Morgunblaðið - 03.03.2022, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 03.03.2022, Qupperneq 65
DÆGRADVÖL 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 ...algjör snilld! Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma • Klippir plastfilmur og ál • 35% sparnaður • Ódýrari áfyllingar • Má setja í uppþvottavél Engar flæ kjur Ekkert v esen Ómissandi í eldhúsið Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni og Húsasmiðjunni www.danco.is Heildsöludreifing „TAKTU NÚ FÓTINN AF BENSÍNGJÖFINNI, KONA. EKKI VILTU FÁ HRAÐASEKT?“ „EF ÞÚ ENDILEGA VILT VITA ÞAÐ, ÞÁ ÞOLI ÉG EKKI AÐ FÁ SÁPU Í AUGUN.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að elska réttinn og kokkinn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÁÁÁÁI!! Á! Á! TÆR… AÐFERÐ NÁTTÚRUNNAR TIL AÐ FINNA HORN HÚSGAGNA RÓLEGUR! HÆTTU AÐ TROÐA FORRÉTTUNUM Í VASANN! ÞÚ VERÐUR AÐ HAFA PLÁSS FYRIR EFTIRRÉTTINA! við höfum farið margar ferðir þangað á sleðum. Svo fórum við líka mikið á húsbíl upp á hálendið, svo við höfum farið ansi víða á landinu okkar fagra.“ Georg og Hrafnhildur eru í tveggja vikna fríi á eyju fyrir utan Tenerife og eru að spila golf. „Við byrjuðum í golfinu fyrir nokkuð mörgum árum og kunnum vel við það. Það var búið að vera svo mikið að gera hjá okkur í vinnunni að við ákváðum að taka okkur þetta frí og fá smá pásu.“ Þegar Georg er spurð- ur hvort ekkert standi til að setjast í helgan stein segir hann: „Ég hætti ekkert að vinna, nema ég verði rek- inn,“ og skellir upp úr. „Ég sé ekkert að því að vinna ef maður er við góða heilsu.“ Fjölskylda Eiginkona Georgs er Hrafnhildur Helgadóttir fjármálastjóri, f. 3.2. 1947. Foreldrar hennar eru hjónin Helgi Filippusson, stórkaupmaður og forstjóri, f. 14.9. 1919, d. 16.3. 1982, og Sigríður Einarsdóttir, versl- unarkona og heildsali, f. 17.9. 1922, d. 12.9. 2007. Þau bjuggu í Reykjavík. Synir Georgs og Hrafnhildar eru 1) Birgir Már, f. 15.5. 1971, kvæntur Sólveigu Ásgeirsdóttur, f. 12.3. 1973, og þau eiga synina Ásgeir Má, f. 1998, og Inga Hrafn, f. 2008. 2) Helgi Valur, f. 13.10. 1974. Hann á dótt- urina Hrafnhildi Emilíu, f. 2005, frá fyrra sambandi og er í sambúð með Hörpu Hrönn Gunnarsdóttur, f. 6.1. 1976, sem á dótturina Gabríelu Ósk, f. 2007. Systkini Georgs eru 1) Jón- ína Sigurbjörg Guðjónsdóttir Long, f. 11.6. 1932, og Sigurður Richard Guðjónsson, f. 16.6. 1933. Foreldrar Georgs eru hjónin Guð- jón Einarsson Long prentari, f. 21.2. 1905, d. 12.11. 2003, og Sigurbjörg Ingunn Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 8.9. 1906, d. 26.3. 2002. Þau bjuggu í Kópavogi. Georg Guðjónsson Long Sigríður Þórðardóttir húsfreyja í Reykjavík Þórður Jónsson vinnumaður í Reykjavík Sigurlaug Þórðardóttir húsfreyja í Reykjavík Guðmundur Guðmundsson trésmiður í Reykjavík Sigurbjörg Ingunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Kópavogi Sæunn Jónsdóttir vinnukona víða í Eyjafirði og síðast í Syðri-Brekkum í Skagafirði Guðmundur Guðlaugsson bóndi á Hamri í Hegranesi Solveig Oddsdóttir húsfreyja á Setbergi í Fellum, N-Múl. Jón Bjarnason bóndi á Setbergi í Fellum, N-Múl. Jónína Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja á Seyðisfirði Einar Páll Jóhannsson Long kolafgreiðslumaður og verkstjóri á Seyðisfirði, síðar í Rvk. Jóhanna Jóhannesdóttir húsfreyja á Seyðisfirði og síðar í Vestm.eyjum Jóhann Matthíasson Long verkamaður á Seyðisfirði Ætt Georgs Guðjónssonar Long Guðjón Einarsson Long prentari og stofnandi Litlaprents í Kópavogi Pétur Stefánsson laumaði að mér þessari vísu um hvimleiðan snjóaþungan vetur nú eftir áramót: Herðir kló um heimsins jörð, hrylling þróað getur. Hylur móa, heiðar, börð, harður snjóavetur. Ármann Þorgrímsson um „covid“ á Boðnarmiði: Þennan herjans hamar klíf haltur, gengur vel að míga en mér var ætlað lengra líf læt því hvergi undan síga. Hestavísur eiga alltaf vel við. Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir: Eykur fljótur fiman gang for og grjóti þeytir. Yfir hnjótur vítt um vang vökrum fótum beitir. Kristjana Sigríður Vagnsdóttir svarar: Það er frekar vanda val , vel þó skapi kæti. Fótum ekki skeika skal, þó skafl sé undir fæti. Yfir skaflinn skal þá reist, Skyggir á þolraun manna. Flestir vinna, vel þú veist, þú verður þetta að sanna. Broddi B. Bjarnason yrkir: Einn er sá sem mannúð mélar, markar dauða hel og sorgir. Hans djöfullegu voðavélar, vaða yfir lönd og borgir. Óða hunda á að fanga, aldrei mega lausir ganga. Þorgeir Magnússon um „Tíð- indi“: Helst til frétta hefur þótt hvað henti úti í Kænugarði er morðvargur um miðja nótt, maður frá Kreml, að dyrum barði. Í inngangi að bók sinni „Fyrsta Davíðsbók“ segir höfundur: „Ekki er hægt að sækja höfund limru til ábyrgðar efnis hennar og undir hælinn lagt hvort hann sjálfur skil- ur efnið til hlítar. Þeir sem yrkja limrur eru því oft vandræðamenn.“ Ég er tenór sem falsetta tálmar, tígur sem breimar og mjálmar, vatni fyllt sáld vandræðaskáld en heiti þó Davíð og Hjálmar. Hrólfur Sveinsson kvað: Hallvarður vill ná háttum til Höllu; þó löngum sé fátt um ástir og kjass, þá er þetta skass hreint afbragð í stórum dráttum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hvimleiður snjóavetur og hestavísur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.