Fréttablaðið - 02.04.2022, Qupperneq 78
Okkar ástkæri
Trausti Hvannberg Ólafsson
rafmagnsverkfræðingur,
Sturlu-Reykjum, Reykholtsdal,
lést af slysförum við Bröttubrekku
þriðjudaginn 29. mars.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 8. apríl klukkan 13.
Elísabet Jóna Ingólfsdóttir
Nanna Kristjana Traustadóttir Ólafur S. Jóhannesson
Elís Traustason Edda Marín Einarsdóttir
Ragnheiður Traustadóttir Mikkel Kjær Regnér
Ragnheiður Salóme Kristjónsd.
Brynjólfur Þ. Brynjólfsson
Valdimar Páll Brynjólfsson
og barnabörn.
Ástkær bróðir okkar,
móðurbróðir og mágur,
Magnús Gerðarsson
Rangárseli 16, 109 Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
við Hringbraut, laugardaginn 19. mars sl.
eftir skammvinn veikindi.
Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti,
þriðjudaginn 5. apríl kl. 13.00.
Gyða Hrönn Gerðarsdóttir Hallur Helgason
Jónína Ingibjörg Gerðarsdóttir
Gunnhildur Snorradóttir
Lilja Bára Steinþórsdóttir Kristinn Gunnarsson
og aðrir aðstandendur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðni Garðarsson
lést miðvikudaginn 23. mars.
Útförin fer fram frá Áskirkju
fimmtudaginn 7. apríl kl. 15.00.
Garðar Guðnason Anna Jónsdóttir
Andri Guðnason
Bjartur Logi Guðnason Jóhanna Ósk Valsdóttir
Dögg Guðnadóttir Svavar Þór Einarsson
barnabörn og langafabörn.
Elskuleg eiginkona mín
og amma okkar,
Sigrún Guðmundsdóttir
Sléttuvegi 29, Reykjavík,
lést á Hrafnistu við Sléttuveg
þriðjudaginn 28. mars. Útför hennar fer
fram frá Seljakirkju 8. apríl klukkan 13.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu fyrir hlýja
og góða umönnun.
Kristján Sigtryggsson
Aðalbjörg Skúladóttir Árni Kristinn Skúlason
Halldóra Þórdís Skúladóttir Kristján Pálmi Ásmundsson
Elskulegur sonur minn,
bróðir okkar, mágur og frændi,
Davíð Örn Kjartansson
Bláhömrum 2,
lést á krabbameinsdeild LSH
17. mars síðastliðinn. Útför fer fram
frá Vídalínskirkju 6. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjálparsveit skáta
í Kópavogi. Kt. 410271-0289, reikn.nr: 0322-26-000446.
Emma Arnórsdóttir
Petra Björg Kjartansdóttir
Bjarni Þór Kjartansson Klara Karlsdóttir
Emma Ösp og Kjartan Karl
Kæri bróðir okkar,
Kristján Karl Sigmundsson
Suðurhólum 16,
sem lést mánudaginn 7. mars sl.
verður jarðsunginn frá Fella- og
Hólakirkju föstudaginn 8. apríl kl. 13.
Freyja Helgadóttir Kjartan Tómasson
Heiður Helgadóttir
Drífa Helgadóttir Guðbrandur Kristvinsson
Erla Kristjánsdóttir
Ásgeir Ásgeirsson Ásta S. Halldórsdóttir
vinir og vandamenn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ester Úranía Friðþjófsdóttir
frá Rifi,
lést á Hrafnistu mánudaginn 28. mars.
Útförin fer fram frá Ingjaldshólskirkju
í Snæfellsbæ laugardaginn 9. apríl kl. 14.
Baldur Freyr Kristinsson Guðrún Elísabet Jensdóttir
Elvar Guðvin Kristinsson Þórdís Bergmundsdóttir
Dóra Sólrún Kristinsdóttir Guðbrandur Jónsson
Jóhann Rúnar Kristinsson Katrín Gísladóttir
Helena Sólbrá Kristinsdóttir Guðmundur Gunnarsson
Snædís Elísa Kristinsdóttir Andrés Helgi Hallgrímsson
Guðbjörg Huldís Kristinsd. Óskar Guðjónsson
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Ingibergur Þór Kristinsson
Vallargötu 21, Keflavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
heimili sínu, fimmtudaginn 24. mars.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
fimmtudaginn 7. apríl klukkan 13.
Guðrún Júlíusdóttir
Lárus Kristján Ingibergsson Amal El Idrissi
Kamilla Ingibergsdóttir
Ingi Þór Ingibergsson Anna Margrét Ólafsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
Þórir Indriðason
lést þann 26. mars.
Þórdís Ása Þórisdóttir
Sigvaldi Elís Þórisson
börn, barnabörn og barnabarnabarn.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Kjartan Ólafsson tónskáld varð
að brjóta eigin tónsmíðareglur til
að semja nógu hæga og afslapp-
aða slökunartónlist, en í ljós
kemur að hún hefur lækninga-
mátt, að hans sögn.
ser@frettabladid.is
Það eru tímamót í lífi Kjartans Ólafsson-
ar tónlistarmanns sem hvað kunnastur
er fyrir sígilda lagið sitt La líf, en fyrir
skömmu hóf hann að semja hugleiðslu-
og heilunartónlist, eitthvað sem hann
ætlaði sér aldrei að gera í lífinu.
En svona er þá la líf í rauninni. „Ég
varð fyrir miklum þrýstingi frá konunni
minni sem er á fullu í þessum andlegu
málum eins og svo margir í dag, svo ég
varð bara að svara kallinu. Og hana nú,“
segir raftónlistarmaðurinn kunni, sem
lærði fræði sín í Hollandi um árið.
Nokkrar atlögur
En það gekk ekkert í fyrstu. Konan
hafnaði hverri hugmyndinni af ann-
arri. „Henni þótti efnið ekki vera nógu
hugleiðslulegt,“ heldur Kjartan áfram og
ekki er laust við að greina megi nokkra
höfnunartilfinningu í þessum orðum
tónskáldsins.
„Svo þetta voru nokkrar atlögur,
vittu til, eða öllu heldur nokkuð margar
atlögur,“ bætir hann við, en það kom
þó að því að konan gaf honum grænt
ljós. „Þá hitti ég sumsé á réttu taugina,“
útskýrir þolinmóði eiginmaðurinn á
heimili þeirra hjóna í Einarsnesi – og
kveðst með öðrum orðum hafa komist
að leyndarmálinu. „Mér tókst að lokum
að semja laglínur sem voru nógu hægar
og mjúkar, eða mér liggur við að segja
afslappaðar.“
Braut eigin reglur
En þetta var tónskáldinu erfitt, raunar
afar þungt, því fyrir vikið þurfti það að
breyta öllum þeim reglum sem Kjartan
Ólafsson tónsmíðakennari hefur kennt
nemendum sínum í tónlistarskóla um
langt árabil.
„Ég endaði í algerri mótsögn við sjálf-
an mig, ef svo má segja. Ég neyddist bók-
staflega til að brjóta allar mínar helgu
tónlistarreglur til að hægja nógu mikið
á músíkinni. Og það tókst með semingi,
skulum við segja,“ rifjar Kjartan upp, en
vel að merkja, konan var ánægð, loksins
ánægð – og það skiptir auðvitað máli á
heimilinu í Einarsnesi.
„Á endanum var þetta svolítið eins og
að semja á nýjaleik lagið La líf sem fólst
einmitt í því að brjóta reglurnar,“ og
Kjartan líkir þessu við að fara út í eyði-
mörkina, einn með sjálfum sér og upp-
götva innri mann upp á nýtt.
Læknandi músík
Útkoman liggur fyrir á Spotify og hentar
að sögn tónskáldsins – og konu þess, vel
að merkja – alveg einstaklega vel til slök-
unar og jafnvel gott betur, djúpslökunar,
en Kjartan notast við nýstárlega gervi-
greind við smíðarnar.
„Og viti menn,“ segir hugleiðslutón-
skáldið splunkunýja, „tónlistin hefur
þegar vakið umtal og marga til umhugs-
unar. Og það er líka svo merkilegt að
músíkin virðist virka mjög vel á börn
sem eru með þroskafrávik og eru jafn-
vel á einhverfurófi.“
Þetta langar hann að rannsaka frekar
– og er í því efni kominn í kompaní við
Friðrik Karlsson, einn helsta frumherja
landsmanna í slökunartónlist svo að
hugmyndin upphaflega er heldur betur
farin að vinda upp á sig.
„Ég geri mér vonir um að tónlist af
þessu tagi geti í framtíðinni komið að
einhverju leyti í stað lyflækninga,“ segir
Kjartan Ólafsson. n
Rannsakar framtíðarmúsík
sem gæti leyst lyf af hólmi
Kjartan Ólafsson
tónskáld heima í
Einarsnesinu þar
sem slökunartón-
listin varð til, með
harmkvælum í
fyrstu: „Ég endaði í
algerri mótsögn við
sjálfan mig.“
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Og það er líka svo merkilegt
að músíkin virðist virka
mjög vel á börn sem eru
með þroskafrávik og eru
jafnvel á einhverfurófi.
42 Tímamót 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ