Morgunblaðið - 21.01.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.01.2022, Blaðsíða 12
Komur og brottfarir um Keflavíkurflugvöll Framboð og nýting á hótelherbergjumÞúsundir farþega 2020-2021 Í nóvembermánuði 2020 og 2021 160 140 120 100 80 60 40 20 0 Framboð hótel- herbergja, þúsundir Gistinætur á hótelum, þúsundir 2021: Komur Brottfarir 2020: Komur Brottfarir H ei m ild :H ag st of a Ís la nd s jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. 6,6 11,3 251 nóvember 2020 nóvember 2021 24 8% nýting 42% nýting 104 98 12 69 173 155 170 BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Velta í einkennandi greinum ferða- þjónustu á Íslandi var 91,6 millj- arðar króna í september til október 2021 samkvæmt virðisaukaskatt- skýrslum sem er næstum því þref- öld velta miðað við sama tímabil ár- ið 2020 þegar hún var 31,6 milljarðar króna. Þetta kemur fram í Skammtímahagvísum ferðaþjón- ustu í janúar sem birtir hafa verið á vef Hagstofunnar. Þar segir einnig að áætlaðar gistinætur á hótelum í desember séu rúmlega 198 þúsund sem sé rúmlega áttföld aukning borið sam- an við desember 2020 þegar gisti- nætur á hótelum voru 21.277. Gisti- nætur Íslendinga eru áætlaðar 41.400 í desember, eða 137% fleiri en í desember 2020, og gistinætur erlendra gesta eru áætlaðar 157.000 samanborið við 3.777 í des- ember 2020. Þá kemur fram í Skammtímahag- vísunum að í desember voru 97.568 brottfarir farþega frá Keflavíkur- flugvelli í samanburði við 11.646 í desember 2020. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 64.305 samanborið við 8.135 í desember 2020. Neysla jókst eftir faraldur Gústaf Steingrímsson, hagfræð- ingur hjá hagfræðideild Lands- bankans, segir í samtali við Morg- unblaðið að tölurnar sýni að ferðaþjónustan sé á réttri leið þó að enn sé íslensk ferðaþjónusta langt frá því að vera með sömu tekjur og fyrir faraldurinn. „Neysla hvers erlends ferða- manns í hans eigin gjaldmiðli jókst eftir faraldur sem má helst rekja til þess að erlendir ferðamenn gistu lengur en áður. Ástæða þess er að það voru minni tækifæri til að ferðast í heiminum. Þú fórst því til færri landa en dvaldir lengur í stað- inn og eyddir meiru,“ segir Gústaf. Hann segir að margir hafi velt fyrir sér hvort sú breyting neyslu- mynstursins yrði varanleg. „Þró- unin á seinni árs- helmingi á síð- asta ári bendir til að þessi neyslubreyting sé ekki komin til að vera. Við teljum að neysla ferðamanna muni leita nokk- uð hratt í svipað far og hún var í fyrir faraldurinn.“ Keyrir áfram hagvöxtinn Gústaf ítrekar mikilvægi þess að ferðaþjónustan nái sér sem fyrst á strik enda sé það fyrst og fremst hún sem muni keyra áfram hagvöxt hér á landi á næstu árum. „Ef við skoðum samanburð milli síðasta árs og ársins 2019 þá var heildarútflutningur í ferðaþjónustu 136 milljarðar króna á fyrstu þrem- ur fjórðungum síðasta árs en hann var nærri þrisvar sinnum meiri, eða 382 milljarðar á sama tíma árið 2019. Í fyrra komu enda til landsins einungis 690 þúsund ferðamenn en þeir voru tvær milljónir árið 2019.“ Gústaf segir að ferðaþjónustan eigi því enn nokkuð langt í land með að ná fyrra umfangi. Hann bendir á að Landsbankinn hafi í október sl. spáð 1,5 milljónum ferðamanna til landsins á þessu ári. Spáin kom út áður en Ómíkron- afbrigði kórónuveirunnar byrjaði að herja á heimsbyggðina og áður en smit innanlands fóru í nýjar hæðir, eins og raunin hefur verið í byrjun þessa árs með tilheyrandi fjölda fólks í sóttkví og einangrun. „Líklegt er að við munum lækka þessa spá eitthvað“. Kom misjafnt niður á greinum Gústaf bendir á að faraldurinn hafi komið mismunandi illa niður á hinum ýmsu greinum ferðaþjónust- unnar. „Veltan var almennt að dragast saman um 42% á fyrstu tíu mánuðum síðasta árs miðað við árið 2019, en á sama tíma dróst veit- ingasala og þjónusta einungis sam- an um 6,3% á sama tímabili. Mis- munandi tekjusamdrátt greina í ferðaþjónustu má m.a. rekja til þess að vægi Íslendinga í tekjum greinanna var mismunandi fyrir faraldur. Þar sem vægi Íslendinga var mikið varð mun minni sam- dráttur í tekjum.“ Af öðrum greinum á sama tíma- bili var samdráttur hjá bílaleigum um 19% og 40% samdráttur varð í rekstri gististaða. „Þarna hjálpar til að Íslendingar gátu ekki heldur ferðast til útlanda og stórjuku því eftirspurn sína eftir gistingu.“ Gústaf gerir ráð fyrir töluverðum vexti í ferðaþjónustu á þessu ári. „Ef við náum 1,5 milljónum ferða- manna til landsins er það 75% af því sem það var síðasta árið fyrir faraldur. Þó að innviðirnir séu allir til staðar eins og hótel, eftir mikla og góða uppbyggingu fyrir farald- ur, þá mun taka tíma að smyrja hjólin og koma öllu af stað á ný. Þar á meðal að ráða fólk með þekk- ingu inn í greinina, enda hurfu margir útlendingar sem unnu í greininni úr landi þegar faraldur- inn skall á, og óvíst hvort þeir komi aftur.“ Allar hugmyndir fóru í bið Spurður hvort menn í greininni séu farnir að huga að fjárfestingum á nýjan leik, vegna væntinga um fleiri ferðamenn á þessu ári en á því síðasta, segir Gústaf að allar nýjar hugmyndir hafi meira og minna farið í bið þegar faraldurinn skall á, þótt menn hafi klárað verk- efni sem farin voru af stað fyrir far- aldur. „Umtalsverður hluti ferða- þjónustunnar er með lán í frystingu hjá lánastofnunum sem hafa komið til móts við fyrirtækin með því að leyfa þeim að greiða litla sem enga vexti meðan þetta ríður yfir,“ segir Gústaf að lokum. Neyslubreyting ekki komin til að vera - Ferðaþjónustan á réttri leið, en á enn langt í land Gústaf Steingrímsson 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022 VINNINGASKRÁ 598 14453 25507 34488 43126 52438 62729 72156 1291 15045 25657 34599 43441 52496 63367 72186 2169 15231 25949 35160 43622 52740 63618 72507 2170 15535 26133 35212 43738 53027 63806 72651 3023 16649 26148 35459 44212 53178 64198 72667 3307 16794 26185 35513 44473 53524 64257 72992 3941 16818 26191 35612 44478 53534 64416 73382 4143 17128 26303 35901 45085 53538 64522 73405 4153 17851 26684 35967 45156 53669 64542 73685 4460 18014 27570 36104 45177 53678 64773 74062 4640 18119 27690 36541 45512 54647 64918 74070 4972 18480 27741 36959 46379 54843 65300 74175 5117 18577 27773 37110 46600 54982 65651 75379 5253 18697 27915 37416 47030 54998 65793 75433 5308 19596 28134 37926 47217 55160 66773 75451 5517 19964 28204 38204 47721 55759 66813 75582 5675 20034 28728 38239 48180 55820 67002 75619 6635 20711 28759 38272 48659 56165 67427 75895 7287 20888 29024 38355 48694 56579 68134 77563 7635 21006 29447 38392 48742 57019 68147 77596 8527 21227 29763 38597 48796 58214 68558 77931 8632 21268 29803 39540 48941 58223 69030 78019 8760 21519 30436 39801 49410 58742 69327 78183 8830 21939 30858 40132 49448 58875 69328 78308 9735 21980 31521 40473 49651 59037 69332 78627 10071 22131 31975 40711 49662 59360 69372 78855 10154 22157 32168 41069 49822 59596 69777 79104 10318 22830 32245 41249 49908 59888 69819 79198 11510 23072 32535 41380 50788 60195 69850 79259 11889 23509 32820 41481 51069 60402 69862 79671 12231 23565 33467 42043 51123 60679 70262 79855 12262 24180 33478 42118 51563 61127 70281 12448 24331 33589 42160 51677 61180 70465 13183 24464 33626 42380 52088 61289 71281 13194 24755 33810 42805 52279 61363 71313 13414 24964 34127 42827 52316 61646 71318 13870 25340 34354 42891 52318 61710 71899 197 13285 24808 30305 45755 57002 65774 74588 2734 14068 25385 33420 45756 57100 65914 75894 4715 14625 25828 34014 48171 58085 66313 75912 5294 15043 26287 35780 50254 58191 67326 76167 7022 15973 26643 35846 51104 58518 69035 76213 8971 18315 26893 36379 51487 59207 69380 78168 9100 18879 27121 37240 51527 60521 70545 79401 9137 18961 27667 37861 51775 61594 71232 79554 9724 20045 27882 39944 52175 63096 71542 79882 10184 20443 27910 43008 53199 64180 71944 10288 20444 28488 43051 53336 64273 72910 11348 23437 29365 43161 54599 64403 73927 12471 24292 29812 45189 56498 65130 74431 Næsti útdráttur fer fram 27. janúar 2022 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 8803 41199 46458 67601 74804 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 1650 15096 33483 48094 62053 66396 2395 18516 34281 57088 62213 69993 9281 21460 36384 59175 63577 73607 14539 28718 37382 60386 63614 79205 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 6 6 3 1 7 38. útdráttur 20. janúar 2022 « VEX I, framtakssjóður í stýringu hjá VEX, sem keypti nú í desember allt hlutafé í Opnum kerfum, og hlut- hafar upplýsingatæknifélagsins Premis, hafa undirritað samning um að sameina félögin og eignarhald þeirra. Samanlögð velta félaganna árið 2021 var rúmlega fimm millj- arðar króna og EBITDA rúmlega 300 milljónir. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu. Þar segir einnig að rekstur félag- anna skiptist í tvær megin stoðir; vélbúnaðarsölu og rekstur og hýs- ingu tölvukerfa. Í sameinuðu félagi verða rúmlega 120 starfsmenn með starfsstöðvar bæði í Reykjavík og á Sauðárkróki. Hluthafar félagsins eftir sameiningu verða eins og segir í til- kynningunni; VEX I, Fiskisund og fé- lög í eigu starfsmanna. „Fyrirhuguð sameining við Premis gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum enn betri þjónustu,“ segir Ragnheiður Harðar Harðardóttir, forstjóri Opinna kerfa. Stefnt að sameiningu Opinna kerfa og Premis Allt um sjávarútveg 21. janúar 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.99 Sterlingspund 174.59 Kanadadalur 102.66 Dönsk króna 19.511 Norsk króna 14.612 Sænsk króna 14.039 Svissn. franki 139.84 Japanskt jen 1.1181 SDR 179.53 Evra 145.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.1159

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.