Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 46

Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 46
46 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Stjórn Samkaupa hf. boðar hér með til aðalfundar í félaginu fyrir rekstrarárið 2021. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 9. mars 2022 kl. 14.00 á skrifstofu félagsins að Krossmóa 4a, 260 Reykjanesbæ. Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr. samþykkta félagsins. Þá verður lögð fyrir fundinn tillaga um að félagið megi eignast og eiga allt að 10% hlutafjár í félag- inu í þrjú ár. Stjórn Samkaupa hf. Aðalfundur í Samkaupum hf. Þessi orð eru yfir- skrift menntastefnu Reykjavíkurborgar sem samþykkt var á kjörtímabilinu. Þrátt fyrir þessi flottu orð getum við gert betur þegar kemur að mál- efnum barna og fjöl- skyldna þeirra í Reykjavík. Það er ekk- ert mikilvægara en að hlúa vel að börnum og fjölskyldum þeirra því lengi býr að fyrstu gerð. Áföll sem við verðum fyrir í æsku, jafnvel þau sem við verðum fyrir sem hvítvoðungar, fylgja einstaklingum oft alla tíð. Aldrei má spara þegar kemur að málaflokki barna, við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að sinna börnum og for- eldrum þeirra sem best. Hvernig getur Reykjavíkurborg gert betur? Hlúum að geðheilbrigði og styttum biðlista Reykjavíkurborg verður að hlúa betur að geðheilbrigði barnanna okkar án þess þó að sjúkdómsvæða þeirra tilfinningar. Stytta verður biðlista hjá sérfræðingum í skóla- þjónustu en þar eru mörg hundruð börn á bið, hver mánuður sem barn er á biðlista eftir þjónustu getur valdið skaða sem fylgir barninu alla ævi. And- leg líðan unglinga var ekki góð fyrir komu kórónuveirunnar og því miður hefur orðið gríð- arleg röskun á þeirra lífi. Það er eflaust ekki auðvelt að vera ung manneskja og alast upp á tímum kórónuveir- unnar þar sem öll félagsleg sam- skipti eru allt önnur en við eigum að venjast. Unglingarnir hafa sjálfir verið duglegir að kalla eftir breyt- ingum og aukinni fræðslu um geð- heilbrigði. Því miður hefur ekki ver- ið orðið við þeim óskum. Við verðum að hlúa betur að unga fólkinu okkar, við getum t.d. kennt geðrækt í skól- um. Það þarf ekki síður að huga að því að bæta geðheilbrigði þeirra sem starfa í skólum. Starfsfólk leik- og grunnskóla hefur unnið undir miklu álagi síðustu tvö ár. Það hefur unnið þrekvirki með því að halda skóla- kerfinu gangandi. Innan úr skóla- kerfinu heyri ég að áhyggjur eru uppi af að langtímaveikindi muni aukast verulega ef ekki verði hugað betur að heilsu starfsmanna. Læsi Samkvæmt PISA-könnunum er hlutfall barna sem ekki geta lesið sér til gagns alltaf að hækka. Þar eru drengir í meirihluta, yfir 34% drengja geta ekki lesið sér til gagns við útskrift úr grunnskóla. Á þessu verðum við að taka og byrja að greina strax hvað veldur og bregð- ast við. Brottfall drengja úr námi er alltaf að aukast og slæm staða drengja er orðið stórt vandamál í öllu menntakerfinu þar sem karl- menn eru um 32% nýnema í háskól- um. Það er í raun ótrúlegt hvað þessar staðreyndir fá litla athygli bæði hjá ríki og sveitarfélögum. Þar verður að gera breytingu á, greina hvað veldur og ráðast strax í aðgerð- ir, samfélaginu öllu til heilla. Leikskólar Þegar síðustu tölur voru kynntar voru 706 börn 12 mánaða og eldri á biðlista eftir plássi í leikskólum Reykjavíkur. Meðalaldur barna við innritun á leikskóla Reykjavíkur er 29 mánaða. Úr þessu verður að bæta, það er sárt að sjá á eftir barnafjölskyldum flytja í önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu einfaldlega af því að þar er betri þjónusta við þær. Reykjavík sem höfuðborg getur gert betur, leik- skólinn er fyrsta skólastigið og mik- ilvægt er að við eflum það. Gerum störf á leikskólum eftirsóknarverð- ari t.d með því að bæta kjör þeirra sem þar starfa og höfum samráð við félag leikskólakennara og ríkið um hvernig má gera betur þegar kemur að mönnunarvandanum. Dagforeldrar Dagforeldrum hefur fækkað jafnt og þétt á síðustu árum og það er ekki vegna þess að eftirspurn eftir þeirra þjónustu sé ekki til staðar. Við verðum að passa að hlúa betur að stétt dagforeldra og jafna greiðsluþátttöku foreldra sem greiða fyrir vist hjá dagforeldrum við greiðslu barns á sama aldri á leikskóla. Viðhald til skammar Börn hafa verið að veikjast á kjör- tímabilinu vegna þess að viðhald hefur skort í fjölda ára. Málefni Fossvogsskóla hafa verið mikið í umræðunni, í því máli var talað um móðursýki. Það er óásættanlegt að trassaskapur verði til þess að börn og starfsfólk veikist vegna óheil- næms húsnæðis. Fjöldi barna dvelur nú ekki í sínum skólum og á það bæði við leik- eða grunnskóla vegna þess að búið er að loka skólunum eða hluta af þeim út af óheilsusamlegum aðstæðum. Þessi börn eru nú keyrð á milli hverfishluta eða borgarhluta. Vitanlega veldur það miklum óþæg- indum fyrir þau, fyrir starfsfólkið sem er að vinna í aðstæðum sem eru flóknar og fyrir foreldra þeirra. Aðgerða og sinnuleysi hefur ríkt þegar kemur að aðbúnaði í leik- og grunnskólum, strax í upphafi kjör- tímabils var ljóst að bregðast varð við en það var ekki gert. Þegar ég ræddi málefni Fossvogsskóla í upphafi kjör- tímabilsins var ekkert hlustað og þrátt fyrir ítrekað ákall á samráð við foreldra var ekki brugðist við fyrr en fjöldi veikra barna og starfsmanna var orðinn mikill. Það er ekki hægt að skreyta sig í lok kjörtímabilsins með áætlunum um það að setja pen- inga í viðhald á skólahúsnæði á næsta kjörtímabili líkt og nú hefur verið gert, það er ekki trúverðugt frá þess- um meirihluta. Grunnþjónustan okk- ar á alltaf að ganga fyrir, ekki bara rétt fyrir kosningar. Á þessum málum þurfum við að taka til að gera skólakerfið okkar betra og efla það, þannig látum við drauma fleiri barna í Reykjavík ræt- ast. Eftir Valgerði Sigurðardóttur » Aldrei má spara þegar kemur að málaflokki barna, við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að sinna börnum og foreldrum þeirra sem best. Valgerður Sigurðardóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. valgerdur.sigurdardottir@reykjavik.is Látum draumana rætast Vladimir Pútín hef- ur skipað rússneska hernum að ráðast inn í Úkraínu. Það kom ekki á óvart, þvert á móti, innrásin var mjög fyrirsjáanleg. Hann hefur sýnt í Sýr- landi, Krím, austur- héruðum Úkraínu, Hvíta-Rússlandi, Georgíu og Kasakstan hvert hann stefnir. Ekki leynt heldur ljóst. Árásarstríð rússneska hersins að undirlagi Pút- íns er svívirðilegt. Ég skora á ríkis- stjórn Íslands að slíta nú þegar stjórnmálasambandi við Rússland, vísa sendiráðsstarfsmönnum Rúss- lands strax úr landi og banna öll við- skipti við Rússland meðan Vladimir Pútín er við völd. Nú dugar engin linkind. Aðferðafræði Pútíns í aðdraganda innrásarinnar í Úkra- ínu er upp á hár sú sama og þegar nasistar réðust inn í Pólland árið 1939. Ef Pútín verður ekki stöðvaður munu landvinningar hans og brjálsemi halda áfram, alveg eins og hjá Adolf Hitler. Við þekkjum flest hvernig sú hryllingssaga endaði. Votta Úkraínubúum samúð mína og virðingu sem og almenningi í Rússlandi. Eftir Ingólf Bruun Ingólfur Bruun »Ég skora á ríkisstjórn Íslands að slíta nú þegar stjórnmála- sambandi við Rússland Höfundur er leiðsögumaður. i@05.is Slítum stjórn- málasambandi við Rússland strax Heyrnarhjálp er landssamtök þeirra sem eru heyrnarskertir, hafa misst heyrn að hluta eða alveg, þeirra er þjást af eyrnasuði og öðrum vandamálum er snúa að heyrn. Að félag- inu koma líka aðstand- endur og aðrir áhuga- menn um málefni heyrnarskertra. Félag- ið berst fyrir réttindum heyrn- arskertra og helsta baráttumál fé- lagsins síðustu ár hefur verið textun en heyrnarskertir eiga erfitt með að njóta t.d. íslensks sjónvarpsefnis ef texti fylgir ekki. Því er mikið jafn- réttismál að tugþúsundum heyrn- arskertra sé tryggður aðgangur að öllu menningar- og fréttaefni sem sjónvarpsstöðvar hafa upp á að bjóða. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO fagnar Degi heyrnar 3. mars á ári hverju sem vekur athygli á mik- ilvægi heyrnar sem skynfæris og undirstöðu tjáskipta. WHO lagði á síðasta ári fram skýrslu, World Hearing Report, sem beinir því til aðild- arríkjanna að vinna að aukinni heyrnarheilsu- gæslu fyrir þegna sína. Heilbrigðisyfirvöld hunsa heyrnarfötlun Því er sárt að sjá að ís- lensk stjórnvöld hunsa eina algengustu fötlun hér á landi. Heyrnarskerðing hefur áhrif á líf og lífsgæði um 20 þúsund Íslendinga, sem þurfa á heyrnarbæt- andi aðgerðum að halda og aðgengi að þjónustu heyrnarfræðinga, lækna og þjónustu heyrnartækjaframleið- enda. Nú er svo komið að varla er hægt að komast að hjá einu ríkisstofnun- inni sem ber að sinna heyrnarskertu fólki á Íslandi. Biðlistar hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands eru svo lang- ir að félagsmenn Heyrnarhjálpar kvarta undan því að það hafi þurft að bíða í tæpt ár eftir að komast í heyrn- armælingar og endurnýjanir heyrn- artækja hjá stofnuninni! Stofnunin kveðst vera undir miklu álagi, ásókn í þjónustu eykst ár frá ári en hvorki fáist fjármagn til rekst- urs né heimild til að ráða inn fleira sérmenntað fólk. Heyrnarhjálp krefst þess að ís- lensk heilbrigðisyfirvöld geri nú alvöruátak til þess að tryggja heyrnarskertum Íslendingum nútímaheyrnarþjónustu í takt við aðrar Evrópuþjóðir. Eftir Höllu B. Þorkelsson »Heyrnarhjálp krefst þess að íslensk heil- brigðisyfirvöld geri nú alvöruátak til þess að tryggja heyrnarskert- um Íslendingum nú- tímaheyrnarþjónustu Halla B. Þorkelsson Höfundur er formaður Heyrnarhjálpar félags heyrnarskertra á Íslandi. thorkelsson13@gmail.com Mikilvægi öruggrar hlustunar og heyrnarverndar Manstu hver þú varst áður en heimurinn sagði þér hver þú vær- ir? Áður en bíómynd- irnar lögðu drög að draumum þínum og samfélagsmiðlar komu á tilfinningalegu kvóta- kerfi í hausnum á þér til að úthluta athygli þinni til erlendra stórfyr- irtækja? Manstu hver þú varst áður en undir- meðvitund þín varð að bandarískri nýlendu? Manstu hvernig heimurinn leit út áður en þú skiptir glugganum út fyrir skjá? Manstu hvað þér þótti verðugt áður en læktakkinn varð viður- kenningarmælikvarði? Manstu hver gildin þín voru áður en pólitískur rétttrúnaður varð að siðferðilegu ör- yggisneti? Manstu hvað þú gerðir þegar þú hafðir ekkert að gera? Áður en tækið í vasanum breytti frítíma þínum í skjátíma; þegar þú neyddist til að upplifa eigin tilveru? Manstu hvert þú beindir athygl- inni áður en hún var uppskorin, framseld og gerð að einni verðmæt- ustu auðlind samtím- ans? Manstu eftir kynork- unni sem dreif þig út á lífið áður en mynd- böndin á netinu deyfðu hana niður? Manstu eft- ir heiminum áður en fréttirnar sögðu þér að hræðast hann? Manstu eftir líkamanum áður en kyrrsetan breytti honum í búr? Manstu eftir orðunum áður en staf- rænar táknmyndir á borð við bros- kalla og hjörtu komu í stað setninga, hugmynda og hugrenninga? Manstu hvernig samræður víkkuðu í okkur mannskilninginn áður en myndir og hlekkir komu í stað raunverulegra tjáskipta? Manstu hver þú ert eða hver þú varst eða hver þig langar að vera? Því um leið og maður hættir að svara þessari spurningu er einhver annar tilbúinn að svara fyrir mann. Það er alltaf einhver auglýsing, eitthvert trend, frétt, þáttur eða hlaðvarp tilbúið að segja manni hvað maður á að vera að hugsa um, og þess vegna er ein helsta áskorun nútímamanns- ins að beita athyglinni inn á við. Sjálfsstjórn birtist í mörgum myndum. Að hafa stjórn á eigin skapi ber vott um þroska. Að hafa stjórn á eigin líkama ber vott um heilsu. Að hafa stjórn á eigin neyslu ber vott um andlegt jafnvægi. Að hafa stjórn á eigin tíma ber vott um farsæld. En sá sem hefur stjórn á eigin athygli – hann er raunverulega frjáls. Áminning um auðlindir Eftir Ernu Mist »Manstu hver þú varst áður en undir- meðvitund þín varð að bandarískri nýlendu? Erna Mist Höfundur er listmálari. ernamist@ernamist.net

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.