Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 66

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 66
66 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Lengjubikar karla A-deild, riðill 1: HK – Valur................................................ 0:2 A-deild, riðill 3: Keflavík – Afturelding ............................. 5:0 A-deild, riðill 4: Fylkir – KA............................................... 2:2 Lengjubikar kvenna A-deild, riðill 2 Keflavík – Afturelding........................... (1:0) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. England FA-bikarinn, 16-liða úrslit: Luton – Chelsea........................................ 2:3 Southampton – West Ham .......................3:1 Liverpool – Norwich.............................. (2:0) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Þýskaland Bikarkeppni, 8-liða úrslit: Wolfsburg – Sand..................................... 7:0 - Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn á hjá Wolfsburg á 69. mínútu. Ítalía B-deild: Lecce – Ascoli........................................... 2:1 - Þórir Jóhann Helgason lék fyrstu 81 mínútuna með Lecce en Davíð Snær Jó- hannsson var ekki í hópnum. Pisa – Crotone.......................................... 3:2 - Hjörtur Hermannsson lék seinni hálf- leikinn með Pisa. SPAL – Cittadella.................................... 0:0 - Mikael Egill Ellertsson lék ekki með SPAL vegna meiðsla. Rússland Bikarkeppni, 16-liða úrslit: Sotsjí – CSKA Moskva............................. 1:2 - Hörður Björgvin Magnússon var allan tímann á bekknum hjá CSKA Moskvu. Rúmenía Voluntari – CFR Cluj .............................. 0:1 - Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik- mannahópi Cluj. Grikkland AEK Aþena – PAOK ............................... 1:1 - Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. Olympiacos – Asteras Tripolis............... 5:1 - Ögmundur Kristinsson var varamark- vörður Olympiacos. Katar Al-Arabi – Al-Gharafa ............................ 3:2 - Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. >;(//24)3;( Subway-deild kvenna Fjölnir – Njarðvík ................................ 80:76 Grindavík – Breiðablik......................... 80:76 Haukar – Keflavík ............................. (34:30) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Staðan fyrir leik Hauka og Keflavíkur: Fjölnir 20 14 6 1666:1553 28 Valur 19 13 6 1464:1354 26 Njarðvík 20 13 7 1368:1308 26 Haukar 18 11 7 1406:1268 22 Keflavík 18 7 11 1385:1379 14 Breiðablik 20 5 15 1446:1635 10 Grindavík 19 4 15 1317:1555 8 1. deild karla Haukar – Hrunamenn........................ 119:71 Staðan: Haukar 22 20 2 2295:1759 40 Höttur 21 18 3 2121:1757 36 Álftanes 22 14 8 2088:1885 28 Fjölnir 22 12 10 2076:2088 24 Sindri 20 11 9 1885:1757 22 Selfoss 21 11 10 1833:1847 22 Skallagrímur 22 9 13 1860:1986 18 Hrunamenn 21 7 14 1842:2072 14 Hamar 20 3 17 1570:1917 6 ÍA 21 1 20 1566:2068 2 1. deild kvenna Fjölnir B – Snæfell ............................ (22:30) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gær. >73G,&:=/D HANDKNATTLEIKUR Olís-deild karla: Vestmannaeyjar: ÍBV – Fram ................. 18 Kórinn: HK – Haukar .......................... 19:30 Seltjarnarnes: Grótta – Selfoss............19:30 Víkin: Víkingur R. – Afturelding .........19:30 Hlíðarendi: Valur – Stjarnan ....................20 KÖRFUKNATTLEIKUR Subway-deild karla: Smárinn: Breiðablik – Njarðvík.......... 19:30 KNATTSPYRNA Lengjubikar karla, A-deild: Selfoss: Selfoss – Grindavík ......................18 Leiknisvöllur: Leiknir R. – KR.................19 Í KVÖLD! EM 2022 Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslenska kvennalandsliðið í hand- bolta mátti þola naumt 29:30-tap á útivelli gegn Tyrklandi í undan- keppni Evrópumótsins í gær. Ísland var yfir nánast allan leikinn en Tyrk- land skoraði tvö síðustu mörkin og komst yfir í fyrsta og eina skiptið í stöðunni 30:29. Ísland byrjaði betur og náði mest fimm marka forystu í fyrri hálfleik, 11:6. Tyrkir svöruðu með fjórum mörkum í röð og var leikurinn jafn og spennandi eftir það. Ísland fékk nokkur tækifæri til að koma sér í ansi vænlega stöðu undir lokin en tókst ekki að sigra Tyrkina, sem héldu sér í leiknum og fögnuðu að lokum sigri. Bakslag eftir góðan sigur Úrslitin eru mikið bakslag fyrir ís- lenska liðið sem vann glæsilegan 23:21-heimasigur á Serbíu í október og kom sér í sterka stöðu í riðlinum fyrir vikið. Nú þarf Ísland hinsvegar helst að vinna Serbíu á gríðarlega erfiðum útivelli til að eiga möguleika á öðru af tveimur efstu sætunum og sæti á Evrópumótinu í Slóveníu, Norður-Makedóníu og Svartfjalla- landi í nóvember. Lovísa Thompson var atkvæða- mest hjá íslenska liðinu og skoraði sjö mörk á meðan Þórey Rósa Stef- ánsdóttir og Rut Jónsdóttir gerðu fjögur hvor. Þar á eftir voru Thea Imani Sturludóttir og Harpa Valey Gylfadóttir með þrjú hvor. Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti fínan leik í markinu og varði 11 skot en það dugði ekki til. Íslenska liðinu hefur gengið afleit- lega á útivöllum í undankeppni Evr- ópumóta á undanförnum árum en síðasti útisigurinn í slíkri undan- keppni kom árið 2014 í Finnlandi. Biðin eftir útisigri í undankeppni Evrópumóts lengist því enn frekar, þrátt fyrir að hafa verið í dauðafæri í Tyrklandi. Tyrkneska liðið fékk mikinn stuðning í höllinni í gær, sem gaf því aukinn kraft á lokakaflanum. Mætast aftur á sunnudag Næsta skref hjá Íslandi er að hefna ófaranna í Tyrklandi því liðin mætast aftur á sunnudag á Ásvöll- um. Þar er sigur nauðsynlegur upp á framhaldið í riðlinum. Þá verður ís- lenska liðið að fá álíka stuðning frá sínu stuðningsfólki. Svíþjóð virðist vera með sterkasta liðið í riðlinum en Serbía, Tyrkland og Ísland berjast enn um annað sæt- ið. Ætli Ísland sér að ná því verður liðið að fara meiri krókaleið eftir leikinn í gær. Svíþjóð og Serbía mætast í Serbíu í dag klukkan 17 og getur Serbía jafnað Svíþjóð á toppi riðilsins með fjögur stig. Svíþjóð fer hins vegar langt með að tryggja sér sigur í riðlinum með sigri og verða Serbía, Ísland og Tyrkland þá öll með tvö stig og Svíþjóð sex. Biðin eftir úti- sigri lengist - Ísland lenti einu sinni undir og tapaði Ljósmynd/Óttar Geirsson Línumaður Hildigunnur Einarsdóttir var í stóru hlutverki hjá íslenska landsliðinu í gær í Tyrklandi. Í miðri vörninni og á línunni í sókn. Rússneski auðkýfingurinn Roman Abramovich hefur ákveðið að selja enska knattspyrnufélagið Chelsea. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem fé- lagið sendi frá sér í gær. Ástæða sölunnar er innrás Rússa í Úkraínu. Rússinn, sem er nátengdur Vladimír Pútín Rússlandsforseta, hafði fyrr í vikunni tekið það fram að félagið væri ekki til sölu en hon- um hefur nú snúist hugur. Abramovich keypti Chelsea árið 2003 og hefur liðið verið í fremstu röð á Englandi og í Evrópu nánast alla tíð síðan. johanningi@mbl.is Eigendaskipti fram undan AFP Chelsea Roman Abramovich virðist reiðubúinn að selja félagið. Gömlu handboltastórveldin FH og Valur mætast í undanúrslitum Coca Cola-bikarkeppni karla í hand- knattleik á Ásvöllum síðar í mán- uðinum. FH var síðasta liðið til að tryggja sig inn í undanúrslitin og vann Þór í 8-liða úrslitum í gær á Akureyri. FH vann nokkuð öruggan sigur en Þór leikur í næstuefstu deild. FH var yfir 22:15 að loknum fyrri hálf- leik og sigraði 33:22. Einar Örn Sindrason var markahæstur hjá FH með 6 mörk en Aðalsteinn Berg- þórsson skoraði 8 fyrir Þór. Valsmenn og FH- ingar mætast Ljósmynd/Þórir Tryggvason Akureyri Einar Örn Sindrason skor- ar eitt sex marka sinna. Kastamonu Tyrklandi, undankeppni EM kvenna, miðvikudaginn 2. mars 2022. Gangur leiksins: 1:4, 4:7, 6:9, 9:11, 13:16, 15:16, 26:27, 20:21, 24:25, 25:27, 27:27, 30:29. Mörk Tyrklands: Asli Iskit 8, Fatma Kücükyilidiz 7/6, Nursah Sancak 3, Betül Yilmaz 3, Merve Özbolluk 2, Beyza Karacam 2, Nurceren Akgün Göktepe 1, Merve Durdu 1, Ceren Demircelen 1, Yeliz Özel 1, Beyza Irem Türkoglu 1. Varin skot: Merve Durdu 13/1. Tyrkland – Ísland 30:29 Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Íslands: Lovísa Thompson 7, Þórey Rósa Stefánsdóttir 4, Rut Jóns- dóttir 4/2, Thea Imani Sturludóttir 3, Harpa Valey Gylfadóttir 3, Unnur Óm- arsdóttir 2, Andrea Jacobsen 2, Sandra Erlingsdóttir 1/1, Sunna Jóns- dóttir 1, Díana Dögg Magnúsdóttir 1, Hildigunnur Einarsdóttir 1. Varin skot: Elín Jóna Þorsteinsdóttir 11, Hafdís Renötudóttir 1. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Ismailj Metalari og Nenad Nikolovski, Norður-Makedóníu. Romelu Lukaku kom Chelsea áfram í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu, FA-bikarnum, í gær- kvöldi. Evrópumeistararnir í Chelsea renndu út fyrir höfuðborg- ina og til Luton þar sem þeir mættu b-deildarliðinu Luton Town. Eftir erfiðan leik kom Belginn til skjalanna og skoraði sigurmarkið á 78. mínútu en Chelsea vann 3:2. Vafalítið kærkomið fyrir Lukaku sem hefur mátt þola nokkra gagn- rýni að undanförnu. Luton komst tvívegis yfir í leikn- um með mörkum frá Reece Burke á 2. mínútu og Harry Cornick á 40. mínútu. Saúl Níguez jafnaði fyrir Chelsea í millitíðinni og Timo Wer- ner jafnaði 2:2 á 68. mínútu. _ Úrslitin úr leik Liverpool og Norwich City er að finna á mbl.is/ sport/enski. AFP Luton Fyrirliðinn Danny Hylton með boltann gegn Chelsea í gær. Kærkomið sigurmark fyrir Romelu Lukaku Færeyski landsliðsmaðurinn Patrik Johannesen átti afar góðan leik fyr- ir Keflavík er liðið vann sannfær- andi 5:0-sigur á Aftureldingu í 3. riðli Lengjubikars karla í fótbolta í gær en leikið var í Keflavík. Ingimundur Aron Guðnason og Frans Elvarsson komu Keflavík í 2:0 í fyrri hálfleik og Johannesen bætti við þremur mörkum í seinni hálfleik og innsiglaði stórsigur. Keflavík er í þriðja sæti riðilsins með fjögur stig en Afturelding er á botninum með aðeins eitt stig. Í riðli 1 vann Valur 2:0-sigur á HK í Kórnum. Jesper Juelsgård, sem er nýkominn til Vals, skoraði fyrra markið á 17. mínútu og Guð- mundur Andri Tryggvason tryggði Valsmönnum tveggja marka sigur með marki á 69. mínútu. Valsmenn eru á toppi riðilsins með tíu stig en Víkingur úr Reykjavík er einu stigi á eftir og með tvo leiki til góða. HK er í fjórða sæti með þrjú stig. Þá gerðu Fylkir og KA 2:2- jafntefli á Würth-vellinum í Árbæn- um í riðli 4. Nikulás Val Gunn- arsson kom Fylki yfir á 40. mínútu með marki úr víti og Ragnar Bragi Sveinsson tvöfaldaði forskotið á 58. mínútu. Elfar Árni Aðalsteinsson minnkaði muninn fyrir KA á 72. mínútu og Nökkvi Þeyr Þórisson jafnaði á 75. mínútu úr víti. Liðin eru í tveimur efstu sætum riðilsins með átta stig, einu stigi meira en FH sem á leik til góða. Færeyingurinn skoraði þrennu í Keflavík Morgunblaðið/Eggert Kuldalegt Fylkismenn fagna marki gegn KA í Árbænum í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.