Morgunblaðið - 03.03.2022, Qupperneq 66
66 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
Lengjubikar karla
A-deild, riðill 1:
HK – Valur................................................ 0:2
A-deild, riðill 3:
Keflavík – Afturelding ............................. 5:0
A-deild, riðill 4:
Fylkir – KA............................................... 2:2
Lengjubikar kvenna
A-deild, riðill 2
Keflavík – Afturelding........................... (1:0)
_ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun.
England
FA-bikarinn, 16-liða úrslit:
Luton – Chelsea........................................ 2:3
Southampton – West Ham .......................3:1
Liverpool – Norwich.............................. (2:0)
_ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun.
Þýskaland
Bikarkeppni, 8-liða úrslit:
Wolfsburg – Sand..................................... 7:0
- Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn á hjá
Wolfsburg á 69. mínútu.
Ítalía
B-deild:
Lecce – Ascoli........................................... 2:1
- Þórir Jóhann Helgason lék fyrstu 81
mínútuna með Lecce en Davíð Snær Jó-
hannsson var ekki í hópnum.
Pisa – Crotone.......................................... 3:2
- Hjörtur Hermannsson lék seinni hálf-
leikinn með Pisa.
SPAL – Cittadella.................................... 0:0
- Mikael Egill Ellertsson lék ekki með
SPAL vegna meiðsla.
Rússland
Bikarkeppni, 16-liða úrslit:
Sotsjí – CSKA Moskva............................. 1:2
- Hörður Björgvin Magnússon var allan
tímann á bekknum hjá CSKA Moskvu.
Rúmenía
Voluntari – CFR Cluj .............................. 0:1
- Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Cluj.
Grikkland
AEK Aþena – PAOK ............................... 1:1
- Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Olympiacos – Asteras Tripolis............... 5:1
- Ögmundur Kristinsson var varamark-
vörður Olympiacos.
Katar
Al-Arabi – Al-Gharafa ............................ 3:2
- Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi.
>;(//24)3;(
Subway-deild kvenna
Fjölnir – Njarðvík ................................ 80:76
Grindavík – Breiðablik......................... 80:76
Haukar – Keflavík ............................. (34:30)
_ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun.
Staðan fyrir leik Hauka og Keflavíkur:
Fjölnir 20 14 6 1666:1553 28
Valur 19 13 6 1464:1354 26
Njarðvík 20 13 7 1368:1308 26
Haukar 18 11 7 1406:1268 22
Keflavík 18 7 11 1385:1379 14
Breiðablik 20 5 15 1446:1635 10
Grindavík 19 4 15 1317:1555 8
1. deild karla
Haukar – Hrunamenn........................ 119:71
Staðan:
Haukar 22 20 2 2295:1759 40
Höttur 21 18 3 2121:1757 36
Álftanes 22 14 8 2088:1885 28
Fjölnir 22 12 10 2076:2088 24
Sindri 20 11 9 1885:1757 22
Selfoss 21 11 10 1833:1847 22
Skallagrímur 22 9 13 1860:1986 18
Hrunamenn 21 7 14 1842:2072 14
Hamar 20 3 17 1570:1917 6
ÍA 21 1 20 1566:2068 2
1. deild kvenna
Fjölnir B – Snæfell ............................ (22:30)
_ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun í gær.
>73G,&:=/D
HANDKNATTLEIKUR
Olís-deild karla:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Fram ................. 18
Kórinn: HK – Haukar .......................... 19:30
Seltjarnarnes: Grótta – Selfoss............19:30
Víkin: Víkingur R. – Afturelding .........19:30
Hlíðarendi: Valur – Stjarnan ....................20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Subway-deild karla:
Smárinn: Breiðablik – Njarðvík.......... 19:30
KNATTSPYRNA
Lengjubikar karla, A-deild:
Selfoss: Selfoss – Grindavík ......................18
Leiknisvöllur: Leiknir R. – KR.................19
Í KVÖLD!
EM 2022
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
bolta mátti þola naumt 29:30-tap á
útivelli gegn Tyrklandi í undan-
keppni Evrópumótsins í gær. Ísland
var yfir nánast allan leikinn en Tyrk-
land skoraði tvö síðustu mörkin og
komst yfir í fyrsta og eina skiptið í
stöðunni 30:29. Ísland byrjaði betur
og náði mest fimm marka forystu í
fyrri hálfleik, 11:6. Tyrkir svöruðu
með fjórum mörkum í röð og var
leikurinn jafn og spennandi eftir
það. Ísland fékk nokkur tækifæri til
að koma sér í ansi vænlega stöðu
undir lokin en tókst ekki að sigra
Tyrkina, sem héldu sér í leiknum og
fögnuðu að lokum sigri.
Bakslag eftir góðan sigur
Úrslitin eru mikið bakslag fyrir ís-
lenska liðið sem vann glæsilegan
23:21-heimasigur á Serbíu í október
og kom sér í sterka stöðu í riðlinum
fyrir vikið. Nú þarf Ísland hinsvegar
helst að vinna Serbíu á gríðarlega
erfiðum útivelli til að eiga möguleika
á öðru af tveimur efstu sætunum og
sæti á Evrópumótinu í Slóveníu,
Norður-Makedóníu og Svartfjalla-
landi í nóvember.
Lovísa Thompson var atkvæða-
mest hjá íslenska liðinu og skoraði
sjö mörk á meðan Þórey Rósa Stef-
ánsdóttir og Rut Jónsdóttir gerðu
fjögur hvor. Þar á eftir voru Thea
Imani Sturludóttir og Harpa Valey
Gylfadóttir með þrjú hvor. Elín Jóna
Þorsteinsdóttir átti fínan leik í
markinu og varði 11 skot en það
dugði ekki til.
Íslenska liðinu hefur gengið afleit-
lega á útivöllum í undankeppni Evr-
ópumóta á undanförnum árum en
síðasti útisigurinn í slíkri undan-
keppni kom árið 2014 í Finnlandi.
Biðin eftir útisigri í undankeppni
Evrópumóts lengist því enn frekar,
þrátt fyrir að hafa verið í dauðafæri í
Tyrklandi. Tyrkneska liðið fékk
mikinn stuðning í höllinni í gær, sem
gaf því aukinn kraft á lokakaflanum.
Mætast aftur á sunnudag
Næsta skref hjá Íslandi er að
hefna ófaranna í Tyrklandi því liðin
mætast aftur á sunnudag á Ásvöll-
um. Þar er sigur nauðsynlegur upp á
framhaldið í riðlinum. Þá verður ís-
lenska liðið að fá álíka stuðning frá
sínu stuðningsfólki.
Svíþjóð virðist vera með sterkasta
liðið í riðlinum en Serbía, Tyrkland
og Ísland berjast enn um annað sæt-
ið. Ætli Ísland sér að ná því verður
liðið að fara meiri krókaleið eftir
leikinn í gær. Svíþjóð og Serbía
mætast í Serbíu í dag klukkan 17 og
getur Serbía jafnað Svíþjóð á toppi
riðilsins með fjögur stig. Svíþjóð fer
hins vegar langt með að tryggja sér
sigur í riðlinum með sigri og verða
Serbía, Ísland og Tyrkland þá öll
með tvö stig og Svíþjóð sex.
Biðin eftir úti-
sigri lengist
- Ísland lenti einu sinni undir og tapaði
Ljósmynd/Óttar Geirsson
Línumaður Hildigunnur Einarsdóttir var í stóru hlutverki hjá íslenska
landsliðinu í gær í Tyrklandi. Í miðri vörninni og á línunni í sókn.
Rússneski auðkýfingurinn Roman
Abramovich hefur ákveðið að selja
enska knattspyrnufélagið Chelsea.
Þetta kom fram í yfirlýsingu sem fé-
lagið sendi frá sér í gær.
Ástæða sölunnar er innrás Rússa í
Úkraínu. Rússinn, sem er nátengdur
Vladimír Pútín Rússlandsforseta,
hafði fyrr í vikunni tekið það fram
að félagið væri ekki til sölu en hon-
um hefur nú snúist hugur.
Abramovich keypti Chelsea árið
2003 og hefur liðið verið í fremstu
röð á Englandi og í Evrópu nánast
alla tíð síðan. johanningi@mbl.is
Eigendaskipti
fram undan
AFP
Chelsea Roman Abramovich virðist
reiðubúinn að selja félagið.
Gömlu handboltastórveldin FH og
Valur mætast í undanúrslitum Coca
Cola-bikarkeppni karla í hand-
knattleik á Ásvöllum síðar í mán-
uðinum.
FH var síðasta liðið til að tryggja
sig inn í undanúrslitin og vann Þór í
8-liða úrslitum í gær á Akureyri.
FH vann nokkuð öruggan sigur en
Þór leikur í næstuefstu deild. FH
var yfir 22:15 að loknum fyrri hálf-
leik og sigraði 33:22. Einar Örn
Sindrason var markahæstur hjá FH
með 6 mörk en Aðalsteinn Berg-
þórsson skoraði 8 fyrir Þór.
Valsmenn og FH-
ingar mætast
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Akureyri Einar Örn Sindrason skor-
ar eitt sex marka sinna.
Kastamonu Tyrklandi, undankeppni
EM kvenna, miðvikudaginn 2. mars
2022.
Gangur leiksins: 1:4, 4:7, 6:9, 9:11,
13:16, 15:16, 26:27, 20:21, 24:25,
25:27, 27:27, 30:29.
Mörk Tyrklands: Asli Iskit 8, Fatma
Kücükyilidiz 7/6, Nursah Sancak 3,
Betül Yilmaz 3, Merve Özbolluk 2,
Beyza Karacam 2, Nurceren Akgün
Göktepe 1, Merve Durdu 1, Ceren
Demircelen 1, Yeliz Özel 1, Beyza Irem
Türkoglu 1.
Varin skot: Merve Durdu 13/1.
Tyrkland – Ísland 30:29
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Íslands: Lovísa Thompson 7,
Þórey Rósa Stefánsdóttir 4, Rut Jóns-
dóttir 4/2, Thea Imani Sturludóttir 3,
Harpa Valey Gylfadóttir 3, Unnur Óm-
arsdóttir 2, Andrea Jacobsen 2,
Sandra Erlingsdóttir 1/1, Sunna Jóns-
dóttir 1, Díana Dögg Magnúsdóttir 1,
Hildigunnur Einarsdóttir 1.
Varin skot: Elín Jóna Þorsteinsdóttir
11, Hafdís Renötudóttir 1.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Ismailj Metalari og Nenad
Nikolovski, Norður-Makedóníu.
Romelu Lukaku kom Chelsea
áfram í ensku bikarkeppninni í
knattspyrnu, FA-bikarnum, í gær-
kvöldi. Evrópumeistararnir í
Chelsea renndu út fyrir höfuðborg-
ina og til Luton þar sem þeir mættu
b-deildarliðinu Luton Town.
Eftir erfiðan leik kom Belginn til
skjalanna og skoraði sigurmarkið á
78. mínútu en Chelsea vann 3:2.
Vafalítið kærkomið fyrir Lukaku
sem hefur mátt þola nokkra gagn-
rýni að undanförnu.
Luton komst tvívegis yfir í leikn-
um með mörkum frá Reece Burke á
2. mínútu og Harry Cornick á 40.
mínútu. Saúl Níguez jafnaði fyrir
Chelsea í millitíðinni og Timo Wer-
ner jafnaði 2:2 á 68. mínútu.
_ Úrslitin úr leik Liverpool og
Norwich City er að finna á mbl.is/
sport/enski.
AFP
Luton Fyrirliðinn Danny Hylton með boltann gegn Chelsea í gær.
Kærkomið sigurmark
fyrir Romelu Lukaku
Færeyski landsliðsmaðurinn Patrik
Johannesen átti afar góðan leik fyr-
ir Keflavík er liðið vann sannfær-
andi 5:0-sigur á Aftureldingu í 3.
riðli Lengjubikars karla í fótbolta í
gær en leikið var í Keflavík.
Ingimundur Aron Guðnason og
Frans Elvarsson komu Keflavík í
2:0 í fyrri hálfleik og Johannesen
bætti við þremur mörkum í seinni
hálfleik og innsiglaði stórsigur.
Keflavík er í þriðja sæti riðilsins
með fjögur stig en Afturelding er á
botninum með aðeins eitt stig.
Í riðli 1 vann Valur 2:0-sigur á
HK í Kórnum. Jesper Juelsgård,
sem er nýkominn til Vals, skoraði
fyrra markið á 17. mínútu og Guð-
mundur Andri Tryggvason tryggði
Valsmönnum tveggja marka sigur
með marki á 69. mínútu. Valsmenn
eru á toppi riðilsins með tíu stig en
Víkingur úr Reykjavík er einu stigi
á eftir og með tvo leiki til góða. HK
er í fjórða sæti með þrjú stig.
Þá gerðu Fylkir og KA 2:2-
jafntefli á Würth-vellinum í Árbæn-
um í riðli 4. Nikulás Val Gunn-
arsson kom Fylki yfir á 40. mínútu
með marki úr víti og Ragnar Bragi
Sveinsson tvöfaldaði forskotið á 58.
mínútu. Elfar Árni Aðalsteinsson
minnkaði muninn fyrir KA á 72.
mínútu og Nökkvi Þeyr Þórisson
jafnaði á 75. mínútu úr víti.
Liðin eru í tveimur efstu sætum
riðilsins með átta stig, einu stigi
meira en FH sem á leik til góða.
Færeyingurinn skoraði
þrennu í Keflavík
Morgunblaðið/Eggert
Kuldalegt Fylkismenn fagna marki
gegn KA í Árbænum í gær.