Fréttablaðið - 02.04.2022, Side 84
Kia hefur staðfest að fram-
leiðsluútgáfa EV9-tilraunabíls-
ins muni fara á sölu í Evrópu.
Að sögn Þorgeirs R. Páls-
sonar, sölustjóra Kia, kemur
EV9 einnig hingað til lands,
væntanlega í lok næsta árs.
njall@frettabladid.is
Bíllinn er enn í tilraunaútfærslu sinni
en búast má við að bíllinn breytist
ekki mikið frá framúrstefnulegri
hönnun sinni. Hann er ekki líkur
EV6 að sjá með hvössum línum og
kassalaga framenda en hann mun
þó samt vera með litla loftmót-
stöðu vegna hönnunar loftinntaka
á framenda bílsins. Hvort sólarsellan
á húddinu fái að halda sér á eftir að
koma í ljós.
Bíllinn er stór og svipaður að stærð
og Kia Telluride sem er á Ameríku-
markaði. Lengdin er 4.930 mm, hann
er 2.055 mm breiður og hæðin er
1.790 mm. Þannig getur hann boðið
upp á þriðju sætaröðina eins og
systurbíllinn Hyundai Ioniq 7 sem er
væntanlegur á svipuðum tíma. Þeir
byggja báðir á E-GMP-undirvagn-
inum svo að EV9 verður allavega með
77,4 kWst rafhlöðu eins og EV6 svo
að drægið ætti að vera í kringum 500
km með þeirri rafhlöðu. Hvort stærri
rafhlaða verði í boði hefur ekki verið
gefið upp ennþá. n
Kia EV9 kemur til Íslands
EV9-rafbíllinn mun líklega ekki breytast mikið frá tilraunaútgáfu sinni.
njall@frettabladid.is
Lotus-merkið hefur hingað til verið
þekkt fyrir framleiðslu sportbíla og
hefur undanfarið einbeitt sér að
raf bílamarkaðinum. Þar er enginn
maður með mönnum nema í boði
sé jepplingur af stærri gerðinni.
Nýi bíllinn kallast Eletre og er
með 800 volta rafkerfi og rafhlöðu
sem er yfir 100 kWst þó að nákvæm
stærð hennar hafi ekki verið gefin
upp ennþá. Bíllinn verður með
tveimur rafmótorum og er sam-
tals 592 hestöfl svo að hann verður
snöggur af stað, og búast má við að
sneggsta útgáfa hans verði innan
við þrjár sekúndur í hundraðið.
Lotus hefur notast við mikið
af léttmálmum og koltrefjum við
hönnun bílsins og byggt á þekk-
ingu sinni við smíði sportbíla í
þeim efnum.
Að sögn Lotus er drægi bílsins
600 km og hraðhleðsla að 350 kW
möguleg svo hægt verður að hlaða
400 km á aðeins 20 mínútum. Að
innan verða skjáir fyrir hliðar-
myndavélar í stað hefðbundinna
spegla og tveir aðrir skjáir verða
í innréttingunni. Fyrir framan
ökumann verður 30 mm þunnur
upplýsingaskjár en fyrir miðju 15
tommu margmiðlunarskjár. Tækni
bílsins kemur frá Geely sem er eig-
andi Lotus-merksins. n
Lotus kynnir sinn fyrsta jeppling
Hægt verður að nálgast 95 prósent upplýsinga með
aðeins þremur aðgerðum frá skjánum.
Um nokkuð stóran bíl er að ræða en hann er 5.100 mm á
lengd en aðeins 1.600 mm á hæð.
njall@frettabladid.is
Frumsýning nýrrar T-línu frá
Mercedes-Benz verður í lok apríl og
í tilefni þess hefur framleiðandinn
sent frá sér myndir af framenda
bílsins, svona til að minna á hann.
Um svipaðan bíl og VW Caddy er
að ræða sem leysa mun af hólmi
Citan Tourer-útgáfuna. Bíllinn er
hugsaður fyrir fólk sem þarf fjöl-
hæfan bíl með góða f lutningsgetu
og verður með rennihurðum á
hliðum.
Bíllinn kemur á sama undir-
vagni og Renault Kangoo enda er
bíllinn afurð samstarfs við Renault
og Nissan, og fær hann því bæði
bensín- og dísilvélar frá þeim. Um
er að ræða 1,5 lítra dísilvél eins
og í síðustu kynslóð Qashqai og
1,3 lítra bensínvél eins og í nýjum
Qash qai. Sérstök rafdrifin útgáfa er
á prjónunum sem heita mun EQT
en kemur ekki fyrr en á næsta ári. n
Mercedes-Benz T-lína á mynd
T-línan verður
bíll fyrir fólk
með fjölbreytt-
an lífsstíl.
Bíllinn verður með
tveimur rafmótorum
og er samtals 592
hestöfl.
ALLT ÞETTA
EXTRA
Í PÁSKAEGGINU
Barónsstígur • Keflavík • Akureyri
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 2. apríl 2022 LAUGARDAGUR