Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 51

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 ✝ Sveinn Stur- laugsson, fv. út- gerðarstjóri Har- aldar Böðvars- sonar, fæddist í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, á Akranesi 9. júní 1951. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akra- nesi, 21. febrúar 2022. Foreldrar hans voru Rann- veig Torp Pálmadóttir Böðv- arsson, f. 8. júlí 1924, d. 28. sept- ember 2005, og Sturlaugur Haraldsson Böðvarsson, f. 5. febrúar 1917, d. 14. maí 1976. Systkini Sveins eru: samfeðra Ingunn Helga, f. 1941, d. 2007, og sammæðra eru Matthea Kristín, f. 1947, Haraldur, f. kona hans er Eva Katrín Frið- geirsdóttir, f. 29. desember 1994, sonur þeirra er Ari Sveinn Atlason, f. 14. febrúar 2022. c) Albert Páll Albertsson, f. 19. janúar 1996, sambýliskona hans er Emilía Halldórsdóttir, f. 29. desember 1993, sonur þeirra er Albert Dór, f. 17. júní 2020. 2. Sturlaugur Friðrik Sveins- son, f. 27. júlí 1976, börn hans með Jóhönnu Ólafsdóttur, fyrr- verandi sambýliskonu, eru: a) Elvar Már Sturlaugsson, f. 22. maí 1998, sambýliskona hans er Hekla Mjöll Finnbogadóttir, f. 15. febrúar 1997. b) Harpa Kristný Sturlaugsdóttir, f. 7. september 2000, kærasti hennar er Róbert Máni Gunnarsson, f. 2003. c) Dennis Sveinn Stur- laugsson, f. 23. júlí 2012, móðir hans er Anastasia Pavlova, fv. eiginkona Sturlaugs Friðriks. Útförin fer fram frá Akra- neskirkju í dag, 3. mars 2022, kl. 13. Athöfninni verður streymt frá akraneskirkja.is. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat 1949, Rannveig, f. 1954, Sturlaugur, f. 1958, og Helga Ing- unn, f. 1963. Eiginkona Sveins er Halldóra Friðriksdóttir, f. 20. maí 1950. Þau giftu sig í Akra- neskirkju 20. maí 1972. Foreldrar hennar voru Karla Stefánsdóttir, f. 1930, d. 2004 og Friðrik Jóns- son, f. 1921, d. 2016. Synir Sveins og Halldóru eru: 1. Albert Sveinsson, f. 7. nóvember 1969, kona hans er Ásta Pála Harðardóttir, f. 27. júní 1970, synir þeirra eru: a) Sindri Albertsson, f. 29. nóv- ember 1990. b) Atli Albertsson, f. 3. nóvember 1994, sambýlis- Við kveðjum Svein bróður okkar með söknuði og þakklæti í huga. Hann er annað okkar systkinanna sem kveður. Við er- um oft minnt á að öllu er afmörk- uð stund og allt hefur sinn tíma, þótt okkur finnist tíminn oft naumt skammtaður. - Við viljum trúa að hann sé nú farinn á vit nýrra ævintýra því að hann var hugmyndaríkur athafnamaður, vildi gjarnan hafa mörg járn í eldinum. Áberandi í fari hans var að hann vildi fremur gefa en þiggja, var höfðingi í lund, gjaf- mildur og greiðvikinn. Hann átti ekki langt að sækja það – var lík- ur föður okkar sem vildi helst allra götu greiða. Strax í bernsku bar á mikilli athafnaþörf hjá honum: hann hafði meira gaman af að láta verkin tala en að rýna í bækur. Aðeins 14 ára gamall var hann munstraður háseti á bát. Í bréfi sem afi okkar, Haraldur, sendi einu okkar segir: „Sveinn bróðir þinn er orðinn svekktur á þessu aflaleysi á Höfrungnum, en ég dáist að þessari seiglu og úthaldi hans – því hann hefur líka verið sjóveikur og lystarlítill á matinn um borð, enda lagt mikið af.“ Við lesum á milli línanna hvað afi Haraldur var hreykinn af strákn- um að gefast ekki upp, þótt á móti blési. Þessi vist á sjó á unga aldri kenndi honum að sjó- mennskan er ekkert grín og allar götur síðan var hugurinn bund- inn við sjóinn og báðir synir hans, Albert og Sturlaugur Frið- rik, erfðu sjómannsblóðið. – Sveinn naut þess að fylgjast með þeim og var til síðustu stundar upptekinn af því hvað væri nú að frétta af loðnumiðunum og hafði alltaf nýjustu fréttirnar beint frá Alberti sínum. Lengst af vann Sveinn sem út- gerðarstjóri hjá HB. Í því starfi kynntist hann fjölda fólks sem batt tryggð við hann. Hann átti auðvelt með að kynnast og tengj- ast fólki. Hann var samt dulur á eigin tilfinningar, sem er ættar- fylgja, og átti ekki alltaf auðvelt með að tjá líðan sína. Skóli lífsins var ekki samfelldur dans á rósum hjá honum frekar en nokkrum öðrum, en það var seiglan sem afi lýsir í bréfinu sem var hans styrkur. Ungur kynntist hann Dóru sinni og hafa þau gengið saman í meira en hálfa öld. Þau áttu ein- staklega fallegt heimili og til þeirra var gott að koma. Síðustu misseri hefur mikið mætt á þeim í alvarlegum veikindum Sveins en hann sýndi mikið æðruleysi til síðustu stundar og tíminn var vel nýttur til samveru fjölskyldna og vina. Dóra hefur sýnt aðdáunar- vert þrek, kærleika og ást á þess- um erfiða tíma og við erum öll svo innilega þakklát öllu því góða fagfólki sem hjúkraði honum, bæði heima og á sjúkrahúsinu. Barnabörnin og barnabarna- börnin voru sólargeislar Sveins og bestu vinir hans og fátt gladdi hann meira en samveran með þeim. Þessi dýrmæti hópur veitti honum bæði farsæld, frið og gleði. Að leiðarlokum þökkum við okkar elskulega bróður sam- fylgdina í lífinu og biðjum fólkinu hans blessunar. Minning um góð- an dreng mun lifa. Matthea Kristín, Har- aldur, Rannveig, Stur- laugur og Helga Ingunn Sturlaugsbörn. Það var 28 stiga hiti og brenn- andi sólskin, við flatmöguðum hálfsofandi í sólbaði í fallegum sundlaugargarðinum á Villa Cortes Tenerife og árið er 2008. Kyrrðin er rofin og skugga bar á sólina, ég opnaði annað augað og pírði á skælbrosandi andlit. Eruð þið ekki íslensk? spurði þéttvaxinn sólbrúnn náungi með sjóræningjaklút vaf- inn um höfuðið. Við jánkuðum því og sjóræninginn hélt áfram: Við erum hérna nokkur íslensk sem ætlum að fara saman út að borða í kvöld og mér datt í hug hvort þið vilduð slást í hópinn? Við vorum til og þá varð ekki aft- ur snúið. Með okkur Svenna og hans frábæru konu Halldóru Friðriksdóttur hófst þá dýrmæt- ur vinskapur sem aldrei bar neinn skugga á. Við höfum síðan kynnin hófust ferðast ótal ferðir saman til út- landa svo og innanlands og eru vandfundnir jafn þægilegir og góðir ferðafélagar sem þau hjón voru. Sveinn var lúxusmaður, vildi ferðast þannig og gista á 5* hótelum hvort heldur við vorum á Spáni eða í Þýskalandi. Hann hafði ímugust á að leigja bíl og ferðast þannig. Uppástunga hafði komið í einni ferðinni til Te- nerife að skreppa til Santa Cruz sem er stærsta borgin á eyjunni og sagðist ég taka það að mér að fá bíl, myndi ég koma fljótlega með þá valkosti sem í boði væru. Þegar ég kom aftur eftir að hafa þrætt bílaleigurnar tók Sveinn á móti mér kampakátur og til- kynnti að hann væri búinn að redda málinu. Hann talaði við senior Casceras hótelstjóra sem lét okkur í té Mercedes-bifreið hótelsins ásamt bílstjóra til af- nota allan daginn!! Sveinn var mikill rausnarmað- ur, sem á tíðum jaðraði við of- rausn, hann átti það til að segjast þurfa að fara á snyrtinguna en fór í raun og greiddi allan reikn- inginn hjá þjóninum. Sveinn var mikill Skagamaður og ef mann vantaði eitthvað þá vissi hann um fyrirtæki eða verslun uppi á Skaga sem væri með betra verð. Hann gerði sér m.a. erindi upp eftir þegar hann bjó í Garðabænum til að kaupa sokka, þeir voru einfaldlega betri þar. Að hann eða hún væri Skagamaður eða Skagakona var ákveðinn gæðastimpill sem aldr- ei var dreginn í efa! Sveinn var mikill gæfumaður í einkalífi sínu. Halldóra Friðriks- dóttir eiginkona hans í hálfa öld ól honum tvo syni, mikla mann- kostamenn. Hún stóð þétt við bakið á honum alla tíð en aldrei eins og síðustu mánuði þar sem hún vart vék frá sjúkrabeði hans. Hún bjó Sveini afar fallegt og smekklegt heimili sem reyndar bar smekkvísi þeirra beggja vitni. Elsku Svenni, við viljum þakka þér fyrir allar gæðastund- irnar sem við áttum saman, við eigum eftir að sakna þeirra og erum klár á því að þegar við komum til þín í sólarlandið verðir þú búinn að panta borð. Elsku Dóra, við viljum senda þér, strákunum ykkar, tengda- fólki og afkomendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Góður og kær drengur hefur kvatt í Guðs friði. Valdimar Bergsson Helga Geirsdóttir. Sveinn Sturlaugsson HINSTA KVEÐJA Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma. – Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur, mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf, sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla. (Sigurbjörn Einarsson) Vertu Guði falinn og blessuð sé þín minning, elsku Svenni. Jóhanna skólasystir. ✝ Lára Sigríður Thorarensen fæddist 28. sept- ember 1963 í Nes- kaupstað. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 19. febr- úar 2022. Foreldrar henn- ar voru Hrafnhild- ur Eiríksdóttir, f. 20. september 1947, d. 21. desem- ber 2020, og Valdemar Thor- arensen, f. 12. ágúst 1944. Systkini Láru eru Guðni Thorarensen, f. 17. apríl 1965, d. 25. apríl 2021, Guðrún Thor- arensen, f. 4. desember 1967, en ólst upp mest alla barnæsku á Eskifirði hjá ömmu sinni og afa á Litla Bakka. Lára gekk í barnaskólann á Eskifrði og út- skrifaðist þaðan. Lára byrjaði sinn stafsferil í fiskvinnslu á Eskifirði, en svo seinnipart æv- innar starfaði hún mest alla tíð að verslunarstörfum. Lára kynntist Þórarni eigin- manni sínum þann 4. desember 1979 og giftist honum 31. des- ember 1981. Lára og Þórarinn bjuggu fyrstu árin á Eskifirði og ólu þar upp drengina sína. Árið 2005 fluttu þau svo á höf- uðborgarsvæðið og hafa búið þar síðan. Lára hafði mikinn áhuga á föndri og hannyrðum og liggur eftir hana mikið af slíku. Útför Láru fer fram frá Ví- dalínskirkju í dag, 3. mars 2022, klukkan 13. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat og Sveinn Thor- arensen, f. 28. maí 1980. Eftirlifandi eig- inmaður Láru er Þórarinn Hafdal Hávarðsson f. 23. febrúar 1962. Börn þeirra Láru og Þórarins eru: 1) Ei- ríkur Þór Hafdal, f. 22. janúar 1984, kvæntur Önnu Maríu Benediktsdóttur og eiga þau sjö börn. 2) Magnús Örn Hafdal, f. 29. apríl 1988, kvænt- ur Ingu Sigríði Brynjólfsdóttur og eiga þau fjögur börn. Lára fæddist í Neskaupstað Lára frænka mín er látin, langt fyrir aldur fram, því mið- ur. Fjandsamlegi krabbinn er ið- inn við sín verk að murka lífið úr fólki á öllum aldri. Lára fæddist á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað en ólst upp á einbýlishúsinu Bakka í norðanverðum Eskifirði hjá afa sínum og ömmu. Lára litla á Bakka lét strax til sín taka með hinum og þessum töktum í leik og framkomu, svo eftir var tekið af bæjarbúum. En þegar unglingsárin gengu yfir, þá kom Tóti Hæja á svæðið og kom auga á hana sem væn- legan kvenkost og bar að lokum sigur úr býtum og hún varð hans. Eignuðust þau svo og ólu þau svo upp merkissynina Eirík og Magnús. Lára var stórmerkileg per- sóna, hvort sem var á Eskifirði eða í Reykjavík. Hún kom upp allskonar fjöri sem dæmi á Eskifirði með því að gleðja krakkana með akureyrska leiknum með því að slá köttinn úr tunnunni fyrir utan félags- heimilið Valhöll á Eskifirði. Fyrir utan það að vera lista- maður í orði og verki lét hún hendur standa fram úr ermum eftir að hún flutti til Reykjavíkur og kom á laggirnar Eskifjarð- arhittningnum þar sem hún stóð fyrir samkomum þar sem fyrr- verandi Eskfirðingar komu sam- an og áttu góðar stundir saman svo misserum skipti. Ekki skal því gleymt að Lára var sannkallaður listamaður/ listakona og sýndi það í verki. Blessuð sé minning okkar góðu samferðamanneskju, Láru dóttur Hrafnhildar Eiríksdóttur og Valdimars Thorarensen. Emil Thorarensen. Lára Sigríður Thorarensen Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir og amma, SIGRÚN LÁRA HANNESDÓTTIR Borgarbraut 3, Borgarnesi, lést á heimili sínu miðvikudaginn 2. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. mars klukkan 11. Þeir sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Brákarhlíðar í Borgarnesi. Rúna Hannesdóttir Aron Ingi Agnarsson Guðjón Þorsteinsson Ásdís Jónína Halldórsdóttir Sólveig Sigurbjörnsdóttir Jón Ingi Hannesson Anja Arai Hjörleifur Þór Hannesson Guðrún Jóhanna Halldórsd. og barnabörn Ástkær móðir okkar, INGVELDUR GUÐMUNDSDÓTTIR hárgreiðslumeistari frá Sæbóli í Aðalvík, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum mánudaginn 28. febrúar. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 10. mars klukkan 13. Athöfninni verður streymt á streyma.is. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Átthagafélags Sléttuhrepps. Hafsteinn Hafsteinsson Guðmundur Lúther Hafsteinsson Þorbjörg Hafsteinsdóttir Margrét Rögn Hafsteinsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓNAS ÞÓRÐARSON, áður til heimilis í Drápuhlíð 12, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 21. febrúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 7. mars klukkan 15. Guðborg Einarsdóttir Sigþrúður Jónasd. James Gareth Neil James Einar Jónasson Elín Eiðsdóttir Rannveig Jónasdóttir Gísli Vilberg Hjaltason Ingigerður Jónasdóttir Jóhann Már Jónsson og barnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INDRIÐI BJÖRNSSON, Kjartansgötu 4, Borgarnesi, lést á heimili sínu föstudaginn 25. febrúar. Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 5. mars klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Útförinni verður einnig streymt á www.kvikborg.is. Þór Indriðason Luisa Saldana Björn Indriðason Kristjana Hrafnkelsdóttir Guðfinna Indriðadóttir Stefán Gunnar Ármannsson Rúnar Örn Indriðason Helga Indriðadóttir afabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.