Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 26

Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 26
FRÉTTASKÝRING Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Bankaráð Landsbankans mun koma saman í þessum mánuði og fjalla um ósk Stjórnarráðsins um að hefja formlegar viðræður um kaup á Norðurhúsi nýbyggingar bankans í Austurhöfn. Þetta segir Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi bank- ans. Halda má því fram að hér sér ríkissjóður að hefja samninga- viðræður við sjálfan sig, því hann á 98,2% í Landsbankanum. Eins og fram kom í frétt í Morg- unblaðinu 24. fabrúar sl. stefnir rík- ið að því að hefja formlegar samn- ingaviðræður við Landsbankann um kaup á Norðurhúsinu við Aust- urbakka, sem er í byggingu. Kann- að verði til hlítar hvort hægt sé að ná fram hagkvæmri niðurstöðu um kaup ríkisins á eigninni. Um sé að ræða nútímalegt og sveigjanlegt skrifstofuhúsnæði sem hægt sé að sérsníða að þörfum Stjórnarráðsins innan tiltölulega skamms tíma. Því sé um álitlegan kost að ræða. Um að ræða tvö hús af fjórum „Nýbygging Landsbankans er í raun fjögur sambyggð hús. Við höf- um frá upphafi stefnt á að selja eða leigja frá okkur um 40% af húsinu eða um 6.500 fermetra. Stærsti hluti þess húsnæðis sem við ætlum að selja eða leigja frá okkur er í tveimur húsum sem ganga undir heitinu Norðurhús og er rúmlega 6.000 fermetrar. Einnig hyggst bankinn leigja eða selja húsnæði sem tilheyrir öðrum hlutum bygg- ingarinnar,“ segir Rúnar Pálma- son. Norðurhús samanstendur af tveimur byggingarhlutum, annars vegar fjögurra hæða byggingu og hins vegar byggingu á einni hæð með þakgarði. Norðurhús mun fá húsnúmerið Reykjastræti 6. Bank- inn verður í Reykjastræti 8. Rúnar segir að bankinn hafi að undanförnu kynnt húsnæðið fyrir ýmsum mögulegum kaupendum og leigjendum, þ.m.t. fyrir Stjórnar- ráðinu, og margir sýnt því áhuga. Stefnt er að því að nýbygging Landsbankans, sem er alls 16.500 fermetrar, verði tilbúin til notkunar í lok árs 2022. Í tilkynningu á heimasíðu Stjórn- arráðsins í síðustu viku kemur fram að forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið hafi undan- farna mánuði unnið að greiningu á framtíðarskipan húsnæðismála Stjórnarráðsins. Nú liggi fyrir til- lögur um skipulag húsnæðismála til lengri og skemmri tíma. Til lengri tíma er gert ráð fyrir að starfsemi Stjórnarráðsins verði í stærri og sveigjanlegum einingum á og við Stjórnarráðsreit. Um er að ræða Stjórnarráðshúsið við Lækj- argötu auk viðbyggingar, Skúla- götu 4, Sölvhólsgötu 4, Sölvhóls- götu 7-9, Arnarhvol við Lindargötu og Norðurhús á Austurbakka. Auk þess sem gamla Hæstaréttarhúsið við Lindargötu verður nýtt undir sameiginlega aðstöðu. Hér er um að ræða stefnubreyt- ingu hjá Stjórnarráðinu, því áður var stefnt að nýbyggingum, alls tæplega 10 þúsund fermetrar að stærð, á svonefndum Stjórnarráðs- reit. Hann markast af Skúlagötu, Klapparstíg, Lindargötu og Ing- ólfsstræti. Alþingi samþykkti í október 2016 ályktun í tilefni ald- arafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands árið 2018 um að fela ríkis- stjórn að efna til samkeppni um skipulag Stjórnarráðsreits. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra til- kynnti úrslit og afhenti verðlaun fyrir bestu tillögurnar við athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu 3. des- ember 2018. Átta tillögur bárust í samkeppn- inni. 1. verðlaun hlaut tillaga T.ark arkitekta ehf. og SP(R)INT Studio. Verður hluti reitsins seldur? Morgunblaðið fékk upplýst hjá fjármálaráðuneytinu að skipulag á Stjórnarráðsreitnum væri enn til skoðunar. Ef samkomulag næst um kaup á Norðurhúsinu við Austur- bakkann verði ekki þörf á auknu byggingarmagni undir starfsemi Stjórnarráðsins nema aðrar bygg- ingar, sem verið er og til stendur að nýta áfram, verði aflagðar. Ráðast þurfi í nánara mat á þörf fyrir framtíðaruppbyggingu á reitnum, t.a.m. fyrir starfsemi dóm- stóla. Rætt hefur verið að byggja á reitnum hús fyrir Landsrétt og Héraðsdóm Reykjavíkur. Þeir verði því í næsta nágrenni við Hæstarétt Íslands. „Leiði sú grein- ing í ljós að ekki sé þörf á öllu því byggingarmagni sem reiturinn hef- ur upp á að bjóða kemur til greina að ráðast í sölu á hluta reitsins,“ segir í svari ráðuneytisins. Því bendir margt til að „þjóðar- gjöfin“ frá 2018 verði ekki að veru- leika. Framkvæmdasýslan – Ríkis- eignir tók í fyrra upp nýtt viðmið varðandi vinnuaðstöðu í nýbygg- ingum hins opinbera. Nú er gert ráð fyrir svonefndu verkefnamið- uðu vinnuumhverfi í stað ein- staklingsskrifstofa. Í verkefnamið- uðu vinnuumhverfi er gert ráð fyrir minni hópum, t.d. sex til átta manns sem vinna saman í einu rými. Auk vinnurýmisins hafi starfsmenn að- gang að næðisrýmum, fundar- herbergjum, teymisrýmum og símaklefum auk hefðbundinna rýma eins og kaffikróka og mötu- neytis. Þetta nýja viðmið tekur til nýbyggingar sem mun rísa á baklóð Stjórnarráðsins við Lækjargötu og væntanlega til Norðurhússins einn- ig, ef af kaupum verður. Morgunblaðið fékk þær upplýs- ingar hjá fjármálaráðuneytinu að ekki væri búið að taka endanlega ákvörðun um það hvernig ráðu- neytin munu raðast í byggingarnar í Austurhöfn ef kaupin ganga eftir. Stefnubreyting hjá Stjórnarráði - Bankaráð Landsbankans mun fjalla um ósk ríkisins um kaup á hluta nýbyggingar - Hætt við að byggja á Stjórnarráðsreitnum eins og stefnt var að - Skoðað verður að byggja yfir dómstólana Grunnkort/Loftmyndir ehf.Möguleg kaup stjórnarráðsins á húsnæði Landsbankans Suðurhús: Skrifstofur Landsbankans. Rými til sölu eða leigu á jarðhæð. Norðurhús: Húsnæði til sölu eða leigu. Göngugata Þakgarður Tjörn Tjörn Inn- gangur Reykjavík Edition Reykjastræti 6 Norðurhús nýbyggingar Landsbankans sem er til sölu er alls rúmlega 6.000 fermetrar. Norðurhúsið mun fá húsnúmerið Reykjastræti 6. Bankinn verður í Reykjastræti 8. Stjórnarráðið Alþingis- reiturinn Stjórnarráðsreitur Nýbyggingar Landsbankans Alþingi Hæstiréttur Safnahúsið Þjóðleik- húsið Norðurhús Suðurhús Læ kj ar ga ta Læ kj ar ga ta Harpa Arnarhóll Austur- völlur Seðlabankinn Arnarhvoll Landsréttur og Héraðsdómur Reykjavíkur? Kalkofnsvegur Geirsgata Austurstræti Hverfisgata 26 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is KRINGLUKAST & GLERÁRHLAUP 15-30% AF VÖLDUM VÖRUM Nú 5.593,- stk. 13.993,- 3 stk. Kertastjaki Antique 3.-7. mars Stelton x Moomin Vatnsflaska 75cl Cloud & Sand NÚ 4.193,- stk Specktrum Twisted glas 25 cl NÚ 1.743,- stk Kay Bojesen Midnight Blue söngfugl Nú 9.793 KARTELL Componibili BIO PINK Nú 20.930 20 2.-7. MARS AFSLÁTTUR AF % ÖLLUM SKÓM SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.