Morgunblaðið - 21.01.2022, Side 21

Morgunblaðið - 21.01.2022, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022 ✝ Sigríður Jó- hannsdóttir, Sissý, fæddist í Reykjavík 20. júní 1952. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. janúar 2022. Foreldrar henn- ar voru Jóhann Finnsson tann- læknir frá Hvilft í Önundarfirði, f. 23.11. 1920, d. 2.6. 1973, og Kristveig Björnsdóttir frá Vík- ingavatni í Kelduhverfi, f. 29.3. 1926, d. 29.8. 2009. Systkini Sissýjar eru: Björn, f. 1950, maki Guðrún Rannveig Daníelsdóttir, f. 1954; Sveinn, f. 1954, maki Jóna Þorsteinsdóttir f. 1954; Guðrún, f. 1957, maki Þorvaldur Bragason, f. 1956. Árið 1970 kynnist Sissý Bald- vini Má Frederiksen mál- arameistara, f. 1952. Foreldrar lengst af í Hvassaleiti en á sumr- in flutti fjölskyldan í sumarhús þeirra, Skóga í Mosfellssveit. Ef frá eru talin árin 1962-1963 þar sem fjölskyldan bjó í Birm- ingham, Alabama í Bandaríkj- unum. Hún útskrifaðist sem hjúkr- unarfræðingur frá Hjúkr- unarskóla Íslands árið 1974 og hóf um leið störf á Landspít- alanum við Hringbraut þar sem hún starfaði allt til starfsloka 2019. Árið 1996 útskrifaðist hún frá háskólanum í Gautaborg sem uroterapeut ásamt sam- starfskonu sinni, fyrstar Íslend- inga. Sissý vann lengi á 13D en að námi loknu í Gautaborg hóf hún, ásamt samstarfsfólki, und- irbúning þvagfæradeildar sem seinna varð 11A þar sem hún var fyrsti deildarstjóri. Árið 2019 fluttu Sissý og Balli í hús sem þau byggðu á æsku- slóðum Sissýjar í Mosfellssveit- inni. Útför Sigríðar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 21. jan- úar 2022, klukkan 15. Hlekkir á streymi: https://youtu.be/kna56eNg-HY https://www.mbl.is/andlat hans voru Gunnar V. Frederiksen, f. 25.7. 1922, d. 5.5. 2013, og María El- ísabet Árnadóttir Frederiksen, f. 26.1. 1924, d. 21.6. 2019. Sissý og Balli gengu í hjónaband 28. desember 1974. Börn þeirra eru: 1) Bryndís, f. 28.2. 1974, eiginmaður hennar er Rúnar Berg Guð- leifsson, f. 3.11. 1971. Þeirra börn eru: a) Bjartur, f. 27.7. 2000, b) Bergdís, f. 16.4. 2003, og c) Kolbeinn, f. 14.1. 2007. 2) Jóhann Gunnar, f. 30.6. 1977. 3) Baldvin Már, f. 25.4. 1985, eig- inkona hans er Fríða Kristbjörg Steinarsdóttir, f. 11.10. 1985. Þeirra börn eru a) Harpa Guð- rún, f. 2.3. 2011, og b) Jóhann Kári, f. 3.6. 2014. Sissý ólst upp í Reykjavík, „Tíma, auðvitað hef ég tíma, þegar ég hef engan er ég dáinn.“ Þannig vangaveltur gat borið á góma og það var sátt um þær í okkar samskiptum. Lífið með þér elsku Sissý var þannig að við höfðum tíma til góðra verka og elskuðum það á okkar einlæga hátt. Nú eru krossgötur, þá er svo gott að hafa tíma, tíma til að kveðja þig og muna hjartalag þitt og góðvild í 52 ár af lífi okkar. Takk elskan mín, takk fyrir að umvefja mig og börnin okkar ást, umhyggju og umburðarlyndi í okkar lífi. Hjartað mitt, bestu þakkirnar fyrir að gera mig betri mann. Ég kveð með óendanleg- um söknuði. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr.) Þinn Baldvin (Balli). Mikið skelfilega er heimurinn tómlegur án þín elsku mamma og óhætt að segja að hjarta mitt sé gjörsamlega brostið af harmi. Erfitt að hugsa til þess að maður fái aldrei aftur mömmuknús. Þú varst einfaldlega stórkost- leg manneskja. Ástrík, um- hyggjusöm, glaðlynd, ósérhlífin, örlát, félagslynd, harðdugleg og eiturklár. Gullfalleg, ungleg og liðug. Bara núna seinast í desem- ber varstu að sýna mér að þú gætir enn sett löppina aftur fyrir haus, þrátt fyrir aldur og veik- indi. Þú náðir þér í mjög góða menntun og stöðu, og lagðir alltaf mikla áherslu á að við systkinin gerðum það sama. Þú kenndir mér að labba og hjóla, lesa og skrifa, elda og bera fram, yrkja jörðina og hlúa að blómum. Þú hugsaðir mikið um tannhirðu, út- lit og framkomu, og varst alltaf til reiðu með bursta eða greiðu að ógleymdum varalitnum góða. Þú ástundaðir góða mannasiði og kurteisi. „Vertu sjálfum þér og fjölskyldu þinni til sóma“ voru stöðluð kveðjuorð þegar ég sem barn byrja að fara í bekkjarpartí eða keppnisferðir í fótboltanum, sem þú svo oft fylgdir mér í, ein fárra foreldra. Allt það sem þú gerðir fyrir elsku Þrótt maður lif- andi. Þvoðir keppnisbúninga, stóðst vaktina, bakaðir fyrir bas- ara, mættir á alla leiki og alltaf fyrst inn á völlinn ef einhver meiddi sig. Svona varstu alltaf að annast aðra, hlúa að þeim og hugsa um þarfir þeirra. Sönn fyrirmynd fyrir stétt hjúkrunarfræðinga. Þú hafðir nefnilega einstakt lag á að setja aðra í fyrsta sætið, jafn- vel annað og þriðja. Þú gafst og gafst og gafst, en fékkst ekki eins mikið til baka. Þú varst einstakur gestgjafi og gast rúllað fram kökum, tertum, brauðtertum og öllu því sem til þarf á óeðlilega stuttum tíma. Alltaf til með allt. Mömmumatur er uppáhaldsmaturinn minn en þú varst meistarakokkur, þótt þú tal- aðir alltaf um að allar veitingar væru bara lítilræði, ekkert merki- legar eða bara eitthvað sem þú tókst til í flýti. Þú dróst okkur um landið þvert og endilangt í tjald- útilegur, fjallgöngur og skíðaferð- ir, og alltaf varstu vel undirbúin. Maður var varla búinn að leggja bílnum þá var frú Sigríður komin með dúk, smurt nesti, heitt kakó og kaffi, ávexti, ber og breitt úrval kaldra drykkja. Ósjaldan fylgdu einhver sætindi eins og Freyju- karamellur og lakkrís. Rauður Opal var heldur aldrei langt und- an. Höfuð fjölskyldunnar eða ætt- móðir hefur maður ósjaldan heyrt. Þú ræktaðir frændgarðinn af þvílíkri elju að tengslanetið þitt var óvenju stórt og virkt. Hringd- ir í alla á afmælisdögum, sem þú svo ótrúlega mundir eins og staf- rófið, heimsóttir með gjafir eða skrifaðist á við. Það var því engin tilviljun að þér skyldi hafa verið afhent nammisvuntan hans Hjálmars frænda. Við áttum ein- staklega gott samband og tíð sam- skipti, sem ég verð ævinlega þakklátur fyrir. Það var alltaf hægt að leita til þín og vera alinn upp sem barn hjúkrunarfræðings setur á mann mark sem aðeins þau skilja. Þú áttir í mér trúnaðar- mann og ég í þér, og við ræddum oft okkar dýpstu hugsanir og til- finningar. En stundum bara kon- ungsfjölskylduna. Þú áttir stóran þátt í að ég skyldi hætta að drekka og ég veit hversu stolt þú varst af því og að ég skyldi aldrei byrja aftur. Fáir einstaklingar sem staðið hafa þriðju vaktina eins hart og þú. Þú varst alltaf smá spíritisti þótt gamla barnstrúin væri sterk í þér og þú héldir mikið upp á kristnina. Hvor leiðin sem það var sem þú fórst, þá óska ég mér þess heitt að þú farir í friði elsku hjart- ans mamma mín. Ég skal hugsa vel um hann pabba eins og ég var búinn að lofa þér, elsku ljósberinn okkar. Meira á www.mbl.is/andlat Þinn Jóhann Gunnar. Elsku hjartans mamma mín kvaddi okkur mjög snögglega í byrjun árs eftir stutt veikindi, svo snöggt að við hin fengum ekki tækifæri til að kveðja. Við sitjum eftir hnípin og sorgin er djúp. Mamma var sterkur persónuleiki, brosmild, glaðlynd, góðhjörtuð og gull af manni. Hún var mikill prímus mótor í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, mikil ættfræði- kona, þekkti alla í stórfjölskyld- unni með nafni, fæðingardaga og jafnvel símanúmer skyldmenna langt aftur í ættir. Það var ein- stakur hæfileiki. Það var alveg sama hverju ég þurfti svör við, ég gat alltaf hringt í mömmu og hún átti svör á reiðum höndum við öllu, bæði stóru og smáu. Barnabörnin elskaði hún meira en allt annað og þau voru ófá skiptin sem hún bauð þeim til sín og afa, þau fengu að gista og best fannst þeim þegar hún græjaði ömmu Sissýjar hafragraut, smurði rúgbrauð og gaf þeim safa í morgunsárið. Hún var endalaust tibúin að hjálpa til, skutla eða gera það sem þurfti fyrir þau og okkur. Hún var gjafmild og stórtæk og alltaf með eitthvað uppi í erminni við öll tækifæri. Hún hafði mikinn áhuga á því að halda í hefðir og nutum við fjölskyldan góðs af því. Lærðum réttu handtökin, sama hvort það var að steikja laufa- brauð, búa til slátur, sulta eða stússa í eldhúsinu, allt gert af mik- illi natni og nákvæmni. Hún og amma Kristveig kenndu mér líka öll réttu handtökin í garðinum enda ófáar stundir sem við fjöl- skyldan nutum samveru í sumó. Hún var frændrækin, fór með okkur á æskustöðvar foreldra sinna á Hvilft í Önundarfirði og á Víkingavatn og Kópasker í Keldu- hverfi en þeir staðir voru nærri hennar hjarta. Hún tók Rúnari mínum sem sínum eigin þegar ég kynnti hann fyrir fjölskyldunni. Við bárum gæfu til að njóta sam- vista með mömmu og pabba, í sumó, í Reykholti, útilegum, út- landaferðum og Þórsmörk, en það var okkar uppáhaldsstaður sem við fjölskyldan tókum sérstöku ástfóstri við og fórum ófáar ferðir í Bása. Næsta ferð verður án hennar, Ítalíuferð sem elsku mamma var búin skipuleggja fyrir löngu og safna fyrir. Þau pabbi ætluðu með afkomendur og tengdabörn þangað í tilefni af sjö- tíu ára afmæli þeirra beggja og njóta þess með fólkinu sínu. Við tökum elsku mömmu með í hjart- anu og hún brosir sínu blíðasta. Læt fylgja bænina sem mamma kenndi börnunum okkar Rúnars og þau kölluðu ömmu Sissýjar bæn. Farðu í friði elsku mamma og guð geymi þig um alla tíð. Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái’ að spilla. Það ætíð sé mín iðja að elska þig og biðja, þín lífsins orð að læra og lofgjörð þér að færa. Með blíðum barnarómi mitt bænakvak svo hljómi: Þitt gott barn gef ég veri og góðan ávöxt beri. (Páll Jónsson) Bryndís. Elsku mamma, þetta átti ekki að fara svona. Pabbi að hætta störfum núna um áramótin, við öll fjölskyldan að fara í júní til Ítalíu í tilefni 70 ára afmælis ykkar pabba og í vor ætlaðir þú, einn minn helsti stuðningsmaður í lífinu, að vonandi sjá mig útskrifast úr námi. Ég gæti setið hér endalaust og grátið það óréttlæti að þú hafir verið tekin frá okkur svona snögg- lega en ég veit að þú hefðir sagt við mig að horfa frekar á það já- kvæða, þótt það virðist núna vera næstum því ómögulegt að gera. Þú gafst alltaf af þér mamma mín og við börnin þín og barnabörn fundum alltaf fyrir því hvað við vorum þér mikilvæg og hversu mikið þú elskaðir okkur. Þótt við stundum deildum mamma þá var samt hlýr faðmurinn alltaf opinn þegar ég sá að mér. Og mamma, ég sagði það kannski ekki þá en þú hafðir oftast rétt fyrir þér. Flest- allt í lífinu kenndir þú mér og í raun merkilegt hversu mikla þol- inmæði þú hafðir fyrir mér því ég veit að ég var og er ekki alltaf auð- veldur í samskiptum. Þú varst skjöldurinn minn þegar ég var yngri og þú hélst því áfram þótt ég væri orðinn „stór“. Ég er í erfiðleikum með hvaða fallegu minningar ég ætti að rifja upp mamma því þær eru svo margar og kannski ekki rétt að gera upp á milli þeirra á blaði. En ég ætla samt að gera smá upp á milli mamma og tala um hversu yndislegt var að fá að upplifa ömmu Sissý. Ástríka amman sem þú varst og hversu gleðilegar minningar ég á af þér með Hörpu Guðrúnu og Jóhanni Kára. Ég geri mitt besta að tala um þig við þau svo þau aldrei gleymi hversu rík þau voru að hafa átt þig. En mamma, eins og þú best veist sjálf þá get ég blaðrað og skrifað enda- laust svo ég þarf víst að fara að huga að endanum. Mamma, ég verð þér alltaf óendanlega þakklátur fyrir allt sem þú hefur kennt mér og miðlað til mín, hvort sem það er áhuginn á náttúrunni, nýtni, ást og um- hyggja, leikni í eldhúsinu, vönduð vinnubrögð eða það sem var þér svo mikilvægt, að rækta fjölskyld- una, frændgarðinn. Þú varst ljósið mitt þegar allt annað var myrkur. Þú lýsir áfram í minningunni elsku besta mamma mín. Elska þig að eilífu. Þinn sonur, Baldvin Már. Hún var óvænt og óraunveru- leg fréttin sem okkur barst 2. jan- úar að elsku systir og mágkona væri búin að kveðja okkur. Áttum von á símtali þess eðlis að hægt væri að hefja árás á óvininn krabbameinið sem lét vita af sér í lok nóvember en enginn undan- fari þessarar fréttar. Minningar streyma fram. Allar samverustundir fjöl- skyldunnar, í sumó, laufa- brauðinu, jóladegi og öll gamlárs- kvöldin þar sem Sissý mætti alltaf með rjúpuafgang í tartalettum til að borða á miðnætti. Hún var sér- staklega að hugsa um að Björn stóri bróðir fengi örugglega rjúpnabragðið, sem hann var mjög svo þakklátur fyrir. Öll afmælin og aðrir viðburðir sem fjölskyldurnar komu saman eru dýrmætar minningar. Við í vikuleigu í sumarbústöð- um í Bifröst, Munaðarnesi og Sel- vík. Sissý með krakkana í heim- sókn og oftar en ekki gist hjá okkur. Sissý að drífa okkur með í ferðir á Látrabjarg, Strandir og ferðin norður eftir að mamma lést til að koma vefstól heim á Kópa- sker. Sissý alltaf jafn drífandi og dugleg. Hringing – eruð þið heima – viljið þið gulrætur úr garðinum – vantar ykkur rabarbara – eða bara má ég líta við er á heimleið. Hún var hafsjór af fróðleik um allt sem var að gerast hjá allri stórfjölskyldunni eða öllu heldur ættleggnum enda dugleg að hafa samband og fá fréttir. Alltaf ef eitthvað bjátaði á hjá okkur heilsufarslega var hringt í Sissý að leita ráða. Alltaf til staðar fyrir okkur. Sissý var bara Sissý frænka barnanna okkar og síðan barna- barnanna, sem segir meira en mörg orð. Sorg okkar og söknuður er mikill en sárastur og mestur er hann hjá þér elsku hjartans Balli okkar og ykkur Bryndís, Jóhann og Baldvin Már og fjölskyldum ykkar. Guð veri með ykkur öllum og gefi ykkur styrk. Björn og Guðrún (Gunna Veiga). Guðrún frænka mín hringdi í mig í byrjun desember og sagði mér að Sissý væri veik. Fjölskyld- an sá að hún var sjálfri sér ólík í árlegri laufabrauðsgerð, var hæg á sér, ekki þessi snara og fráa kona sem þau þekktu. Mánuði síð- ar var þessi glaðværa, lífsglaða og klára frænka mín öll. Sissý var stóra systir hennar Guðrúnar, og Guðlaug systir var stóra systir mín. Þær voru jafn- gamlar og við Guðrún svo til jafn- gamlar. Það var mikill samgangur á milli heimila okkar þegar við vorum að alast upp, pabbar okkar tvíburabræður og mikil samheldni hjá þeim og reyndar allri þeirra stóru fjölskyldu, Hvilftarfjöl- skyldunni. Svo áttum við systra- tvennurnar tvo bræður hvor tvenna svo þetta var allt eins og átti að vera. Samskipti okkar frænkna hafa verið góð alla tíð en misnáin eins og gengur. Alltaf strengur og við héldum honum við með útilegum með börnunum eftir að þau komu til, frænkusamkomum, í ferming- ar- og giftingarveislum og öðrum fjölskylduboðum. Ekki síst áttum við Sissý samleið í sameiginlegu fagi. Sissý var hjúkrunarfræðing- ur og starfaði mestmegnis við hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í þvagfærum en hún og Gunnjóna Jensdóttir voru fyrstar íslenskra hjúkrunarfræðinga til að ljúka framhaldsnámi í þeim fræðum. Ég starfaði með Sissý á þvag- færadeild Landspítala þegar ég var nýútskrifaður hjúkrunarfræð- ingur og ég leit mikið upp til stóru frænku minnar sem kunni allt, gat allt og mundi allt. Alla vega af- mælisdaga allra í stórfjölskyld- unni og fleiri. Sissý stóð svo sann- arlega undir aðdáun minni starfsævina á enda. Úrræðagóð, snjöll og fyrirmynd hjúkrunar- nema, en hún þótti sérlega skemmtileg, alúðleg og fær í allri kennslu og þá sérstaklega í Færn- isetri Hjúkrunarfræðideildar HÍ. Þegar við vorum að alast upp fórum við iðulega í heimsókn í Mosfellsbæinn þar sem Kristveig mamma Sissýjar átti sumarbú- stað ásamt sinni fjölskyldu. Hví- líkur ævintýraheimur; brekka, lækur, skeifa, braggi, gróður og sundlaug. Alltaf sól og dásamlegt. Fyrir nokkrum árum keyptu Sissý og Balli lóðina og byggðu sér þar einbýlishús. Hvílíkur draumastaður og gaman að koma og sjá dugnaðinn í Baldvini við að byggja allt upp fyrir Sigríði sína. Við Guðrún fórum í „happy hour“ þangað til að undirbúa tvö hundr- uð ára afmæli tvíburanna, en sá undirbúningur hófst haustið 2019 þótt aldrei hafi verið haldið upp á afmælið sökum Covid. Við frænk- urnar þrjár skemmtum okkur hins vegar vel við undirbúninginn. Tvíburarnir Sveinn og Jóhann kvöddu með tuttugu ára millibili, Jóhann rúmlega fimmtugur og pabbi rúmlega sjötugur. Það sama átti fyrir eldri dætrum þeirra að liggja að kveðja með tæpleg tuttugu ára millibili, Guð- laug rúmlega fimmtug og Sissý tæplega sjötug. Allt er í heiminum hverfult og enginn veit sitt skapa- dægur. Það er hræðilega sárt að missa Sissý svona brátt, mestur er þó missir Baldvins, Bryndísar, Jó- hanns, Baldvins Más og alls þeirra fólks. Minningin um þessa snagg- aralegu, úrræðagóðu og elskulegu konu, hana Sissý, mun lifa lengi. Herdís Sveinsdóttir. Sigríður Jóhannsdóttir - Fleiri minningargreinar um Sigríði Jóhanns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Strandakonan, móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ÓSK SOPHUSDÓTTIR sjúkraliði, andaðist þriðjudaginn 11. janúar á Hjúkrunarheimilinu Grund. Útför hennar fer fram laugardaginn 22. janúar klukkan 12 frá Garðakirkju á Álftanesi. Samkvæmt sóttvarnareglum verður hámarksfjöldi við útförina 50. Kristinn Ágúst Friðfinnsson Anna Margrét Guðmundsd. Friðfinnur Freyr Kristinsson Melkorka Mjöll Kristinsdóttir Magnús Már Kristinsson Kolbeinn Karl Kristinsson og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HERMANN ÁRNASON, Goðabyggð 10, Akureyri, lést mánudaginn 17. janúar. Útför hans fer fram frá Höfðakapellu mánudaginn 24. janúar klukkan 10. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í Höfðakapellu – beinar útsendingar. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat Guðríður Friðfinnsdóttir Berglind Svavarsdóttir Árni Hermannsson Hildigunnur Smáradóttir Tómas Hermannsson Anna Margrét Marinósdóttir Jóhann G. Hermannsson Berglind Ellý Jónsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.