Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 65
DÆGRADVÖL 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
...algjör snilld! Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Engar flæ
kjur
Ekkert v
esen
Ómissandi í eldhúsið
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni og Húsasmiðjunni
www.danco.is
Heildsöludreifing
„TAKTU NÚ FÓTINN AF
BENSÍNGJÖFINNI, KONA. EKKI VILTU
FÁ HRAÐASEKT?“
„EF ÞÚ ENDILEGA VILT VITA ÞAÐ, ÞÁ ÞOLI
ÉG EKKI AÐ FÁ SÁPU Í AUGUN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að elska réttinn og
kokkinn.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÁÁÁÁI!!
Á!
Á!
TÆR… AÐFERÐ
NÁTTÚRUNNAR
TIL AÐ FINNA
HORN
HÚSGAGNA
RÓLEGUR! HÆTTU AÐ TROÐA
FORRÉTTUNUM Í VASANN!
ÞÚ VERÐUR AÐ HAFA PLÁSS
FYRIR EFTIRRÉTTINA!
við höfum farið margar ferðir þangað
á sleðum. Svo fórum við líka mikið á
húsbíl upp á hálendið, svo við höfum
farið ansi víða á landinu okkar
fagra.“
Georg og Hrafnhildur eru í
tveggja vikna fríi á eyju fyrir utan
Tenerife og eru að spila golf. „Við
byrjuðum í golfinu fyrir nokkuð
mörgum árum og kunnum vel við
það. Það var búið að vera svo mikið
að gera hjá okkur í vinnunni að við
ákváðum að taka okkur þetta frí og
fá smá pásu.“ Þegar Georg er spurð-
ur hvort ekkert standi til að setjast í
helgan stein segir hann: „Ég hætti
ekkert að vinna, nema ég verði rek-
inn,“ og skellir upp úr. „Ég sé ekkert
að því að vinna ef maður er við góða
heilsu.“
Fjölskylda
Eiginkona Georgs er Hrafnhildur
Helgadóttir fjármálastjóri, f. 3.2.
1947. Foreldrar hennar eru hjónin
Helgi Filippusson, stórkaupmaður
og forstjóri, f. 14.9. 1919, d. 16.3.
1982, og Sigríður Einarsdóttir, versl-
unarkona og heildsali, f. 17.9. 1922, d.
12.9. 2007. Þau bjuggu í Reykjavík.
Synir Georgs og Hrafnhildar eru 1)
Birgir Már, f. 15.5. 1971, kvæntur
Sólveigu Ásgeirsdóttur, f. 12.3. 1973,
og þau eiga synina Ásgeir Má, f.
1998, og Inga Hrafn, f. 2008. 2) Helgi
Valur, f. 13.10. 1974. Hann á dótt-
urina Hrafnhildi Emilíu, f. 2005, frá
fyrra sambandi og er í sambúð með
Hörpu Hrönn Gunnarsdóttur, f. 6.1.
1976, sem á dótturina Gabríelu Ósk,
f. 2007. Systkini Georgs eru 1) Jón-
ína Sigurbjörg Guðjónsdóttir Long,
f. 11.6. 1932, og Sigurður Richard
Guðjónsson, f. 16.6. 1933.
Foreldrar Georgs eru hjónin Guð-
jón Einarsson Long prentari, f. 21.2.
1905, d. 12.11. 2003, og Sigurbjörg
Ingunn Guðmundsdóttir húsfreyja, f.
8.9. 1906, d. 26.3. 2002. Þau bjuggu í
Kópavogi.
Georg
Guðjónsson
Long
Sigríður Þórðardóttir
húsfreyja í Reykjavík
Þórður Jónsson
vinnumaður í Reykjavík
Sigurlaug Þórðardóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðmundur Guðmundsson
trésmiður í Reykjavík
Sigurbjörg Ingunn
Guðmundsdóttir
húsfreyja í Kópavogi
Sæunn Jónsdóttir
vinnukona víða í Eyjafirði og síðast
í Syðri-Brekkum í Skagafirði
Guðmundur Guðlaugsson
bóndi á Hamri í Hegranesi
Solveig Oddsdóttir
húsfreyja á Setbergi í Fellum, N-Múl.
Jón Bjarnason
bóndi á Setbergi í Fellum, N-Múl.
Jónína Guðlaug Jónsdóttir
húsfreyja á Seyðisfirði
Einar Páll Jóhannsson Long
kolafgreiðslumaður og verkstjóri
á Seyðisfirði, síðar í Rvk.
Jóhanna Jóhannesdóttir
húsfreyja á Seyðisfirði og
síðar í Vestm.eyjum
Jóhann Matthíasson Long
verkamaður á Seyðisfirði
Ætt Georgs Guðjónssonar Long
Guðjón Einarsson Long
prentari og stofnandi
Litlaprents í Kópavogi
Pétur Stefánsson laumaði að mér
þessari vísu um hvimleiðan
snjóaþungan vetur nú eftir áramót:
Herðir kló um heimsins jörð,
hrylling þróað getur.
Hylur móa, heiðar, börð,
harður snjóavetur.
Ármann Þorgrímsson um „covid“
á Boðnarmiði:
Þennan herjans hamar klíf
haltur, gengur vel að míga
en mér var ætlað lengra líf
læt því hvergi undan síga.
Hestavísur eiga alltaf vel við.
Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir:
Eykur fljótur fiman gang
for og grjóti þeytir.
Yfir hnjótur vítt um vang
vökrum fótum beitir.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
svarar:
Það er frekar vanda val ,
vel þó skapi kæti.
Fótum ekki skeika skal,
þó skafl sé undir fæti.
Yfir skaflinn skal þá reist,
Skyggir á þolraun manna.
Flestir vinna, vel þú veist,
þú verður þetta að sanna.
Broddi B. Bjarnason yrkir:
Einn er sá sem mannúð mélar,
markar dauða hel og sorgir.
Hans djöfullegu voðavélar,
vaða yfir lönd og borgir.
Óða hunda á að fanga,
aldrei mega lausir ganga.
Þorgeir Magnússon um „Tíð-
indi“:
Helst til frétta hefur þótt
hvað henti úti í Kænugarði
er morðvargur um miðja nótt,
maður frá Kreml, að dyrum barði.
Í inngangi að bók sinni „Fyrsta
Davíðsbók“ segir höfundur: „Ekki
er hægt að sækja höfund limru til
ábyrgðar efnis hennar og undir
hælinn lagt hvort hann sjálfur skil-
ur efnið til hlítar. Þeir sem yrkja
limrur eru því oft vandræðamenn.“
Ég er tenór sem falsetta tálmar,
tígur sem breimar og mjálmar,
vatni fyllt sáld
vandræðaskáld
en heiti þó Davíð og Hjálmar.
Hrólfur Sveinsson kvað:
Hallvarður vill ná háttum
til Höllu; þó löngum sé fátt um
ástir og kjass,
þá er þetta skass
hreint afbragð í stórum dráttum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hvimleiður snjóavetur
og hestavísur