Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 51
MINNINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
✝
Sveinn Stur-
laugsson, fv. út-
gerðarstjóri Har-
aldar Böðvars-
sonar, fæddist í
Haraldarhúsi,
Vesturgötu 32, á
Akranesi 9. júní
1951. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands, Akra-
nesi, 21. febrúar
2022.
Foreldrar hans voru Rann-
veig Torp Pálmadóttir Böðv-
arsson, f. 8. júlí 1924, d. 28. sept-
ember 2005, og Sturlaugur
Haraldsson Böðvarsson, f. 5.
febrúar 1917, d. 14. maí 1976.
Systkini Sveins eru: samfeðra
Ingunn Helga, f. 1941, d. 2007,
og sammæðra eru Matthea
Kristín, f. 1947, Haraldur, f.
kona hans er Eva Katrín Frið-
geirsdóttir, f. 29. desember
1994, sonur þeirra er Ari Sveinn
Atlason, f. 14. febrúar 2022. c)
Albert Páll Albertsson, f. 19.
janúar 1996, sambýliskona hans
er Emilía Halldórsdóttir, f. 29.
desember 1993, sonur þeirra er
Albert Dór, f. 17. júní 2020.
2. Sturlaugur Friðrik Sveins-
son, f. 27. júlí 1976, börn hans
með Jóhönnu Ólafsdóttur, fyrr-
verandi sambýliskonu, eru: a)
Elvar Már Sturlaugsson, f. 22.
maí 1998, sambýliskona hans er
Hekla Mjöll Finnbogadóttir, f.
15. febrúar 1997. b) Harpa
Kristný Sturlaugsdóttir, f. 7.
september 2000, kærasti hennar
er Róbert Máni Gunnarsson, f.
2003. c) Dennis Sveinn Stur-
laugsson, f. 23. júlí 2012, móðir
hans er Anastasia Pavlova, fv.
eiginkona Sturlaugs Friðriks.
Útförin fer fram frá Akra-
neskirkju í dag, 3. mars 2022, kl.
13. Athöfninni verður streymt
frá akraneskirkja.is.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
1949, Rannveig, f.
1954, Sturlaugur, f.
1958, og Helga Ing-
unn, f. 1963.
Eiginkona
Sveins er Halldóra
Friðriksdóttir, f.
20. maí 1950. Þau
giftu sig í Akra-
neskirkju 20. maí
1972. Foreldrar
hennar voru Karla
Stefánsdóttir, f.
1930, d. 2004 og Friðrik Jóns-
son, f. 1921, d. 2016.
Synir Sveins og Halldóru eru:
1. Albert Sveinsson, f. 7.
nóvember 1969, kona hans er
Ásta Pála Harðardóttir, f. 27.
júní 1970, synir þeirra eru: a)
Sindri Albertsson, f. 29. nóv-
ember 1990. b) Atli Albertsson,
f. 3. nóvember 1994, sambýlis-
Við kveðjum Svein bróður
okkar með söknuði og þakklæti í
huga. Hann er annað okkar
systkinanna sem kveður. Við er-
um oft minnt á að öllu er afmörk-
uð stund og allt hefur sinn tíma,
þótt okkur finnist tíminn oft
naumt skammtaður. - Við viljum
trúa að hann sé nú farinn á vit
nýrra ævintýra því að hann var
hugmyndaríkur athafnamaður,
vildi gjarnan hafa mörg járn í
eldinum. Áberandi í fari hans var
að hann vildi fremur gefa en
þiggja, var höfðingi í lund, gjaf-
mildur og greiðvikinn. Hann átti
ekki langt að sækja það – var lík-
ur föður okkar sem vildi helst
allra götu greiða.
Strax í bernsku bar á mikilli
athafnaþörf hjá honum: hann
hafði meira gaman af að láta
verkin tala en að rýna í bækur.
Aðeins 14 ára gamall var hann
munstraður háseti á bát. Í bréfi
sem afi okkar, Haraldur, sendi
einu okkar segir: „Sveinn bróðir
þinn er orðinn svekktur á þessu
aflaleysi á Höfrungnum, en ég
dáist að þessari seiglu og úthaldi
hans – því hann hefur líka verið
sjóveikur og lystarlítill á matinn
um borð, enda lagt mikið af.“ Við
lesum á milli línanna hvað afi
Haraldur var hreykinn af strákn-
um að gefast ekki upp, þótt á
móti blési. Þessi vist á sjó á unga
aldri kenndi honum að sjó-
mennskan er ekkert grín og allar
götur síðan var hugurinn bund-
inn við sjóinn og báðir synir
hans, Albert og Sturlaugur Frið-
rik, erfðu sjómannsblóðið. –
Sveinn naut þess að fylgjast með
þeim og var til síðustu stundar
upptekinn af því hvað væri nú að
frétta af loðnumiðunum og hafði
alltaf nýjustu fréttirnar beint frá
Alberti sínum.
Lengst af vann Sveinn sem út-
gerðarstjóri hjá HB. Í því starfi
kynntist hann fjölda fólks sem
batt tryggð við hann. Hann átti
auðvelt með að kynnast og tengj-
ast fólki. Hann var samt dulur á
eigin tilfinningar, sem er ættar-
fylgja, og átti ekki alltaf auðvelt
með að tjá líðan sína. Skóli lífsins
var ekki samfelldur dans á rósum
hjá honum frekar en nokkrum
öðrum, en það var seiglan sem afi
lýsir í bréfinu sem var hans
styrkur.
Ungur kynntist hann Dóru
sinni og hafa þau gengið saman í
meira en hálfa öld. Þau áttu ein-
staklega fallegt heimili og til
þeirra var gott að koma. Síðustu
misseri hefur mikið mætt á þeim
í alvarlegum veikindum Sveins
en hann sýndi mikið æðruleysi til
síðustu stundar og tíminn var vel
nýttur til samveru fjölskyldna og
vina. Dóra hefur sýnt aðdáunar-
vert þrek, kærleika og ást á þess-
um erfiða tíma og við erum öll
svo innilega þakklát öllu því góða
fagfólki sem hjúkraði honum,
bæði heima og á sjúkrahúsinu.
Barnabörnin og barnabarna-
börnin voru sólargeislar Sveins
og bestu vinir hans og fátt gladdi
hann meira en samveran með
þeim. Þessi dýrmæti hópur veitti
honum bæði farsæld, frið og
gleði.
Að leiðarlokum þökkum við
okkar elskulega bróður sam-
fylgdina í lífinu og biðjum fólkinu
hans blessunar. Minning um góð-
an dreng mun lifa.
Matthea Kristín, Har-
aldur, Rannveig, Stur-
laugur og Helga Ingunn
Sturlaugsbörn.
Það var 28 stiga hiti og brenn-
andi sólskin, við flatmöguðum
hálfsofandi í sólbaði í fallegum
sundlaugargarðinum á Villa
Cortes Tenerife og árið er 2008.
Kyrrðin er rofin og skugga
bar á sólina, ég opnaði annað
augað og pírði á skælbrosandi
andlit. Eruð þið ekki íslensk?
spurði þéttvaxinn sólbrúnn
náungi með sjóræningjaklút vaf-
inn um höfuðið. Við jánkuðum
því og sjóræninginn hélt áfram:
Við erum hérna nokkur íslensk
sem ætlum að fara saman út að
borða í kvöld og mér datt í hug
hvort þið vilduð slást í hópinn?
Við vorum til og þá varð ekki aft-
ur snúið. Með okkur Svenna og
hans frábæru konu Halldóru
Friðriksdóttur hófst þá dýrmæt-
ur vinskapur sem aldrei bar
neinn skugga á.
Við höfum síðan kynnin hófust
ferðast ótal ferðir saman til út-
landa svo og innanlands og eru
vandfundnir jafn þægilegir og
góðir ferðafélagar sem þau hjón
voru. Sveinn var lúxusmaður,
vildi ferðast þannig og gista á 5*
hótelum hvort heldur við vorum
á Spáni eða í Þýskalandi. Hann
hafði ímugust á að leigja bíl og
ferðast þannig. Uppástunga
hafði komið í einni ferðinni til Te-
nerife að skreppa til Santa Cruz
sem er stærsta borgin á eyjunni
og sagðist ég taka það að mér að
fá bíl, myndi ég koma fljótlega
með þá valkosti sem í boði væru.
Þegar ég kom aftur eftir að hafa
þrætt bílaleigurnar tók Sveinn á
móti mér kampakátur og til-
kynnti að hann væri búinn að
redda málinu. Hann talaði við
senior Casceras hótelstjóra sem
lét okkur í té Mercedes-bifreið
hótelsins ásamt bílstjóra til af-
nota allan daginn!!
Sveinn var mikill rausnarmað-
ur, sem á tíðum jaðraði við of-
rausn, hann átti það til að segjast
þurfa að fara á snyrtinguna en
fór í raun og greiddi allan reikn-
inginn hjá þjóninum.
Sveinn var mikill Skagamaður
og ef mann vantaði eitthvað þá
vissi hann um fyrirtæki eða
verslun uppi á Skaga sem væri
með betra verð. Hann gerði sér
m.a. erindi upp eftir þegar hann
bjó í Garðabænum til að kaupa
sokka, þeir voru einfaldlega betri
þar. Að hann eða hún væri
Skagamaður eða Skagakona var
ákveðinn gæðastimpill sem aldr-
ei var dreginn í efa!
Sveinn var mikill gæfumaður í
einkalífi sínu. Halldóra Friðriks-
dóttir eiginkona hans í hálfa öld
ól honum tvo syni, mikla mann-
kostamenn. Hún stóð þétt við
bakið á honum alla tíð en aldrei
eins og síðustu mánuði þar sem
hún vart vék frá sjúkrabeði hans.
Hún bjó Sveini afar fallegt og
smekklegt heimili sem reyndar
bar smekkvísi þeirra beggja
vitni.
Elsku Svenni, við viljum
þakka þér fyrir allar gæðastund-
irnar sem við áttum saman, við
eigum eftir að sakna þeirra og
erum klár á því að þegar við
komum til þín í sólarlandið verðir
þú búinn að panta borð.
Elsku Dóra, við viljum senda
þér, strákunum ykkar, tengda-
fólki og afkomendum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. Góður
og kær drengur hefur kvatt í
Guðs friði.
Valdimar Bergsson
Helga Geirsdóttir.
Sveinn
Sturlaugsson
HINSTA KVEÐJA
Blómin falla, fölskva slær
á flestan ljóma. –
Aldrei hverfur
angan sumra blóma.
Þannig varstu vinur, mér
sem vorið bjarta.
Það sem gafstu
geymist mér í hjarta.
Ilma sprotar, anga lauf,
sem aldrei falla.
Drottinn launi
elskuna þína alla.
(Sigurbjörn Einarsson)
Vertu Guði falinn og
blessuð sé þín minning,
elsku Svenni.
Jóhanna skólasystir.
✝
Lára Sigríður
Thorarensen
fæddist 28. sept-
ember 1963 í Nes-
kaupstað. Hún lést
á líknardeild Land-
spítalans 19. febr-
úar 2022.
Foreldrar henn-
ar voru Hrafnhild-
ur Eiríksdóttir, f.
20. september
1947, d. 21. desem-
ber 2020, og Valdemar Thor-
arensen, f. 12. ágúst 1944.
Systkini Láru eru Guðni
Thorarensen, f. 17. apríl 1965,
d. 25. apríl 2021, Guðrún Thor-
arensen, f. 4. desember 1967,
en ólst upp mest alla barnæsku
á Eskifirði hjá ömmu sinni og
afa á Litla Bakka. Lára gekk í
barnaskólann á Eskifrði og út-
skrifaðist þaðan. Lára byrjaði
sinn stafsferil í fiskvinnslu á
Eskifirði, en svo seinnipart æv-
innar starfaði hún mest alla tíð
að verslunarstörfum.
Lára kynntist Þórarni eigin-
manni sínum þann 4. desember
1979 og giftist honum 31. des-
ember 1981. Lára og Þórarinn
bjuggu fyrstu árin á Eskifirði
og ólu þar upp drengina sína.
Árið 2005 fluttu þau svo á höf-
uðborgarsvæðið og hafa búið
þar síðan.
Lára hafði mikinn áhuga á
föndri og hannyrðum og liggur
eftir hana mikið af slíku.
Útför Láru fer fram frá Ví-
dalínskirkju í dag, 3. mars
2022, klukkan 13.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
og Sveinn Thor-
arensen, f. 28. maí
1980.
Eftirlifandi eig-
inmaður Láru er
Þórarinn Hafdal
Hávarðsson f. 23.
febrúar 1962. Börn
þeirra Láru og
Þórarins eru: 1) Ei-
ríkur Þór Hafdal, f.
22. janúar 1984,
kvæntur Önnu
Maríu Benediktsdóttur og eiga
þau sjö börn. 2) Magnús Örn
Hafdal, f. 29. apríl 1988, kvænt-
ur Ingu Sigríði Brynjólfsdóttur
og eiga þau fjögur börn.
Lára fæddist í Neskaupstað
Lára frænka mín er látin,
langt fyrir aldur fram, því mið-
ur.
Fjandsamlegi krabbinn er ið-
inn við sín verk að murka lífið úr
fólki á öllum aldri.
Lára fæddist á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað en
ólst upp á einbýlishúsinu Bakka
í norðanverðum Eskifirði hjá afa
sínum og ömmu.
Lára litla á Bakka lét strax til
sín taka með hinum og þessum
töktum í leik og framkomu, svo
eftir var tekið af bæjarbúum.
En þegar unglingsárin gengu
yfir, þá kom Tóti Hæja á svæðið
og kom auga á hana sem væn-
legan kvenkost og bar að lokum
sigur úr býtum og hún varð
hans.
Eignuðust þau svo og ólu þau
svo upp merkissynina Eirík og
Magnús.
Lára var stórmerkileg per-
sóna, hvort sem var á Eskifirði
eða í Reykjavík.
Hún kom upp allskonar fjöri
sem dæmi á Eskifirði með því að
gleðja krakkana með akureyrska
leiknum með því að slá köttinn
úr tunnunni fyrir utan félags-
heimilið Valhöll á Eskifirði.
Fyrir utan það að vera lista-
maður í orði og verki lét hún
hendur standa fram úr ermum
eftir að hún flutti til Reykjavíkur
og kom á laggirnar Eskifjarð-
arhittningnum þar sem hún stóð
fyrir samkomum þar sem fyrr-
verandi Eskfirðingar komu sam-
an og áttu góðar stundir saman
svo misserum skipti.
Ekki skal því gleymt að Lára
var sannkallaður listamaður/
listakona og sýndi það í verki.
Blessuð sé minning okkar
góðu samferðamanneskju, Láru
dóttur Hrafnhildar Eiríksdóttur
og Valdimars Thorarensen.
Emil Thorarensen.
Lára Sigríður
Thorarensen
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir,
systir og amma,
SIGRÚN LÁRA HANNESDÓTTIR
Borgarbraut 3, Borgarnesi,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 2. febrúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 10. mars klukkan 11.
Þeir sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð
Brákarhlíðar í Borgarnesi.
Rúna Hannesdóttir Aron Ingi Agnarsson
Guðjón Þorsteinsson Ásdís Jónína Halldórsdóttir
Sólveig Sigurbjörnsdóttir
Jón Ingi Hannesson Anja Arai
Hjörleifur Þór Hannesson Guðrún Jóhanna Halldórsd.
og barnabörn
Ástkær móðir okkar,
INGVELDUR GUÐMUNDSDÓTTIR
hárgreiðslumeistari
frá Sæbóli í Aðalvík,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
mánudaginn 28. febrúar. Útför hennar fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 10. mars klukkan 13.
Athöfninni verður streymt á streyma.is.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Minningarsjóð Átthagafélags
Sléttuhrepps.
Hafsteinn Hafsteinsson
Guðmundur Lúther Hafsteinsson
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Margrét Rögn Hafsteinsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓNAS ÞÓRÐARSON,
áður til heimilis í Drápuhlíð 12,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í
Reykjavík mánudaginn 21. febrúar.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn
7. mars klukkan 15.
Guðborg Einarsdóttir
Sigþrúður Jónasd. James Gareth Neil James
Einar Jónasson Elín Eiðsdóttir
Rannveig Jónasdóttir Gísli Vilberg Hjaltason
Ingigerður Jónasdóttir Jóhann Már Jónsson
og barnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
INDRIÐI BJÖRNSSON,
Kjartansgötu 4, Borgarnesi,
lést á heimili sínu föstudaginn 25. febrúar.
Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 5. mars klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Útförinni verður einnig streymt á www.kvikborg.is.
Þór Indriðason Luisa Saldana
Björn Indriðason Kristjana Hrafnkelsdóttir
Guðfinna Indriðadóttir Stefán Gunnar Ármannsson
Rúnar Örn Indriðason Helga Indriðadóttir
afabörn og langafabörn