Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
Dagbók Kidda klaufa
– Róbbi rokkar
Höf. Jeff Kinney
Les. Oddur Júlíusson
Líkblómið
Höf. Anne Mette Hancock
Les. Sara Dögg Ásgeirsdóttir
Palli Playstation
Höf. Gunnar Helgason
Les. Gunnar Helgason
Óvelkomni maðurinn
Höf. Jónína Leósdóttir
Les. Elín Gunnarsdóttir
Hugfanginn
Höf. Anna Ragna Fossberg
Les. Daníel Ágúst Haraldsson
Kennarinn sem kveikti í
Höf. Bergrún Íris Sævarsdóttir
Les. Árni Beinteinn Árnason
Haustið 82
Höf. Ásdís Ingólfsdóttir
Les. Sigríður Eyrún Friðriksdóttir
Horfnar
Höf. Stefán Máni
Les. Rúnar Freyr Gíslason
vi
ka
8
Stóri skjálfti
Höf. Auður Jónsdóttir
Les. Aníta Briem
Snjókarlinn
Höf. Jo Nesbø
Les. Orri Huginn Ágústsson
TOPP 10 vinsælustu hljóðbækur á Íslandi.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Íþróttafélögin Ármann og Þróttur
munu sameiginlega þjóna nýjum
hverfum í Voga- og Höfðabyggð. Þá
munu félögin einnig þjóna Bryggju-
hverfi þegar skóli verður risinn í
hverfinu. Þessi nýju hverfi við El-
liðaárvog og á Ártúnshöfða verða
mjög fjölmenn þegar þau verða full-
byggð, en þar er gert ráð fyrir allt
að átta þúsund íbúðum.
„Menningar-, íþrótta- og tóm-
stundaráð gerði tillögur um þetta
eftir samráð við fulltrúa íþrótta-
félaganna Ármanns, Fjölnis, Fylkis,
Víkings og Þróttar og voru tillög-
urnar samþykktar í borgarráði í
gær.“ Svo segir í tilkynningu á
heimasíðu Reykjavíkurborgar 25.
febrúar sl.
Þessi ákvörðun borgarinnar er
þvert á óskir íþróttafélaganna Fylk-
is og Fjölnis en bréf félaganna voru
tekin til umfjöllunar á fundi menn-
ingar-, íþrótta- og tómstundaráðs
hinn 14. febrúar s.l.
Vildu dafna til framtíðar
Í bréfi íþróttafélagsins Fylkis
kemur fram að félagið þjónusti íbúa
Ártúnsholts, Árbæjar, Seláss og
Norðlingaholts. Það starfræki sjö
deildir/íþróttagreinar með um 1.500
iðkendum frá þriggja ára aldri. Íbú-
ar í hverfunum séu um 11.000 tals-
ins og sé það mat stjórnar félagsins
að sá fjöldi sé í það minnsta til að
geta haldið úti félagi með jafn
margar deildir og Fylkir er með.
„Til þess að styrkja starfsemi fé-
lagsins sækir það um að þjónusta
nýtt Höfðahverfi. Vonandi verður
það að veruleika og félagið yrði þá
komið í mjög góða stærð til að vaxa
og dafna til framtíðar,“ segir í bréfi
Fylkis til borgarinnar.
Í bréfi ungmennafélagsins Fjöln-
is er óskað eftir fundi með borgar-
yfirvöldum áður en ákvörðun verði
tekin í málinu. Segir í bréfi Fjölnis
að félagið sé með samning við
Reykjavíkurborg um að þjónusta
Grafarvog og nágrenni og sam-
kvæmt aðalskipulagi sé Bryggju-
hverfið og Höfðinn (Höfðahverfi)
skilgreint þar.
Hjá Fjölni eru stundaðar 11
íþróttagreinar og starfar félagið í
fjölmennu hverfi, Grafarvogi. Fram
kemur á heimasíðu félagsins að iðk-
endur séu rúmlega 4.000 talsins.
Við annan tón kveður í sameigin-
legri yfirlýsingu Knattspyrnufélags-
ins Þróttar og Glímufélagsins Ár-
manns. Félögin fagna ákvörðun
ÍTR um að félögin skipti með sér
Vogabyggð í anda þeirra tillagna
sem félögin gerðu um uppbyggingu
íþróttastarfs í nýjustu hverfum
Reykjavíkurborgar. Um leið skora
félögin á borgina að kljúfa ekki
Höfðabyggð frá Vogabyggð, eins og
einhverjar hugmyndir hafi verið
um.
Ármann og Þróttur starfa bæði í
Laugardalnum. Hjá Ármanni eru
iðkaðar 10 íþróttagreinar. Hjá
Þrótti eru stundaðar fjórar íþrótta-
greinar.
Vildi fresta ákvörðun
Á fundinum 14. febrúar var
lögð fram málsmeðferðartillaga
Baldurs Borgþórssonar, fulltrúa
Miðflokksins: „Lagt er til að
ákvörðun um íþróttastarf í Höfða-
byggð verði frestað um sinn. Þar
sem fyrir liggur að íbúðabyggð í
Höfðabyggð muni ekki taka á sig
mynd næstu 10-15 árin hið minnsta
að mati flestra, tel ég rétt að
ákvörðun verði tekin síðar. Með
þeim hætti er tryggt að besta
niðurstaða náist.“
Breytingartillaga Baldurs var
felld með fimm atkvæðum fulltrúa
Samfylkingar, Viðreisnar, Mið-
flokks og Vinstri grænna. Fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins sat hjá.
Fram kemur í tilkynningunni á
heimasíðu Reykjavíkurborgar að
gert sé ráð fyrir að gengið verði til
samninga við Ármann og Þrótt um
þjónustu, uppbyggingu og rekstur í
hverfunum. Ekki er gert ráð fyrir
að fjölga hverfafélögum heldur veiti
Ármann og Þróttur heildstæða
þjónustu í sameiningu á öllu starfs-
svæðinu, sem byggist á því að þjón-
usta félaganna eftir íþróttagreinum
skarist hvergi.
Fjögur íþróttafélög vildu
þjóna nýjum hverfum
- Ármann og Þróttur munu starfa í Voga- og Höfðabyggð
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Stefnt er að því að taka nýja
bryggju innst í Eskifirði í notkun
fyrir lok ársins. Í ár verður kostn-
aður við framkvæmdirnar rúmlega
400 milljónir króna og þegar upp
verður staðið kostar nýja frysti-
hússbryggjan hátt í milljarð, að
sögn Jóns
Björns Hákonar-
sonar, bæjar- og
hafnarstjóra í
Fjarðabyggð.
Bryggjan
verður á staur-
um, sem voru
reknir niður í
fyrra. Sú leið var
valin þar sem
botninn er veik-
ur og með staur-
unum næst æskileg þyngdardreif-
ing. Fram undan í ár er meðal
annars frágangur við holplötur og
þybbur, að steypa þekju á bryggj-
una, sem er 3.460 fermetrar, og
síðan dýpkun svo nægilegt dýpi
verði við viðlegukantinn eða tíu
metrar. Hluti af fjárfestingum síð-
asta árs, eins og við forsteyptar
holplötur og þybbur, verður sýni-
legur þegar líður á árið.
Eskja og fleiri fyrirtæki
Á uppfyllingu og eyrum innst í
Eskifirði hefur Eskja hf. reist upp-
sjávarfrystihús og frystigeymslu á
síðustu árum og þar er einnig fiski-
mjölsverksmiðja fyrirtækisins.
Fleiri fyrirtæki eru með starfsemi
á hafnarsvæðinu, t.d. Egersund og
Skeljungur. Þörf var talin á bættu
aðgengi að hafnarkanti og auknu
athafnasvæði vegna uppbyggingar-
innar. Nýi hafnarkanturinn verður
150 metra langur.
Fjarðabyggðarhafnir fjármagna
framkvæmdirnar á Eskifirði, en sá
hafnarsjóður er annar stærsti á
landinu á eftir Faxaflóahöfnum.
Jón Björn segir að frá árinu 2006,
þegar framkvæmdum lauk við Mjó-
eyrarhöfn við álverið í Reyðarfirði,
hafi framkvæmdir við hafnarmann-
virki í Fjarðabyggð ekki notið
framlaga frá ríkinu.
Mikil umsvif eru í
höfnum í Fjarðabyggð
Á næstu árum eru skilgreind
nokkur stór verkefni á vegum
Fjarðabyggðahafna og gætu fjár-
festingar til ársins 2025 numið
hálfum öðrum milljarði. Þau snúa
að endurbótum og framkvæmdum
tengdum Eskifjarðarhöfn, Norð-
fjarðarhöfn við fiskimjölsverk-
smiðju og Mjóeyrarhöfn. Nokkrar
af stærstu fiskihöfnum landsins
eru í Fjarðabyggð. Af þeim fer
mestur afli um höfnina í Norð-
firði, en mikil umsvif eru einnig á
Eskifirði og Fáskrúðsfirði ásamt
vöruflutningarhöfn á Mjóeyri.
Nýtt hafnarsvæði í notkun í ár
- Heildarkostnaður við nýja frystihússbryggju á Eskifirði tæpur milljarður - Mikil uppbygging
Ljósmyndir/Gungör Tamzok
Bætt aðstaða Staurar í tugatali voru reknir niður á nýja hafnarsvæðinu í fyrra og á þekja bryggjunnar að hvíla á þeim. Framkvæmdum á að ljúka í ár.
Jón Björn
Hákonarson
Eskifjörður Annir hafa verið í höfnum eystra í vetur enda stór loðnuvertíð í gangi. Nýja svæðið er efst til vinstri.