Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 42
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
Hafnarfjörður er
gamall bær með lifandi
og skemmtilegan bæj-
arbrag sem end-
urspeglar það góða
fólk sem bæinn byggir.
Hafnarfjörður er
þekktur fyrir öflugt
menningarlíf og er það
ekki síst íbúum bæj-
arins að þakka.
Menning og viðburðir
í Hafnarfirði
Sem formaður menningar- og
ferðamálanefndar undanfarin fjögur
ár hef ég lagt áherslu á það að efla
menningu bæjarins, hvetja listamenn
til að finna nýjar leiðir til að fram-
kvæma viðburði á tímum Covid og
efla hvers kyns afþreyingu í bænum.
Hafnfirðingar eru margir heimakær-
ir og því duglegir að sækja viðburði í
bænum sem og veitingastaði. Á síð-
asta kjörtímabili reyndum við að
leggja aðaláherslu á upplifun í Hafn-
arfirði og að í bænum væri fjölbreytt
úrval af viðburðum og lifandi menn-
ingu sem rúmaðist innan fjöldatak-
markana sem voru í gildi á hverjum
tíma.
Það eru forréttindi að eiga
skemmtilegan miðbæ og útivistar-
perlur í sínum heimabæ. Einnig er
mikilvægt að geta tekið á móti mörg-
um innlendum ferðamönnum sem
sækja viðburði, bæjarhátíðir, veit-
ingastaði, sundlaugar og verslanir.
Þessi smábæjarbragur á Hafnarfirði
er mikill auður okkar bæjarbúa. Það
eru næg gjaldfrjáls bílastæði í mið-
bænum og gestir geta því áhyggju-
lausir staldrað við og notið þess sem
bærinn hefur að bjóða. Það er góð og
gamaldags orka í miðbænum og
endalaus tækifæri til uppbyggingar.
Það er í okkar höndum að grípa tæki-
færin og standa um leið vörð um
miðbæinn.
Jólin 2020 þegar var tíu manna
samkomubann greip menningar- og
ferðamálnefnd bæjarins tækifærið
og lét lýsa upp Hellisgerði og við
breyttum lystigarðinum
okkar í jólaævintýri.
Þetta vakti mikla athygli
og fjölmargir nutu þess,
bæði Hafnfirðingar og
gestir þeirra gátu geng-
ið um fallega skreytta
garðinn í sinni jólakúlu.
Sú skreyting er ein af já-
kvæðum afleiðingum
Covid en sýnir um leið
hvað bærinn hefur mikla
möguleika. Jólin 2021
var síðan fjárfest í
skautasvelli sem opið var samhliða
jólaþorpinu og jólaævintýrinu í
Hellisgerði.
Stuðningur bæjarins
við menningu
Við höfum séð á síðustu átta árum
hvað það skiptir miklu máli að meiri-
hlutinn í bæjarstjórn styðji við sköp-
un og menningu í bænum – gott
dæmi eru samningar bæjarins við
Bæjarbíó og Gaflaraleikhúsið. Það
var mér sannur heiður að fá að vera
viðstödd frumsýningu í Gaflaraleik-
húsinu laugardaginn 26. mars á leik-
ritinu Langelstur að eilífu. Þrír bæj-
arlistamenn Hafnarfjarðar tóku þátt
í sýningunni sem höfundur, leikari
og leikstjóri. Þar af tveir sem fengu
nafnbótina á þessu kjörtímabili.
Á síðustu árum höfum við hækkað
fjármagn til menningarmála og ég
er stolt af því að sjá hversu vel það
hefur skilað sér í skemmtilegum
bæjarbrag.
Ég trúi á Hafnarfjörð og að við
getum gert enn þá betur.
Eftir Guðbjörgu
Oddnýju
Jónasdóttur
Guðbjörg Oddný
Jónasdóttir » Við höfum séð á síð-
ustu árum hvað það
skiptir miklu máli að
meirihlutinn í bæjar-
stjórn styðji við sköpun
og menningu í bænum.
Höfundur er formaður menningar- og
ferðamálanefndar og varabæjarfulltrúi
sem sækist eftir 3. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
gudbjorgjo@hafnarfjordur.is
Líf og fjör
í firðinum
Það er í lok maí
1994. Ég er í strætó,
17 ára gamall, á leið í
heimsókn til félags-
málamanns í skák-
hreyfingunni. Hann
er langt til vinstri í
stjórnmálum og við
höfum gaman af því
að karpa um pólitík.
Meðan á strætóferð-
inni stendur koma
fyrstu tölur úr borgarstjórn-
arkosningunum. Strætóbílstjórinn
er kampakátur en ég sorgmæddur.
Vinstri menn hafa unnið borgina í
annað skiptið í sögunni. Síðan þá
hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn lítið komið að
stjórn borgarinnar fyrir
utan kjörtímabilið 2006–
2010. Breytist það í vor?
Skilaboð um
breytingar
og baráttugleði
Þótt innsýn mín í inn-
anflokkspólitík sé sjálf-
sagt takmörkuð má aug-
ljóst vera að flokkur
sem í tíu borgarstjórn-
arkosningum á árunum
1982–2018 náði að meðaltali 43,11%
fylgi, getur ekki sætt sig við að
meðaltalsfylgið hafi rétt svo náð
30% í undanförnum þrennum kosn-
ingum (2010–2018). Þessa fylgi-
sbreytingu má skýra með marg-
víslegum hætti en samt eiga
stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins
að stefna hærra.
Ef marka má Reykjavíkurþing
Varðar, sem fram fór sl. helgi í Val-
höll, stendur málefnastarf innan
Sjálfstæðisflokksins vel að vígi.
Hins vegar þarf ásýnd flokksins út
á við einnig að vera traust. Til dæm-
is á almennur kjósandi í Reykjavík
að geta treyst því að flokknum sé
umhugað um þá sem minnst bera úr
býtum í samfélaginu.
Skilaboð til kjósenda verða að
vera skýr, breytinga er þörf við
stjórn borgarmálanna og hægt er
að treysta Sjálfstæðisflokknum til
að gæta almannahagsmuna, þar
með talið að starfrækja öflugt vel-
ferðakerfi á grunni ábyrgrar fjár-
málastjórnar. Kominn er tími til að
sinna grunnþjónustu Reykjavík-
urborgar vel, svo sem snjómokstri,
og draga úr þeirri orku stjórnenda
og starfsmanna Reykjavík-
urborgar sem fer í að sinna verk-
efnum sem sveitarfélagi er óskylt
að sinna.
Hver svo sem úrslit prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
verða 18.-19. mars nk. þá þarf allar
hendur upp á dekk og með bar-
áttugleði að vopni getur vorið 2022
orðið tími breytinga í borgarmál-
unum.
Eftir Helga Áss
Grétarsson
Helgi Áss Grétarsson
» Skilaboð til kjósenda
verða að vera skýr,
breytinga er þörf við
stjórn Reykjavíkur og
Sjálfstæðisflokknum er
treystandi til að gæta
almannahagsmuna.
Höfundur óskar eftir stuðningi í 5.
sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
helgigretarsson@gmail.com
Mun Sjálfstæðisflokkurinn
rétta úr kútnum í Reykjavík?
www.gilbert.is
KLASSÍSKT OG STÍLHREINT
GILBERT ADVENTURER Vefverslun:www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
S. 555 3100 · donna.is
Honeywell
gæða lofthreinsitæki
Verð kr.
39.420
Hreinna loft
- betri heilsa
Þjóðin er að eldast.
Fólk lifir lengur og
mannkynið í heild
verður sífellt eldra.
Það gildir í nær öllum
löndum, efnamiklum
sem efnalitlum – borg-
um og bæjum, stórum
sem smáum. Lýð-
fræðin gefur til kynna
að fram undan sé for-
dæmalaust tímabil
fjölgunar eldri borgara. Íbúar
Reykjavíkur eru þar engin und-
antekning.
Öldrun þjóðar á sér ýmsar birt-
ingarmyndir og kallar á margvíslegt
viðbragð. Til að mynda eykst þörfin
fyrir ólík búsetu- og þjónustuúrræði
ár frá ári. Jafnframt birtast aðrar
kröfur meðal þeirra sem nú eldast,
en ríktu meðal kynslóðanna sem á
undan komu. Hækkandi lífaldri
fylgir bætt heilsa um lengri aldur og
auknar kröfur um spennandi lífsstíl,
afþreyingu, félagsstarf og tóm-
stundir. Fólk vill geta spilað golf,
farið í skíðaferðir,
byggt upp sumarhús
og ferðast um heiminn.
Kynslóð eftirstríðs-
áranna hefur að miklu
leyti skapað þau lífs-
gæði sem við búum við
í dag – þeirri kynslóð
þurfum við sem yngri
erum að mæta með
nýrri hugsun og ný-
sköpun í öldrunar-
úrræðum.
Vitanlega á höf-
uðborgin að taka for-
ystu í málaflokknum – við eigum að
stefna að því að verða aldursvæn-
asta borg heims. Í þeim efnum duga
engin vettlingatök því ef fram fer
sem horfir mun ríkja verulegur hús-
næðis- og þjónustuskortur fyrir
eldra fólk áður en langt um líður.
Borgin þarf að tryggja nægt lóða-
framboð fyrir einkaframtak að hefja
umfangsmikla uppbyggingu fjöl-
breyttra búsetukosta fyrir eldri kyn-
slóðir – þar sem miðlæg þjónusta og
afþreying er fyrir hendi. Barir, kaffi-
hús, veitingahús og líkamsrækt í
göngufjarlægð – bókasöfn, almenn-
ingsrými og blómlegir garðar.
Öruggar gönguleiðir og aðgengi að
útivist. Möguleikarnir eru marg-
víslegir.
Eldri kynslóðir þessa tíma og
seinni tíma eru engin afgangsstærð.
Vel menntaðar, víðförlar og tækni-
læsar munu þessar kynslóðir þekkja
sín réttindi og hafa sterka skoðun á
æskilegum lífsgæðum efri áranna.
Reykjavíkurborg þarf að koma til
móts við óskir og væntingar þessa
hóps – fyrst með því að hlusta á
þeirra þarfir og svo með því að fram-
kvæma.
Aldursvænasta borg heims!
Eftir Hildi
Björnsdóttur » Vitanlega á höfuð-
borgin að taka for-
ystu í málaflokknum –
við eigum að stefna að
því að verða aldursvæn-
asta borg heims.
Hildur Björnsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks.
hildurb@reykjavik.is