Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 64
64 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
40 ÁRA Guðmundur
fæddist í Reykjavík og
ólst upp í Ártúnsholti.
„Ég byrjaði að læra
tónlist í Tónlistarskóla
Sigursveins þegar ég
var sjö ára og lærði á
klassískan gítar. Svo
var ég síðar um tíma í
FÍH í djassi og svo fór
ég í Listaháskólann þar
sem ég var í öðrum ár-
gangi tónsmíðanema
skólans og útskrifaðist
þaðan árið 2005.“ Guð-
mundur fór síðan til
Bandaríkjanna í meistaranám í tónsmíðum í Mills College í Oakland í Kali-
forníu og lærði þar m.a. hjá Alvin Curran og Fred Frith og útskrifaðist árið
2007. „Ég var í eitt ár úti eftir að ég útskrifaðist og kom heim bara beint í
hrunið, sem eftir á að hyggja var ekkert svo slæmt, því það var mikill grósku-
tími í listalífinu. Ég gekk fljótlega til liðs við Slátursamtökin, eða Samtök list-
rænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík, sem voru aðeins byrjuð um
það leyti sem ég var að fara út. Við vorum með hátíð og allskonar viðburði,
sameiginlega vinnustofu og fleira.“ Fljótlega fór Guðmundur að semja mikið
fyrir alls konar tónlistarhópa bæði hérlendis og erlendis. „Svo hef ég verið
sjálfur með hóp sem heitir Fersteinn og nýlega annan hóp sem heitir Stein-
alda.“ Guðmundur segist vera helst á sviði tilraunakenndra tónsmíða, þótt
oft séu hefðbundin hljóðfæri notuð í bland við fundna hluti og rafhljóð en nót-
urnar eru oft hreyfinótur á tölvuskjá, þ.e. einhver stafræn miðlun í nótna-
gerðinni sem aðrir í Slátri hafa einnig verið að vinna með. „Í fyrrakvöld var
ég með tónleika á Myrkum músíkdögum og ég var að koma úr upptökum um
helgina með Caput-hópnum og það kemur vonandi út. Svo er fyrirhugað tón-
leikahald í haust og útgáfa á plötu með Steinöldu.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Guðmundar er Katelin Marit Parsons, doktor í
íslenskum bókmenntum, f. 1985 og þau eiga soninn Þorlák Benjamín, f. 2015.
Foreldrar Guðmundar eru Gunnar Hjalti Guðmundsson ráðgjafi, f. 1949 og
Elín Konráðsdóttir þýðandi, f. 1951. Þau búa í Reykjavík.
Guðmundur Steinn Gunnarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þér finnst hlutirnir ekki ganga
nógu hratt fyrir sig og getur aðeins sjálfum
þér um kennt. Ekki taka að þér fleiri verk-
efni.
20. apríl - 20. maí +
Naut Sýndu sérstaka aðgæslu í fjár-
málum, ekki veitir af. Þú ert uppfull/ur af
hugmyndum og ættir að reyna að koma
einhverjum af þeim í framkvæmd.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Nú er komið að því að vinur þinn
verður að endurgjalda þér greiða. Áhuga-
mál þín taka of mikinn tíma frá fjölskyld-
unni. Allt er gott í hófi.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Að stinga höfðinu í sandinn flækir
málin bara enn frekar þegar til lengri tíma
er litið. Taktu þér tak í peningamálunum.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Ýmis tækifæri standa þér opin og það
er erfitt að velja. Bíðið átekta og sjáið
hvernig hlutirnir þróast, ekkert liggur á.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Á vissum augnablikum getur verið
rétt að aðhafast ekkert. Þig þyrstir í sól og
sumar, þú gætir skellt þér í stutta ferð út
fyrir landsteinana.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það eru ýmis tækifæri sem bíða þín.
Nú er ekki rétti tíminn til þess að breyta,
það myndi bara rugla þig í ríminu og raska
jafnvæginu sem þú hefur náð í lífi þínu.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú þarft ekki að draga þig í
hlé, þótt skoðanir þínar fari ekki saman við
álit annarra. Vendu þig á að svara skila-
boðum strax.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú lætur of oft reka á reið-
anum. Reyndu að fá yfirsýn yfir verkefnin
sem eru fram undan. Það verður fjölgun í
fjölskyldunni á árinu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Nú þarftu að taka á honum
stóra þínum. Þú færð vissan hlut á silf-
urfati, ekki gleyma að þakka fyrir það sem
þú átt og hefur.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú munt hugsanlega segja eitt-
hvað, sem þú munt sjá eftir. Láttu að-
stæður ekki leiða þig út í hluti sem þér eru
á móti skapi.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú þarft að læra að fara með það
vald sem þér er fengið. Þú sérð ekki sólina
fyrir börnunum þínum. Einhver reynir að
troða þér um tær.
bætir því við að prentiðnin sé hverf-
andi grein og það séu varla nokkrir
prentarar útskrifaðir í dag. „En ef
þú ert klár á tölvu er auðvelt að læra
að prenta á þessar nýju stafrænu
vélar.“
Það er ekki skrýtið að prentari
skuli ekki kunna neitt of vel við raf-
ræna miðla. „Ég er alveg eyðilagður
maður ef ég fæ ekki Moggann á
morgnana og er ekki einn af þeim
sem vill horfa á fréttir í tölvunni. Ég
vil bara hafa blaðið fyrir framan mig
og fá minn kaffibolla, og finnst skrýt-
ið þegar ég er í útlöndum að geta
ekki flett blaðinu á morgnana.“
Georg kynntist Hrafnhildi konu
sinni ungur. „Við kynntumst í skíða-
deild Ármanns uppi í Jósefsdal, en
þar var mikil skíðamenning og mikið
fjör. Þarna fór fólk oft um og dvaldi í
skálanum alla páskana. Þá þurfti að
ganga frá Litlu Kaffistofunni og upp
þeir fara að þroskast, svo fyrirtækið
er mikið fjölskyldufyrirtæki og við
Hrafnhildur konan mín vinnum þar
enn í fullu starfi.“ Hann segir ekkert
hafa verið erfitt að sleppa stjórnar-
taumunum og fara að vinna á gólfinu.
„Það fer enginn kúnni að tala við 75
ára gamlan mann, nema það sé til að
rifja upp gamla tíma,“ segir hann og
hlær og segist hafa verið bara feginn
að losna við allt það umstang sem
fylgir stjórnuninni. „Við keyptum
Miðaprent fyrir tíu árum síðan og
synirnir reka bæði fyrirtækin, Birgir
Már rekur Miðaprent og Helgi Valur
rekur Litlaprent.“
Georg segir ansi mikið hafa breyst
í prentiðninni á hans ævi. „Þegar við
byrjuðum var allt prentað í blýi og
svo tók offset-prentunin við og núna
er mikið prentað á stafrænum vélum.
Hún er liðin sú tíð að maður sé með
prentsvertuna á höndunum,“ segir
hann og hlær. „Við vorum að kaupa
nýja stafræna vél í Miðaprent og hún
er eiginlega eins og risastór ljósrit-
unarvél og er mjög öflug.“ Hann
G
eorg Guðjónsson Long
fæddist í Reykjavík 3.
mars 1947. „Ég ólst upp
á Kirkjuteigi og fluttist
á Álfhólsveg 52 þar sem
ég átti heima öll árin upp frá því. Ég
gekk í barnaskólann í Kópavogi og
svo fór ég í Digranesskóla í gagn-
fræðaskóla.“ Georg var í sveit fimm
sumur austur á Fljótsdalshéraði, á
Birnufelli í Fellahreppi hjá fjar-
skyldum ættingjum. „Það var mikið
að gera á bænum og ekkert sunnu-
dagsfrí, en þarna lærði ég að vinna.“
Þegar kom að því að líta til fram-
tíðar ákvað Georg að feta í fótspor
föður síns. „Faðir minn, Guðjón
Long, var byrjaður að reka litla
prentsmiðju, sem hann kallaði Litla-
prent, og mér fannt það bara góð til-
hugsun að læra prentiðnina. Ég
lærði hjá Ísafoldarprentsmiðju og
vann þar alveg í 5-6 ár áður en ég fór
yfir í prentsmiðjuna til pabba.“
Í kringum 1970 kaupir Georg föð-
ur sinn út úr prentsmiðjunni. „Svo
koma synir okkar inn í þetta þegar
í Jósefsdalinn. Ég segi að þessi
skíðadeild í Jósefsdalnum hafi verið
bara mjög góð hjónamiðlun. Við
Hrafnhildur vorum t.d. ekkert að
skemmta okkur niðri í Reykjavík, en
fórum allar helgar á skíði og þar
kviknaði ástin.“
Fjölskyldan vinnur öll saman í fyr-
irtækjunum tveimur og hefur gert
lengi. „Hrafnhildur rak nú heildsölu
þegar strákarnir voru litlir, en hún
er búin að vera í fyrirtækinu okkar
núna í 30 ár.“
Georg segir að þau hjónin hafi allt-
af verið mikið fyrir útivist og ferðast
mikið um allt landið. „Við þekkjum
orðið nánast hverja þúfu,“ segir hann
hress. „Eftir að við minnkuðum að-
eins skíðaíþróttina fórum við að fara
á vélsleða með stórum vinahópi, sem
var gífurlega gaman. Við höfum farið
upp á nánast alla jökla landsins og
ekki má gleyma Hornbjargsvita, en
Georg Guðjónsson Long prentari – 75 ára
Snæfellsnes Georg með afabarnið Inga Hrafn.
„Hætti ekkert
að vinna nema
ég verði rekinn“
Fjölskyldan F.v. Georg, Ingi Hrafn, Sólveig, Hrafnildur, Hrafnhildur,
Ásgeir Már, Helgi Valur og Birgir Már í Flachau í Austurríki.
Hjónin Georg og Hrafnhildur eru mikið fyrir útivist og síðustu árin hafa þau stundað golf.
Til hamingju með daginn
- meira fyrir áskrifendur
Lestumeira
með vikupassa!
Fyrir aðeins 2.090 kr. færð þú netaðgang
að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga.
- Fréttir
- Ritstjórnargreinar
- Menning
- Íþróttir
- Daglegt líf
- Viðskipti
- Fastir þættir
- Aðsendar greinar
- Aukablöð
- Viðtöl
- Minningargreinar
- Umræðan
Vikupassi er auðveldari
leið til að lesaMorgunblaðið
á netinu.
Fáðu þér vikupassa af
netútgáfu Morgunblaðsins.