Morgunblaðið - 21.01.2022, Side 20

Morgunblaðið - 21.01.2022, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022 ✝ Inga Guðlaug Tryggvadóttir fæddist á Mörk á Höfn í Hornafirði 10. mars 1945. Hún lést á dvalarheim- ilinu Hlíð, Beyki- hlíð, á Akureyri 6. janúar 2022. Inga var dóttir hjónanna Tryggva Sigjónssonar skip- stjóra, f. 1918, d. 2000, og Herdísar Rögnu Clau- sen húsfreyju, f. 1924, d. 2007. Systkini Ingu eru Linda Hel- ena, f. 1947, Ellen Maja, f. 1948, stúlka, f. 1950, lést sama ár, Bjarki Elmar, f. 1951, Herdís Tryggvína, f. 1953, Halldór Æg- ir, f. 1960, og Tryggvi Ólafur, f. 1965. Inga giftist hinn 29. desember 1962 Friðfinni Steindóri Pálssyni húsasmiði, f. 1.4. 1942. Foreldrar hans voru Páll Friðfinnsson, f. 1906, d. 2000, og Anna Ólafs- dóttir, f. 1912, d.2003. Börn Ingu og Friðfinns eru: 1) Ólafur dísi Guðmundsdóttur. Fannar á dæturnar Ásu Brynju og Katrínu Rós. Inga fæddist á Mörk á Höfn í Hornafirði en fluttist tæplega tveggja ára með foreldrum að Ránarslóð 8, þar sem hún ólst upp ásamt systkinum sínum. Inga gekk í grunnskólann á Höfn til 15 ára aldurs en þá flutti hún til Ak- ureyrar og stundaði nám í gagn- fræðaskólanum. Inga vann ýmis störf samhliða því að hugsa um börn og heim- ilið. Verslunar- og fisk- vinnslustörf, en lengst af vann hún í Brauðgerð Kristjáns eða tæp tuttugu ár og í eldhúsinu á Dvalarheimilinu Hlíð þar til hún hætti að vinna. Ferðalög skipuðu stóran sess í lífi þeirra hjóna bæði innanlands og utan. Þau áttu húsbíl í 36 ár og voru virk í félagsskapnum Flökk- urum, félagi húsbílaeiganda. Inga las alla tíð mjög mikið, fyrir henni var lestur áhugamál, dægrastytting og skemmtun. Útförin verður gerð frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 21. janúar 2022, og hefst athöfnin klukkan 13 og verður streymt á facebook- síðunni Jarðarfarir í Akureyr- arkirkju – beinar útsendingar: Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Tryggvi, f. 1962, í sambúð með Ástu Sólveigu Alberts- dóttur, börn þeirra eru Guðrún Ösp, sonur hennar og Jóns Dans Jóhanns- sonar er Ýmir Andri, Andri Már, kærasta hans er Ylfa Björt Bryndís- ardóttir. 2) Herdís Anna, f. 1963, eig- inmaður Jóhann Oddgeirsson, börn þeirra eru Vala Margrét, gift Ólafi Árna Jónssyni og son- ur þeirra er Ásgrímur Jóhann, Eyrún Inga, gift Rob Polon og dóttir þeirra er Helena Vala, Birkir Orri. 3) Erna Rún, f. 1973, eiginmaður Kristinn Hólm Ásmundsson, börn þeirra eru Steinar Freyr, kærasta hans er Elísabet Ásta Guðjónsdóttir, Berglind Birta, Friðfinnur Steindór, kærasta hans er Sandra Björk Kristjánsdóttir, og Heiðrún Anna. Kristinn á soninn Fannar Hólm með Bryn- Í dag kveðjum við elskulega móður og tengdamóður, Ingu Guðlaugu Tryggvadóttur. Eftir standa margar dýrmætar minn- ingar og mikið þakklæti. Elsku mamma er lögð af stað í sitt hinsta ferðalag, hvort sem hún tekur flugið eða siglir. Það var hluti af lífssýn hennar að kynnast nýjum lendum, læra eitthvað nýtt og gera vel það sem hún tók sér fyrir hendur. Mamma var fyrir- mynd mín í lífinu, hún kenndi mér margt og hvatti mig áfram að markmiðum mínum. Hún var fyrirmyndarhúsmóðir, gestrisinn fagurkeri sem átti fallegt heimili. Fjölskyldan var mömmu mikils virði og bar hún hag hennar ætíð fyrir brjósti. Hún sýndi okkur áhuga og var ætíð til staðar fyrir okkur. Ég er þakklát fyrir allt sem hún hefur gefið okkur af hlý- hug og væntumþykju, fyrir viskuna sem hún miðlaði til okkar og við munum búa að og miðla áfram til afkomendanna og kenndi okkur mikilvægi þess að rækta ættingja og vini. Hún var einstök amma og börnin okkar Vala Margrét, Eyrún Inga og Birkir Orri áttu mjög fallegt og gott samband við ömmu sína, hvert á sinn hátt. Hjá ömmu mátti nánast allt, baka, spila, sauma, smíða, amma hafði nefni- lega alltaf nægan tíma fyrir þau. Mamma var hafsjór fróðleiks og var víðlesin, ég gat ætíð leitað til hennar um upplýsingar og góð ráð. Hún var algjör bókaormur, lestur var henni áhugamál, dægrastytting og skemmtun. Mamma ferðaðist mikið um Ís- land og þekkti landið sitt vel. Jafnframt naut hún þess að fljúga á vit ævintýra til framandi landa og hafði heimsótt 42 lönd, sum þeirra mörgum sinnum. Í 36 ár fóru mamma og pabbi um á hús- bílunum sínum sem pabbi smíð- aði, ferðalög voru þeirra stóra áhugamál alla tíð. Mamma var aðeins 11 ára þegar hún fór í vist, þá gekk hún frá Seyðisfirði yfir Hjálmárdalsheiði í Loðmundar- fjörð alein og tók ferðalagið hálf- an dag. Hún var fjögur sumur í sveit á Úlfsstöðum í Lommanum eins og hún kallaði Loðmundar- fjörð og lofaði vistina mikið. Hún sagði að þarna hefði áhugi hennar á landinu og ferðalögum kviknað. Mamma var þrautseig og hafði ráð undir rifi hverju í sinni lífsins siglingu þar sem stundum var ágjöf vegna heilsu hennar. Æðru- leysi og hugrekki kom henni í gegnum veikindi og var pabbi kletturinn hennar alla tíð. En fyr- ir mér gat mamma allt nema kannski að læra á tölvu og tæknina. Hún vissi af þessu en lét ekki haggast þótt afkomendurnir vildu tæknivæða hana. Pabbi var hennar tölvutæknir og saman réðu þau fram úr hlutunum, verk- stjórinn og viðburðastjórinn. Mamma ætlaði að verða skip- stjóri þegar hún yrði stór, eins og pabbi hennar. Nú siglir hún um sem skipstjóri í sínu draumalandi. Umfram allt er ég þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk með mömmu, tæp sextíu ár eru for- réttindi, saman þroskuðumst við á lífsins leið og lærðum hvor af annarri. Hvíldin sem hún þráði er kærkomin. Ég sé mömmu fyrir mér eiga sína gæðastund í sum- arlandinu fagra þar sem hún sötr- ar sitt kamillute með bók í hendi og á kantinum eru krossgátur og Rommy-súkkulaði. Elsku pabbi, við verðum ætíð til staðar fyrir þig, með minn- ingar um góða konu í huga okkar. Herdís Anna og Jóhann. Elsku amma okkar, amma Inga, er fallin frá. Við munum sakna hennar mikið og vottum okkar ástkæra afa Lilla samúð okkar. Margar minningar koma upp þegar við hugsum til baka um all- ar góðu stundirnar sem við áttum saman. Það var alltaf tekið vel á móti okkur í Eikarlundi og var oft venjan að fara beint inn í búr en þar var alltaf eitthvað gott að finna. Amma Inga vann lengi í bakaríi og er sérstaklega minn- isstætt þegar hún gaf okkur bleik anísstykki og kleinuhringi sem fengust þar. Einnig gerði hún heimsins besta mjólkurgraut að sögn Birkis Orra. Þegar við syst- ur vorum yngri horfðum við oft á Heilsubælið á spólu í Eikarlundi og höfðum gaman af. Amma safn- aði fílum, svo að það var oft reynt að finna slíka á ferðalögum okkar til að gefa henni. Einnig var lengi heljarinnar bar í Eikarlundi þar sem ýmsar flottar vínflöskur var að finna og var mikið leikið þar. Þá má nefna að hún og afi Lilli höfðu mjög mikla ánægju af því að ferðast um heiminn, hvort sem það var í húsbílnum góða eða á fjarlægar slóðir líkt og til Sýr- lands, Kína og Indlands. Við eyddum mörgum stundum í Eik- arlundi að skoða stóra heimskort- ið í eldhúsinu og ræða um ferða- lög. Árlega skötuveislan í Eikarlundi var alltaf fastur punktur en við unga fólkið end- uðum yfirleitt inni í sjónvarpsher- bergi með lokaðar dyr að borða pappaskötu (pítsu). Eftir að við fjölskyldan fluttum suður var allt- af gaman að kíkja í heimsókn þegar við komum norður. Einnig héldum við góðu sambandi í gegnum myndsímtöl þar sem langömmubörnin voru í aðalhlut- verki. Elsku amma, við söknum þín. Við kveðjum þig með þakklæti í hjarta og þökkum þér fyrir öll ár- in sem við fengum að vera sam- ferða þér. Þín barnabörn, Eyrún Inga, Vala Margrét og Birkir Orri Herdísar- og Jóhannsbörn. Elsku amma Inga. Við vorum lánsöm að alast upp með þig í næstu götu og að geta hitt ykkur afa nánast daglega. Þegar við komum í Eikarlundinn tókstu á móti okkur með faðmlagi og svo lá leið okkar iðulega beint inn í matarbúr enda alltaf eitthvert góðgæti þar að finna. Að koma í venjulegt kaffi hjá þér minnti frekar á veislu, jafnvel þegar við komum óboðin, t.d. eftir að hafa verið tímunum saman í jóla- sveinabrekku, þá gastu alltaf töfr- að eitthvað fram. Þér fannst alveg sjálfsagt þegar við tókum vina- hópinn með, það voru allir vel- komnir og alltaf var nóg til. Þú bakaðir meira að segja litlar Grísla-lummur fyrir Grísla- bangsann hennar Heiðrúnar. Ef það var ekki til eitthvað sem okk- ur langaði í var afi sendur út í búð til þess að kaupa það. Þú elskaðir fátt meira en að hafa fólkið þitt hjá þér og það skein í gegn. Við minnumst húsbílaferðalag- anna, stundanna í hjólhýsinu í Aðaldal, skötuveislanna þar sem fullorðna fólkið fékk skötu en börnin fengu pítsu sem síðar varð þekkt sem „pappaskata“ og að koma í heimsókn yfir hátíðirnar í vel skreytt húsið, þá er minnis- stætt þegar þú fannst Steinar undir teppi um áramótin að fela sig fyrir flugeldunum. Allt aðrar reglur og lögmál voru í gildi hjá þér, við máttum t.d. borða mat í stofunni og stundum þegar við vorum svoleiðis búin að röfla í foreldrum okkar um eitthvert til- tekið dót þá hjálpaðir þú okkur að brúa bilið og skilaðir okkur glott- andi til baka. Við áttum margar góðar stundir með þér að spila, horfa saman á Bangsímon, Reg- ínu eða Síðasta bæinn í dalnum eða leysa krossgátur. Steinar og Friðfinnur sáu um að slá grasið fyrir þig og eru sammála um að þú sért besti vinnuveitandi sem þeir hafa haft. Það var aðdáunarvert og gam- an að heyra ykkur afa segja sög- ur, sjá myndir og minjar frá ferð- um ykkar um heiminn og ef afi sagði vitlaust frá varstu ekki lengi að leiðrétta hann, þú mundir allt rétt eins og uppáhaldsdýrið þitt fíllinn. Þú áttir mikið af flottu dóti og oft þegar við sögðum að eitthvað væri flott vildir þú endi- lega gefa okkur það. Þér fannst alltaf fyndið að rifja upp þegar Berglind var yngri og vildi erfa frá þér Aladdínlampa og þú sagð- ist vera búin að lofa honum öðr- um og þá spurði Berglind hvort hún mætti ekki bara eiga allt sem hinir vildu ekki. Nú eða þegar Steinar samdi ungur munnlega um að fá að eiga húsbílinn með því skilyrði að keyra um með ömmu og afa. Við erum svo þakklát fyrir að hafa átt þig að. Það er ómetanlegt að hafa átt svona góða ömmu. Þú varst alltaf til staðar, spurðir allt- af frétta og varst áhugasöm um allt sem við vorum að gera. Þú studdir við áhugamálin okkar og mættir á viðburði í skólum. Það er sárt að hugsa til þess að fá aldrei að hitta þig aftur, fá knús frá þér, hringja í þig og þú svarir „Inga hér!“ eða heyra í þér stjórnast í afa. Takk fyrir alla viskuna, ástina og hlýjuna sem þú gafst okkur, þú gafst okkur svo mikið sem mun endast okkur út lífið. Hvíl í friði, elsku amma Inga okkar. Þín barnabörn, Steinar Freyr, Berglind Birta, Friðfinnur Steindór og Heiðrún Anna. Kæra systir og frænka okkar, Nú er komið að kveðjustund og leiðarlokum og viljum við því kveðja þig með fáeinum orðum. Inga var okkar elst í 8 systkina hópi, þar sem oft var mikið fjör og læti og við systkinin urðum að líta eftir hvoru öðru og hjálpast að með margt. Mamma var mikið ein, enda pabbi á sjónum og allt unnið frá grunni, matur og flestar flíkur eins og þá tíðkaðist. Þó að samkomulagið væri oftast gott þá gekk á ýmsu og margt brallað og allskonar uppátæki hjá „Höfða- genginu“ en svo kallaðist barna- skarinn í nærliggjandi húsum þar sem voru mjög barnmargar fjöl- skyldur. Við áttum frekar frjálst og áhyggjulítið uppeldi með mik- illi útiveru án áreitis frá símum, tölvum eða sjónvarpi nútímans. En ég byrjaði ekki að kynnast Ingu almennilega fyrr en hún flutti að heiman og varð sjálf móðir og húsmóðir. Þegar ég fermdist kom Inga í heimsókn með Óla Tryggva, þá 4-5 mánaða gamlan. Var þá tekin fyrsta al- mennilega fjölskyldumyndin með okkur systkinunum og mátti varla á milli sjá hvor væri stoltari, nýbakaða mamman eða mamma okkar með fyrsta barnabarnið. Þegar ég fór í skóla til Reykjavík- ur nokkrum árum seinna þá mætti Inga fljótlega með tvær gjafir, væna drykkjarkrús og sparigrís, sem „litla systir“ skyldi nú nota. Hann er enn til en orðinn smá haltur. Smám saman urðu tengslin meiri og þegar ég fór til Danmerkur í 5 ár var hún dugleg að senda mér myndir af börn- unum sínum og Friðfinns og skrifa mér bréf. Það er gaman að lesa þessi handskrifuðu bréf í dag og minnast góðra tíma. Þegar komu upp veikindi í minni fjöl- skyldu vildi hún létta undir og bauð nöfnu sinni Guðlaugu Dröfn í heimsókn smá tíma. Var hún síðan leyst út með gjöfum í stórum stíl og þannig var það einnig ávallt með hin börnin og barnabörnin. Það er hægt að telja upp svo ótal margt sem Inga systir gerði fyrir mig og mína fjölskyldu. Allt- af hafði hún áhuga á heyra af okkur og gladdist yfir öllu sem að vel gekk. Þegar hún og Friðfinn- ur fóru að ferðast um á húsbíln- um sínum komu þau oft í heim- sókn og kom hún ávallt færandi hendi með heimagerðar sultur og ýmislegt fleira, enda einstaklega myndarleg húsmóðir og afar gjaf- mild. Við Linda systir fórum í heimsókn til þeirra í september fyrir rúmu ári og áttum við með þeim góðar stundir í nokkra daga. Inga og Friðfinnur voru afar samrýnd hjón sem máttu varla af hvort öðru sjá. Þegar veikindin urðu þyngri gerði hann allt sem í hans valdi stóð til að gera henni lífið sem bærilegast og stóð eins og klettur með henni í gegnum öldurótið. Hjartans þakkir fyrir allar góðu stundirnar og að hafa verið mér góð systir og góð frænka barnanna minna. Innilegar samúðarkveðjur til Friðfinns og fjölskyldunnar. Ellen Maja og fjölskylda. Elsku Inga, ég var svo lánsöm að eignast ykkur Lilla sem tengdaömmu og -afa þegar ég kynnist Steinari. Ég vil þakka fyrir góðar stund- ir og mun ég sakna samveru þinnar. Ég fann alltaf fyrir hlýju, ást og umhyggju í nærveru þinni. Mér er sérstaklega minnisstæð sumarbústaðarferðin á Laugar- vatn, jólaboðin og koma ykkar Lilla í útskriftarveisluna mína. Þú og Lilli tókuð alltaf vel á móti okkur Steinari í Eikarlundinum, með opnum örmum, kaffi og öðr- um kræsingum. Ástríða ykkar Lilla fyrir því að ferðast, kanna heiminn og læra um nýjar og mis- munandi menningarslóðir er nokkuð sem við Steinar höfum tekið okkur til fyrirmyndar. Takk fyrir að deila sögunum með okk- ur. Sögurnar spanna breitt svið, allt frá ferðalögum ykkar á hús- bílnum um Norðurlöndin og til framandi landa eins og Indlands- ferðin ykkar með Bændaferðum. Að heyra ferðasögurnar ykkar hefur gefið mér og Steinari inn- blástur og löngun til að skoða heiminn enn meira. Elsku amma Inga, takk fyrir allar dýrmætu stundirnar. Hvíldu í friði. Elísabet Ásta Guðjónsdóttir. Inga Guðlaug Tryggvadóttir Ástkær eiginmaður minn, pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi, BJARNI HARALDSSON, kaupmaður á Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sauðárkróki, mánudaginn 17. janúar. Ásdís Kristjánsdóttir Guðrún Ingibj. Bjarnadóttir Paul Sørensen Helga Bjarnadóttir Hafsteinn Häsler Lárus I. Friðfinns Bjarnason Aldís Hafsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR INGI GUÐJÓNSSON, Skipalóni 7, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 15. janúar. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 25. janúar klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja Slysavarnafélagið Landsbjörg. Vegna aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Tengil á streymi frá athöfn má nálgast á mbl.is/andlat Ásthildur Bjarnadóttir Guðrún Guðmundsdóttir Björn Bjarnason Sverrir Guðmundsson Margrét Erla Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, OTTO TULINIUS vélvirkjameistari, Brekatúni 2, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð 15. janúar. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 4. febrúar klukkan 13. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður einungis nánasta fjölskylda viðstödd. Hægt verður að nálgast streymi á facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök SAK. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Skógarhlíð fyrir kærleiksríka umönnun og einstaka hlýju í garð fjölskyldunnar. Agnes Tulinius Svavarsdóttir Svavar Tulinius Þórhalla Halldórsdóttir Halla Kristín Tulinius Guðjón Ingvi Geirmundsson Þórey Tulinius Guðmundur A. Sigurðsson Otto Karl Tulinius Sigrún Finnsdóttir Hlynur Tulinius Rósa Hrefna Gísladóttir afa- og langafabörn Elskulegur faðir okkar, HILMIR HRAFN JÓHANNSSON, heimilislæknir á Akureyri, lést mánudaginn 10. janúar. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 31. janúar klukkan 13. Athöfninni verður streymt á facebooksíðu Akureyrarkirkju: Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat Helga Hilmisdóttir Högni Hilmisson Ólafur Hrafn Hilmisson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.