Morgunblaðið - 21.01.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.01.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022 Biden forseti hélt sinn fyrsta stóra blaðamannafund í 10 mánuði, en hann hefur sætt gagn- rýni vegna flótta undan fréttamönn- um. Nú er svo kom- ið skv. könnunum að vaxandi van- traust er á „the mainstream media“ (MSM) sem hefur jafnan stutt demó- krata, hvað sem á gengur, en aldr- ei jafn áberandi og síðustu fimm ár. - - - Áhorf á stöð eins og CNN hefur hrunið. Það er mikið áfall, ekki síst fjárhagslegt. MSM- miðlarnir eru iðulega með sömu fyrirsagnirnar, svo pínlegt sem það er. - - - En nú vottar þar fyrir varfær- inni gagnrýni á Biden og demókrata, og er þá einnig sam- ræmi í fyrirsögnum! En menn létu sig þó hafa að lýsa blaðamanna- fundi forsetans sem eins konar sigri. Var þá helst vitnað til þess að fundurinn hafi staðið 20 mín- útum lengur en svona fundir for- seta áður. - - - Kannanir eftir fundinn sýna að repúblikönum í hópi áhorf- enda þótti flestum lítið til fram- mgöngu forseta koma en demó- kratar voru sæmilega sáttir eða töldu hann sleppa. En það setur óhug í forystu demókrata að mikill meirihluti óháðra kjósenda var óánægður með Joe Biden á fund- inum, en sá hópur ræður gjarnan úrslitum í kosningum vestra. - - - Almenn mæling á starfi forset- ans í embætti sýnir nú 33-43% stuðning. Biden var spurður um þessa mælingu og sagðist þá ekki trúa á skoðanakannanir lengur. Sá leikur minnir óneitanlega á kjall- araafbrigði hans. Joe Biden Hræðilegt en slapp STAKSTEINAR SPORTÍS SKE I FAN 1 1 1 08 REYKJAV ÍK S POR T I S . I S 520-1000 CARETTA FERÐAVAGN - FERÐAFÉLAGI ÁRSINS! - TRYGGÐU ÞÉR VAGN TIL AFHENDINGAR Í VOR - Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Reykjavíkurborg var ekki heimilt að gera að skilyrði við úthlutun almenns félagslegs leiguhúsnæðis í borginni og með vísan til húsaleigulaga að leigjendur tækju reglulega á móti starfsmanni borgarinnar á heimili sínu gegn þeirra vilja. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns. Leigjendurnir sem um ræðir gerðu athugasemir við að gert hefði verið að skilyrði við úthlutun húsnæðisins að þeir skyldu taka á móti starfsmanni sveitarfélagsins á heimili sínu tvisvar sinnum í mánuði með svonefndri eft- irfylgd við leigutakann. Leigjendurn- ir kærðu ákvörðun borgarinnar til úr- skurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti ákvörðun borgarinnar. Sendu þeir þá kvörtun til umboðs- manns sem kemst að þeirri niður- stöðu að ákvæði húsaleigulaga, sem byggt hefði verið á, hefðu ekki að geyma heimild til þess að gera út- hlutun húsnæðis háða slíku skilyrði um að leigjendunum bæri að þiggja eftirfylgd borgarinnar. Úrskurðarnefnd leysti ekki úr málinu í samræmi við lög „Íþyngjandi ráðstafanir stjórn- valda yrðu að eiga sér stoð í lögum. Eftir því sem ákvörðun teldist meira íþyngjandi fyrir borgarana, ekki síst ef hún fæli í sér inngrip í stjórnar- skrárvarin réttindi, því meiri kröfur væru gerðar að þessu leyti,“ segir í umfjöllun um málið á vefsíðu um- boðsmanns. Auk þess hafi að mati umboðsmanns úrskurðarnefnd vel- ferðarmála ekki leyst úr málinu í samræmi við lög og mæltist umboðs- maður til að nefndin tæki það aftur til meðferðar ef eftir því yrði leitað. omfr@mbl.is Skilyrði um eftirfylgd ekki heimil - Leigjendur félagslegs leiguhúsnæðis í borginni leituðu til umboðsmanns Alþingis Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Fjöldi nafna hefur verið færður á mannanafnaskrá eftir nýlega úr- skurði mannanafnanefndar. Þannig mega karlmenn nú bera eiginnöfnin Issa, Chris, Bæssam, Rósmar, Lúgó, Sólmáni og Jöklar. Beiðni um eigin- nafnið Laxdal var hins vegar hafnað. Þá var samþykkt beiðni um aðlög- un kenninafns. Foreldrar fóru þess á leit að sonur þeirra yrði kenndur til föður síns, Yuriys, og að nafnið yrði jafnframt lagað að íslensku máli. Samþykkt var að kenninafn drengs- ins yrði skráð Georgsson í þjóðskrá. Konur mega nú bera eiginnöfnin Brim, Lóley, Fjara og Haffý auk þess sem samþykkt var að Viola skyldi fært á mannafnaskrá með vís- an í hefð nafnsins hér á landi. Mannanafnanefnd tók nýverið fyrir að nýju ósk um að karlkyns- nafnið Regin yrði leyft. Í beiðni um endurupptöku málsins var meðal annars vísað í fyrri úrskurði nefnd- arinnar er varða nöfn á borð við Ell- iott, Kateri, Hunter, Rosemarie, Erykah, Ullr, Leonardo og Theo. Nefndin ákvað að leyfa nafnið Regin nú enda beri þrír karlar nafnið sem eiginnafn í þjóðskrá og ritháttur þess geti þýtt að það sé tökunafn úr til dæmis færeysku eða dönsku. Að síðustu féllst mannanafna- nefnd á kvenkynsnafnið Moon í ann- arri tilraun. Áður hafði því verið hafnað sem millinafni en nú var það samþykkt sem eiginnafn. Nöfnin Brim, Fjara og Jöklar nú leyfð - Nýir úrskurðir mannanafnanefndar - Laxdal var hafnað Morgunblaðið/Eggert Leikur Nú mega stúlkur bera eig- innöfnin Lóley, Viola og Haffý.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.