Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 26
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Bankaráð Landsbankans mun
koma saman í þessum mánuði og
fjalla um ósk Stjórnarráðsins um að
hefja formlegar viðræður um kaup
á Norðurhúsi nýbyggingar bankans
í Austurhöfn. Þetta segir Rúnar
Pálmason, upplýsingafulltrúi bank-
ans. Halda má því fram að hér sér
ríkissjóður að hefja samninga-
viðræður við sjálfan sig, því hann á
98,2% í Landsbankanum.
Eins og fram kom í frétt í Morg-
unblaðinu 24. fabrúar sl. stefnir rík-
ið að því að hefja formlegar samn-
ingaviðræður við Landsbankann
um kaup á Norðurhúsinu við Aust-
urbakka, sem er í byggingu. Kann-
að verði til hlítar hvort hægt sé að
ná fram hagkvæmri niðurstöðu um
kaup ríkisins á eigninni. Um sé að
ræða nútímalegt og sveigjanlegt
skrifstofuhúsnæði sem hægt sé að
sérsníða að þörfum Stjórnarráðsins
innan tiltölulega skamms tíma. Því
sé um álitlegan kost að ræða.
Um að ræða tvö hús af fjórum
„Nýbygging Landsbankans er í
raun fjögur sambyggð hús. Við höf-
um frá upphafi stefnt á að selja eða
leigja frá okkur um 40% af húsinu
eða um 6.500 fermetra. Stærsti
hluti þess húsnæðis sem við ætlum
að selja eða leigja frá okkur er í
tveimur húsum sem ganga undir
heitinu Norðurhús og er rúmlega
6.000 fermetrar. Einnig hyggst
bankinn leigja eða selja húsnæði
sem tilheyrir öðrum hlutum bygg-
ingarinnar,“ segir Rúnar Pálma-
son. Norðurhús samanstendur af
tveimur byggingarhlutum, annars
vegar fjögurra hæða byggingu og
hins vegar byggingu á einni hæð
með þakgarði. Norðurhús mun fá
húsnúmerið Reykjastræti 6. Bank-
inn verður í Reykjastræti 8.
Rúnar segir að bankinn hafi að
undanförnu kynnt húsnæðið fyrir
ýmsum mögulegum kaupendum og
leigjendum, þ.m.t. fyrir Stjórnar-
ráðinu, og margir sýnt því áhuga.
Stefnt er að því að nýbygging
Landsbankans, sem er alls 16.500
fermetrar, verði tilbúin til notkunar
í lok árs 2022.
Í tilkynningu á heimasíðu Stjórn-
arráðsins í síðustu viku kemur fram
að forsætisráðuneytið og fjármála-
og efnahagsráðuneytið hafi undan-
farna mánuði unnið að greiningu á
framtíðarskipan húsnæðismála
Stjórnarráðsins. Nú liggi fyrir til-
lögur um skipulag húsnæðismála til
lengri og skemmri tíma.
Til lengri tíma er gert ráð fyrir
að starfsemi Stjórnarráðsins verði í
stærri og sveigjanlegum einingum
á og við Stjórnarráðsreit. Um er að
ræða Stjórnarráðshúsið við Lækj-
argötu auk viðbyggingar, Skúla-
götu 4, Sölvhólsgötu 4, Sölvhóls-
götu 7-9, Arnarhvol við Lindargötu
og Norðurhús á Austurbakka. Auk
þess sem gamla Hæstaréttarhúsið
við Lindargötu verður nýtt undir
sameiginlega aðstöðu.
Hér er um að ræða stefnubreyt-
ingu hjá Stjórnarráðinu, því áður
var stefnt að nýbyggingum, alls
tæplega 10 þúsund fermetrar að
stærð, á svonefndum Stjórnarráðs-
reit. Hann markast af Skúlagötu,
Klapparstíg, Lindargötu og Ing-
ólfsstræti. Alþingi samþykkti í
október 2016 ályktun í tilefni ald-
arafmælis sjálfstæðis og fullveldis
Íslands árið 2018 um að fela ríkis-
stjórn að efna til samkeppni um
skipulag Stjórnarráðsreits. Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra til-
kynnti úrslit og afhenti verðlaun
fyrir bestu tillögurnar við athöfn í
Safnahúsinu við Hverfisgötu 3. des-
ember 2018.
Átta tillögur bárust í samkeppn-
inni. 1. verðlaun hlaut tillaga T.ark
arkitekta ehf. og SP(R)INT Studio.
Verður hluti reitsins seldur?
Morgunblaðið fékk upplýst hjá
fjármálaráðuneytinu að skipulag á
Stjórnarráðsreitnum væri enn til
skoðunar. Ef samkomulag næst um
kaup á Norðurhúsinu við Austur-
bakkann verði ekki þörf á auknu
byggingarmagni undir starfsemi
Stjórnarráðsins nema aðrar bygg-
ingar, sem verið er og til stendur að
nýta áfram, verði aflagðar.
Ráðast þurfi í nánara mat á þörf
fyrir framtíðaruppbyggingu á
reitnum, t.a.m. fyrir starfsemi dóm-
stóla. Rætt hefur verið að byggja á
reitnum hús fyrir Landsrétt og
Héraðsdóm Reykjavíkur. Þeir
verði því í næsta nágrenni við
Hæstarétt Íslands. „Leiði sú grein-
ing í ljós að ekki sé þörf á öllu því
byggingarmagni sem reiturinn hef-
ur upp á að bjóða kemur til greina
að ráðast í sölu á hluta reitsins,“
segir í svari ráðuneytisins.
Því bendir margt til að „þjóðar-
gjöfin“ frá 2018 verði ekki að veru-
leika.
Framkvæmdasýslan – Ríkis-
eignir tók í fyrra upp nýtt viðmið
varðandi vinnuaðstöðu í nýbygg-
ingum hins opinbera. Nú er gert
ráð fyrir svonefndu verkefnamið-
uðu vinnuumhverfi í stað ein-
staklingsskrifstofa. Í verkefnamið-
uðu vinnuumhverfi er gert ráð fyrir
minni hópum, t.d. sex til átta manns
sem vinna saman í einu rými. Auk
vinnurýmisins hafi starfsmenn að-
gang að næðisrýmum, fundar-
herbergjum, teymisrýmum og
símaklefum auk hefðbundinna
rýma eins og kaffikróka og mötu-
neytis. Þetta nýja viðmið tekur til
nýbyggingar sem mun rísa á baklóð
Stjórnarráðsins við Lækjargötu og
væntanlega til Norðurhússins einn-
ig, ef af kaupum verður.
Morgunblaðið fékk þær upplýs-
ingar hjá fjármálaráðuneytinu að
ekki væri búið að taka endanlega
ákvörðun um það hvernig ráðu-
neytin munu raðast í byggingarnar
í Austurhöfn ef kaupin ganga eftir.
Stefnubreyting hjá Stjórnarráði
- Bankaráð Landsbankans mun fjalla um ósk ríkisins um kaup á hluta nýbyggingar - Hætt við að
byggja á Stjórnarráðsreitnum eins og stefnt var að - Skoðað verður að byggja yfir dómstólana
Grunnkort/Loftmyndir ehf.Möguleg kaup stjórnarráðsins á húsnæði Landsbankans
Suðurhús:
Skrifstofur Landsbankans.
Rými til sölu eða leigu á jarðhæð.
Norðurhús:
Húsnæði til sölu eða leigu.
Göngugata
Þakgarður
Tjörn
Tjörn
Inn-
gangur
Reykjavík Edition
Reykjastræti 6
Norðurhús nýbyggingar Landsbankans sem er til
sölu er alls rúmlega 6.000 fermetrar.
Norðurhúsið mun fá húsnúmerið Reykjastræti 6.
Bankinn verður í Reykjastræti 8.
Stjórnarráðið
Alþingis-
reiturinn
Stjórnarráðsreitur
Nýbyggingar
Landsbankans
Alþingi
Hæstiréttur
Safnahúsið Þjóðleik-
húsið
Norðurhús
Suðurhús
Læ
kj
ar
ga
ta
Læ
kj
ar
ga
ta
Harpa
Arnarhóll
Austur-
völlur
Seðlabankinn
Arnarhvoll
Landsréttur
og Héraðsdómur
Reykjavíkur?
Kalkofnsvegur
Geirsgata
Austurstræti
Hverfisgata
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
KRINGLUKAST & GLERÁRHLAUP
15-30% AF VÖLDUM VÖRUM
Nú 5.593,- stk.
13.993,- 3 stk.
Kertastjaki
Antique
3.-7. mars
Stelton x Moomin
Vatnsflaska 75cl
Cloud & Sand
NÚ 4.193,- stk
Specktrum
Twisted glas 25 cl
NÚ 1.743,- stk
Kay Bojesen
Midnight Blue
söngfugl
Nú 9.793
KARTELL
Componibili
BIO PINK
Nú 20.930
20
2.-7. MARS
AFSLÁTTUR AF
%
ÖLLUM SKÓM
SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS