Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Setjum sjálfstæðis- stefnuna í öndvegi 4.-6. sæti Bjarni Th. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ 5. mars SÓL Í SUMAR BÓKAÐU ALLT FRÍIÐ Á EINUM STAÐ! ÚRVAL ÚTSÝN 585 4000 WWW.UU.IS INFO@UU.IS ALMERÍA FLUG OG GISTING Í 10 DAGA FLUG Á Á OG MEÐ 6. JÚNÍ VERÐ FRÁ Á MANN FULLORÐNA OG 2 BÖRN PORTÚGAL FLUG OG GISTING Í VIKU FLUG Á Á OG MEÐ 7. JÚNÍ VERÐ FRÁ Á MANN FULLORÐNA OG 2 BÖRN INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR Jóhann Ólafsson johann@mbl.is „Ég er gjörsamlega svefnlaus eftir ferðina. Í hvert skipti sem ég vakna eftir að hafa dottið út velti ég því fyrir mér hvort þetta hafi verið slæmur draumur,“ segir Alexandra Andrú- senkó sem kom til Íslands í fyrradag frá bænum Irpen sem er um 30 kíló- metra norðvestur af Kænugarði. Alexandra og Svitlana Perepe- litsía, móðir hennar, segjast heppnar að eiga ættingja á Íslandi og að þær hafi getað flúið stríðið í Úkraínu ásamt þremur börnum Alexöndru. Börnin eru þriggja, fimm og ellefu ára. Eiginmaður hennar varð eftir en fáir karlmenn hafa getað yfirgefið landið eftir að Rússar réðust inn í það. „Hann varð eftir og sér um þá úr fjölskyldunni sem einnig eru í Úkra- ínu,“ segir Alexandra þar sem hún ræðir við blaðamann á heimili mág- konu sinnar í Barmahlíð. Alexandra segir að hún geti ekki hugsað núna um það hve erfitt það sé að eiginmaður hennar hafi orðið eftir. „Við getum ekki hugsað um einhvern einn heldur verðum við að hugsa um alla. Ég á marga vini og fjölskyldu í Kænugarði, sumir gátu farið en aðrir ekki. Þeir sem eru eftir í höfuðborg- inni geta ekki farið því það er of hættulegt.“ Ferðalag mæðgnanna og barnanna Anastasíu, Platons og Arons hófst í raun á fimmtudagsmorgun í síðustu viku en þá um nóttina hófu Rússar innrás í Úkraínu. „Fyrrverandi eigin- maður minn hringdi þá í mig og sagði mér að stríð væri hafið. Ég þyrfti að koma mér og börnunum í öruggt skjól undir eins,“ segir Alexandra. Mæðgurnar og börnin áttu flug til Egilsstaða síðdegis í gær. Alexandra vonast til að ná eitthvað að hvílast þar og segir að hún hafi lítið náð að hvíl- ast síðustu vikuna. Alexandra hefur, eins og gefur að skilja, ekki hugmynd um það hversu lengi þær verða á Eg- ilsstöðum enda sé engin leið að spá um hvað gerist í Úkraínu. „Þegar stríðið byrjaði sögðu allir að þetta yrði einn dagur og svo yrðu málin rædd. Svo urðu það tveir dagar og þrír dagar. Þetta er ekki í lagi og enginn veit hvenær þessu lýkur en innrásin virðist grimmilegri eftir því sem á líður.“ Hún segir anda Úkraínumanna sterkan og ekki komi til greina að gefa öðru landi þeirra landsvæði. „Við viljum ekki vera hluti af Rússlandi. Úkraína er sjálfstætt ríki,“ segir Alexandra sem er ekki í vafa um hvernig stríðið endi: „Þetta endar þannig að við vinnum.“ Hún vonast til að hægt verði að snúa aftur heim einn daginn en bend- ir á að þegar það verði muni taka langan tíma að laga það sem Rússar hafi rústað. „Við viljum bara búa í friði og ró,“ segir Alexandra sem ætl- ar að hjálpa samlöndum sínum í heimalandinu eins og hægt er næstu daga og vikur með því að senda þeim peninga, lyf og fleira. Við komuna til Egilsstaða býst hún við því að börnin fari í leikskóla og skóla, strákarnir í leikskóla og Anastasia í 5. bekk. Lengri útgáfu af viðtalinu má finna á mbl.is. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Flóttamenn Mæðgurnar Alexandra Andrúsenkó og Svitlana Perepelitsía ásamt þremur börnum Alexöndru. Vonast til að geta snúið aftur heim síðar - „Við viljum bara búa í friði og ró,“ segir kona frá Úkraínu Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Áhrifin af stríðinu í Úkraínu á ferða- þjónustu á Íslandi verða margvísleg. Að Rússar komi ekki hingað sem ferðamenn er þó minnsta vanda- málið,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri. Árið 2019 komu 16.500 Rússar til landsins, þegar heildarfjöldi ferðamanna sem hingað komu var liðlega tvær millj- ónir. „Ferðamenn frá Rússlandi sem hingað koma eru ekki svo margir að þungt vegi, þó vissulega telji þetta allt. Sumir þessara Rússa hafa vissu- lega eytt talsverðum fjármunum hér, en þeir sem veitt hafa þeim þjónustu hafa þá á móti þurft að kosta tals- verðu til. Í öðrum löndum þangað sem Rússar hafa í talsverðum mæli sótt sem ferðamenn gætu áhrifin orð- ið talsverð, svo sem í Frakklandi og Finnlandi. Í stóra samhenginu má þó tiltaka að stríðið mun leiða til hærra olíuverðs, meiri verðbólgu og vænt- anlega minni ferðavilja. Í hugum marga Bandaríkjamanna og Asíubúa er nú háð styrjöld í miðri Evrópu og eðlilega ferðast fólk síður á slíkar slóðir,“ segir ferðamálastjóri. Þá er þekkt að rússneskir ólígark- ar, en svo eru auðmenn þar í landi gjarnan kallaðir, halda sig mikið í smáríkinu Mónakó sem liggur að Miðjarðarhafi í frönsku ríveríunni. Þar eiga ólígarkarnir gjarnan lúxus- íbúðir og í höfn eru dýrar lúxus- snekkjur, en slíkar hafa stundum sést hér við land. Hugsanlega erfiðara að fá starfsfólk Í miklum umsvifum í íslenskri ferðaþjónustu fram að Covid- tímanum var starfsemi margra fyrirtækja mönnuð með erlendu starfsfólki. Margir komu til dæmis frá Eystrasaltslöndunum, Póllandi, Búlgaríu og Tékklandi; þá gjarnan fólk á aldrinum milli tvítugs og fer- tugs sem staldraði við og starfaði á Íslandi í nokkra mánuði. „Núna er ferðaþjónustan á Íslandi aftur að komast í gang og þá þarf fólk í hin ýmsu störf. Stríðsátök í Úkraínu gætu dregið úr ferðavilja í löndum Austur-Evrópu og fólk sem þarna býr gæti viljað fara til annarra landa í atvinnuleit. Að fá starfsfólk í greinina gæti því orðið talsverð áskorun á næstunni,“ segir Skarphéðinn. Óljóst með efnafólk Jóhannes Stefánsson veit- ingamaður, löngum kenndur við Múlakaffi, hefur meðal annars sinnt ferðaþjónustu við Rússa sem koma hingað til lands. Þar á gjarnan í hlut vel borgandi efnafólk sem meðal ann- ars hefur verið í lúxusgistingu sem Jóhannes hefur yfir að ráða austur í Biskupstungum. Fleiri í ferðaþjón- ustu hafa sinnt þessum markhópi, sem þiggur ýmsan viðurgjörning. „Á þessari stundu er erfitt að svara því til hver verða áhrifin af lokun Rússlands á þá starfsemi sem ég er með. Þetta gæti skýrst eftir um það bil mánuð eða svo. Á þessari stundu lítur þetta samt ekkert vel út,“ segir Jóhannes Stefánsson. Stríð mun snerta ferðaþjónustuna - Engir Rússar - Ferðaviljinn minni Morgunblaðið/Árni Sæberg Túristar Ljóst þykir að stríðið í Úkraínu muni bíta ferðaþjónustu á Íslandi með ýmsu móti. Engir Rússar á ferð, en fyrst og fremst efnahagsleg áhrif. Jóhannes Stefánsson Skarphéðinn Berg Steinsson Íslensk stjórnvöld munu taka á móti flóttafólki frá Úkraínu, að sögn Stef- áns Vagns Stefánssonar, formanns flóttamannanefndar. Nefndin fundaði í gær og var sú ákvörðun þá tekin, en lögð hafi verið áhersla á að ganga í takt við aðrar Evrópuþjóðir. Ekki hafi hins vegar verið tekin ákvörðun um það ennþá hve mörg- um verður tekið á móti. Alls hafa 30 flóttamenn frá Úkra- ínu sótt um alþjóðlega vernd hér á landi vegna innrásar Rússa, að sögn Þórhildar Hagalín, upplýsingafull- trúa Útlendingastofnunar. Aðspurð segir hún útlit fyrir að meirihluti umsækjenda séu konur og börn. Þórhildur segist ekki geta sagt til um hvort fólkið fái skjótari meðferð á sínum málum vegna aðstæðna en Úkraína hafi verið tekin af lista yfir örugg ríki um leið og átökin hófust. Jón Pétur Jónsson, sviðsstjóri landamærasviðs ríkislögreglustjóra, segir meirihluta fólksins hafa ein- hver tengsl við Ísland. Allur gangur sé á því hvar fólk gefi sig fram. Sum- ir hafi gefið sig fram við lögreglu á flugvellinum. 30 hafa sótt um vernd hér Stríð í Evrópu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.