Morgunblaðið - 03.03.2022, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 03.03.2022, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanótónlist öll kvöld Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000 Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Sara á langan og litríkan feril að baki og hefur hönnun hennar vakið verðskuldaða athygli. „Ég hanna rými, oftast fyrir fyrirtæki en stundum líka fyrir einstaklinga. Ég hef hannað ýmiss konar rými svo sem skrifstofuhúsnæði, hótel, verslun, kaffihús og bakarí. Ég kem yfirleitt snemma inn í ferlið og tek þá þátt í þróun á konsepti þess staðar sem um ræðir. Ég hanna stundum frá grunni en hef líka tekið að mér ráð- gjöf og endurbætur á rýmum sem á að þróa í nýja átt. Hygge var að vissu leyti þess háttar verkefni, segir Sara aðspurð. „Elías Guðmundsson og Viggó Vigfússon nálguðust mig með hugmyndina. Þeir vildu opna huggulegt kaffihús og svokallað micro-bakarí þar sem allt bakkelsi er bakað á staðnum. Svolít- ið dönsk stemning eins og nafnið gefur til kynna. Rýmið hafði verið hannað um leið og hótelið og veitingastaðurinn Héðinn svo grunnurinn var til staðar. Í samtalinu fundum við hins vegar strax að Hygge þyrfti annað andrúmsloft og stemn- ingu. Þar er ekki hátt til lofts og vítt til veggja eins og í hinum rýmum húsnæðisins og mér fannst því áhugavert að draga fram lágstemmda kósístemningu með hlýjum litum, náttúrulegum efnum, og lýsingunni sem er dempuð og afmörk- uð við hvert borð.“ Hvaða efni varst þú helst að nota? Stutta svarið er: efni úr náttúrunni. Gólfefnið er linoleum, afgreiðsluborðið traventino steinn, borðplötur, hillur og bekkir úr olíuborinni litaðri eik og ljósin úr leir. Hvaðan eru húsgögnin? Sófastóla fékk ég frá Húsgagnahöllinni, teppi frá Epal, en annað er að mestu leyti sérsmíði. Afgreiðsluborðið og allt timburverk er unnið af fyrirtækinu Viðhald og nýsmíði. Stólarnir sem eru frá 366 Concept voru til staðar og grunnur að bekkjum, sem við tókum í yfirhalningu sem hentaði nýrri stemningu betur. Hvaðan eru ljósin? Ljósin og leirtau eru frá Birgitte Munch Ceramics. Ég var með ákveðnar hugmyndir um form og liti og vildi að yfirbragðið væri lífrænt og handgert, sem það vissulega er. Birgitte tók hugmyndirnar áfram og þróaði blöndun úr ís- lenskum leir og gerði ólíkar glerungaprufur. Hún vann þetta allt í stúdíóinu sínu á Korpúlfs- stöðum en hvert einasta ljós er rennt og hún handgerði bollana. Hver hlutur er því einstakur. Hvert var markmiðið? Markmiðið var að gera notalegan og stæla- lausan stað þar sem gott er að vera. Huggulegheit í Héðinshúsinu Kaffihúsið og micro-bakaríið Hygge var opnað í Héðinshúsinu á dögunum og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir fram- úrskarandi veitingar, forkunnarfagra hönnun og notalegt andrúmsloft. Rýmið þykir einstaklega vel heppnað en það er Sara Jónsdóttir sem hefur veg og vanda af henni og þykir útkoman hafa heppnast einstaklega vel. Hyggelegt Ljósmyndaverkið er eftir Valtý Pjetur Daregard og setur sterkan svip á staðinn en hönnun staðarins hefur hlotið mikið lof og þykir afar vel heppnuð. Sara starfar bæði sem hönnuður og ráðgjafi undir nafn- inu Stormandi. Hún er með fjölbreyttan bakgrunn og tek- ur að sér ólík verkefni sem í dag snúa mest að hönnun. Hún er menntuð í viðskipta- og markaðsfræðum en hefur lengstan hluta ferils síns starfað innan skapandi geirans, meðal annars sem stjórnandi HönnunarMars og í auglýs- ingabransanum. Hún setti á laggirnar kvikmyndahátíð og stýrir verkefnum, sýningum og viðburðum. Auk þess að sinna hönnunarverkefnum í dag er hún í samstarfi við Maríu Kristínu Jónsdóttur að setja á lagg- irnar frumkvöðlafyrirtækið On to Something þar sem þær ætla að láta til sín taka við eflingu hringrás- arhagkerfisins. Meðal verkefna Söru: Brauð & Co bakaríin, Mánabar, græna herbergi og önnur starfsmannarými í Þjóðleik- húsinu, Súpa, Intenta, KEX hostel, Lemon, Jónsson & Le- macks, Íslenskir Fjallaleiðsögumenn og Kaupmaðurinn. Auk þess hefur hún hannað húsgögn og innréttingar, stýrt viðburðum og verið sýningarstjóri, meðal annars sýningar á síðastliðnu ári um Ástu Sigurðardóttur sem sett var upp samhliða leikverkinu Ástu í Þjóðleikhúsinu og Fylgið okkur, sýning um íslenska hönnun í Gerð- arsafni. Sara Jónsdóttir Ljósmynd/Saga Sig
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.