Morgunblaðið - 21.01.2022, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022
60 ÁRA Nonni er Reykvíkingur, ólst upp í
Norðurmýrinni og Breiðholti en býr í Graf-
arvogi. Hann er hárskeri og eigandi hár-
snyrtistofunnar Effect. Hann var lengi
varaformaður Meistarafélags hárskera.
Áhugamál Nonna eru snóker, körfubolti og
veiðar, en hann hefur orðið Íslandsmeistari
í 1. flokki í snóker. „Ég er enn að keppa í
snóker en er meira í bumbubolta í körfunni.
Svo eyði ég miklum tíma á sumrin í veiði,
sérstaklega í Veiðivötnum.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Nonna er
Hanna Antonsdóttir, f. 1972, sölumaður hjá
Ísam. Börn Nonna eru Halla Karen, f. 1983,
Elín Klara, f. 1992, og Hjálmar Gauti, 1994.
Barnabörnin eru fjögur og það fimmta er á leiðinni. Foreldrar Nonna: Guð-
mundur Magnússon, f. 1926, d. 2012, húsasmíðameistari, og Þorbjörg Gísla-
dóttir, f. 1930, fv. starfsmaður Breiðholtsskóla, búsett í Reykjavík.
Jón Halldór Guðmundsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Fólk sækir að þér úr öllum áttum
og þú skilur síst hvað veldur því. Kláraðu
verkefni sem þú hefur slegið á frest.
20. apríl - 20. maí +
Naut Taktu það ekki illa upp þótt vinir þínir
séu þér ekki sammála í öllu. Þú átt að
koma til dyranna eins og þú ert klæddur.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Reyndu að skipuleggja þig því
annars er hætt við að hlutirnir fari úr bönd-
unum og þú sitjir eftir með sárt ennið.
Sýndu samstarfsmönnum tillitssemi.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þér finnst þú eitthvað viðkvæmur
gagnvart öðrum þessa dagana. Varastu að
gagnrýna aðra um of því þú ert nú svo sem
hvorki betri né verri sjálfur.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú hefur mikla þörf fyrir að bæta
sjálfa/n þig með einhverjum hætti. Reyndu
að stunda líkamsrækt þér til skemmtunar,
lesa eitthvað sem heillar þig og dansa.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þetta er góður tími til að ræða
vandamálin við maka þinn eða náinn vin.
Taktu þá áhættu að verða óvinsæll.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Dagurinn í dag ber með sér óreiðu
sem aðeins fastmótuð áætlun getur unnið
bug á. Hlýddu vel á sjónarmið annarra áður
en þú tekur ákvarðanir.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Til þess að ná árangri þarftu
að vera raunsær og gera þér glögga grein
fyrir því hvað er mögulegt og hvað ekki.
Hlutirnir eru oft öðruvísi en maður heldur.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er ekkert að því að verð-
launa sjálfan sig þegar maður hefur staðið
sig vel og veit af því. Allt sem þú byrjar á í
dag reynist ábatasamt í framtíðinni.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Ekki ræða mikilvæg peningamál
við vini eða í hópi í dag. Taktu hlutunum
eins og þeir eru og reyndu að gera það
besta úr stöðunni hverju sinni. Láttu verkin
tala.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú ert ekki eins og þú átt að þér
og ættir að vera heiðarlegur við sjálfa(n)
þig og aðra. Íhugaðu hvaða takmörkum þú
villt ná á næstu tveimur árum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Háleitar hugmyndir um hagkvæmar
fjárfestingar sækja á þig. Með því að ein-
beita þér að því ánægjulega máist það sem
miður hefur farið úr minningunni.
varð hluti af sölu- og markaðssviði
MS þar sem ég var framkvæmda-
stjóri, var skyr selt til tveggja landa
og veltan mjög takmörkuð. Þegar ég
hætti árið 2019 eftir mjög skemmti-
lega og öfluga uppbyggingu hljóp sal-
an á þúsundum tonna og sameiginleg
velta okkar og samstarfsaðila á tug-
um milljarða. Ég hef alltaf notið
þeirrar gæfu að vinna við það sem
mér finnst skemmtilegt og áhugavert
hverju sinni og það eru sannarlega
forréttindi.
Stoltastur er ég sennilega af því að
hafa leitt vinnuna við uppbyggingu og
útbreiðslu Íseyjar skyrs vörumerk-
isins í gegnum tíðina enda held ég að
útbreiðsla þess og vinsældir séu að
mörgu leyti einstakar þegar horft er
til íslenskra vörumerkja í matvæla-
iðnaði. Þegar ég hugsa til baka á
þessum tímamótum er mér fyrst og
fremst í huga þakklæti fyrir að hafa
fengið að vinna með öllu því góða fólki
sem vann með mér að uppbyggingu
og útbreiðslu Íseyjar skyrs vöru-
merkisins á alþjóðlegum mörkuðum.“
Í dag starfar Jón sem fram-
skemmtilegt verkefni sem gekk upp í
samræmi við þær áætlanir sem gerð-
ar voru á sínum tíma.
Þegar ég tók við útflutnings-
starfsemi MS árið 2010, sem þar með
J
ón Axel Pétursson fæddist í
Reykjavík 21. janúar 1962
og bjó fyrstu árin í Vestur-
bænum. Hann gekk í Mela-
skóla, Hagaskóla og út-
skrifaðist síðan úr Verslunar-
skólanum árið 1982.
„Á unglingsárum fór ég aldrei í
sveit eins og tíðkaðist gjarnan þá en
byrjaði snemma að vinna ýmis störf.
Vann í fiski, við verslunarstörf, banka
og síðasta sumarstarfið mitt og það
eftirminnilegasta var að fara til sjós
tvítugur á togarann Snorra Sturluson
sem gerður var út af Bæjarútgerð
Reykjavíkur. Það var ómetanlega
skemmtileg reynsla að fá að kynnast
sjómennskunni og af því hefði ég ekki
viljað missa. Síðan fór ég í viðskipta-
fræði við Háskóla Íslands.“
Starfsferill
„Þegar ég var að hefja nám tvítug-
ur missti ég föður minn en hann var
með lögfræðiskrifstofu sem sinnti
sértækum verkefnum fyrir opinber
fyrirtæki. Ég tók við rekstri skrifstof-
unnar og rak hana samhliða námi
mínu í viðskiptafræðinni og það var
góð reynsla sem nýttist mér seinna á
starfsævinni.“ Hann útskrifaðist síð-
an sem viðskiptafræðingur frá Há-
skóla Íslands árið 1990.
Fyrsta starf Jóns eftir útskrift var
fjármálastjóri hjá Goða hf. frá 1990 til
1994. „Fyrirtækið átti í töluverðum
rekstrarerfiðleikum og þessi tími var
að mörgu leyti erfiður en að sama
skapi góð reynsla.“ Síðan var Jón
sölu- og markaðsstjóri hjá Gevalia til
1999 og vann síðan sem forstöðu-
maður einstaklingstrygginga hjá VÍS
í tvö ár.
„Frá þeim tíma hef ég unnið í 20 ár
sem stjórnandi fyrir fyrirtæki í eigu
íslenskra kúabænda og ávallt líkað
vel að vinna í þágu hagsmuna þeirra.
Fyrst var ég framkvæmdastjóri
Emmessíss í fimm ár, sem var mjög
skemmtilegur tími því fyrirtækið
gekk vel. Síðan var ég kallaður til að
taka við starfi framkvæmdastjóra
sölu- og markaðssviðs MS en á þess-
um tíma lá fyrir að fara í miklar sam-
einingar og hagræðingaraðgerðir í
fyrirtækjum kúabænda í mjólkur-
iðnaði. Það var krefjandi en jafnframt
kvæmdastjóri Eignareksturs sem er
fjölskyldufyrirtæki sem þjónustar
fasteignafélög og hefur verið í örum
vexti á undanförnum árum. „Þar eru
spennandi tímar fram undan því
markaðurinn sem fyrirtækið vinnur á
er í örum vexti og við bjóðum góða
þjónustu sem mikil eftirspurn er
eftir.“
Áhugamál
„Helstu áhugamál okkar hjóna í
gegnum tíðina hafa m.a. verið ferða-
lög innanlands og utan. Vorum á
tímabili í gönguhópi sem fór í mjög
skemmtilegar gönguferðir um fjöll og
firnindi innanlands og mikið til að
byrja með á Hornströndum og þá út
frá þeim fallega stað sem Hesteyri er.
Enn fremur höfum við verið dugleg
að stunda skíði á veturna og golf á
sumrin. Við höfum farið í mjög
skemmtilegar skíðaferðir til Ítalíu og
Austurríkis með góðum félögum og
það eru alltaf góð og skemmtileg frí.
Í seinni tíð hefur golfið tekið meiri
tíma hjá okkur hjónum og við verið
dugleg að stunda það bæði innan-
Jón Axel Pétursson, framkvæmdastjóri Eignareksturs ehf. – 60 ára
Fjölskyldan Jón og Bryndís ásamt Lýð og Pétri þegar þeir útskrifuðust sem stúdentar frá Verslunarskólanum.
Leiddi útrás Íseyjar út í heim
Í Korpu Fyrsta skipti sem Jón fór
holu í höggi, á 4. braut árið 2020.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Theódór
Dan Guðbrandsson
fæddist 19. mars
2021. Hann vó 4.320
g og var 51 cm lang-
ur. Foreldrar hans
eru Kristþóra Gísla-
dóttir og Guð-
brandur Daníelsson.
Nýr borgari
1
Ræktum og verndum geðheilsu okkar
Nýir skammtar daglega á gvitamin.is
Prófaðu
eitthvað nýtt