Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 64

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 64
64 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 40 ÁRA Guðmundur fæddist í Reykjavík og ólst upp í Ártúnsholti. „Ég byrjaði að læra tónlist í Tónlistarskóla Sigursveins þegar ég var sjö ára og lærði á klassískan gítar. Svo var ég síðar um tíma í FÍH í djassi og svo fór ég í Listaháskólann þar sem ég var í öðrum ár- gangi tónsmíðanema skólans og útskrifaðist þaðan árið 2005.“ Guð- mundur fór síðan til Bandaríkjanna í meistaranám í tónsmíðum í Mills College í Oakland í Kali- forníu og lærði þar m.a. hjá Alvin Curran og Fred Frith og útskrifaðist árið 2007. „Ég var í eitt ár úti eftir að ég útskrifaðist og kom heim bara beint í hrunið, sem eftir á að hyggja var ekkert svo slæmt, því það var mikill grósku- tími í listalífinu. Ég gekk fljótlega til liðs við Slátursamtökin, eða Samtök list- rænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík, sem voru aðeins byrjuð um það leyti sem ég var að fara út. Við vorum með hátíð og allskonar viðburði, sameiginlega vinnustofu og fleira.“ Fljótlega fór Guðmundur að semja mikið fyrir alls konar tónlistarhópa bæði hérlendis og erlendis. „Svo hef ég verið sjálfur með hóp sem heitir Fersteinn og nýlega annan hóp sem heitir Stein- alda.“ Guðmundur segist vera helst á sviði tilraunakenndra tónsmíða, þótt oft séu hefðbundin hljóðfæri notuð í bland við fundna hluti og rafhljóð en nót- urnar eru oft hreyfinótur á tölvuskjá, þ.e. einhver stafræn miðlun í nótna- gerðinni sem aðrir í Slátri hafa einnig verið að vinna með. „Í fyrrakvöld var ég með tónleika á Myrkum músíkdögum og ég var að koma úr upptökum um helgina með Caput-hópnum og það kemur vonandi út. Svo er fyrirhugað tón- leikahald í haust og útgáfa á plötu með Steinöldu.“ FJÖLSKYLDA Eiginkona Guðmundar er Katelin Marit Parsons, doktor í íslenskum bókmenntum, f. 1985 og þau eiga soninn Þorlák Benjamín, f. 2015. Foreldrar Guðmundar eru Gunnar Hjalti Guðmundsson ráðgjafi, f. 1949 og Elín Konráðsdóttir þýðandi, f. 1951. Þau búa í Reykjavík. Guðmundur Steinn Gunnarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þér finnst hlutirnir ekki ganga nógu hratt fyrir sig og getur aðeins sjálfum þér um kennt. Ekki taka að þér fleiri verk- efni. 20. apríl - 20. maí + Naut Sýndu sérstaka aðgæslu í fjár- málum, ekki veitir af. Þú ert uppfull/ur af hugmyndum og ættir að reyna að koma einhverjum af þeim í framkvæmd. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Nú er komið að því að vinur þinn verður að endurgjalda þér greiða. Áhuga- mál þín taka of mikinn tíma frá fjölskyld- unni. Allt er gott í hófi. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Að stinga höfðinu í sandinn flækir málin bara enn frekar þegar til lengri tíma er litið. Taktu þér tak í peningamálunum. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Ýmis tækifæri standa þér opin og það er erfitt að velja. Bíðið átekta og sjáið hvernig hlutirnir þróast, ekkert liggur á. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Á vissum augnablikum getur verið rétt að aðhafast ekkert. Þig þyrstir í sól og sumar, þú gætir skellt þér í stutta ferð út fyrir landsteinana. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það eru ýmis tækifæri sem bíða þín. Nú er ekki rétti tíminn til þess að breyta, það myndi bara rugla þig í ríminu og raska jafnvæginu sem þú hefur náð í lífi þínu. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú þarft ekki að draga þig í hlé, þótt skoðanir þínar fari ekki saman við álit annarra. Vendu þig á að svara skila- boðum strax. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú lætur of oft reka á reið- anum. Reyndu að fá yfirsýn yfir verkefnin sem eru fram undan. Það verður fjölgun í fjölskyldunni á árinu. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Nú þarftu að taka á honum stóra þínum. Þú færð vissan hlut á silf- urfati, ekki gleyma að þakka fyrir það sem þú átt og hefur. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú munt hugsanlega segja eitt- hvað, sem þú munt sjá eftir. Láttu að- stæður ekki leiða þig út í hluti sem þér eru á móti skapi. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú þarft að læra að fara með það vald sem þér er fengið. Þú sérð ekki sólina fyrir börnunum þínum. Einhver reynir að troða þér um tær. bætir því við að prentiðnin sé hverf- andi grein og það séu varla nokkrir prentarar útskrifaðir í dag. „En ef þú ert klár á tölvu er auðvelt að læra að prenta á þessar nýju stafrænu vélar.“ Það er ekki skrýtið að prentari skuli ekki kunna neitt of vel við raf- ræna miðla. „Ég er alveg eyðilagður maður ef ég fæ ekki Moggann á morgnana og er ekki einn af þeim sem vill horfa á fréttir í tölvunni. Ég vil bara hafa blaðið fyrir framan mig og fá minn kaffibolla, og finnst skrýt- ið þegar ég er í útlöndum að geta ekki flett blaðinu á morgnana.“ Georg kynntist Hrafnhildi konu sinni ungur. „Við kynntumst í skíða- deild Ármanns uppi í Jósefsdal, en þar var mikil skíðamenning og mikið fjör. Þarna fór fólk oft um og dvaldi í skálanum alla páskana. Þá þurfti að ganga frá Litlu Kaffistofunni og upp þeir fara að þroskast, svo fyrirtækið er mikið fjölskyldufyrirtæki og við Hrafnhildur konan mín vinnum þar enn í fullu starfi.“ Hann segir ekkert hafa verið erfitt að sleppa stjórnar- taumunum og fara að vinna á gólfinu. „Það fer enginn kúnni að tala við 75 ára gamlan mann, nema það sé til að rifja upp gamla tíma,“ segir hann og hlær og segist hafa verið bara feginn að losna við allt það umstang sem fylgir stjórnuninni. „Við keyptum Miðaprent fyrir tíu árum síðan og synirnir reka bæði fyrirtækin, Birgir Már rekur Miðaprent og Helgi Valur rekur Litlaprent.“ Georg segir ansi mikið hafa breyst í prentiðninni á hans ævi. „Þegar við byrjuðum var allt prentað í blýi og svo tók offset-prentunin við og núna er mikið prentað á stafrænum vélum. Hún er liðin sú tíð að maður sé með prentsvertuna á höndunum,“ segir hann og hlær. „Við vorum að kaupa nýja stafræna vél í Miðaprent og hún er eiginlega eins og risastór ljósrit- unarvél og er mjög öflug.“ Hann G eorg Guðjónsson Long fæddist í Reykjavík 3. mars 1947. „Ég ólst upp á Kirkjuteigi og fluttist á Álfhólsveg 52 þar sem ég átti heima öll árin upp frá því. Ég gekk í barnaskólann í Kópavogi og svo fór ég í Digranesskóla í gagn- fræðaskóla.“ Georg var í sveit fimm sumur austur á Fljótsdalshéraði, á Birnufelli í Fellahreppi hjá fjar- skyldum ættingjum. „Það var mikið að gera á bænum og ekkert sunnu- dagsfrí, en þarna lærði ég að vinna.“ Þegar kom að því að líta til fram- tíðar ákvað Georg að feta í fótspor föður síns. „Faðir minn, Guðjón Long, var byrjaður að reka litla prentsmiðju, sem hann kallaði Litla- prent, og mér fannt það bara góð til- hugsun að læra prentiðnina. Ég lærði hjá Ísafoldarprentsmiðju og vann þar alveg í 5-6 ár áður en ég fór yfir í prentsmiðjuna til pabba.“ Í kringum 1970 kaupir Georg föð- ur sinn út úr prentsmiðjunni. „Svo koma synir okkar inn í þetta þegar í Jósefsdalinn. Ég segi að þessi skíðadeild í Jósefsdalnum hafi verið bara mjög góð hjónamiðlun. Við Hrafnhildur vorum t.d. ekkert að skemmta okkur niðri í Reykjavík, en fórum allar helgar á skíði og þar kviknaði ástin.“ Fjölskyldan vinnur öll saman í fyr- irtækjunum tveimur og hefur gert lengi. „Hrafnhildur rak nú heildsölu þegar strákarnir voru litlir, en hún er búin að vera í fyrirtækinu okkar núna í 30 ár.“ Georg segir að þau hjónin hafi allt- af verið mikið fyrir útivist og ferðast mikið um allt landið. „Við þekkjum orðið nánast hverja þúfu,“ segir hann hress. „Eftir að við minnkuðum að- eins skíðaíþróttina fórum við að fara á vélsleða með stórum vinahópi, sem var gífurlega gaman. Við höfum farið upp á nánast alla jökla landsins og ekki má gleyma Hornbjargsvita, en Georg Guðjónsson Long prentari – 75 ára Snæfellsnes Georg með afabarnið Inga Hrafn. „Hætti ekkert að vinna nema ég verði rekinn“ Fjölskyldan F.v. Georg, Ingi Hrafn, Sólveig, Hrafnildur, Hrafnhildur, Ásgeir Már, Helgi Valur og Birgir Már í Flachau í Austurríki. Hjónin Georg og Hrafnhildur eru mikið fyrir útivist og síðustu árin hafa þau stundað golf. Til hamingju með daginn - meira fyrir áskrifendur Lestumeira með vikupassa! Fyrir aðeins 2.090 kr. færð þú netaðgang að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga. - Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Íþróttir - Daglegt líf - Viðskipti - Fastir þættir - Aðsendar greinar - Aukablöð - Viðtöl - Minningargreinar - Umræðan Vikupassi er auðveldari leið til að lesaMorgunblaðið á netinu. Fáðu þér vikupassa af netútgáfu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.