslensku. · Stuðlar að notkun spjaldtölva við kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. · Heldur utan um gagnabanka fyrir kennara í leik- og grunnskólum. · Skipuleggur þjálfun og fræðslu fyrir starfsfólk í skóla- og frístundastarfi. · Fylgist með og miðlar nýjungum varðandi málefni barna og ungmenna með annað móðurmál en íslensku. Menntunar- og hæfniskröfur: · Kennaramenntun og leyfisbréf kennara. · Reynsla af kennslu í leik – og/eða grunnskóla. · Framhaldsmenntun (MA, M.Ed eða diploma) á sviði uppeldis- og menntunarfræða eða önnur menntun sem nýtist í starfi. · Reynsla af kennslu og/eða móttöku barna og ungmenna með annað móðurmál en íslensku æskileg. · Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum. · Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi. · Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar. · Færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti. Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2022. Ráðið verður í stöðuna eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningarvef Kópavogsbæjar https://kopavogur.alfred.is/ Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt í gegnum ráðningarkerfið Alfreð. Kennsluráðgjafi í málefnum nemenda með annað móðurmál en íslensku Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is 14 ATVINNUBLAÐIÐ 2. apríl 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.