Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 42

Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 42
42 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Hafnarfjörður er gamall bær með lifandi og skemmtilegan bæj- arbrag sem end- urspeglar það góða fólk sem bæinn byggir. Hafnarfjörður er þekktur fyrir öflugt menningarlíf og er það ekki síst íbúum bæj- arins að þakka. Menning og viðburðir í Hafnarfirði Sem formaður menningar- og ferðamálanefndar undanfarin fjögur ár hef ég lagt áherslu á það að efla menningu bæjarins, hvetja listamenn til að finna nýjar leiðir til að fram- kvæma viðburði á tímum Covid og efla hvers kyns afþreyingu í bænum. Hafnfirðingar eru margir heimakær- ir og því duglegir að sækja viðburði í bænum sem og veitingastaði. Á síð- asta kjörtímabili reyndum við að leggja aðaláherslu á upplifun í Hafn- arfirði og að í bænum væri fjölbreytt úrval af viðburðum og lifandi menn- ingu sem rúmaðist innan fjöldatak- markana sem voru í gildi á hverjum tíma. Það eru forréttindi að eiga skemmtilegan miðbæ og útivistar- perlur í sínum heimabæ. Einnig er mikilvægt að geta tekið á móti mörg- um innlendum ferðamönnum sem sækja viðburði, bæjarhátíðir, veit- ingastaði, sundlaugar og verslanir. Þessi smábæjarbragur á Hafnarfirði er mikill auður okkar bæjarbúa. Það eru næg gjaldfrjáls bílastæði í mið- bænum og gestir geta því áhyggju- lausir staldrað við og notið þess sem bærinn hefur að bjóða. Það er góð og gamaldags orka í miðbænum og endalaus tækifæri til uppbyggingar. Það er í okkar höndum að grípa tæki- færin og standa um leið vörð um miðbæinn. Jólin 2020 þegar var tíu manna samkomubann greip menningar- og ferðamálnefnd bæjarins tækifærið og lét lýsa upp Hellisgerði og við breyttum lystigarðinum okkar í jólaævintýri. Þetta vakti mikla athygli og fjölmargir nutu þess, bæði Hafnfirðingar og gestir þeirra gátu geng- ið um fallega skreytta garðinn í sinni jólakúlu. Sú skreyting er ein af já- kvæðum afleiðingum Covid en sýnir um leið hvað bærinn hefur mikla möguleika. Jólin 2021 var síðan fjárfest í skautasvelli sem opið var samhliða jólaþorpinu og jólaævintýrinu í Hellisgerði. Stuðningur bæjarins við menningu Við höfum séð á síðustu átta árum hvað það skiptir miklu máli að meiri- hlutinn í bæjarstjórn styðji við sköp- un og menningu í bænum – gott dæmi eru samningar bæjarins við Bæjarbíó og Gaflaraleikhúsið. Það var mér sannur heiður að fá að vera viðstödd frumsýningu í Gaflaraleik- húsinu laugardaginn 26. mars á leik- ritinu Langelstur að eilífu. Þrír bæj- arlistamenn Hafnarfjarðar tóku þátt í sýningunni sem höfundur, leikari og leikstjóri. Þar af tveir sem fengu nafnbótina á þessu kjörtímabili. Á síðustu árum höfum við hækkað fjármagn til menningarmála og ég er stolt af því að sjá hversu vel það hefur skilað sér í skemmtilegum bæjarbrag. Ég trúi á Hafnarfjörð og að við getum gert enn þá betur. Eftir Guðbjörgu Oddnýju Jónasdóttur Guðbjörg Oddný Jónasdóttir » Við höfum séð á síð- ustu árum hvað það skiptir miklu máli að meirihlutinn í bæjar- stjórn styðji við sköpun og menningu í bænum. Höfundur er formaður menningar- og ferðamálanefndar og varabæjarfulltrúi sem sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. gudbjorgjo@hafnarfjordur.is Líf og fjör í firðinum Það er í lok maí 1994. Ég er í strætó, 17 ára gamall, á leið í heimsókn til félags- málamanns í skák- hreyfingunni. Hann er langt til vinstri í stjórnmálum og við höfum gaman af því að karpa um pólitík. Meðan á strætóferð- inni stendur koma fyrstu tölur úr borgarstjórn- arkosningunum. Strætóbílstjórinn er kampakátur en ég sorgmæddur. Vinstri menn hafa unnið borgina í annað skiptið í sögunni. Síðan þá hefur Sjálfstæðisflokk- urinn lítið komið að stjórn borgarinnar fyrir utan kjörtímabilið 2006– 2010. Breytist það í vor? Skilaboð um breytingar og baráttugleði Þótt innsýn mín í inn- anflokkspólitík sé sjálf- sagt takmörkuð má aug- ljóst vera að flokkur sem í tíu borgarstjórn- arkosningum á árunum 1982–2018 náði að meðaltali 43,11% fylgi, getur ekki sætt sig við að meðaltalsfylgið hafi rétt svo náð 30% í undanförnum þrennum kosn- ingum (2010–2018). Þessa fylgi- sbreytingu má skýra með marg- víslegum hætti en samt eiga stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins að stefna hærra. Ef marka má Reykjavíkurþing Varðar, sem fram fór sl. helgi í Val- höll, stendur málefnastarf innan Sjálfstæðisflokksins vel að vígi. Hins vegar þarf ásýnd flokksins út á við einnig að vera traust. Til dæm- is á almennur kjósandi í Reykjavík að geta treyst því að flokknum sé umhugað um þá sem minnst bera úr býtum í samfélaginu. Skilaboð til kjósenda verða að vera skýr, breytinga er þörf við stjórn borgarmálanna og hægt er að treysta Sjálfstæðisflokknum til að gæta almannahagsmuna, þar með talið að starfrækja öflugt vel- ferðakerfi á grunni ábyrgrar fjár- málastjórnar. Kominn er tími til að sinna grunnþjónustu Reykjavík- urborgar vel, svo sem snjómokstri, og draga úr þeirri orku stjórnenda og starfsmanna Reykjavík- urborgar sem fer í að sinna verk- efnum sem sveitarfélagi er óskylt að sinna. Hver svo sem úrslit prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verða 18.-19. mars nk. þá þarf allar hendur upp á dekk og með bar- áttugleði að vopni getur vorið 2022 orðið tími breytinga í borgarmál- unum. Eftir Helga Áss Grétarsson Helgi Áss Grétarsson » Skilaboð til kjósenda verða að vera skýr, breytinga er þörf við stjórn Reykjavíkur og Sjálfstæðisflokknum er treystandi til að gæta almannahagsmuna. Höfundur óskar eftir stuðningi í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. helgigretarsson@gmail.com Mun Sjálfstæðisflokkurinn rétta úr kútnum í Reykjavík? www.gilbert.is KLASSÍSKT OG STÍLHREINT GILBERT ADVENTURER Vefverslun:www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf S. 555 3100 · donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Verð kr. 39.420 Hreinna loft - betri heilsa Þjóðin er að eldast. Fólk lifir lengur og mannkynið í heild verður sífellt eldra. Það gildir í nær öllum löndum, efnamiklum sem efnalitlum – borg- um og bæjum, stórum sem smáum. Lýð- fræðin gefur til kynna að fram undan sé for- dæmalaust tímabil fjölgunar eldri borgara. Íbúar Reykjavíkur eru þar engin und- antekning. Öldrun þjóðar á sér ýmsar birt- ingarmyndir og kallar á margvíslegt viðbragð. Til að mynda eykst þörfin fyrir ólík búsetu- og þjónustuúrræði ár frá ári. Jafnframt birtast aðrar kröfur meðal þeirra sem nú eldast, en ríktu meðal kynslóðanna sem á undan komu. Hækkandi lífaldri fylgir bætt heilsa um lengri aldur og auknar kröfur um spennandi lífsstíl, afþreyingu, félagsstarf og tóm- stundir. Fólk vill geta spilað golf, farið í skíðaferðir, byggt upp sumarhús og ferðast um heiminn. Kynslóð eftirstríðs- áranna hefur að miklu leyti skapað þau lífs- gæði sem við búum við í dag – þeirri kynslóð þurfum við sem yngri erum að mæta með nýrri hugsun og ný- sköpun í öldrunar- úrræðum. Vitanlega á höf- uðborgin að taka for- ystu í málaflokknum – við eigum að stefna að því að verða aldursvæn- asta borg heims. Í þeim efnum duga engin vettlingatök því ef fram fer sem horfir mun ríkja verulegur hús- næðis- og þjónustuskortur fyrir eldra fólk áður en langt um líður. Borgin þarf að tryggja nægt lóða- framboð fyrir einkaframtak að hefja umfangsmikla uppbyggingu fjöl- breyttra búsetukosta fyrir eldri kyn- slóðir – þar sem miðlæg þjónusta og afþreying er fyrir hendi. Barir, kaffi- hús, veitingahús og líkamsrækt í göngufjarlægð – bókasöfn, almenn- ingsrými og blómlegir garðar. Öruggar gönguleiðir og aðgengi að útivist. Möguleikarnir eru marg- víslegir. Eldri kynslóðir þessa tíma og seinni tíma eru engin afgangsstærð. Vel menntaðar, víðförlar og tækni- læsar munu þessar kynslóðir þekkja sín réttindi og hafa sterka skoðun á æskilegum lífsgæðum efri áranna. Reykjavíkurborg þarf að koma til móts við óskir og væntingar þessa hóps – fyrst með því að hlusta á þeirra þarfir og svo með því að fram- kvæma. Aldursvænasta borg heims! Eftir Hildi Björnsdóttur » Vitanlega á höfuð- borgin að taka for- ystu í málaflokknum – við eigum að stefna að því að verða aldursvæn- asta borg heims. Hildur Björnsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. hildurb@reykjavik.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.