Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 22

Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Dagbók Kidda klaufa – Róbbi rokkar Höf. Jeff Kinney Les. Oddur Júlíusson Líkblómið Höf. Anne Mette Hancock Les. Sara Dögg Ásgeirsdóttir Palli Playstation Höf. Gunnar Helgason Les. Gunnar Helgason Óvelkomni maðurinn Höf. Jónína Leósdóttir Les. Elín Gunnarsdóttir Hugfanginn Höf. Anna Ragna Fossberg Les. Daníel Ágúst Haraldsson Kennarinn sem kveikti í Höf. Bergrún Íris Sævarsdóttir Les. Árni Beinteinn Árnason Haustið 82 Höf. Ásdís Ingólfsdóttir Les. Sigríður Eyrún Friðriksdóttir Horfnar Höf. Stefán Máni Les. Rúnar Freyr Gíslason vi ka 8 Stóri skjálfti Höf. Auður Jónsdóttir Les. Aníta Briem Snjókarlinn Höf. Jo Nesbø Les. Orri Huginn Ágústsson TOPP 10 vinsælustu hljóðbækur á Íslandi. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Íþróttafélögin Ármann og Þróttur munu sameiginlega þjóna nýjum hverfum í Voga- og Höfðabyggð. Þá munu félögin einnig þjóna Bryggju- hverfi þegar skóli verður risinn í hverfinu. Þessi nýju hverfi við El- liðaárvog og á Ártúnshöfða verða mjög fjölmenn þegar þau verða full- byggð, en þar er gert ráð fyrir allt að átta þúsund íbúðum. „Menningar-, íþrótta- og tóm- stundaráð gerði tillögur um þetta eftir samráð við fulltrúa íþrótta- félaganna Ármanns, Fjölnis, Fylkis, Víkings og Þróttar og voru tillög- urnar samþykktar í borgarráði í gær.“ Svo segir í tilkynningu á heimasíðu Reykjavíkurborgar 25. febrúar sl. Þessi ákvörðun borgarinnar er þvert á óskir íþróttafélaganna Fylk- is og Fjölnis en bréf félaganna voru tekin til umfjöllunar á fundi menn- ingar-, íþrótta- og tómstundaráðs hinn 14. febrúar s.l. Vildu dafna til framtíðar Í bréfi íþróttafélagsins Fylkis kemur fram að félagið þjónusti íbúa Ártúnsholts, Árbæjar, Seláss og Norðlingaholts. Það starfræki sjö deildir/íþróttagreinar með um 1.500 iðkendum frá þriggja ára aldri. Íbú- ar í hverfunum séu um 11.000 tals- ins og sé það mat stjórnar félagsins að sá fjöldi sé í það minnsta til að geta haldið úti félagi með jafn margar deildir og Fylkir er með. „Til þess að styrkja starfsemi fé- lagsins sækir það um að þjónusta nýtt Höfðahverfi. Vonandi verður það að veruleika og félagið yrði þá komið í mjög góða stærð til að vaxa og dafna til framtíðar,“ segir í bréfi Fylkis til borgarinnar. Í bréfi ungmennafélagsins Fjöln- is er óskað eftir fundi með borgar- yfirvöldum áður en ákvörðun verði tekin í málinu. Segir í bréfi Fjölnis að félagið sé með samning við Reykjavíkurborg um að þjónusta Grafarvog og nágrenni og sam- kvæmt aðalskipulagi sé Bryggju- hverfið og Höfðinn (Höfðahverfi) skilgreint þar. Hjá Fjölni eru stundaðar 11 íþróttagreinar og starfar félagið í fjölmennu hverfi, Grafarvogi. Fram kemur á heimasíðu félagsins að iðk- endur séu rúmlega 4.000 talsins. Við annan tón kveður í sameigin- legri yfirlýsingu Knattspyrnufélags- ins Þróttar og Glímufélagsins Ár- manns. Félögin fagna ákvörðun ÍTR um að félögin skipti með sér Vogabyggð í anda þeirra tillagna sem félögin gerðu um uppbyggingu íþróttastarfs í nýjustu hverfum Reykjavíkurborgar. Um leið skora félögin á borgina að kljúfa ekki Höfðabyggð frá Vogabyggð, eins og einhverjar hugmyndir hafi verið um. Ármann og Þróttur starfa bæði í Laugardalnum. Hjá Ármanni eru iðkaðar 10 íþróttagreinar. Hjá Þrótti eru stundaðar fjórar íþrótta- greinar. Vildi fresta ákvörðun Á fundinum 14. febrúar var lögð fram málsmeðferðartillaga Baldurs Borgþórssonar, fulltrúa Miðflokksins: „Lagt er til að ákvörðun um íþróttastarf í Höfða- byggð verði frestað um sinn. Þar sem fyrir liggur að íbúðabyggð í Höfðabyggð muni ekki taka á sig mynd næstu 10-15 árin hið minnsta að mati flestra, tel ég rétt að ákvörðun verði tekin síðar. Með þeim hætti er tryggt að besta niðurstaða náist.“ Breytingartillaga Baldurs var felld með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar, Mið- flokks og Vinstri grænna. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sat hjá. Fram kemur í tilkynningunni á heimasíðu Reykjavíkurborgar að gert sé ráð fyrir að gengið verði til samninga við Ármann og Þrótt um þjónustu, uppbyggingu og rekstur í hverfunum. Ekki er gert ráð fyrir að fjölga hverfafélögum heldur veiti Ármann og Þróttur heildstæða þjónustu í sameiningu á öllu starfs- svæðinu, sem byggist á því að þjón- usta félaganna eftir íþróttagreinum skarist hvergi. Fjögur íþróttafélög vildu þjóna nýjum hverfum - Ármann og Þróttur munu starfa í Voga- og Höfðabyggð Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stefnt er að því að taka nýja bryggju innst í Eskifirði í notkun fyrir lok ársins. Í ár verður kostn- aður við framkvæmdirnar rúmlega 400 milljónir króna og þegar upp verður staðið kostar nýja frysti- hússbryggjan hátt í milljarð, að sögn Jóns Björns Hákonar- sonar, bæjar- og hafnarstjóra í Fjarðabyggð. Bryggjan verður á staur- um, sem voru reknir niður í fyrra. Sú leið var valin þar sem botninn er veik- ur og með staur- unum næst æskileg þyngdardreif- ing. Fram undan í ár er meðal annars frágangur við holplötur og þybbur, að steypa þekju á bryggj- una, sem er 3.460 fermetrar, og síðan dýpkun svo nægilegt dýpi verði við viðlegukantinn eða tíu metrar. Hluti af fjárfestingum síð- asta árs, eins og við forsteyptar holplötur og þybbur, verður sýni- legur þegar líður á árið. Eskja og fleiri fyrirtæki Á uppfyllingu og eyrum innst í Eskifirði hefur Eskja hf. reist upp- sjávarfrystihús og frystigeymslu á síðustu árum og þar er einnig fiski- mjölsverksmiðja fyrirtækisins. Fleiri fyrirtæki eru með starfsemi á hafnarsvæðinu, t.d. Egersund og Skeljungur. Þörf var talin á bættu aðgengi að hafnarkanti og auknu athafnasvæði vegna uppbyggingar- innar. Nýi hafnarkanturinn verður 150 metra langur. Fjarðabyggðarhafnir fjármagna framkvæmdirnar á Eskifirði, en sá hafnarsjóður er annar stærsti á landinu á eftir Faxaflóahöfnum. Jón Björn segir að frá árinu 2006, þegar framkvæmdum lauk við Mjó- eyrarhöfn við álverið í Reyðarfirði, hafi framkvæmdir við hafnarmann- virki í Fjarðabyggð ekki notið framlaga frá ríkinu. Mikil umsvif eru í höfnum í Fjarðabyggð Á næstu árum eru skilgreind nokkur stór verkefni á vegum Fjarðabyggðahafna og gætu fjár- festingar til ársins 2025 numið hálfum öðrum milljarði. Þau snúa að endurbótum og framkvæmdum tengdum Eskifjarðarhöfn, Norð- fjarðarhöfn við fiskimjölsverk- smiðju og Mjóeyrarhöfn. Nokkrar af stærstu fiskihöfnum landsins eru í Fjarðabyggð. Af þeim fer mestur afli um höfnina í Norð- firði, en mikil umsvif eru einnig á Eskifirði og Fáskrúðsfirði ásamt vöruflutningarhöfn á Mjóeyri. Nýtt hafnarsvæði í notkun í ár - Heildarkostnaður við nýja frystihússbryggju á Eskifirði tæpur milljarður - Mikil uppbygging Ljósmyndir/Gungör Tamzok Bætt aðstaða Staurar í tugatali voru reknir niður á nýja hafnarsvæðinu í fyrra og á þekja bryggjunnar að hvíla á þeim. Framkvæmdum á að ljúka í ár. Jón Björn Hákonarson Eskifjörður Annir hafa verið í höfnum eystra í vetur enda stór loðnuvertíð í gangi. Nýja svæðið er efst til vinstri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.