Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
F
rú Ragnheiður hefur ver-
ið starfrækt á vegum
Rauða kross Íslands í
tólf ár og er rekin af
mikilli hugsjón og smærri styrkj-
um þar til í ár en nýverið styrktu
fjársterkir einstaklingar Frú
Ragnheiði um ellefu milljónir og
voru tveir styrkirnir eyrnamerktir
sérstaklega því að standa að
fræðslu um notkun lyfsins nalox-
one og kaup á því til þess að dreifa
til skjólstæðinga sem eru líklegir
til þess að verða vitni að eða verða
fyrir ofskömmtun ópíóðalyfja.
Nefúði sem getur bjargað
Marín Þórsdóttir, deildar-
stjóri hjá Rauða krossinum á
höfuðborgarsvæðinu, segir það
mikinn ávinning fyrir samfélagið í
heild að vel sé staðið að málefnum
fólks sem notar vímuefni í æð og
að hugmyndafræði skaðaminnk-
unar sé höfð að leiðarljósi.
„Naloxone er nefúði sem er
mjög öruggur í meðförum og getur
bjargað lífi þess sem verður fyrir
ofskömmtun, sé rétt brugðist við,“
segir Marín sem er nýkomin frá
Danmörku þar sem skaða-
minnkunarteymi Rauða krossins
kynnti sér þau úrræði sem eru til
boða þar í landi.
Stríð gegn fíkniefnum tapað
Marín segir að önnur lönd
standi sig mjög vel og að Ísland
megi taka sér þau til fyrirmyndar.
„Ljóst er að mörg lönd eru að
standa sig mun betur en hér á Ís-
landi. Portúgal stendur til dæmis
mjög framarlega í þessum málum
og hefur dauðsföllum af völdum
fíkniefnanotkunar fækkað gríðar-
lega þar í landi. Það sjá það allir
að stríðið gegn fíkniefnum er tap-
að og að þessi harða refsistefna
hefur ekki reynst neinum vel.
Það er nauðsynlegt að geta
aðstoðað fólk á þeim stað þar sem
það er statt hverju sinni. Hvert líf
skiptir máli,“ segir Marín.
Náum fyrr til fólks
„Kosturinn við Frú Ragnheiði
er að með vettvangsstarfinu náum
við til fólks miklu fyrr en heil-
brigðiskerfið og áður en vandi þess
verður of alvarlegur. Þessi hópur
er meðvitaður um sinn vanda,
þeim finnst þau vera byrði á sam-
félaginu og veigra sér því við að
leita sér hjálpar fyrr en kannski of
seint. Svo ekki sé minnst á mikil-
vægi þess að neytendur hafi að-
gang að hreinum nálum til þess að
koma í veg fyrir HIV-smit. Allt er
þetta mikill kostnaðarsparnaður
fyrir heilbrigðiskerfið. Í fyrra
söfnuðum við rúmum 3.000 lítrum
af sprautunálum og það sér það
hver maður hversu mikilvægt það
er fyrir samfélagið að þessum nál-
um sé fargað með öruggum hætti.“
Kalla eftir samvinnu
Marín segir viðhorf til þessa
málaflokks hafi breyst til hins
betra. „Viðhorfið gagnvart starfi
Frú Ragnheiðar hefur ekki alltaf
verið jákvætt en við finnum þó fyr-
ir viðhorfsbreytingum síðustu
misseri. Reykjavíkurborg hefur til
dæmis staðið sig vel í þjónustu við
þennan hóp á sama tíma og önnur
sveitarfélög hafa algerlega litið
framhjá þessum málaflokki.“ Að-
spurð hverju henni finnst mikil-
vægast að stefna að í framtíðinni
nefnir hún húsnæðismál. „Best
væri að þurfa ekki að reka neyslu-
rými, að allir hefðu þak yfir höf-
uðið og húsnæði og þjónustu við
sitt hæfi. Þá þarf meiri samvinnu á
milli félagsgeirans og heilbrigð-
isgeirans og taka á málefnum ein-
staklinga á breiðum grunni. Marg-
ir eiga við fjölþætt vandamál að
stríða sem krefjast þess að unnið
sé úr þeim samhliða,“ segir Marín.
Engin krafa um að hætta
Frú Ragnheiður er vettvangs-
starf skipað sjálfboðaliðum og er
starfrækt sex daga vikunnar. Um
600 manns á höfuðborgarsvæðinu
sækja þjónustu Frú Ragnheiðar.
„Skaðaminnkun er þar í forgrunni
en þangað leitar fólk sem notar
vímuefni í æð og eða er heimilis-
laust. Tekið er á móti þeim á
þeirra forsendum án þess að gera
kröfu um að það hætti sinni
neyslu. Mikilvægt er að til staðar
séu fjölbreytt úrræði,“ segir Mar-
ín.
Mörg lönd standa okkur framar
Ísland má gera betur þegar kemur að skaðaminnkun
en það er mikilvægt fyrir samfélagið. Frú Ragnheiður
hefur staðið vaktina síðustu ár og bendir á kosti nef-
úðans naloxone í fækkun dauðsfalla hér á landi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Úrræði Marín Þórsdóttir, deildarstjóri Rauða kross Íslands á höfuðborgarsvæðinu, vill sjá fjölbreyttari nálgun.
Aðstaða Ekki er langt síðan nýr bíll Frú Ragnheiðar var tekinn í notkun.
Garðyrkjufélag Íslands stendur
fyrir áhugaverðum fræðslufundum
á komandi vikum og mánuðum.
Fyrsti fundur ársins var í síð-
ustu viku þar sem fjallað var um
sáningu sumarplantna. Í kvöld
verður sjónum hins vegar beint að
vertrarumhirðu pottaplantna og
öllu því helsta sem þarf að huga
að yfir vetrartímann.
Fundurinn sem hefst klukkan
átta fer fram á netinu í gegnum
fjarfundakerfið Zoom. Fundurinn
er öllum opinn og ekki þarf að
greiða aðgangseyri. Settur verður
hlekkur inn á Facebook-síðu Garð-
yrkjufélags Íslands fyrir fundinn
en sökum takmarkana á Zoom-
aðgangi er hámarksfjöldi 100
manns.
Ljóst er að umfjöllunarefni
fræðslufundanna verða af marg-
víslegum toga en á miðvikudag í
næstu viku verður fjallað um
sveppi í garðinum og á fimmtudag
í næstu viku verður fræðst um
trjá- og runnaklippingar.
Garðyrkjufélag Íslands er félag
áhugafólks um garðyrkju og er op-
ið öllum þeim sem hafa áhuga á
gróðri, ræktun og fegrun umhverf-
isins og vilja deila áhuga sínum
með öðrum félagsmönnum.
Nánari upplýsingar um félagið
má finna á vefsíðunni www.gardur-
inn.is. mariamargret@mbl.is
Fundur um vetrarumhirðu pottaplantna
Fræðslufundir Garðyrkjufélags
Íslands hefjast á nýjan leik
Morgunblaðið/Kristinn
Pottaplanta Flauelsfjöður skartar fallegum mislitum blöðum.
Frjáls útsaumur
verður í hávegum
hafður í Hönn-
unarsafni Íslands
í dag og í næstu
viku en þar verður
haldið námskeið í
frjálsum útsaum.
Sunna Örlygs-
dóttir, fatahönn-
uður og meistari í
útsaumi, er leið-
beinandi námskeiðsins.
Frjáls útsaumur er útsaumur sem
þarf hvorki að telja út né styðjast við
forskrift. Slíkur útsaumur er því
frjálsari en til dæmis harðangur,
klaustur eða hvítsaumur.
Námskeiðið, sem ber heitið Frí-
hendis Flóra, er ætlað fyrir byrjendur
og alla áhugasama um útsaum og
ekki er þörf á að hafa grunn í út-
saumi. Markmiðið er að þátttakendur
kynnist útsaumi og geti saumað út
sér til gagns og gleði. Þeir sauma til
að mynda prufuklút með sjö mismun-
andi sporum sem nýtast þegar
sauma á fríhendis. Innblástur verður
sóttur úr íslenskri flóru og farið yfir
samspil lita og ólíka áferð garns.
Námskeiðið sem haldið er í Hönn-
unarsafni Íslands við Garðatorg 1 er
samtals tvö kvöld frá klukkan 16:30
til 19:30 og kostar 14.500 kr. Hægt er
að kaupa miða á Tix.is en nánari upp-
lýsingar um námskeiðið má finna á
heimasíðu Hönnunarsafns Íslands.
Námskeið í útsaumi
Frjáls útsaum-
ur í Hönnunar-
safni Íslands
Sunna
Örlygsdóttir