Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 14

Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is F rú Ragnheiður hefur ver- ið starfrækt á vegum Rauða kross Íslands í tólf ár og er rekin af mikilli hugsjón og smærri styrkj- um þar til í ár en nýverið styrktu fjársterkir einstaklingar Frú Ragnheiði um ellefu milljónir og voru tveir styrkirnir eyrnamerktir sérstaklega því að standa að fræðslu um notkun lyfsins nalox- one og kaup á því til þess að dreifa til skjólstæðinga sem eru líklegir til þess að verða vitni að eða verða fyrir ofskömmtun ópíóðalyfja. Nefúði sem getur bjargað Marín Þórsdóttir, deildar- stjóri hjá Rauða krossinum á höfuðborgarsvæðinu, segir það mikinn ávinning fyrir samfélagið í heild að vel sé staðið að málefnum fólks sem notar vímuefni í æð og að hugmyndafræði skaðaminnk- unar sé höfð að leiðarljósi. „Naloxone er nefúði sem er mjög öruggur í meðförum og getur bjargað lífi þess sem verður fyrir ofskömmtun, sé rétt brugðist við,“ segir Marín sem er nýkomin frá Danmörku þar sem skaða- minnkunarteymi Rauða krossins kynnti sér þau úrræði sem eru til boða þar í landi. Stríð gegn fíkniefnum tapað Marín segir að önnur lönd standi sig mjög vel og að Ísland megi taka sér þau til fyrirmyndar. „Ljóst er að mörg lönd eru að standa sig mun betur en hér á Ís- landi. Portúgal stendur til dæmis mjög framarlega í þessum málum og hefur dauðsföllum af völdum fíkniefnanotkunar fækkað gríðar- lega þar í landi. Það sjá það allir að stríðið gegn fíkniefnum er tap- að og að þessi harða refsistefna hefur ekki reynst neinum vel. Það er nauðsynlegt að geta aðstoðað fólk á þeim stað þar sem það er statt hverju sinni. Hvert líf skiptir máli,“ segir Marín. Náum fyrr til fólks „Kosturinn við Frú Ragnheiði er að með vettvangsstarfinu náum við til fólks miklu fyrr en heil- brigðiskerfið og áður en vandi þess verður of alvarlegur. Þessi hópur er meðvitaður um sinn vanda, þeim finnst þau vera byrði á sam- félaginu og veigra sér því við að leita sér hjálpar fyrr en kannski of seint. Svo ekki sé minnst á mikil- vægi þess að neytendur hafi að- gang að hreinum nálum til þess að koma í veg fyrir HIV-smit. Allt er þetta mikill kostnaðarsparnaður fyrir heilbrigðiskerfið. Í fyrra söfnuðum við rúmum 3.000 lítrum af sprautunálum og það sér það hver maður hversu mikilvægt það er fyrir samfélagið að þessum nál- um sé fargað með öruggum hætti.“ Kalla eftir samvinnu Marín segir viðhorf til þessa málaflokks hafi breyst til hins betra. „Viðhorfið gagnvart starfi Frú Ragnheiðar hefur ekki alltaf verið jákvætt en við finnum þó fyr- ir viðhorfsbreytingum síðustu misseri. Reykjavíkurborg hefur til dæmis staðið sig vel í þjónustu við þennan hóp á sama tíma og önnur sveitarfélög hafa algerlega litið framhjá þessum málaflokki.“ Að- spurð hverju henni finnst mikil- vægast að stefna að í framtíðinni nefnir hún húsnæðismál. „Best væri að þurfa ekki að reka neyslu- rými, að allir hefðu þak yfir höf- uðið og húsnæði og þjónustu við sitt hæfi. Þá þarf meiri samvinnu á milli félagsgeirans og heilbrigð- isgeirans og taka á málefnum ein- staklinga á breiðum grunni. Marg- ir eiga við fjölþætt vandamál að stríða sem krefjast þess að unnið sé úr þeim samhliða,“ segir Marín. Engin krafa um að hætta Frú Ragnheiður er vettvangs- starf skipað sjálfboðaliðum og er starfrækt sex daga vikunnar. Um 600 manns á höfuðborgarsvæðinu sækja þjónustu Frú Ragnheiðar. „Skaðaminnkun er þar í forgrunni en þangað leitar fólk sem notar vímuefni í æð og eða er heimilis- laust. Tekið er á móti þeim á þeirra forsendum án þess að gera kröfu um að það hætti sinni neyslu. Mikilvægt er að til staðar séu fjölbreytt úrræði,“ segir Mar- ín. Mörg lönd standa okkur framar Ísland má gera betur þegar kemur að skaðaminnkun en það er mikilvægt fyrir samfélagið. Frú Ragnheiður hefur staðið vaktina síðustu ár og bendir á kosti nef- úðans naloxone í fækkun dauðsfalla hér á landi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Úrræði Marín Þórsdóttir, deildarstjóri Rauða kross Íslands á höfuðborgarsvæðinu, vill sjá fjölbreyttari nálgun. Aðstaða Ekki er langt síðan nýr bíll Frú Ragnheiðar var tekinn í notkun. Garðyrkjufélag Íslands stendur fyrir áhugaverðum fræðslufundum á komandi vikum og mánuðum. Fyrsti fundur ársins var í síð- ustu viku þar sem fjallað var um sáningu sumarplantna. Í kvöld verður sjónum hins vegar beint að vertrarumhirðu pottaplantna og öllu því helsta sem þarf að huga að yfir vetrartímann. Fundurinn sem hefst klukkan átta fer fram á netinu í gegnum fjarfundakerfið Zoom. Fundurinn er öllum opinn og ekki þarf að greiða aðgangseyri. Settur verður hlekkur inn á Facebook-síðu Garð- yrkjufélags Íslands fyrir fundinn en sökum takmarkana á Zoom- aðgangi er hámarksfjöldi 100 manns. Ljóst er að umfjöllunarefni fræðslufundanna verða af marg- víslegum toga en á miðvikudag í næstu viku verður fjallað um sveppi í garðinum og á fimmtudag í næstu viku verður fræðst um trjá- og runnaklippingar. Garðyrkjufélag Íslands er félag áhugafólks um garðyrkju og er op- ið öllum þeim sem hafa áhuga á gróðri, ræktun og fegrun umhverf- isins og vilja deila áhuga sínum með öðrum félagsmönnum. Nánari upplýsingar um félagið má finna á vefsíðunni www.gardur- inn.is. mariamargret@mbl.is Fundur um vetrarumhirðu pottaplantna Fræðslufundir Garðyrkjufélags Íslands hefjast á nýjan leik Morgunblaðið/Kristinn Pottaplanta Flauelsfjöður skartar fallegum mislitum blöðum. Frjáls útsaumur verður í hávegum hafður í Hönn- unarsafni Íslands í dag og í næstu viku en þar verður haldið námskeið í frjálsum útsaum. Sunna Örlygs- dóttir, fatahönn- uður og meistari í útsaumi, er leið- beinandi námskeiðsins. Frjáls útsaumur er útsaumur sem þarf hvorki að telja út né styðjast við forskrift. Slíkur útsaumur er því frjálsari en til dæmis harðangur, klaustur eða hvítsaumur. Námskeiðið, sem ber heitið Frí- hendis Flóra, er ætlað fyrir byrjendur og alla áhugasama um útsaum og ekki er þörf á að hafa grunn í út- saumi. Markmiðið er að þátttakendur kynnist útsaumi og geti saumað út sér til gagns og gleði. Þeir sauma til að mynda prufuklút með sjö mismun- andi sporum sem nýtast þegar sauma á fríhendis. Innblástur verður sóttur úr íslenskri flóru og farið yfir samspil lita og ólíka áferð garns. Námskeiðið sem haldið er í Hönn- unarsafni Íslands við Garðatorg 1 er samtals tvö kvöld frá klukkan 16:30 til 19:30 og kostar 14.500 kr. Hægt er að kaupa miða á Tix.is en nánari upp- lýsingar um námskeiðið má finna á heimasíðu Hönnunarsafns Íslands. Námskeið í útsaumi Frjáls útsaum- ur í Hönnunar- safni Íslands Sunna Örlygsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.