Morgunblaðið - 21.01.2022, Blaðsíða 30
Í BÚDAPEST
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Einhvern tíma hefðu það þótt sér-
stök tíðindi að Ísland mætti einungis
með fjórtán leikmenn í leik gegn
Dönum í milliriðli á stórmóti þegar
heimilt er að tefla fram sextán. Það
gerðist á EM í Búdapest í gær. Þótt
íslensku landsliðsmennirnir séu
margir hverjir eldsnöggir þá tókst
kórónuveirunni skæðu engu að síður
að ná í skottið á þeim.
Ekki þarf endilega að eyða miklu
plássi hér til að útskýra fréttir gær-
dagsins og miðvikudagskvöldsins en
uppstilling íslenska liðsins ger-
breyttist vegna forfalla. Á innan við
sólarhring var tilkynnt um sex smit í
íslenska landsliðinu. Og það var ekki
eins og þar væru Pétur og Páll á
ferðinni heldur Aron fyrirliði og
Björgvin Páll. Markaskorarinn
Bjarki Már, Gísli Þorgeir sem leikið
hefur við hvern sinn fingur á mótinu
og varnarjaxlinn Elvar Örn. Sá sjötti
var Ólafur Guðmunds og þá má
segja að fjórir reyndustu menn
landsliðsins hafi allir farið í ein-
angrun á einu bretti. Menn hafa
kveinkað sér af minna tilefni en
þessu í íþróttasögunni.
Hristu Ísland aldrei af sér
Mikill sómi var að framgöngu Ís-
lendinga í leiknum í ljósi stöðunnar
og hversu lítinn tíma menn höfðu til
að bregðast við. Danmörk sigraði
28:24 og náði í bæði stigin en náði
aldrei að hrista íslenska liðið af sér.
Eru Danir þó heimsmeistarar í
íþróttinni, glíma við fá forföll og
fengu tveggja daga hvíld á milli
leikja. Danmörk var yfir 17:14 og ís-
lensku leikmennirnir voru skyn-
samir í sókninni. Náðu að skapa sér
góð færi og það var frekar við vörn-
ina að sakast að Danir voru þremur
mörkum yfir að loknum fyrri hálf-
leik. Mörk Dana komu langflest úr
dauðafærum sem erfitt er að krefja
markverðina um að verja.
Fyrsti landsleikur Elvars
Orri Freyr Þorkelsson kom inn á í
fyrsta skipti á stórmóti og lék allan
tímann í vinstra horninu en hafði
verið á skýrslu í fyrstu þremur leikj-
um. Ágúst Elí Björgvinsson kom við
sögu í fyrsta skipti á mótinu og hans
fyrsta augnablik á EM var að verja
víti frá sjálfum Mikkel Hansen, ein-
um vinsælasta íþróttamanni Dana.
Það gerði hann tvívegis í leiknum.
Elvar Ásgeirsson lék sinn fyrsta
landsleik yfir höfuð þegar hann
byrjaði í vinstri skyttunni. Sæmileg
eldskírn að frumraunin sé gegn
heimsmeisturum í milliriðli. Elvar
var seigur strax frá upphafi og hafi
hann verið stressaður þá var það
ekki áberandi. Janus Daði Smárason
var ferskur eftir að hafa leikið frem-
ur lítið á EM og spilaði mjög vel í
gær, sérstaklega í fyrri hálfleik.
Fleiri leikmenn stimpluðu sig inn
á mótið. Mikill kraftur var í Teiti
Erni Einarssyni og skoraði hann tvö
mörk úr hraðaupphlaupum á loka-
kaflanum. Hann getur hvílt Sigvalda
meira en gert hefur verið en Sigvaldi
sýndi þreytumerki í dauðafærunum
í leiknum. Daníel Þór Ingason er
nautsterkur og stendur vörnina
prýðilega en átti erfiðara með að
ógna að ráði í sókninni.
Jacobsen flottur
Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálf-
ari heimsmeistaranna og heims-
klassahornamaður á árum áður, kom
drengilega fram á blaðamannafundi
þegar niðurstaðan lá fyrir. „Enginn
vill vinna á þennan hátt. Íslenska lið-
ið lék mjög skemmtilegan handbolta
í riðlakeppninni en nú vantaði marga
leikmenn hjá þeim vegna veirunnar.
Ég óska íslenska liðinu velgengni og
vonast til þess að þeirra menn sem
eru smitaðir geti snúið aftur í keppn-
inni,“ sagði Jacobsen.
Gangur leiksins í gær sýnir að
breiddin er til staðar í íslenska
landsliðinu og margir eru tilbúnir til
að leggja sín lóð á vogarskálarnar.
Leikur liðsins verður auðvitað ekki
sá sami þegar lykilmenn vantar en
ekki er öll nótt úti á EM. Sér-
staklega vegna þess að Ísland tók
með sér tvö stig í milliriðilinn. Tap
gegn Dönum er ekki gjaldþrot því
þeir eiga að teljast betri.
Sómi að
frammi-
stöðunni
- Danir fengu að hafa fyrir sigrinum
gegn vængbrotnum Íslendingum
Reyndastur Arnar Freyr Arnarsson var
reyndasti leikmaður Íslands í gærkvöld,
lék sinn 67. landsleik, og reynir hér að
komast í skotfæri gegn Dönunum.
30 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022
England
Deildabikar, undanúrslit, seinni leikur
Arsenal – Liverpool.................................. 0:2
_ Liverpool áfram, 2:0 samanlagt, og mæt-
ir Chelsea í úrslitaleiknum.
Spánn
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Elche – Real Madrid ....................... (frl.) 1:2
Ítalía
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Roma – Lecce ........................................... 3:1
- Þórir Jóhann Helgason lék fyrstu 68
mínúturnar með Lecce.
Holland
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Ajax – Excelsior Maassluis..................... 9:0
- Kristian Nökkvi Hlynsson lék seinni
hálfleikinn með Ajax og skoraði.
Reykjavíkurmót kvenna
Valur – Víkingur R................................... 3:0
Fjölnir – KR.............................................. 4:1
>;(//24)3;(
EM karla 2022
MILLIRIÐILL I, í Búdapest:
Svartfjallaland – Króatía ..................... 32:26
Frakkland – Holland........................... 34:24
- Erlingur Richardsson þjálfar Holland.
Danmörk – Ísland................................. 28:24
Staðan:
Frakkland 2 2 0 0 61:46 4
Danmörk 2 2 0 0 58:45 4
Ísland 2 1 0 1 53:56 2
Svartfjallaland 2 1 0 1 53:56 2
Holland 2 0 0 2 52:63 0
Króatía 2 0 0 2 48:59 0
_ Ísland mætir Frakklandi á morgun kl.
17, Króatíu 14.30 á mánudag og Svartfjalla-
landi 14.30 á miðvikudag.
MILLIRIÐILL II, í Bratislava:
Rússland – Svíþjóð ............................... 23:29
Þýskaland – Spánn.............................. 23:29
- Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland.
Pólland – Noregur................................ 31:42
Staðan:
Spánn 2 2 0 0 61:51 4
Svíþjóð 2 1 0 1 57:55 2
Rússland 2 1 0 1 46:51 2
Þýskaland 2 1 0 1 53:52 2
Noregur 2 1 0 1 64:54 2
Pólland 2 0 0 2 54:72 0
Leikir í dag:
14.30 Rússland – Spánn
17.00 Pólland – Svíþjóð
19.30 Þýskaland – Noregur
Asíumót karla
Barein – Hong Kong ........................... 46:20
- Aron Kristjánsson þjálfar Barein sem
vann sinn riðil með fullu húsi stiga og er
komið í átta liða úrslit.
E(;R&:=/D
Subway-deild karla
Njarðvík – Þór Ak ................................ 97:62
Staðan:
Keflavík 12 10 2 1049:963 20
Njarðvík 13 9 4 1221:1084 18
Þór Þ. 12 8 4 1155:1073 16
Valur 11 7 4 896:863 14
Grindavík 12 7 5 995:981 14
Tindastóll 12 7 5 1026:1055 14
Stjarnan 12 6 6 1070:1044 12
KR 10 5 5 907:920 10
Breiðablik 11 4 7 1162:1148 8
ÍR 12 4 8 1034:1086 8
Vestri 12 3 9 945:1026 6
Þór Ak. 13 1 12 973:1190 2
NBA-deildin
Philadelphia – Orlando .................... 123:110
Washington – Brooklyn ................... 118:119
Atlanta – Minnesota......................... 134:122
Boston – Charlotte ........................... 102:111
Miami – Portland.................................104:92
Chicago – Cleveland......................... 117:104
Milwaukee – Memphis ..................... 126:114
Dallas – Toronto ................................. 102:98
San Antonio – Oklahoma City ........... 118:96
Utah – Houston ................................ 111:116
Denver – LA Clippers ............. (frl.) 130:128
Sacramento – Detroit....................... 131:133
LA Lakers – Indiana........................ 104:111
>73G,&:=/D
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
TM-hellirinn: ÍR – Breiðablik ............. 18.15
MG-höllin: Stjarnan – Keflavík........... 20.15
1. deild karla:
Dalhús: Fjölnir – Höttur........................... 18
Ice Lagoon-höllin: Sindri – ÍA ............ 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Kaplakriki: FH – Víkingur .................. 19.30
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla:
Víkingsv.: Fjölnir – Víkingur R ............... 18
Í KVÖLD!
Nicolas Richotti var stigahæstur
Njarðvíkinga þegar liðið vann
öruggan 97:62-sigur gegn Þór frá
Akureyri í úrvalsdeild karla í
körfuknattleik, Subway-deildinni, í
Ljónagryfjunni í Njarðvík í 13. um-
ferð deildarinnar í gær.
Richotti skoraði 21 stig í leiknum
og tók sex fráköst en Atle Ndiaye
var stigahæstur Akureyringa með
17 stig og fimm fráköst.
Njarðvík er með 18 stig í öðru
sæti deildarinnar, tveimur stigum
minna en topplið Keflavíkur, en
Keflavík á leik til góða á Njarðvík.
Njarðvík fór létt
með Akureyringa
Morgunblaðið/Skúli B. Sigurðsson
Sókn Njarðvíkingurinn Veigar Páll
Alexandersson í baráttunni í gær.
Diogo Jota skoraði bæði mörk Liv-
erpool þegar liðið vann 2:0-sigur
gegn Arsenal í síðari leik liðanna í
undanúrslitum enska deildabikars-
ins í knattspyrnu á Emirates-
vellinum í London í gær. Fyrri leik
liðanna lauk með markalausu jafn-
tefli á Anfield, 0:0, og Liverpool
vann því einvígið samanlagt 2:0.
Liverpool mætir Chelsea í úrslita-
leik á Wembley 27. febrúar en Liv-
erpool hefur átta sinnum fagnað
sigri í keppninni, síðast árið 2012, á
meðan Chelsea hefur unnið hana
fimm sinnum, síðast árið 2015.
AFP
Hetja Diogo Jota fagnar öðru
marki sínu á 79. mínútu í gær.
Liverpool í
úrslitaleikinn
Kristján Jónsson í Búdapest
kris@mbl.is
Ómar Ingi Magnússon sýndi á
löngum köflum frábæra frammi-
stöðu gegn heimsmeisturunum frá
Danmörku á EM í handknattleik í
Búdapest í gærkvöld.
Ómar var markahæstur með 8
mörk og lék samherja sína oft uppi
eins og hans er háttur. Danmörk
sigraði 28:24 en þrátt fyrir öll áföllin
vegna kórónuveirunnar náðu Dan-
irnir aldrei að stinga af.
„Við fórum fullir sjálfstrausts inn í
leikinn. Þótt okkur vantaði góða
leikmenn þá ætluðum við að vinna.
Við ætluðum að koma þeim á óvart
og náðum að gera það að einhverju
leyti. Við spiluðum fínan leik þótt að-
eins hafi vantað upp á. Þetta var
fínt,“ sagði Ómar í samtali við Morg-
unblaðið en íslenski hópurinn hafði
mjög lítinn tíma til að bregðast við
öllum þessum breytingum en alls
vantaði sex leikmenn eins og fram
hefur komið.
„Það er ekkert leyndarmál að
þetta var erfið staða en við gíruðum
okkur í leikinn þótt aðstæðurnar
væru erfiðar. Við vorum ekki með
neinar afsakanir og við reyndum
virkilega að vinna.
Ég á eftir að sjá leikinn betur en
menn börðust og lögðu sig fram. Það
var flott en við þurfum líka að læra
af þessu því við gerðum ákveðin mis-
tök. Við þurfum kannski að laga þau
fyrir næsta leik og þá eigum við
séns,“ sagði Ómar Ingi sem er nú
markahæsti leikmaður íslenska liðs-
ins með 23 mörk í fjórum leikjum.
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Átta Ómar Ingi Magnússon skorar
eitt af átta mörkum sínum.
Fórum fullir sjálfstrausts í leikinn
- Ætluðum að koma Dönum á óvart og gerðum það