Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 51
Rektor
Menntaskólans í Reykjavík
Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti rektors
Menntaskólans í Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2022.
Hæfni- og menntunarkröfur
Rektor veitir skólanum forstöðu, stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans
og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá
og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Þá ber rektor ábyrgð á gerð
fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt auk þess að hafa frumkvæði að gerð
skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um
framhaldsskóla nr. 92/2008. Að auki gegnir rektor mikilvægu hlutverki í mótun
skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og er mikilvægt
að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar.
Mennta- og barnamálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að
fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla,
nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996,
með síðari breytingum. Skipað er í embættið frá 1. ágúst 2022.
Nánari upplýsingar er að finna
á vef Starfatorgs: starfatorg.is.
• Starfsheitið kennari ásamt viðbótarmenntun í stjórnun eða
kennslureynslu á framhaldsskólastigi.
• Umfangsmikil stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni.
• Þekking á fjármálum, rekstri og áætlanagerð.
• Reynsla af mannauðsmálum.
• Reynsla af verkefnastjórn og stefnumótunarvinnu.
• Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að skapa liðsheild á vinnustað.
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Skýr framtíðarsýn og hæfileiki til nýsköpunar.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
Viltu leika lykilhlutverk í stafrænni uppbyggingu
stærsta lífeyrissjóðs landsins? Hefur þú reynslu af
uppbyggingu gagnagrunna og hagnýtingu gagna
vöruhúsa? Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins leitar
nú að framsæknum og öflugum sérfræðingi sem er
tilbúinn að taka með okkur næstu skref í stafrænni
vegferð sjóðsins.
LSR hefur sett sér metnaðarfulla stefnu í upp
lýsinga tækni, einkum að bæta þjónustu við
sjóð félaga. Grunnurinn að árangri á þessu
sviði er bætt sýn á gögn ásamt aukinni nýtingu
þeirra og þar mun sér fræðingur í gagnagrunnum
leika lykilhlutverk. Framundan eru fjölbreytt
og spennandi verkefni með samhentum og
metnaðarfullum hópi sem leiðir stafræn
uppbyggingarverkefni LSR.
Meðal verkefna framundan
• Hagnýting gagna við stjórnun, þjónustu og
afstemmingu milli kerfa.
• Áframhaldandi uppbygging á vöruhúsi gagna.
• Innleiðing á skilvirkum og öruggum
gagnasamskiptum við ytri aðila sjóðsins.
Starfssvið
• Hönnun gagnaumhverfa og gagnaarkitektúr.
• Hönnun, uppbygging og viðhald á vöruhúsi
gagna og gagnavinnslu.
• Samþætting lausna.
• Smíði og viðhald á skýrslum og mælaborðum.
• Greiningar.
Menntun og hæfni
• Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði, viðskipta
fræði eða skyldum greinum.
• Reynsla af sambærilegu starfi.
• Mjög góð SQL kunnátta ásamt þekkingu
á högun og uppbyggingu gagnagrunna.
• Góður skilningur á tölfræði og hæfni til að
túlka gögn.
• Reynsla af tólum vegna þróunar gagnavöruhúsa
er kostur, s.s. TimeXtender, Azure Data Factory,
exMon, PowerBI o.s.frv.
• Almenn tækniþekking er kostur, s.s. grunn
skilningur á REST og SOAP vefþjónustuskilum.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir,
framkvæmdastjóri Hagvangs, katrin@hagvangur.is.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 18. apríl 2022.
Umsókninni þarf að fylgja starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
OG FRAMSÆKNI
SÉRFRÆÐINGUR Í GAGNAGRUNNUM
OG VÖRUHÚSI GAGNA
ÞEKKING, REYNSLA