Morgunblaðið - 21.01.2022, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Þetta byrjaði allt með því að RÚV núll var að
gera efni fyrir ungt fólk og við fórum að gera
sketsa þar og það gekk mjög vel. Í framhaldi af
því fengum við síðan að gera þessa sketsaseríu,
sex þætti, tuttugu mínútu hver þáttur,“ segir
Steiney Skúladóttir þegar hún er beðin að segja
frá tildrögum þáttaraðarinnar Kanarí sem hef-
ur göngu sína á RÚV kl. 20.05 í kvöld, 21. jan-
úar. Auk Steineyjar skipa hópinn Kanarí þau
Máni Arnarson, Pálmi Freyr Hauksson, Eygló
Hilmarsdóttir, Guðmundur Felixson og Guð-
mundur Einar Láru- Sigurðsson.
Kanarí-hópurinn framleiddi vikulega grín-
sketsa fyrir RÚV núll sem vöktu mikla lukku
auk þess sem samnefnd sketsasýning var á fjöl-
unum í Þjóðleikhúskjallaranum í haust. „Við
skrifuðum þættina haustið 2020 og fórum svo
beint eftir það að gera leiksýninguna. Það er al-
veg óháð hvað öðru, það eru ekki sömu skets-
ar,“ segir Steiney. „Það var mjög fyndið að vera
lokaður inni í mesta Covid-inu og hugsa: „Ég
held að þetta sé fyndið en ég hitti mjög fáa
þannig að kannski er ég búin að missa vitið.“
Sketsasýningin hlaut góðar viðtökur. „Upp-
runalega áttu þetta að vera átta sýningar en við
enduðum á að sýna fimmtán og planið er að
sýna fleiri þegar Covid leyfir. Þá verður fólk
kannski búið að sjá sjónvarpsþættina og hugsar
þá kannski: „Já, þau eru fyndin,““ segir Steiney
og bætir við: „Vonandi.“
Í þessari nýju þáttaröð skoða þau samskipti,
íslenska menningu, samfélagsmiðla og allt sem
er mannlegt í kómísku ljósi. „Eina reglan sem
við settum okkur var að við gerðum ekkert um
Covid. Fólk nennir ekki að pæla í Covid.“ Enda
á Kanarí að skemmta landsmönnum og fá þá til
þess að gleyma sér í stutta stund.
Steiney segir að heitið á verkefninu, Kanarí,
hafi einmitt orðið til vegna þess að þau hafi vilj-
að halda í áhyggjuleysið sem gjarnan einkennir
hugmyndina um sólarlandaferðir: „Bara fara í
eitthvert frí, gleyma amstri dagsins og hafa
smá gaman.“
Vinna eftir reglum spunaformsins
„Við kynntumst öll í gegnum Improv Ísland.
Við erum spunaleikarar,“ segir Steiney en
Eygló er sú eina sem er menntuð í klassískri
leiklist og Steiney og Guðmundur Felixson
þekktu hana vel úr Herranótt í MR. Þótt skets-
ar á borð við þá sem Kanarí semur séu ekki
fluttir í spuna kemur þjálfunin úr spunaforminu
sér vel. „Við notum aðferðirnar úr spunanum til
þess að vinna grínið. Þar er maður að vinna eft-
ir ákveðnum reglum. Maður setur upp ákveð-
inn grunnveruleika og svo er maður alltaf að
leita, í samstarfi við áhorfendur, að því hvað er
fyndið. Ef það gerist eitthvað óvenjulegt og
áhorfendum finnst það fyndið þá eltum við það.
Við búum að spunanum í svona skrifferli og eig-
um ákveðið tungumál sem við getum gripið til.“
Hún útskýrir að þau reyni að koma auga á það
óvenjulega í hverjum þeim aðstæðum sem þau
setji fram og velti síðan fyrir sér hvernig þau
geti stækkað þetta óvenjulega og komið áhorf-
endunum meira á óvart. „Það eru rosa fræði á
bak við þetta og miklar pælingar. Þetta er fín
lína. Það er eitt að fá fyndna hugmynd en svo er
annað að láta hana halda út í heilan skets. Til
þess þarf maður að endurskrifa og endurskrifa
og við gerðum það með þessa sketsa.“
Þáttaserían sem fer af stað í kvöld er mun
stærra verkefni en síðast þegar Kanarí var á
skjánum, árið 2018. Þá birtist einn skets á viku
en nú fylla þau heila þáttaröð. „Við skrifuðum
tvö hundruð sketsa og sextíu komust í þáttinn.
Þetta er miklu meira magn en síðast.“
Skemmtilegast þegar eitthvað klikkaði
Þótt reynslan úr spunanum hafi nýst við
skrifin eru spunaleikararnir óvanir því að fylgja
handriti. „Í undirbúningsvinnunni eru svipaðir
vöðvar sem við erum að nota en þetta er öðru-
vísi á sviðinu. Ég átti erfitt með tilhugsunina
um að eiga að leika það sama aftur og aftur. Ég
er spunaleikkona en ekki klassísk leikkona.
Hvernig læt ég þetta líta út fyrir að vera að ger-
ast í fyrsta sinn? Í spunanum er allt að gerast í
fyrsta sinn. Við fundum það, bæði þegar við
vorum að taka upp þættina og gera leiksýn-
inguna, að stundum langar okkur að búa til eitt-
hvað nýtt svo við urðum að vera svolítið öguð.
Okkur fannst oft skemmtilegast í sýningunum
þegar eitthvað klikkaði og við urðum að
spinna.“
Að flytja sketsa á sviði er síðan allt annað en
að sjá þá rúlla á skjánum. „Ég er mjög spennt
fyrir kvöldinu, að fá þetta bara í sjónvarpið.
Leikhúsið er svo lifandi, sérstaklega í gríni. Þá
er maður að spila inn á fólkið í salnum og les í
viðbrögðin. Þegar þetta er komið í sjónvarp er
þetta bara tekið upp fyrir fram og bara ein leið
til að skila þessu af sér. Það er öðruvísi. En ég
er mjög spennt að sjá hvað fólki finnst. Við höf-
um ekki hugmynd en erum að vona að fólki
finnist þetta jafn fyndið og okkur.“
Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir
Koma áhorfendum stöðugt á óvart
- Grínþættirnir Kanarí hefja göngu sína á RÚV í kvöld - Samnefnd sýning í Þjóðleikhúskjallara
vakti mikla lukku í haust - Hópur spunaleikara hefur þurft að venjast því að vinna eftir handriti
Kanarí Hópurinn
vonast til að fá áhorf-
endur til að gleyma
daglegu amstri.
Myndlistarkonurnar Jóhanna V.
Þórhallsdóttir og Hrönn Björns-
dóttir opnuðu í gær sýninguna
Upphaf í Gallerí Gróttu á Seltjarn-
arnesi. Öll verkin eru abstrakt og
expressjónísk málverk unnin með
blandaðri tækni í fyrra og í byrjun
þessa árs.
„Enginn veit hvað framtíðin ber í
skauti sér. Hvert andartak er nýtt
upphaf, opið tækifæri til að eiga
samtal við tímann og skapa. Allt og
ekkert er fullkomið í senn, upphaf
og spuni í trausti flæðis,“ segir í til-
kynningu um sýninguna en Upphaf
er fyrsta samsýning Jóhönnu og
Hrannar sem hafa átt farsælt sam-
starf í Anarkíu listasal í Kópavogi
sem síðar varð Artgallerí Gátt sem
þær ráku ásamt fleiri listamönnum
um árabil. Báðar eiga að baki
nokkrar einkasýningar auk fjölda
samsýninga hér á landi og erlendis.
Hvert andartak er nýtt upphaf
Samstarf Jóhanna og Hrönn.
Væntanleg þáttaröð Amazon byggð
á Hringadróttinssögu JRR Tolkiens
hefur verið hulin leyndarhjúpi en
nú virðist örlítið gat komið á þann
hjúp því The Guardian greinir frá
því að þáttaröðin muni bera titilinn
Lord of the Rings: The Rings of
Power og því ljóst að nokkrir
hringar verða í spilinu.
Í yfirlýsingu frá umsjónar-
mönnum þáttanna, sk. „show-
runners“ á ensku, segir að í þeim
verði sameinaðar allar helstu sögur
annarrar aldar Miðjarðar, hvernig
hringarnir voru hertir í eldi og
hvernig hinn myrki herra Sauron
reis upp til valda.
Þá verður einnig
fjallað um síð-
asta bandalag
álfa og manna.
Með yfirlýsing-
unni fylgdi
myndband sem
sýnir titil þátt-
anna mótaðan af
járnsmiði.
Áður en hringurinn eini kom til
sögunnar voru sumsé margir til og
hefjast sýningar á þáttunum á
Amazon Prime Video 2. september
næstkomandi.
Ekki einn hringur heldur tuttugu
Sauron hinn illi.
SÉRFRÆÐINGAR Í
GÓÐGERLUM
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.