Morgunblaðið - 21.01.2022, Side 22

Morgunblaðið - 21.01.2022, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022 ✝ Guðný Krist- jánsdóttir fæddist í Reykjavík 12. ágúst 1949. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 24. desember 2021. Foreldrar henn- ar voru Kristján Pálsson húsasmíða- meistari, f. 4.12. 1929, d. 4.2. 1965, og Helga Sæmundsdóttir fóstra og húsmóðir, f. 5.10. 1929, d. 2.9. 1991. Foreldrar Kristjáns voru Ósk Guðmundsdóttir vinnukona og Páll Þorgilsson sjómaður og foreldrar Helgu voru Guðný Jónsdóttir framkvæmdastjóri og Sæmundur Pálsson kaupmaður. Systkini Guðnýjar eru Páll, f. 1951, listamaður í Álafossi, Mos- fellsbæ, á fjögur börn; Krist- jana, MA í samskiptum og verk- efnastjóri, búsett í Kaupmannahöfn, á tvö börn; Bjarni Þór, f. 1954, kennari og listamaður í Reykjavík, kvæntur sköpunarráðuneytinu, börn eru Eysteinn Alfreð, f. 2007, og Signý Steinþóra, f. 2009. 2) Linda Rós, f. 31.5. 1976, sér- fræðingur í félagsmálaráðu- neytinu, barn Guðný Gerður. f. 2014. Guðný ólst upp á Miðbraut á Seltjarnarnesi og gekk í Mýr- arhúsaskóla og Hagaskóla. Hún nam prentsmíði í Iðnskólanum í Reykjavík og hönnun í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti. Guðný vann hjá Samvinnutrygg- ingum fyrstu starfsárin, svo fór hún í Blaðaprent og á Tímann. Síðustu árin starfaði hún í Prentsmiðjunni Odda, sem prentsmiður og við umbrot. Í Odda kom hún að gerð bóka á borð við Íslensku orðabókina, Lærdómsrit Hins íslenska bók- menntafélags, Matreiðslubækur Hagkaups og margar fleiri. Guðný var mikil hann- yrðakona, saumaði og prjónaði. Peysurnar sem hún prjónaði rötuðu í prjónatímarit. Guðný tók þátt í starfi Sambands ungra framsóknarmanna. Útför Guðnýjar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 21. janúar 2022, klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni: https://youtu.be/ycg3nurfFsk https://www.mbl.is/andlat Edeltrude Mantel og eiga þau fjögur börn; Gunnar, f. 1958, vélstjóri í Reykjavík, sam- býliskona Svava Þóra Þórðardóttir hjúkrunarfræð- ingur, hann á fjögur börn af fyrra hjóna- bandi; Anna Katrín, f. 1963, búsett í Reykjavík, barn- laus. Eiginmaður Guðnýjar var Al- freð Þorsteinsson fv. fram- kvæmdastjóri og borgarfulltrúi, f. 15.2. 1944, d. 27.5. 2020. For- eldrar hans voru Sigríður Lilja Gunnarsdóttir húsmóðir, f. 7.1. 1909, d. 22.1. 1971, og Ingvar Þorsteinn Ólafsson verkamaður, f. 25.10. 1901, d. 25.10. 1964. Börn Guðnýjar og Alfreðs eru: 1) Lilja Dögg, f. 4.10. 1973, ferða-, viðskipta- og menningar- málaráðherra, gift Magnúsi Ósk- ari Hafsteinssyni, f. 5.6. 1975, hagfræðingi í atvinnu- og ný- Elsku mamma okkar er fallin frá eftir stutt veikindi. Eftir situr mikið tómarúm en hugljúfar minningar um móður sem lagði allan sinn metnað í að veita börn- um sínum og barnabörnum ást og umhyggju. Hún andaðist á sjálfan að- fangadagsmorgun en hún var mikið jólabarn. Jólin áttu að vera fullkomin, þar sem allir áttu að njóta sín og því var oft vakað langt fram á nótt til þess að leggja lokahönd á jólafötin okkar, ævin- týralega fallega kjóla. Oft var þetta úr nýjasta tískublaðinu Burda, en mamma hafði mikið dá- læti á hönnun og tísku. Við feng- um að rölta með henni í vefnaðar- vörubúðina og velja efni í kjólana og garn í peysurnar. Nokkrum dögum eða vikum síðar birtist meistaraverk. Mamma var alin upp á Sel- tjarnarnesi, elst sex systkina. Foreldrar hennar reistu sér hús við Miðbrautina og var faðir hennar Kristján Pálsson húsa- smíðameistari og móðir Helga Sæmundsdóttir húsmóðir. Hún var elst sex systkina. Því miður lést afi okkar ungur eða tæplega 36 ára. Þetta var mömmu mikið áfall og skynjuðum við söknuð í föðurástina fram til hinstu stund- ar. Mamma fór snemma að heima enda heimilisaðstæður erfiðar. Hún var mjög sjálfstæð, eitthvað sem skipti hana miklu máli. Hún vildi aldrei vera háð neinum og einkenndist margt af því sem hún gerði af þessari sjálfstæðisþrá. Hún þurfti að kunna allt og gat því tengt rafmagn, flísalagt, smíð- að borð og mátti sjá það á verk- færasafninu hennar að þarna var konan sem gat tekið að sér flest verkefni. Hún gekk í Hagskóla, hlustaði á Bítlana og fór svo að vinna fyrir Samvinnutryggingar og tók þátt í starfi Sambands ungra framsókn- armanna. Á þessum vettvangi kynnast þau pabbi, en svo því sé haldið til haga, þá var mamma komin í pólitíkina á undan pabba. Þau giftu sig í Fríkirkjunni 18. júlí 1971 og hefðu fagnaði gull- brúðkaupsafmæli. Þau bjuggu fyrst í Fossvoginum og síðar í Vesturberginu. Þar bjuggu þau í hálfa öld og var Breiðholtið þeim afar kært. Mamma veitti okkur þá ást og umhyggju sem engin landamæri náðu utan um. Hún var af þeirri kynslóð kvenna sem fór fyrst út á vinnumarkaðinn en jafnframt sá hún um heimilið. Eftir á að hyggja er einhver ofur- hetjuljómi yfir henni, hvernig hún náði að vinna langa vinnudaga, elda dýrindismat hvert kvöld og í hjáverkum voru saumuð föt, hannaðir grímubúningar, smíðað og flísalagt. Mamma var mjög úr- ræðagóð og studdi okkur systur ávallt í námi, vinnu og svo hin síð- ari ár við uppeldi barna okkar. Hún ferðaðist með okkur bæði innanlands og um heim allan; Hong Kong, Kaupmannahöfn, Akureyri, New York, Öræfasveit- in, Brussel, Washington DC, Te- nerife og Túnis. Hún var dásam- legur ferðafélagi og tilbúin til þess að taka áskorunum um að fara út fyrir þægindarammann. Hún naut þess að borða góðan mat enda listakokkur sjálf. Allt sem hún gerði var af slíkri snilld, að við vildum ávallt að hún myndi stofna fyrirtæki í kringum það – enda ættu fleiri að njóta hæfileika hennar. Mamma varð veik í sumar og þetta voru erfið veikindi en hún barðist eins og ljón. Hún ætlaði sér í gegnum þessi veikindi til að eiga fleiri góð ár með barnabörn- unum, ferðast um heiminn og sitja á svölunum í nýju íbúðinni sinni yfir sumartímann með hvít- vínsglas í hönd með vinum og vandamönnum. Baráttan hafði skilað góðum árangri en hún varð skyndilega bráðkvödd á sjálfan aðfangadag. Okkar síðustu sam- skipti við hana voru að skipu- leggja jólahaldið; rjúpurnar komnar í hús, heitreyktar anda- bringur og búið að pakka öllum gjöfunum. Hún var spennt að koma heim eftir stutta dvöl á spít- alanum og sannfærð um að betri tímar væru í vændum. Missir okkar er mikill og enn meiri hjá barnabörnunum en hún lék stór hlutverk í þeirra lífi, brúaði bilið þegar við systurnar þurftum að vinna fram eftir og passaði ávallt að þeirra uppáhaldsmatur væri til staðar. Efst í huga okkar nú á þessari stundu er þakklæti. Mömmu farnaðist vel í verkum sínum og var farsæl og hamingjusöm. Nú ertu sameinuð pabba að nýju í Draumalandinu elsku mamma. Við elskum þig að eilífu. Þínar dætur, Lilja Dögg og Linda Rós. Meira á www.mbl.is/andlat Elsku amma okkar. Við elsk- uðum þig svo mikið, þú varst svo ljúf, falleg, hjartahlý, skemmtileg og með smitandi hlátur. Amma var ein af bestu manneskjum sem við þekkjum. Hún var alltaf að hjálpa öllum og var besta amma í öllum alheiminum, þar sem hún vildi gera allt það besta fyrir alla. Amma var glæsileg og átti fal- legustu jakka í heimi. Hún ilmaði svo vel, meira að segja þótt hún væri ekki með ilmvatn. Svo var hún dugleg að prjóna og gerði fal- legustu vettlingana. Það var gaman að fá þig í Huldulandið og Reynimelinn. Þú komst alltaf í Huldulandið á þriðjudögum með eitthvað gott úr bakaríinu fyrir okkur og vini. Á Reynimelnum komstu alltaf með kleinuhringi og normalbrauð. Svo gastu klippt hárið okkar vel. Svo elskaði hún að gefa okkur falleg sængurver. Amma var mjög dug- leg að hjálpa okkur heima og segja okkur að laga til! Amma ferðaðist mikið með okkur og við fórum í margar skemmtilegar ferðir til Wash- ington DC, Tenerife, Danmerkur, Vestmannaeyja, Akureyrar og auðvitað upp í sumarbústaðinn í Biskupstungum. Svo varstu líka dugleg að fara á leikvelli með okk- ur þegar við vorum yngri. Við munum sakna þín mjög mikið. Eysteinn Alfreð, Signý Steinþóra og Guðný Gerður. Kæra systir, við söknum þín sárlega, en þú ert sannarlega ekki alveg farin, því þú lifir enn í dætr- um þínum og barnabörnum og kærleikur þeirra í þinn garð er fagur vitnisburður um þá persónu sem þú hafðir að geyma. Ekki má gleyma öllum öðrum sem þótti vænt um þig. Þú varst ekki gömul þegar þú gekkst inn í móðurhlut- verk fyrir yngstu systkini þín og gerðir alla tíð. Það sem fyrst kemur upp í hugann er hversu óendanlega smekkleg þú varst í öllu vali, til alls sem þú hafðir í kringum þig og tókst þér fyrir hendur, og gerðir engar tilslakanir á kröfum. Enda bar heimili þitt þess fagurt vitni. Það lék allt í höndunum á þér sem þú tókst að þér að gera, hvort sem það var matargerð, saumaskapur eða innanhússfram- kvæmdir, enda áttirðu verkfæri fyrir hvert tækifæri. En örlögin höguðu hlutunum á annan veg en þú hafðir ráðgert, í miðri skipu- lagningu á þínu lokaheimili sem ekki var því fyrra síðra. Ef trú okkar reynist rétt ert þú eflaust upptekin af því að koma þér fyrir á nýjum stað með þeim sem voru þér kærastir og á undan farnir. Guð þig geymi og hlúi að þeim sem þig syrgja. Bjarni Þór Kristjánsson. Ég á eftir að sakna Guðnýjar systur svo mikið. Hún bauð mér inn í fjölskylduna sína sem ég er eilíflega þakklát fyrir. Ég bjó hjá henni og Alfreð um skeið. Hún var mér meira en systir, hún og amma ólu mig upp. Svo má ekki gleyma Alfreð sem var mér sem faðir. Ég átti alltaf athvarf hjá þeim, öll jól og páska. Guðný sá til þess að ég fengi góðan mat og hugsaði alltaf vel um mig. Guðný saumaði og prjónaði föt á mig allt frá því að ég var ungbarn. Mér þótti einkar vænt um sumarbú- staðarferðirnar með henni og Al- freð og stelpunum. Einnig fór ég í mína fyrstu utanlandsferð með þeim til Spánar. Ég elskaði ljúf- fenga matinn hennar Guðnýjar og pulsurnar hans Alfreðs. Ég hef misst mikið, þar sem þau fara með svo skömmu millibili. Eftir sitja þó yndislegar og hlýjar minningar um þau heiðurshjón. Elsku Guðný, vona að þér líði vel í Sumarlandinu og sért búin að hitta Alfreð. Elsku Lilja og Linda og börn, mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Kveðja, Anna Katrín litla systir. Með söknuði kveð ég kæra mágkonu. Við kynntumst fyrst fyrir tæpum 20 árum og frá fyrsta degi tók hún mér sem einni af fjöl- skyldunni. Eftir því sem árin hafa liðið hefur vinátta okkar aukist. Þegar horft er til baka virðast fjörugu boðin í Mosó vera ótelj- andi, einnig afmælisveislurnar og árlegu skötuboðin í Blesugróf. Samheldni systkinanna var og er einstök en Guðný var kjölfestan. Vegna aðstæðna lenti það á henni að hugsa um yngri systkini sín og hélst það alla ævi. Stundum fannst mér hún alveg gleyma að litli bróðir væri orðinn fullorðinn en hún hafði yfirleitt skoðun á hvað væri best fyrir sitt fólk. Köll- uðum við hana stundum litlu mömmu. Gott hefur verið að geta hringt og fengið ráðleggingar en hún átti auðvelt með að greina hismið frá kjarnanum. Guðný var ekki gefin fyrir að vera áberandi heldur aðstoðaði bak við tjöldin. Hún var ekkja Al- freðs Þorsteinssonar og komu þessir eiginleikar sér vel sem eig- inkona stjórnmálamanns. Víst er er að dæturnar hafa einnig notið skarpskyggni hennar í sínum störfum. Guðný var mjög listræn eins og hennar fólk og sótti m.a. nám- skeið í fatahönnun. Ef þurfti að lagfæra fatnað var vandvirknin svo mikil að ekki var hægt að sjá að neinu hefði verið breytt. Þessi nákvæmni og það að gera allt á fullkominn hátt var einkennandi fyrir hana. Hún var ávallt smekk- lega klædd og ósjaldan framúr- stefnuleg. Fylgihlutirnir urðu að vera í stíl við fötin og allt þaul- hugsað. Örugglega hefur samt stundum verið erfitt að finna flotta dömuskó í stærð 35 því smágerð var hún. Síðasta vor flutti hún inn í draumaíbúðina og innréttaði hana í sínum anda. Þar var nýrri hönnun og því sem henni var kært raðað saman af mikilli smekkvísi. Í maí 2021 birt- ist viðtal við hana á vefsíðunni Lifðu núna. Í viðtalinu kemur fram tilhlökkun fyrir flutningnum og að láta drauma sína rætast. Því miður náði hún ekki að njóta þess lengi en hún lét veikindin ekki stöðva sig í að dreyma og gera áætlanir. Við héldum öll að hún fengi lengri tíma en kallið kom að morgni aðfangadags þegar hún í tilhlökkun var að undirbúa heim- ferð af sjúkrahúsinu til að fagna jólunum með dætrum sínum og fjölskyldum þeirra. Missir þeirra og systkinanna er mikill og sendi ég þeim mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Með þökk fyrir allt kæra Guðný. Stillt vakir ljósið í stjakans hvítu hönd, milt og hljótt fer sól yfir myrkvuð lönd. Ei með orðaflaumi mun eyðast heimsins nauð. Kyrrt og hljótt í jörðu vex korn í brauð. (Jón úr Vör) Svava Þóra Þórðardóttir. Hinn 18. desember sl. var dálít- ill hópur samankominn til að fagna afmæli dóttur okkar hjónanna og þar sátum við og Guðný og nutum þess að vera saman í góðum félagsskap. Um hádegi 24. desember hringdi Linda Rós dóttir Guðnýj- ar og tilkynnti okkur að mamma hennar hefði verið að falla frá. Guðný, sem bar sig svo vel í veisl- unni nokkrum dögum áður, var látin. Það er stundum sem við erum minnt á hve lítil við erum og hve litlu við ráðum og þetta var eitt slíkt skipti, og minningarnar streyma fram. Sem börn áttum við Guðný og systkini hennar og foreldrar, afi okkar og amma heima á Seltjarn- arnesi. Fjölskylda Guðnýjar bjó á Nesvegi, en við í húsi á norðan- verðu nesinu sem hét Skuld. Mikill samgangur var milli heimilanna og Kristján faðir Guð- nýjar kom stundum með bílinn sinn til lagfæringar í Skuld og var þá kátt á hjalla þar í skúrnum hjá þeim tengdafeðgunum. Kristján var léttur og kátur maður sem smitaði gleði. Ein fyrsta minningin sem ég á um Guðnýju er frá fyrsta skóla- deginum. Ég hafði verið í sveit um sumarið, en vegna þess að skólinn var byrjaður nokkru áður en ég kom heim úr sveitinni bað amma mín Guðnýju, jafnöldru mína og frænku, að fylgja mér í skólann fyrsta daginn og auðvitað skilaði hún hlutverki sínu full- komlega þá, sem ætíð síðar. Við urðum síðan samferða í skólagöngunni næstu árin, fermdumst saman og fermingar- veislan var sameiginleg. Vináttu Guðnýjar lauk hins vegar aldrei og einlæg vinátta þróaðist milli hennar og stúlkunn- ar, sem tók að sér það hlutverk að fylgja mér í gegnum lífið. Fyrsta orðið sem í hug kemur þegar hugsað er til Guðnýjar er traust, og ætli næst komi ekki al- úð, samviskusemi og hlýja og til viðbótar dugnaður og framtaks- semi. Eitt sinn átti ég símtal við manninn hennar, Alfreð heitinn, og spurði frétta af Guðnýju. Svar- ið var: Heyrirðu ekki lætin? Jú, það heyrðist einhver hávaði og ég spurði hvað væri um að vera og svarið var: Hún er að breyta bað- herberginu og m.a. að brjóta múr! Síðar þegar Guðný kom til okk- ar hjónanna og þetta barst í tal gerði hún lítið úr málinu. Hún hafði staðið í stórræðum og gerði lítið úr sínum hlut. Það var sem henni fyndist óþarfi að vera að hafa orð á þessu og þann- ig var hún þessi fíngerða dugn- aðarkona sem við munum eftir og munum eiga í minningunni. Eins ákveðin og hún var strax sjö ára gömul að skila hlutverki sínu fyrsta skóladag litla frænda var hún ákveðin allt sitt líf. Stóð alltaf fyrir sínu, dugleg, hjálpsöm og réttsýn og svo kær sem hún var mér, þá var ánægjulegt hvernig samband hennar og stúlkunnar sem varð kona mín þróaðist í einlæga vináttu. Til stóð að við hjónin og Guðný færum saman austur á land síð- astliðið sumar, til þess að skoða æskustöðvar ömmu okkar. Því var frestað vegna veikinda Guð- nýjar. Blessuð sé minning hennar. Minningarnar munu lifa með okk- ur, en söknuðurinn er mikill og skarðið er stórt. Einlægar samúðarkveðjur sendum við hjónin dætrunum Lilju Dögg og Lindu Rós, tengda- syninum Magnúsi, barnabörnum, systkinum Guðnýjar og öðrum aðstandendum. Ingimundur Bergmann og Þórunn Kristjánsdóttir. Kær vinkona kvaddi þennan heim á aðfangadag jóla og minn- ingar um jólahald í gamla daga hellast yfir mig. Við Guðný kynntumst þegar við unnum saman á Tímanum fyrir um 40 árum. Þótt Tíminn hætti að koma út héldum við áfram vinskapnum og við Tímaskvísurnar í prent- deildinni höfum um langt skeið hist nokkrum sinnum á ári og alltaf er jafnskemmtilegt hjá okkur. Nú vantar Guðnýju. Á Tímaárunum vorum við stelpurnar í prentdeildinni mjög nánar. Við vorum á líkum aldri og á svipuðum stað í lífinu, rétt byrjaðar að halda heimili og standa fyrir jólaboði. Guðný var þá með talsverða reynslu í jóla- matseld og öllu því stússi og stressi sem fylgdi jólum. Þau voru mörg ráðin sem við þær yngri fengum hjá henni, t.d. um brúnaðar kartöflur. Þá þegar tók ég eftir því hvað Guðný var alltaf pollróleg, sama hvað gekk á. Dætur hennar voru þá nokkurra ára gamlar og strax ákveðnar hvernig jólakjól þær vildu. Það var aldrei kjóll sem hægt var að kaupa í búð heldur varð Guðný að sauma kjólana sjálf. Mér þótti þetta nú óþarfa dekur en Guðnýju þótti aldrei sem hún gerði of mikið fyrir dæt- ur sínar og fjölskylduna. Og víst er um það að stelpurnar Lilja og Guðný Kristjánsdóttir Bróðir okkar og frændi, ÁSKELL JÓNASSON, Þverá, Laxárdal, verður jarðsunginn frá Þverárkirkju laugardaginn 22. janúar klukkan 14. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir viðstödd. Streymt verður frá athöfninni á twitch.tv/hljodveridbruar Fyrir hönd aðstandenda, Aðalbjörg Jónasdóttir Snorri Jónasson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, RAFN HEIÐAR ÞORSTEINSSON, Vestursíðu 9, áður til heimilis á Ránargötu 24, Akureyri, lést sunnudaginn 16. janúar. Útför hans fer fram frá Höfðakapellu föstudaginn 28. janúar klukkan 10. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Sérstakar þakkir eru til starfsfólksins í Bandagerði fyrir hlýja og góða umönnun. Birna Ástríður Björnsdóttir Snorri Björn Rafnsson Effrosyni Argyri Elena Birna Argyri Rafnsson Alexander Björn Argyris Rafnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.