Morgunblaðið - 21.01.2022, Side 29

Morgunblaðið - 21.01.2022, Side 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022 „SAGÐI ÉG SKÓGAR? ÉG MEINTI SKÓ. ÉG SETTI PENINGANA YKKAR Í SKÓ.“ „SMÁÁBENDING, FÉLAGI. ALDREI LÁTA ÞÁ VITA AÐ ÞÚ KUNNIR AÐ LESA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... töff! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann SÉRÐU, GRETTIR? SVONA VEIÐIR MAÐUR MÚS! FLOTT HJÁ ÞÉR, JÓN ÞÚ BYRJAR Á MÁNUDAGINN HRÓLFUR! ÞAÐ ERU TVEIR DÁTAR Á LEIÐINNI! ÚR HVAÐA ÁTT? ÉG VEIT ÞAÐ EKKI! ÉG HEYRÐI ÞÁ SEGJASTÆTLA AÐ SNÚA BÖKUM SAMAN! FJÁRMÁLA- RÁÐGJÖF lands og erlendis. Konan er búin að fara þrisvar sinnum holu í höggi en ég einu sinni þannig að ég þarf að æfa meira ef ég á að eiga séns í hana í golfi, en alltaf þegar við spilum saman erum við í keppni um hvort okkar vinni. Hingað til hefur hún unnið oft- ar en ég. Ég var svo lánsamur fyrir nokkrum árum að komast í mjög skemmtilegan golfhóp sem heitir Húkkarar og samanstendur af sextán körlum sem allir telja sig vera topp- golfara og keppa stíft allt sumarið. Það er mjög góður félagsskapur og mikil keppni allt sumarið. Við hjónin höfum líka verið með áskriftarkort að leikhúsum núna bráðum í 30 ár og finnst ómissandi að sækja góðar leik- sýningar á veturna.“ Fjölskylda Eiginkona Jóns er Bryndís Lýðs- dóttir, f. 14.2. 1962, hjúkrunarfræð- ingur. Þau búa í Garðabæ. Foreldrar Bryndísar eru hjónin Lýður Jónsson, f. 17.9. 1925, vörubifreiðarstjóri, nú búsettur í Hafnarfirði, og Mundheið- ur Gunnarsdóttir, f. 23.2.1932, d. 6.1. 2022, húsmóðir og ritari. Þau bjuggu í Reykjavík. Synir Jóns og Bryndísar eru tvíbur- arnir Lýður, f. 26.12. 1993, með meist- arapróf í viðskiptafræði, býr í Garða- bæ, og Pétur Axel, f. 26.12. 1993, viðskiptafræðingur, býr í Kópavogi. Alsystkini Jóns: Magnús Þórir, f. 15.5. 1963, d. 16.11. 1963, og Þóra Steinunn, f. 8.11. 1971, félagsráðgjafi, býr í Garðabæ. Systkini Jóns sam- feðra: Snjólaug, f. 28.7. 1958, d. 17.8. 1972, bjó í Reykjavík, Jón Guðmann, f. 31.12. 1959, viðskiptafræðingur, býr í Kópavogi, og Pétur Axel, f. 16.9. 1980, framkvæmdastjóri, býr í Hafn- arfirði. Systkini Jóns Axels sam- mæðra eru Edda Escarzaga, f. 22.4. 1957, tölvunarfræðingur, býr í Flór- ída, og Sveinn Guðmundsson, f. 4.8. 1958, hæstaréttarlögmaður, býr í Reykjavík. Foreldrar Jóns voru Pétur Axel Jónsson, f. 31.3. 1938, d. 15.7. 1983, héraðsdómslögmaður í Reykjavík, og Magnþóra G.P. Þórisdóttir, f. 5.10. 1938, d. 15.9. 1974, húsmóðir í Reykjavík. Jón Axel Pétursson Ingigerður Sigurðardóttir húsmóðir í Reykjavík Einar Ágúst Guðmundsson bifreiðarstjóri í Reykjavík Steinunn Sveinsdóttir athafnakona og húsmóðir í Reykjavík, kjörforeldrar hennar voru Sveinn Magnús Hjartarson og Steinunn Sigurðardóttir Magnús Þórir Kjartansson lögfræðingur í Reykjavík Magnþóra G. P. Þórisdóttir húsmóðir í Reykjavík Guðrún Magnþóra Magnúsdóttir húsmóðir í Reykjavík Kjartan Konráðsson verslunarmaður í Reykjavík Þóra Magnúsdóttir húsmóðir í Reykjavík Einar Matthías Jónsson múrari í Reykjavík Ástríður Einarsdóttir húsmóðir í Reykjavík Jón Axel Pétursson bankastjóri í Reykjavík Elísabet Jónsdóttir húsmóðir á Eyrarbakka, síðar í Reykjavík Pétur Guðmundsson skólastjóri á Eyrarbakka Ætt Jóns Axels Péturssonar Pétur Axel Jónsson lögfræðingur í Reykjavík Hjálmar Jónsson sendi mér póst fyrir margt löngu: „Sá á fés- inu að Halldór Blöndal er gestur Framsóknarflokksins í vöfflukaffi um helgina og flytur limrur. Það kallar á viðbrögð: Halldór nú stígur á stokkinn og streymir af honum þokkinn. Limrur hann flytur, léttbrýnn og vitur og gengur í Framsóknarflokkinn.“ Ég fékk góðan póst á þriðjudag: „Kunningi Jóns Ásgeirssonar á Þingeyrum kom til hans og leitaði ráða um brúnan hest sem hann átti og hélt að væri gæðingsefni. Þegar Jón hafði reynt hestinn kastaði hann fram þessari vísu: Brúnn á gangi gerist rýr garp sem ber óhrelldan. Gjöktir eins og gamalkýr. Gerðu það fyrir mig: Seld’ann. Önnur óskyld. Ort til barns- móður sinnar: Gleymdu ekki góðum vin, þó gefist aðrir nýir, þeir eru eins og skúraskin, skyndilega hlýir.“ Sigurlín Hermannsdóttir segir frá því á Boðnarmiði að eftir helgi upphófst hér smá umræða um nafn leikara frá liðinni öld. Gary Grant eða Cary? Hann gjarnan var kallaður Gary þeim gömlu fannst hann svo „starry“ g virtist þar G sem var reyndar C svo vinurinn hét eins og karrí. Erlingur Sigtryggsson yrkir „veðurvísu“ með athugasemdinni „e.t.v. stæld eða stolin“: Hér er hvorki hlýtt né kalt. Hráblaut þoka leggst um allt Hitinn svona hangir við helvískt bölvað frostmarkið. „Áfram veginn“ segir Ármann Þorgrímsson: Bæði kemur skúr og skin og skaflar uppi á heiðum. Er að þyngjast umferðin á öllum mínum leiðum. „Úr neðstu skúffunni. – Róm- antík ca. 1966“ skrifar Hörður Björgvinsson: Stjörnur skarta og skína á skugga svartrar nætur, ljóma bjartir logar þá ljúft við hjartarætur. Gömul vísa í lokin: Laxinn stekkur strauminn á og stiklar á hörðu grjóti. Illt er að leggja ást við þá er enga kann á móti. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Netpóstur er alla vega ÚTSALA 20% - 50% - 70% Opið: mánudaga til föstudaga kl. 9-18 laugardaga kl. 11-16 rafkaup.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.